Dagblaðið - 10.01.1979, Side 7
7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR 1979.
Erlendar
fréttir
REUTER
8
Bretland:
Thorpe fyrír
rétt 30. apríl
Noregur:
TAPA MILUÖRDUM
VEGNA NÝJU
SKATTALAGANNA?
— norskir hátekjumenn með 60 milljarða króna skattaf rádrátt í erf iðleikum
með útgevð skipa sinna
Jeremy Thorpe þingmaður og fyrr-
um leiðtogi Frjálslynda flokksins í
Bretlandi mun koma fyrir rétt hinn 30.
april næstkomandi vegna ákæru um
þátt í morðtilraun. Var þetta tilkynnl
í gær en málið verður rekið í Old Baily
dómhúsinu i London. Búizt er við að
réttarhöldin taki þrjá mánuði.
Thorpe er sakaður um að hafa ráðið
mann til að ráða Norman Scott fyrr-
um sýningarmann af dögum en Scott
hefur haldið þvi fram, gegn andmæl-
um Thorpe, að þeir hafi haft kyn-
ferðissamband sin á milli. Þrir menn
eru einnig ákærðir fyrir hlutdeild í
málinu. Allir ákærðu neita sakargift-
um.
Svo virðist sem breytingar á skatta-
lögunum norsku sem gengu í gildi
snemma árs árið 1977 muni hafa al-
varlegri afleiðingar í för með sér
fyrir þá sem nutu en búizt hafði verið
við. Tilgangur löggjafans var að
hleypa nýju blóði í norskan skipa-
smíðaiðnað, sem stendur heldur höll-
um fótum. Var því heimilað að fjár-
festingar i skipafélögum sem keyptu
skip smíðuð i Noregi væru frádráttar-
bærar til skatts eftir föstum reglum.
Gripu margir Norðmenn þetta tæki-
færi til að minnka skattana en þetta
var bundið við skip, sem samið var um
smiði á fyrir árslok 1977 og smíði lokið
fyrir árslok 1979. Ekki minnkaði það
áhugann að hægt var að greiða fram-
lag sitt til skipasmíðinnar á þrem árum
en skattfrádrátturinn kom allur á
fyrsta ári. Samkvæmt upplýsingum
opinberra aðila notfærðu rúmlega tvö
þúsund manns sér þetta tækifæri og
samið var um smiði rúmlega sjötíu
skipa með þessum kjörum. Var þar
aðallega um að ræða hátekjumenn og
mun skattafrádráttur þeirra vegna
þessara nýju laga nema um það bil 900
milljónum norskra króna eða jafnvirði
tæplega sextíu milljarða islenzkra
króna.
Nú mun heldur vera komið babb í
bátinn hjá mörgum þessara rúmlega
tvö þúsund Norðmanna. Sumir eiga i
erfiðleikum með að greiða síðustu af-
borgunina af framlagi sinu til skipa-
kaupanna. Hitt mun þó vera öllu al-
varlegra, að mörg skipanna, sem verið
er að Ijúka smiði á um þessar mundir,
verða verkefnalaus og eru einnig óhag-
kvæm í rekstri af ýmsum orsökum.
Svo virðist sem ekki hafi verið gætt
nægilegrar hagsýni þegar farið var út í
skipakaupin.
Getur því verið að margir þeirra sem
ætluðu að verja fé fyrir skattinum og
fjárfesta í skipum tapi því að stórum
hluta.
Cleveland:
Raforkuver og
lóöir seldar til
að komast hjá
gjaldþroti
Clevelandborg i Ohiofylki i Bandarikj-
unum leitar nú kaupenda að landareign-
um, sem ákveðið hefur verið að selja til
að komast hjá gjaldþroti og einnig til að
koma i veg fyrir að segja þurfi upp
nokkur hundruð starfsmönnum borgar-
innar. Cleveland, sem er stærsta borgin i
Ohiofylki, er í miklum fjárhagskröggum
og i desember síðastliðnum féllu i gjald-
daga afborganir af miklum bankalánum
og greiðslu í eftirlaunasjóði.
Borgarstjórnin hyggst bjarga fjár-
hagnum með því að selja raforkuver,
sem rekið hefur verið með tapi og hækka
skatta á launagreiðslur um 50%. Ekki er
þó fullvíst að þetta nái fram að ganga.
íbúar í Cleveland verða að samþykkja
ráðstafanir i almennri atkvæðagreiðslu,
sem fram á að fara hinn 27. næsta mán-
aðar.
Martins reynir
að mynda stjórn
Wilfried Martins, leiðtogi flæmska
hluta Kristilega sósíalistaflokksins í
Belgiu, tók að sér i gær að reyna að
mynda nýja rikisstjóm í landinu. Hann
neitaði að gefa upp nokkur timamörk
um það hvenær hann hygðist hafa lokið
stjórnarmyndun.
Chicago:
Eiturgas í
íbúðarhverfi
Um það bil sjötíu þúsund kílógrömm
af eiturgasi láku út úr járnbrautartanki í
suðurhluta Chicagoborgar i gær. Urðu
hundruð fólks að flýja heimili sín vegna
þessa.
Svo vel tókst þó til, að sögn lögregl-
unnar, að ekkert tjón varð á mönnum
eða skepnum. Gasið er mjög eldfimt og
mun aðallega vera notað við framleiðslu
á plasti.
Góöur árangur í starfinu viöurkennist þannig aö þú
„skorar mark" í nýrri dreifingarkeppni.
Þú skorar t.d. 1 mark seljir þú 20 blöö á einum degi, en
A mörk seljir þú 50 blöð. 20 mörk skorar þú berist
engin kvörtun úr þínu útburðarhverfi í einn mánuö.
Síöan skiptir þú á mörkum þínum og verölajnagripum
úr sýningarskápum í afgreiðslu blaöanna aö Þverholti
11. Allar nánari upplýsingar færö þú í afgreiðslunni.
BIAÐW
Afgreiðslan Þverholti 11 sími 27022
IIKIX
marR!
I Dreifingarklúbbi Dagblaðsins
og Vikunnarskorar þú
mörk
og vinnur til verðlauna.
Seljir þú Dagblaðið eða Vikuna á höfuðborgarsvæð-
inu, eöa berir þú blaöið áskrifendum þar, þá ertu þar
meö félagi í Dreifingarklúbbi Dagblaðsins og Vikunn-
ar.
Meðal verðlaunagripa má nefna: íþróttaáhöld og
búninga, þ.á.m. skíði og skíðabúnað, hljómtæki, seg-
ulbandstæki, útvarpstæki og hljómplötur.
Að sjálfsögðu færð þú full laun fyrir vinnu þína eftir
sem áður.