Dagblaðið - 10.01.1979, Page 24
10 konur togarasjómanna á Bjartí f engu að f Ijóta með í f isksöluf erð fyrir jólin:
„Skeggið” hrímað
Það er hrímað „skeggið” á þessum gömlu og virðulegu húsum i Pösthússtrætinu i
Reykjavík þessa dagana. Eins gott er að ganga ekki of nærri húsveggjum ef fer að
hlána og grýlukertin leita skyndilega niður á við.
DB-mynd Hörður.
Dómur fallinn í máli Nesco h.f. gegn Neytendasamtökunum:
„Fréttatilkynning Neytenda-
samtakanna í meginatriðum
sönn
segir í niðurstöðum dómsins
Fallinn er dómur í máli Nesco hf.
gegn Neytendasamtökunum. Garðar
Gislason, settur borgardómari, kvað
upp dóminn.
Forsaga þessa máls var á þá leið, að
auglýsing birtist í blöðunum frá Nesco
hf. haustið 1977, þar sem Grundig
sjónvarpstæki er auglýst. Vitnað er í
yfirgripsmikla könnun tímaritsins
Test, sem gefið er út af vestur-þýzku
neytendasámtökunum. í auglýsing-
unni sagði að í þessari könnun hafi 36
tækniatriði verið skoðuð og einkunnir
gefnar (tveir plúsar mest og tveir mín-
usar minnst). Séu plúsarnir lagðir
saman og minusar dregnir frá fái
Grundig fleststig.
Næsta skref þessa máls var að i
blöðunum 20. okt. 1977 birtist til-
kynning frá Neytendasamtökunum
þar sem varað er við þessari auglýs-
ingu og sagt að þar sé farið mjög frjáls-
lega með staðreyndir og dregnar
skakkar ályktanir af gefnum forsend-
um. Auglýsandinn beiti þeirri lævisu
brellu að leggja saman plúsa og draga
síðan minusana frá. Þetta sé mjög vill-
andi þar sem tækið geti fengið plús
fyrir mjög lítilvæg atriði, en aftur á
móti minus fyrir mikilvægari atriði.
Þetta varð til þess að Nesco hf. fór í
mál við Neytendasamtökin og geiði
kröfu um, að tilkynning Neytenda-
samtakanna yrði dæmd dauð og
ómerk. Varakrafan laut að tveimur
setningum í tilkynningunni a.v. þar
sem segir að i auglýsingunni sé farið
mjög frjálslega með staðreyndir og
h.v. þar sem talað er um að auglýsand-
inn beiti lævisri brellu.
Niðurstaða dómsins var á þá leið að
aðalkrafa stefnanda var ekki tekin til
greina þar sem fréttatilkynning Neyt-
endasamtakanna sé i meginatriðum
sönn. Hins vegar segir I niðurstöðu
dómsins, að stefndu hafi ekki sýnt
fram á, að stefnandi hafi beitt „lævísri
brellu” og beri því að ómerkja þá setn-
ingu. Um fyrri setninguna segir, að
svo mikill sannleikur felist í henni að
krafa stefnanda um ómerkingu verði
ekki tekin til greina.
Þá hafði stefnandi gert kröfu um
birtingarkostnað en hún var ekki tekin
til greina en stefndu, Neytendasam-
tökin, greiði stefnanda, Nesco hf., kr.
90.000 í málskostnað.
Jón Magnússon, lögfræðingur
Neytendasamtakanna, sagði i samtali
við DB að hann væri ánægður með
þessar niðurstöður. Auðvitað væri
alltaf skemmtilegast að vinna mál
100% en hann teldi að Neytendasam-
tökin mættu vel við una. - GAJ
Verzluðu fyrir
fjórar milljónir á
tveim dögum
— heimilistæki og munaðarvamingur í f iskilestinni heim
Tíu eiginkonur sjómanna á skuttogar-
anum Bjarti frá Neskaupstað gerðu jóla-
innkaup fyrir tæpar fjórar milljónir
króna á tveim dögum í Blackpool á Eng-
landi fyrir jólin, að sögn dagblaðs i.
Fleetwood.
Að sögn blaðsins komu konurnar með
togaranum, sem landaði I Fleetwood, og
fóru aftur með honum heim eftir kaup-
æðið, enda nægt lestarrými fyrir varn-
inginn eftir löndunina.
Segir í blaðinu að meðal varnings hafi
verið þvottavélar, ísskápar, sjónvarps-
tæki, hljómflutningstæki og ýmsar
neyzluvörur.
