Dagblaðið - 10.01.1979, Síða 22
22
ÍTM
An EMI Films piesenljlion
A lemence Goidon pioduclion
RYAN O’NEAL
BRUCE DERN
ISABELLE ADJANI
ökuþórinn
Afar spennandi og viðburðahröð ný
enskbandarísk litmynd.
Leikstjóri WALTER HILL
Íslenzkur texti.
Bönnuðinnan 14ára.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
AUSTURBÆJARBlÓ: I kúlnaregni IThe Gaunlletl,
aðalhlutverk; Clint Eastwood kl. 5, 7.10 og 9.15.
Bönnuð innan 16 ára. íslenzkur texti. Ha-kkað verð.
GAMLA BÍÓ: Lukkubíllinn í Monte Carlo kl. 3,5,7
og 9.
HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HASKÓLABlö: Himnariki má bíöa (Heaven Can
Wait). aðalhlutverk: Warren Beatty, James Mason
og Julie Christie kl. 5,7 og 9. Hækkað verð. Islenzkur
texti.
LAUGARÁSBlÓ: Likklæöi Krists kl. 3. Ókindin II
(Jaws II) kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð innan 16 ára.
íslenzkur texti. Hækkað verð.
BÆJARBtÓ: Verstu \ illinga, ^estursins kl. 5. Billy
Joekl. 9.
NÝJA BlÓ: Silent Movie kl. 3,5.7. og 9.
REGNBOGINN: Sjá auglýsingu.
STJÖRNUBÍÓ: Morð um miðnætti (Murder by
Death), leikstjóri: Robert Moore. aðalhlutverk: Peter
Falke, Truman Capote og Peter Sellers. kl. 5. 7. 9 og
11. íslenzkur texti. Hækkað verð.
TÓNABÍÓ: Bleiki pardusinn leggur til atlögu iThe
Pink Panther Strikes Again), kl. 5,7.10og9.15.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Draumabíllinn (The
Van), leikstjóri: Sam Grossman, aðalhlutverk: Stuari
Getz, Dcborah White og Harry Moses, kl. 9.
PfllR USTIHOV • 1AHT BIRKIN • LCHS CHIliS
BITTIDAYIS • MU fARROW • JOH HHCH
OUVUHTKSTY • I.S.KHUR
GTORGf Kf HHHW • AHGtli LAHSBURY
SIMOH MocCORKIHDAlf • DAYID NIYfH
MAGGIf SMITH • UCKWARDfH
. iijjH/t cHBtsiMS DfATHOHTHf Hllf
Frábær ný ensk stórmynd, byggð á sögu
eftir Agatha Christie. Sýnd við metað-
sókn víða um heim núna.
Leikstjóri: John Guillermin
Islenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3,6 og 9.
Hækkað verð.
salur
Convoy
Spennandi og skemmtileg ný ensk-
bandarisk Panavision-litmynd. með Kris
Kristofferson, Ali MacGraw — Leik
stjóri: Sam Peckinpah.
Íslenzkur texti.
Sýndkl. 3.05, 5.40,8.30og 10.50.
salur^^
Chaplin Revue
Tvær af hinum snilldarlegu stuttu
myndum Chaplins sýndar saman:
AXLIÐ BYSSIIRNAR og PÍLA-
GRÍMURINN
Sýndkl. 3.15,5.10,7.10,9.10og 11.10.
--------salur D--------—
Baxter
Skcmmtileg ný erisk fjölskyldumynd í
iiium. um lítinn dreng með stór vanda-
mál.
Britt Ekland
Jean Pierre Cassel
Leikstjóri Lionel Jeffries
Sýnd kl. 3.15.5.15,7.15, 9.15 og 11.15.
Skemmtilegasta og nýjasta gamanmynd
Disney-félagsins um brellubílinn Herbie.
Aðalhlutverk: Dcan Jones og Don
Knotts.
íslenzkur texti
Sýnd kl.5,7 og9.
