Dagblaðið - 10.01.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR ÍO.JANÚAR 1979.
3
Haldið áf ram að
leggja okkur lið
í nafni mannúðar
og réttlætis:
Mig langar að byrja nýja árið með
því að þakka Baldvini Þ. Kristjánssyni
af heilum huga fyrir hinar skilnings-
ríku og skeleggu greinar, er hann
hefur ritað i blöðin um fyrirhugaða
sundlaugarbyggingu Sjálfsbjargar hér
að Hátúni 12. Betri undirtektir gat ég
naumast fengið, er ég reit grein mína
S.O.S., eða í nafni mannúðar og rétt-
lætis — leggið okkur lið — eins og
fyrirsögnin var orðuð í einu dagblað-
anna. Fjallaði sú grein um hina brýnu
nauðsyn þess, að hér verði hið fyrsta
byggð sú sund- og æfingalaug, sem
fyrir löngu átti að vera fullgjörð, en er
nú einungis steyptur grunnur.
Ennfremur þakka ég og af heilum
huga öðrum þeim, sem hafa lagt þessu
máli lið með ágætum og hvetjandi
blaðaskrifum. Vil ég sérstaklega
minna á orð Kr. Bj. i Morgunblaðinu
13. desember 1978, þar sem m.a. segir
svo: „Ég hef tvisvar lent I slysi og ekk-
ert hefur hjálpað mér eins að komast
inn i líflð aftur og þjálfun i sundlaug.”
Hér skal það tekið fram, að sund- og
æfingalaugar fyrir fatlað fólk þurfa að
vera með nokkuð öðru sniði en venju-
legar laugar. Laugin hér að Hátúni 12
þarf að vera yfirbyggð og með sérstök-
um útbúnaði og hitastigi fyrir vistfólk
hér og aðra fatlaða. Ágætur sjúkra-
þjálfari sagði mér sl. haust, að úti í
Noregi, þar sem hún nam sin fræði,
hefði fólk, sem lamað var upp að hálsi
af völdum slysa ellegar sjúkdóma,
getað róið sér áfram I vatni með höf-
uðhreyfmgunum einum saman,
máske búið kútum og öðrum hjálpar-
tækjum. Má nærri geta hvílík liðkun
og hvíld þetta var jafn farlama fólki.
Þetta var eina hreyfingin, sem slíkt
fólk gat gert af eigin rammleik.
Hér er slíkt fólk til ævidvalar, enda
er einmitt hér reynt eftir föngum að
búa þessu fólki þau skilyrði, sem því
hæfir. Hér er mikið af M S fólki (heila-
og mænusigg, sem veldur hægfara
lömun), nokkrir mjög illa farnir liða-
gigtarsjúklingar auk allavega mikið
fatlaðs fólks af völdum slysa ellegar
sjúkdóma. Svo sem ég hefi áður drepið
á þá eru slíkir sjúklingar einatt færir
um að gjöra margvíslegar og flóknar
æfingar í þar til gjörðri laug, æfingar
og jafnvel sund, sem bæði eflir, styrkir
og liðkar illa farna líkami auk þess að
draga einatt samhliða úr miklum og
langvinnum þjáningum. Ekkert getur
komið i stað vatnsins og þeirra mögu-
leika, sem það hefur upp á að bjóða.
Endurhæfingarlæknar og sjúkraþjálf-
arar á stöðum sem þessum þarfnast
ekki einungis lyfja, raftækjabúnaðar
og æfingaaðstöðu á þurru landi til að
nýta sina dýrmætu sérmenntun fötl-
uðum til endurhæfingar og heilsubót-
ar. Þeir þarfnast yfirbyggðrar sund- og
æfingalaugar með vissu hitastigi og
sérstakri aðstöðu og tækjabúnaði fyrir
sitt fólk.
Minnisstæð er mér sú sctning, sem
ég heyrði oftast allra af vörum sjúkl-
inganna úti í Hornbæk (en það er
danskt endurhæfingarhæli) árið 1964
— vatnið er best.
Nýlega kom til min sýslungi minn,
en hann hefur frá unga aldri verið
mjög veill I baki og fótum, en tekist að
halda sér vinnufærum með þvi að
stunda laugarnar. Þessi heiðursmaður
færði mér kr. 20.000 í sundlaugarsjóð
Sjálfsbjargar.
Á Þorláksmessu barst mér söfnun-
arlisti með kr. 433.500 frá framtaks-
sömum áhugamanni og velunnara
mér vensluðum. í dag barst mér bréf
frá Hrönn Huld og vinkonum hennar
litlum, sem safnað höfðu I sjóðinn kr.
5.000 með því að halda sina tombólu.
Mörgum fleiri upphæðum, stórum
og smáum, hefi ég persónulega veitt
móttöku I sjóðinn síðan blaðaskrif hóf-
ust um þessi mál. Vitanlega hafa stór
og smá framlög ýmissa aðila fyrst og
fremst verið send beint á skrifstofuna,
svo sem vera ber.
Allt þetta ber að þakka betur en orð
fá lýst og sýnir þetta að margir vilja
leggja okkur lið. Vona ég að svo verði
áfram, þvi að mikils þarf við.