Haft er eftir Jimmy Hind, talsmanni
Marr og Son, umboðsaðila íslenzkra tog-
ara I Fleetwood, að algengt sé að ís-
lenzkar konur komi með togurunum I
verzlunarferðir fyrir jólin.
Þá mun algengt að áhafnirnar kaupi
ýmsan varning fyrir eina til tvær millj-
ónir við vcnjulegar aðstæður. Getið
hefur verið um þessa innkaupaferð
kvennanna frá Neskaupstað í öðru
brezku blaði, en þar voru upphæðir ekki
nefndar.
-GS
Wives on a
shop spree
-by trawler
TE7N housewlvea flndshed a £6,000,
two-day shoppdng spree ln Black-
pooi ,yesterday — then aet saii on
the 1,000-mlle trip borne to
Iceland.
The wlvw arrVved in the trawier
BJartur wtiich waa Uind-
tag^a oatch at Pleet-
Thé BJartur U one ,of a fl
fleet oí loelandlc trawiefli M
wtoich laöd their catahei
in Britain.
And at thU time of the
year moet crewa bring
their wlvea Chriatmaa
•hopplng.
Chcaptr
Jimmy Hind, a apokes-
man for J. Marr and Son,
a«ents for the Ioelandera
at Pleetvood, aaid :
“Crewa take home
£2,000-£3,000 worth oí
gooda whbn^yer they
nd Uere. *
“ Every ahip haa at
ieast two oc three wcmen
abo&rd, but in the BJar-
tur'e oaae there are 10.
"We have 27 trawlera
due in Brltein.
"ObÝioualy they are
oominjt partly ío do their
Chrlatmas shopping1
beoause aooda are enor-
mously cheaner here.*’
Wlves return wlth
raahing machli
-------------V8.J
■■1
mm
TÁR
Úrklippan úr brezka blaóinu undir
fyrirsögninni: Eiginkonur f kaupæði —
með togara.
fifáJsí, nháð dagbJað
MIÐVIKUDAGUR 10. JAN. 1979.
Týndu strákarnir
fundnir í óhreinu taui um
borð íBakkafossi:
Ætluðu að
stinga af
íBanda-
ríkjunum
— vil ekkert hafa eftir
þeim um vitleysis-
áform þeirra þar,
segir skipstjórinn
„Ég vil bara ekkert láta uppi um
áform piltanna eftir að þeir kæmu til
Bandarikjanna, þau eru tóm vitleysa,”
sagði Arngrímur Guðjónsson, skipstjóri
á Bakkafossi, er DB ræddi við hann á
leið til Bandaríkjanna I gær, eftir að
eftirlýstu piltarnir tveir höfðu fundizt
þar um borð.
Strákarnir áformuðu að láta aldrei til
sín sjást um borð og laumast í land I
Portsmouth, er skipið legðist þar að, og
koma ekki með því aftur.
Á laugardag laumuðust þeir um borð I
Reykjavíkurhöfn skömmu fyrir brottför
og földust I lest þar til á sunnudagskvöld-
ið að þeir földu sig I skáp fyrir óhreint
tau. Annar þeirra var einmitt að bregða
sér eftir vatnssopa þegar til hans sást i
gættinni.
„Það getur svo sem vel verið að ég láti
strákana vinna fyrir farinu með skúring-
um eða öðru,” svaraði Arngrímur, er
hann var spurður um umgengni við
strákana þá daga sem eftir eru af sigling-
unni til Bandaríkjanna, en þeir eru nú
búnir að fá klefa með hreinu á rúmun-
um.
-G.S.
Laugaveg-
ur 1 seldur
á 75 millj.
króna
Húseignin Laugavegur 1 hefur nú
skipt um eigendur. Kaupendur eru
Garðar Svavarsson hjá Tómasi og tann-
læknarnir Birgir Jóhannsson og Hörður
Sævaldsson. Söluverðið er kr. 75 millj-
ónir. Seljendur eru Sigurbjörn i Vísi Þor-
kelsson og niðjar hans og erfingjar Guð-
mundar heitins Ásbjörnssonar.
í húsunum, sem keypt voru er leik-
fangaverzlunin Leikhúsið, sem áður var
Dyngja og Gimli, Skósalan og gamla,
góða Vísisverzlunin ásamt bakhúsi.
Lóðin er um 550 fermetrar.
„Við erum nú ekki farnir að ræða
það,” sagði Garðar hjá Tómasi, þegar
fréttamaður spurði hann, hvort þeir fé-
lagar ætluðu að byggja þarna á lóðinni.
BS.