Dagblaðið - 26.02.1979, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
Jyytt Jra Max
Tvíhnepptar ullarkápur
Tegund: 950
Litir: 4 gerðir köflótt og einlitt
gráttog camel.
Stærðir: 32—44.
Verð: kr. 38.900.
Sendum í póstkröfu
LAUGAVEGI66
mmmm
SIMI25980
Greiða Nesbúar þá þjónustu
sem þeir fá hjá borgarbúum?
Hér á myndlnni er líkan af nýju 1000 fm heilsuverndarstöðinni á Seltjarnar-
nesi. DB-mynd Hörður.
Heimavinnandi húsmóðir hringdi:
Þegar ég heyrði að það væri halli
sem svarar einum milljarði á rekstri
Strætisvagna Reykjavíkur datt mér í
hug að spyrja hvort Seltirningar
greiddu sinn hlut i vögnunum sem
ganga þangað? Mosfellingar hafa
eigin rútu og Kópavogsbúar eigin
vagna, en út á Seltjarnarnes ganga
Strætisvagnar Reykjavíkur.
Ýmsa aðra þjónustu fá Nesbúar
hjá okkur í höfuðborginni, til dæmis
í heilbrigðismálum. Þannig fá unga-
börn á Nesinu sprautur og aðra nauð-
synlega aðhlynningu á Heilsuvernd-
arstöðinni í Reykjavík.
Ég er síður en svo að amast við því
að þeir njóti þessarar þjónustu. En
mig langar að fá upplýst hvort þeir
greiða sinn hluta í henni, einkum og
sér í lagi af þvi að þeir stæra sig af
miklu lægri fasteignagjöldum en
höfuðborgarbúar.
Svar: DB hafði samband við Sigur-
geir Sigurðsson bæjarstjóra á Sel-
tjarnarnesi. Hann sagði að strætis-
vagnaleiðin út á Nes væri sérleyfi sem
Strætisvagnar Reykjavíkur hefðu.
Seltjarnarneskaupstaður greiðir það
tap sem verður á leiðum vagnanna
miðað við hvern ekinn kílómetra. Á
síðastliðnu ári var tapið eitthvað um
fjórtán milljónir. Reikna má að þær
krónur sem fara í að greiða tapið geti
rekið vagn fyrir kaupstaðinn en þetta
fyrirkomulag, að vera með samning,
gerir hlutina miklu- einfaldari og
meiri og betri þjónustu.
Um Heilsuverndarstöðina er það
að segja, að það er í gildi sams konar
samningur og við strætisvagnana,
hann hefur verið í gildi undanfarin
tuttugu ár, eða frá því að Heilsu-
verndarstöðin var reist. Greitt er eftir
svokallaðri höfðatölureglu. Árið
1977 voru greidd kr. 4,6-4,7 millj.,
eða eitthvað úm 1800 kr. á mann i
kaupstaðnum. Áætlað er að greiða
þurfi til heilsugæzlumála fyrir árið í
ár eitthvað á bilinu 7—8 milljónir.
Einnig má geta þess að í smíðum er
heilsuverndarstöð á Seltjarnarnesi
sem er 1000 mJ. Um eða yfir 10000
manns úr Reykjavík munu nota hana
með Nesbúum, þannig að þarna yrði
um gagnkvæma skiptingu að ræða.
Mikil óþægindi af vélsleðum
í skíðabrekkum
Guðfinna Ólafsson á Selfossi
■hringdi:
Eru einhverjar reglur til um það
hvar fólk má aka um á vélsleðum á
skíðasvæðum? Fyrir nokkru fór ég í
skíðaferð og varð fyrir miklum
óþægindum af vélsleðum sem trill-
uðu upp og niður allar brekkur.
Bæði er hávaði i sleðunum og svo
eyðileggja þeir allt skíðafæri. Ein-
hver sagði mér að einhverjar reglur
um akstur sleðanna væru til, er það
rétt?
Svar: Ekki eru til neinar reglur um
hvar vélsleðar mega aka. í Bláfjöllum
eru uppi skilti þar sem segir, að bann-
að sé að aka um á vélsleðum. Þó er
víst að tilskilin próf eða ökuréttindi
þurfa menn að hafa til að mega aka
vélsleðum.
ELDHÚS-OG BADINNRÉTTINGAR
SSNOREMA eru fallegar og vandaðar norskar
innréttingar.
Höfum sett upp eldhús- og baðinnréttingar í
húsnæði okkar. Þar gefst yður kostur á að sjá
hinar ýmsu gerðir, ef til vill er einhver sem
hentar yður.
Komið og skoðið þessar glæsilegu innréttingar
og leitið upplýsinga.
Það er ekki oft sem þér fáið yður nýtt eldhús,
þess vegna verður að vanda valið.
Eldhúsinnréttingar 12 gerðir
Baðinnréttingar 3 geröir
Fataskápar 12 gerðir (hæð 210 cm)
Fataskápar 1 gerð (hæð 148cm)
Innréttinga-
húsið
Háteigsvegi 3 105 Reykjavík
Verslun simi 27344
Skrifstofa sími 27475
Hvað
viltu
vita?
Guðjón H. Pálsson.
Hvar er
kjarna-
drykkurinn?
Póló-drykkjumaður spyr:
Er hætt aö framleiða þann ágæta
drykk Póló? Ég hef ekki séð hann
lengi í verzlunum.
Svar: Sigurður Waage hjá Sanitas
hf. sagði að strax nú eftir helgi myndi
byrjað að framleiða hann aftur eftir
nokkurt hlé.