Dagblaðið - 10.01.1979, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR ÍO.JANÚAR 1979.
Kappskuröarvél
óskast til kaups.
Upplýsingar í síma 93-7192.
ÚTBOÐ
Óskum eftir tilboði í hitaofna fyrir níu hæða
sambýlishús BSAB í Mjódd við Stekkjarbakka
samkvæmt ofnaskrá er vitja má á skrifstofu
BSAB að Síðumúla 34. Tilboð verða opnuð á
sama stað þriðjudaginn 16. jan. 1979 kl. 17.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Styrkur til háskólanáms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa lslendingi til háskólanáms í
Sviþjóð háskólaárið 1979—80. Styrkurinn miðast við átta mánaða
námsdvöl og nemur styrkfjárhæð s.kr. 1.960 á mánuði. Til greina
kemur að skipta styrknum ef henta þykir.
Umsóknum um styrk þennan skal komið til nienntamálaráðuneytis-
ins, Hverfisgötu 6 Reykjavík, fyrir 15. febrúar nk. og fylgi staðfest af-
rit prófskírteina ásamt meðmælum. — Sérstök umsóknareyðublöð
fást i ráðuneytinu. Manntamálaröðuneytifl,
4. janúar 1979.
RITARI óskast til starfa. Umsóknir sendist ráðuneyt- inu fyrir 20. janúar nk. t/iðskiptaráðuneytið, 4. jan. 1979.
Nýr umboðsmaður Dagblaðsins er
Árni Elísson,
Túngötu 5, sími 97-4265.
HMEBIABa
Til sölu sem nýtt orgel verð 1.500.000.-
greiðsluskilniálar. Einnig Vilson Orgel með
skemmtara og trommuheila, verð 550.000,-
Upplýsingar í síma 85989.
NewYork:
Waldheim á popp-
hátíö og prínshm
máttibíöa
— heimsf rægar poppstjörnur skemmtu á hinni f ormlegu
opnun barnaársins
Kurt Waldheim aðalritari og fleiri
yfirmenn Sameinuðu þjóðanna voru
svo uppteknir við að hlusta og horfa á
Thc Bee Gees, Rod Stewart, Donnu
Summer. Abba, Oliviu Newton-John,
Andy Gibb, Kris Kristoferson og
eiginkonu hans Ritu Coolidge í gær-
kvöldi að Sihanouk prins frá
Kambódíu varð að sætta sig við
lágtsetta móttökunefnd, þegar hann
kom til New York I gærkvöldi.
Waldheim aðalritari var ásamt þús-
undum annarra á tónleikum helztu
poppstjarna heims, sem haldnir voru í
húsakynnum Sameinuðu þjóðanna í
New York. Var þetta hin formlega
opnunarhátíð vegna hins alþjóðlega
barnaárs.
Ekki var annað að sjá en allir
skemmtu sér konunglega. Skemmti-
kraftarnir sem fram komu hafa allir
gefið Barnahjálparsjóði Sameinuðu
þjóðanna rétt sinn til allrar þóknunar
fyrir sérstaka söngva sem samdir hafa
veriðaðþessu tilefni.
Lagið Too Much Heaven, sem Bee
Gees flytja, mun nú vera í efsta sæti á
vinsældalistum í Bandaríkjunum. Er
það helgað Barnahjálpinni.
Sjötiu lönd hafa keypt réttinn til að
sýna kvikmynd af tónleikunum i sjón-
varpi en þeim verður varpað út um öll
Bandaríkin í kvöld.
Kynnir á hljómleikunum var sjón-
varpsstjarnan David Frost og sagðist
hann áætla að Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna mundi bera jafnvirði fjög-
urra milljarða íslenzkra króna úr
býtum vegna þessarra hljómleika og í
þóknun fyrir hin ýmsu lög.
Margrét Trudeau fyrrum eiginkona Pierre Trudeau forsætisráðherra Kanada leikur i kvikmyndinni The Guardian Angel,
sem frumsýnd var i Montreal fyrir nokkrum dögum. Þar fer hún með hlutverk eiginkonu riks iðnrekanda, sem heldur við
einkalögreglumann. Á myndinni hér að ofan er Margrét með franska leikaranum Francis Lemaire i einu atriði kvikmyndar-
innar.
Spánn:
Baskar saklausir
af dómaramoröi
íMadrid
—andfasistahreyf ingin GRAPO lýsir sig seka
Lögreglan í Madrid leitar nú morð-
ingja dómara eins, sem var myrtur á
götu i borginni er hann var á leið til
vinnu sinnar. 1 fyrstu var talið lik-
legast að þarna hefðu verið á ferðinni
félagar i ETA samtökum öfgasinnaðra
Baska. í gærkvöldi lýstu Graposam
tökin sök á hendur sér í þessu máli.
Eru það öfgasinnuð andfasistasamtök.
Er þetta sjötta pólitíska morðið á
Spáni það sem af er þessu ári.
Graposamtökin rændu háttsettum
herhöfðingja fyrir tveim árum og
myrtu fangelsisstjóra i marz siðastliðn-
um. Eru samtökin einnig talin bera
ábyrgð á dauða nokkurra lögreglu-
manna og nokkrum sprengjutilræðum
síðan í október árið 1975.
Lögreglan á Spáni hefur nokkrum
sinnum naldið því fram að gengið hafi
verið milli bols og höfuðs á Grapo-
samtökunum. Meira en þrir tugir fé-
laga þeirra eru nú i spænsku n fangels-
um.