Núverandi kostnaðaráætlun nemur
áttatíu og einni milljón króna, en í
sjóðnum eru nú kr. 3.832.000.- Sjóður-
inn hefur hvorki hlotið styrk frá ríki
Raddir
lesenda
né borg, svo það sem i honum er, er
einungis gjafafé.
Fyrir jól heyrði ég i útvarpsfréttum,
að Einar Ágústsson hefði lýst yfir
ánægju sinni á þingi með tuttugu
milljón króna ríkisstyrk veittan sund-
laugarbyggingu á Grensásdeild. Eru
það vissulega gleðitiðindi, að fyrirhug-
uð sundlaugarbygging þar skuli njóta
áframhaldandi rikisframlags og fagna
ég því. En á það má benda i allri hóg-
værð að hér er einnig þörf á öflugum
styrk.
Mikið væri nú gaman ef hann Pál
Heiðar og þá félaga dreymdi eitthvað
fallegt um laugina okkar, þegar þeir
njóta þeirrar hollustu að vera i „heita
pottinumӇ morgnana.
í Vísi las ég nýlega, að við íslend-
ingar eyðum á aðra. milljón króna i
flugelda og annan eldfagnað um ára-
mót. Einn vindlingapakki mun kosta á
sjötta hundrað krónur. Ef hundrað
þúsund manns gæfu sem svarar tæpu
kostnaðarverði eins vindlingapakka,
þá væru þar komnar yfir fimmtíu
milljónir króna. Svo mætti lengi
reikna, en hér ætla ég að láta staðar
numið, aðeins minna á það, að hingað
kemur að jafnaði verst farna fólkið
hvaðanæva af landinu til ævidvalar og
stöðugrar endurhæfingar, eftir því
sem rými og aðstæður leyfa.
Mig langar að geta þess, að enskar
mæðgur, er víða höfðu farið, komu
hér til mín síðastliðið sumar. Dáðust
þær mjög að öllu fyrirkomulagi hér og
aðbúnaði vistfólks, kváðust hvergi i
Englandi hafa séð svo fullkomið ör-
yrkjaheimili, aðeins eitt vakti þeim
mikla furðu og það var, að hér skyldi
vanta sundlaug.
Við ykkur góðir lesendur vil ég þvi
segja þetta að lokunv f nafni mannúð-
ar og jafnréttis haldið áfram að leggja
okkur lið með hvetjandi blaðaskrifum,
söfnunum á \ innustöðum og viðar.
Verið þess minnugir, að ef margar
hendur leggjast á eitt og brennandi
áhugi er að verki, má vinna stórvirki.
Með nýárskveðjum,
María Skagan.
P.S.
Enn skal á það bent, að framlögum til
sundlaugarsjóðsins er veitt móttaka i
skrifstofu Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra á fyrstu hæð að Hátúni
12.
Fatlaðir þjálfaðir I sundlaug. Maria Skagan segir enga þjálfun jafnast á við þessa.
NY SENDING
Teg. 138
Lhur: Beige leóur
Skinnfóðraðir
Leðursóli með
hrufóttum
slitsóla.
Stærðir 36—41.
Verðkr. 29.650.-
Hnéhá
Teg. 161
Litur: Beige, hvítt
leður
Skinnfóðraðir
og með leðursóla
Stærðir36—41
Verðkr. 29.650.-
Hnéhá
Teg. 137
Litur: Burgandy
brúntleður
Leðursóli með
hrufóttum
slhsóla
Stærðir 36—41
Verðkr. 29.650.-
Hnéhá
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll—Sími 14181—Póstsendum
Spurning
dagsins
Hvernig fannst þér
íslendingar standa
sig í landsleikjunum
við Pólverja í hand-
knattleik?
Marteinn Jóhannesson: Ég sá seinni
leikinn og fannst mér hann nokkuð
góður. Að visu tel ég að íslendingar hafi
verið heppnir að ná jafntefli. Bezti
maður liðsins fannst mér vera Jón Pétur
Jónsson. Hann átti mjög góðan leik.
Sólveig Baldursdóttir: Ég sá báða leikina
i sjónvarpinu. Mér fannst lslendingar
standa sig mjög vel i seinni leiknum en
hefðu getað staðið sig betur í þeim fyrri.
Sigurður Gunnarsson: Ég sá ekki þessa
leiki og veit ekki hvernig þeir fóru. Ég
fylgist ekki svo með þessu.
Reglna Svavarsdóttir: Þeir eru alveg
ágætir. Ég sá lokakaflann I seinni leikn-
um í sjónvarpinu og mér fannst þeir
standa sig alveg ágætlega.
Sigriður Þorláksdóttir: Maður er alltaf
ánægður þegar þeir standa sig vel. Eftir
þvi sem ég hef frétt var fyrri leikurinn
ekki nógu góður.
Guðmundur Helgi Finnbjarnarson: Mér
fannst þeir bara standa sig vel. Ég sá
seinni hálfleikinn í seinni leiknum I sjón-
varpinu og fannst mér hann mjög góður.
Jón Pétur var bezti maðurinn.