Dagblaðið - 26.02.1979, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR26. FEBRÚAR 1979.
FUGLIHREIÐRI
A GRÆNU TRE
— námsgleði hjá ungum listamönnum í Myndlista- og handíðaskólanum
Námsleiði þekkist ekki hjá
börnunum i Myndlista- og handíða-
skóla íslands. Það er fyrirbrigði sem
ekki verður vart fyrr en síðar á lífs-
leiðinni: í barnadeildinni eru börn á
aldrinum 5—7 ára og fá þau þarna sína
fyrstu tilsögn í listsköpuninni.
Kennarinn, Jóhanna Þórðardóttir,
leyfir hverju barni að njóta sín og ráða
þau að nokkru sjálf hvað þau gera.
Byrjað er á auðveldan hátt og mótað
úr pappírsmassa. í þeim verkefnum
þurfa börnin ekki að spyrja margs, þar
sem efnið er auðvelt viðfangs og
ímyndunaraflið fær að njóta sín.
Þegar DB leit inn hjá krökkunum
voru þau að blanda liti, því nú átti að
mála tré, sem þau höfðu gert í
sameinungu úr pappírsmassa. Auk þess
átti hvert barn sinn fugl á trénu. At-
kvæðagreiðsla fór fram um litinn á
trénu og réð meirihlutinn að sjálf-
sögðu. Langflestir vildu hafa tréð
grænt, og því var það málað grænt af
mikilli innlifun.
Þá voru krakkarnir og að búa til
brúður. Hausarnir voru límdir á gos-
flöskur. Þegar hausinn er fullskapaður
er hann tekinn af og málaður og
brúðan sett i föt og síðan má fara í
leikbrúðuleik.
Um daginn fór allur skarinn á
Náttúrufræðistofnunina og skoðaði
fugla og dýr. Siðar á að skoða fleiri
söfn og fara út í náttúruna þegar fer að
vora. Þegar inn er komið er hægt að
mynda það sem sást í leir, klippa út eða
teiknaþað.
1 vor verður síðan haldin sýning á
verkum nemenda Myndlista- og hand-
íðaskólans og þá eru verk barnanna
einnig sýnd. Þá geta ungir listamenn og
stoltir leitt pabba og mömmu um
sýningarsvæðið og sýnt þeim fugl eða
tré, „sem ég gerði sjálfur/sjálf".
-JH.
I.iturinn blandaður. Hlíiu og gulu sullað saman eftir smekk og útkoman er mistaunandigræn.
Hringbraut 121 Sími 2 86 O'
Og svo er að þvo sér vel á eftir.
DB-myndir Bjarnleifur.
Það hjálpar afl reka út úr sér tunguna þegar maflur þarf að vanda sig.