Lukkubíllinn
í Monte Carlo
(Herbie Goes to Monte Carlo)
ALÞÝÐU-
LEIKHÚSIÐ
Við borgum ekki!
Við borgum ekki!
Eftir Dario Fo
í Lindarbæ.
3. sýning fimmtudag kl. 20.30.
Miðasala í Lindarbæ kl. 17.00—
19.00 alla daga og kl. 17.00—
20.30 sýningardaga.
m
GAMLA BIO
Slmi 1J47S
JÓLAMYND 1978
Dauðinn á Níl
ÁGATHA CBRISTKS
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10.JANÚAR 1979.
Sjónvarp
»)
ð
Útvarp
Sjónvarp íkvöld kl. 21,50:
Fjölþjóðafyrírtækin
tekin
til
bæna
„Þetta er hollenzk mynd sem lýsir í
nokkuð gagnrýnum tón starfsemi fjöl-
þjóðafyrirtækja og þeim áhrifum sem
starfsemi þeirra getur haft,” sagði Ingi
Karl Jóhannesson um myndina Fjöl-
þjóðafyrirtæki og starfshættir þeirra,
sem sýnd verður í sjónvarpinu kl. 21.50 í
kvöld.
„Myndin er gerð árið 1976 af hol-
lenzkri sjónvarpsstöð. Hún verður sýnd
hér í tvennu lagi, fyrri hlutinn í kvöld og
sá seinni eftir hálfan mánuð.” sagði Ingi
Karl.
Fjölþjóðafyrirtækið Elkem-Spigenerket stendur að Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga við Hvalfjörð.
DB-mynd Helgi Pétursson
Elías Daviðsson kerfisfræðingur hefur
skrifað nokkrar greinar i blöð um fjöl-
þjóðafyrirtæki og auðhringa. Grein um
áhrif þeirra á íslandi skrifaði hann í DB
árið 1977. Þar segir Elias meðal annars:
„Almennt er talið að fyrirtæki er
starfar i fleiri en einu landi, en lýtur
samt samræmdri stjórn, sé fjölþjóðlegt
fyrirtæki. Það hefur verið sýnt fram á að
i mörgum greinum athafnalífsins,
einkum þó i tækni- og fjárfrekum grein-
um eru það fáein fjölþjóðafyrirtæki sem
ráða ferðinni. Rikjandi markaðsað-
stæður þessara fáu fyrirtækja gerir það
fýsilegt fyrir þau að samræma verðlagn-
ingu og almenn stefnumál sín á milli
(hringamyndun) i staðinn fyrir að heyja
djarfa samkeppni er gæti skaðað þau
öll.”
Elías segir að fjölþjóðafyrirtæki velti
um eða yfir 10% af þjóðarframleiðslu
alls mannkyns og þau ráði yfir tveim
þriðju allra alþjóðaviðskipta. Um fjórð-
V
ungur þessara viðskipta fari fram milli
útibúa og dótturfyrirtækja og sé þvi ekki
háður eftirliti af hálfu þjóðríkja.
Hundrað stærstu efnahagseiningar í
heimi eru að sögn Eliasar 51 hringur og
49 þjóðríki. 20 stærstu hringarnir eiga
höfuðstöðvar í Bandarikjunum og v'elta
mun meiru en flest sjálfstæð þjóðriki.
„Almennt lita forráðamenn fjölþjóða-
hringa á jörðina sem eitt stórt afhafna-
svið sem skiptist í einstök þjóðríki aðeins
vegna „úreltra kenninga og fordóma”.
... velferð þess þjóðríkis sem fyrirtækið
starfar i er fjölþjóðahringunum óvið-
komandi, enda reknir í hagnaðarskyni”. •
Elías kemur inn á ástæður fyrir því að
fjölþjóðafyrirtæki hyggi á starfsemi á
Islandi. Fyrirtækin sæki þangað sem
ódýrt vinnuafl eða ódýr orka sé fyrir
hendi. Hér sé ekki ódýrt vinnuafl en nóg
af ónýttri orku. Bandariski herinn sé
trygging fyrir þvi að þessi fyrirtæki fái
að starfa í friði. Galla þess að starfrækja
fjölþjóðafyrirtæki fyrir þjóðríki telur
Elías þá að ríkið verði smátt og smátt
háð þeim fjárhagslega og eigi þannig
erfitt að semja við fyrirtækin sér í hag.
