Dagblaðið - 26.02.1979, Blaðsíða 43
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR26. FEBRÚAR 1979.
43
Stjarna Elvis Costellos virðist nú
vera endanlega komin upp á
himinhvelfinguna eftir að breiðskífan
Armed Forces kom út. Þá hefur
tveggja laga platan Oliver's Army
ekki skemmt.fyrir. Hún er nú í fjórða
sæti enska vinsældalistans á hraðri
uppleið.
Á því leikur enginn vafi að Elvis
Costello kann sitt fag fyllilega. Hann
er ekki frumlegur lagasmiður, en yfir
lögum hans er ferskur andblær, serri
talsvert hefur skort á í dægurtónlist
síðustu árin með sárafáum undan-
tekningum. Textar hans eru hins veg-
ar nokkuð veigameiri en gerist og
gengur. Margir þeirra eru innhverfir
og lítt skiljanlegir, en aðrir auðmelt-
ari. Því miður er framburður
Costellos stundum óskýr, þannig að
söngur'hans skilar sér ekki fyllilega.
Séu lög Costellos skoðuð kemur
sú hygmynd óhjákvæmilega upp í
hugann að sum þeirra séu tilbrigði
við gömul stef. Sumir myndu ef til
vill kalla lagagerð hans snyrtilegan
þjófnað. Óneitanlega koma ýmis
lög frá miðjum sjöunda áratugnum
upp í hugann er Armed Forces er
Elvis Costello—Armed Forces
Úfrumlegur en ferskur
undir nálinni. Áhrif Small Faces í
laginu Oliver's Army eru til dæmis
óumdeilanleg. Þá er margt líkt með
lagi Costellos, Green Shirts og Happy
Jack, sem Who sungu hvað mest um
áramótin 1966—67. Ray Danies, for-
sprakki Kinks hefur sömuleiðis haft
áhrif á Elvis Costello og lagasmíðar
hans.
Þessar samlíkingar eru síður en
svo ókostur á Armed Forces. Þær eru
aðeins nefndar til að benda á að
ekkert er nýtt undir sólinni, ekki einu
sinni nýbylgjutónlist og ræflarokk.
Félagar Elvis Costellos, hljóm-
sveitin Attractions, eru allir efnilegir
tónlistarmenn. Sér í lagi hefur
GeorgeHarrisoner
vaknaöur tillífsins
Sendi frá sér plötu um helgina
George Harrison, Bítillinn lyrr-
verandi, sendi fra sér nýja hljóm-
plötu nú um helgina. Hún er sú
fyrsia sem hann gerir um þriggja
ára skeið eða siðan platan 33 1/3
kom út árið 1976. Meðal þeirra
sem koma fram á nýju plötunni eru
Stevie Winwood söngvarí og
hljómborðsleikari, Andy Newmark
leikur á trommur og Willie Weeks á
bassa. Einnig leikur Eric Clapton
með f nokkrum lögum.
Öll lögin á plötunni,sem
Harrison ncfnir eftir sjálfum sér,
eru eftir hann, utan citt. Það samdi
hami með hljómborðsleikaranum
Gary Wright, sem varð frægur fyrir
lagið Dream Weaver hér um árið.
ÚRMELOÐYMAKER
Næsta plata Gerry
Raffertyerá
Fyrirframpantanirnar á næstu
breiðskífu Gerry Rafferty streyrha
nú inn til útgáfufyrirtækis hans,
United Artists. Plata þessi mun bera
nafnið Night Owl eða Náttugla.
Hún er væntanleg á markaðinn í
næsta mánuði ef allar áætlanir stand-
ast.
Night Owl er hið fyrsta sem Gerry
Rafferty lætur frá sér fara síðan met-
söluplata hans, City To City,
kom út fyrir rúmu ári. Sú plata hafði
meðal annars að geyma meistara-
stykkið Baker Street. Það lag hlaut
geysigóðar viðtökur, jafnt hérlendis
sem erlendis. City To City er ein af
Iang söluhæstu plötunum, sem
United Artists hefur gefið út fyrr og
síðar.
ÚrMELODYMAKER
STEVIEWONDER
KAUPIR
ÚTVARPSSTÖÐ
Stevie Wonder er ákaflega lítið í
fréttum um þessar mundir. Engar
flugufregnir berast af
plötuupptökum né fyrirhuguðum
hljómleikaferðum hans. Það er einna
helzt að það þyki fréttnæmt ef hann
bregður sér á diskótek.
Fyrir skömmu var þó frá því
skýrt, að Won'der hafi fest kaup áút-
varpsstöð í Los Angeles. Sú sendir
aðallega út léttan jazz og rólega
dæeurtónlist á FM bvleiu. Eins ob
gefur að skilja eru hlutir eins og heil-
ar útvarpsstöðvar aldeilis ekki gefnir.
Stevie þurfti að punga út litlum 700
milljónum fyrir stöðina.
Ekki er talið að tónlistarvali út-
varpsstöðvarinnar, sem ber
einkennisstafina KJLH, verði breytt
til neinna muna við eigendaskiptin.
OrlHT.
STEVIE WONDER — Ekkert hefur
heyrzt frá honum að undanförnu
tónlistarkyns. Hins vegar lét hann
litlar 700 milljónir króna fjúka
nýlega í útvarpsstöð.
hljómborðsleikaranum Steve Naive
farið fram frá síðustu plötu, This
Year's Model, sem Melody Maker
valdi hljómplötu árins 1978.
Trommuleikarinn, Pete Thomas, er
hinn dæmigerði nýbylgjutrommari
með harðan áslátt, en smekklegan.
Takist honum að þróa sinn eigin stíl í
framtíðinni, sem virðist ekki vera út í
hött, að álíta að hann geri, á hann
eftir að hafa áhrif á rokkið ekki síður
en Keith heitinn Moon gerði il meðan
hann var og hét. Þriðji maðurinn í
Attractions, Bruce Thomas bassa-
leikari, kann einnig fagið upp á sína
tíu fingur.
Enginn vafi er á því að EIvis
Costello og Attractions eru þeir
nýbylgjutónlistarmenn enskir sem
hvað lengst eiga eftir að ná á hinni
þyrnum stráðu braut rokks og róls.
Þeir eru ásamt hljómsveitinni Blondi
og söngvaranum Ian Dury nokkuð
þroskaðri en flestir aðrir sem kenna
sig við nýbylgjurokk. Þeir eru hættir
þeirri iðju sem ungir og reiðir tónlist-
armenn gera því miður allt of mikið
af — að skoða á sér naflann.
-At-
ELVIS COSTELLI & THE
ATTRACTIONS — ciii af
efnilegustu hljómsveitunum,
sem kennir sig við nýbylgjutón-
list. Þrátt l'yrir lilinn frumleika
l'æra þeir ferskan blæ yl'ir
popptónlistina.
B@ItIritllR
- boostólum
BOLLUR í hádeginu
BOLLUR um miójan dag
BOLLUR í kvöld
íPenthúsíð
VERÐUR MEÐ KAFFI,MEÐ BOLLUNUM
iViíckíe Gee sér um að
FÓLKIÐ HREYFI SIG EFTIR BOLLUÁTIÐ
HANN HEFUR NÚ O^-Ö kl.st. AÐ BAKI
% -
kl.st.AÐBAKI
Munið söfnunina
"GLEYMD BÖRN 79,
gironr. 1979-04