Fjölþjóðafyrirtæki stuðli ekki að sjálf-
stæðri atvinnuuppbyggingu i þjóðríkjum
og atvinnulýðræði sé útilokað í þeim.
Vegna hersins séu mörg fjölþjóðafyrir-
tæki fús að starfa hér sem tryggi enn
betur en áður návist hans áfram.
Auðvitað eru ekki allir sammála þess-
um ummælum Elíasar. Mjög lítil
ummæli hafa hins vegar komið fram til
stuðnings fjölþjóðafyrirtækjum. Meira
að segja hefur því verið haldið fram á
prenti á tslandi að hugtakið fjölþjóða-
hringur væri ekki til, heldur aðeins hug-
smíði samsærismanna KGB, sbr. Mbl.
13.2. 1977.
- DS
/
t-----------------------------------\
Pétur Einarsson sér um þáttinn Loft og láð. Hann er þess utan starfsmaður Flug-
málastjóra.
DB-mynd Árni Páll
LOFT OG LÁÐ — í útvarpi kl. 22,10
fkvöld:
Rætt við tvo f lug-
menn, vestfirzka
„Þessir þættir eru ætlaðir til almennra
upplýsinga um flugmál og eru í útvarp-
inu hálfsmánaðarlega. í þættinum i
kvöld ræði ég við tvo flugmenn frá Isa-
firði, Hálfdán Ingólfsson og Hörð Guð-
mundsson," sagði Pétur Einarsson um
þáttinn Loft og láð sem hann er með á
dagskrá útvarpsins í kvöld.
„Hörður. er landsþekktur flugmaður
og einn sá alþekktasti á Vestfjörðum.
Hann er eigandi flugfélagsins Arna og
Hálfdán hefur flogið hjá honum. Hálf-
V______________________________________
dán þarf víst ekki að kynna fyrir Dag-
blaðslesendum, þeir þekkja hann orðið i
gegn um svifdrekana.
Nú, ég ræði við þá félagana um líf
þeirra i fluginu og ýmislegt sem fyrir þá
hefur komið,” sagði Pétur. „Þættinum
Loft og láð er ætlað að benda á það sem
nýtt kemur fram i fluglistinni auk þess
sem tekið er fyrir það sem merkilegt er í
fortið og það sem kann að skipta máli í
framtíð.”
- DS
DJASSÞÁTTUR
—útvarp
kl. 21,00 íkvöld:
Parker
og
Gillespie
„Ég ætla að minnast litillega á tvo
mikla höfðingja,” sagði Jón Múli
Árnason er hann var spurður um djass-
þáttinn í kvöld.
„Annar er dauður, það er Charles
Parker. En hinn er sprelllifandi, John
Birks Gillespie, kallaður Dizzy.
Ég skal segja þér að það hefur verið
viss orðrómur á kreiki í vissum kreðsum
í Reykjavík um að Dizzy væri væntan-
legur og það jafnvei áður en þessi mán-
uður væri úti. Ég veit ekki hvort það er
satt.”
— Á hvaðspilarhann?
„Á hvað hann spilar. Nei, heyrðu nú.
Á hvað spilaði Bach? Auðvitað spilar
Dizzy á trompet. Það vita nú allir.
Nema kannski maðurinn sem hélt að
Count Baise væri úr Borgarnesi,” sagði
Jón Múli.
Djassáhugi Jóns Múla er orðinn svo
víðfrægur að Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, formaður starfsstúlknafélagsins
Sóknar, sá sig tilneydda til að biðja hann
afsökunar á því að hún hefði ekki áhuga
á djassi í Morgunpóstinum sl. mánudag.
- DS
V_______________________)