Dagblaðið - 26.02.1979, Page 43
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
43
Stjarna Elvis Costellos virðist nú
vera endanlega komin upp á
himinhvelfinguna eftir að breiðskífan
Armed Forces kom út. Þá hefur
tveggja laga platan Oliver’s Army
ekki skemmt fyrir. Hún er nú i fjórða
sæti enska vinsældalistans á hraðri
uppleið.
Á því leikur enginn vafi að Elvis
Costello kann sitt fag fyllilega. Hann
er ekki frumlegur lagasmiður, en yfir
lögum hans er ferskur andblær, sem
talsvert hefur skort á í dægurtónlist
síðustu árin með sárafáum undan-
tekningum. Textar hans eru hins veg-
ar nokkuð veigameiri en gerist og
gengur. Margir þeirra eru innhverfir
og litt skiljanlegir, en aðrir auðmelt-
ari. Því miður er framburður
Costellos stundum óskýr, þannig að
söngur hans skilar sér ekki fyllilega.
Séu lög Costellos skoðuð kemur
sú hygmynd óhjákvæmilega upp í
hugann að sum þeirra séu tilbrigði
við gömul stef. Sumir myndu ef til
vill kalla lagagerð hans snyrtilegan
þjófnað. Óneitanlega koma ýmis
lög frá miðjum sjöunda áratugnum
upp í hugann er Armed Forces er
Ófrumlegur en ferskur
ÁSGEIR
TÓMASSON
undir nálinni. Áhrif Small Faces í
laginu Oliver’s Army eru til dæmis
óumdeilanleg. Þá er margt líkt með
lagi Costellos, Green Shirts og Happy
Jack, sem Who sungu hvað mest um
áramótin 1966—67. Ray Danies, for-
sprakki Kinks hefur sömuleiðis haft
áhrif á Elvis Costello og lagasmíðar
hans.
Þessar samlíkingar eru síður en
svo ókostur á Armed Forces. Þær eru
aðeins nefndar til að benda á að
ekkert er nýtt undir sólinni, ekki einu
sinni nýbylgjutónlist og ræflarokk.
Félagar Elvis Costellos, hljóm-
sveitin Attractions, eru allir efnilegir
tónlistarmenn. Sér í lagi hefur
GeorgeHarrísoner vaknaöur tillífsins
Sendi frá sérplöti George Harrison, Bítillinn fyrr- verandi, sendi frá sér nýja hljóm- plötu nú um helgina. Hún er sú fyrsta sem hann gerir um þriggja ára skeið eða síðan platan 33 1/3 kom út árið 1976. Meðal þeirra sem koma fram á nýju plötunni eru Stevie Winwood söngvari og hljómborðsleikari, Andy Newmark leikur á trommur og Willic Weeks á mmhelgina bassa. Einnig leikur Eric Clapton með í nokkrum lögum. Öll lögin á plötunni.sem Harrison nefnir eftir sjálfum sér, eru eftir hann, utan eitt. Það samdi hann með hljómborðsleikaranum Gary Wright, sem varð frægur fyrir lagið Dream Weaver hér um árið. ÚR MELODY M AKKR
Næsta platc Raff erty er, Fyrirframpantanirnar á næstu breiðskífu Gerry Rafferty streyma nú inn til útgáfufyrirtækis hans, United Artists. Plata þessi mun bera nafnið Night Owl eða Náttugla. Hún er væntanleg á markaðinn í næsta mánuði ef allar áætlanir stand- ast. Night Owl er hið fyrsta sem Gerry Rafferty lætur frá sér fara síðan met- iGerry á leiðinni söluplata hans, City To City, kom út fyrir rúmu ári. Sú plata hafði meðal annars að geyma meistara- stykkið Baker Street. Það lag hlaut geysigóðar viðtökur, jafnt hérlendis sem erlendis. City To City er ein af lang söluhæstu plötunum, sem United Artists hefur gefið út fyrr og síðar. ÚrMELODYMAKER
hljómborðsleikaranum Steve Naive
farið fram frá siðustu plötu, This
Year’s Model, sem Melody Maker
valdi hljómplötu árins 1978.
Trommuleikarinn, Pete Thomas, er
hinn dæmigerði nýbylgjutrommari
með harðan áslátt, en smekklegan.
Takist honum að þróa sinn eigin stíl í
framtíðinni, sem virðist ekki vera út í
hött, að álíta að hann geri, á hann
eftir að hafa áhrif á rokkið ekki siður
en Keith heitinn Moon gerði á meðan
hann var og hét. Þriðji maðurinn í
Attractions, Bruce Thomas bassa-
leikari, kann einnig fagið upp á sína
tíu ftngur.
Enginn vafi er á því að Elvis
Costello og Attractions eru þeir
nýbylgjutónlistarmenn enskir sem
hvað lengst eiga eftir að ná á hinni
þyrnum stráðu braut rokks og róls.
Þeir eru ásamt hljómsveitinni Blondi
og söngvaranum Ian Dury nokkuð
þroskaðri en flestir aðrir sem kenna
sig við nýbylgjurokk. Þeir eru hættir
þeirri iðju sem ungir og reiðir tónlist-
armenn gera því miður allt of mikið
af — að skoða á sér naflann.
-ÁT-
ELVIS COSTELLI & THE
ATTRACTIONS — ein af
efnilegustu hljúmsvcitunum,
sem kennir sig við nýbylgjutón-
list. Þrátt fyrir lítinn frumleika
færa þeir ferskan blæ yfir
popptónlistina.
N2JRr
•-á 11 tn
BOLLUR í hádeginu
BOLLUR um miðjan dag
BOLLUR í kvöld
íPenthúsíð
VERÐUR MEÐ KAFFI,MEÐ BOLLUNUM
JWickxe 6ce SÉR UM AÐ
FÓLKIÐ HREYFI SIG EFTIR BOLLUÁTIÐ
HANN HEFUR NÚ 825 kl.st.AÐ BAKI
kl.st.AÐ BAKI
Elvis Costello—Armed Forces
STEVIEWONDER
KAUPIR
ÚTVARPSSTÖD
gefur að skilja eru hlutir eins og heil-
ar útvarpsstöðvar aldeilis ekki gefnir.
Stevie þurfti að punga út litlum 700
milljónum fyrirstöðina.
Ekki er talið að tónlistarvali út-
varpsstöðvarinnar, sem ber
einkennisstafina KJLH, verði breytt
til neinna muna við eigendaskiptin.
OrlHT.
STEVIE WONDER — Ekkert hefur
heyrzt frá honum að undanförnu
tónlistarkyns. Hins vegar lét hann
litlar 700 milljónir króna fjúka
nýlega í útvarpsstöð.
Stevie Wonder er ákaflega lítið i
fréttum um þessar mundir. Engar
fiugufregnir berast af
plötuupptökum né fyrirhuguðum
hljómleikaferðum hans. Það er einna
helzt að það þyki fréttnæmt ef hann
bregður sér ádiskótek.
Fyrir skömmu var þó frá því
skýrt, að Wonder hafi fest kaup á út-
varpsstöð í Los Angeles. Sú sendir
aðallega út léttan jazz og rólega
dæaurtónlist á FM bvlaiu. Eins og
Munið söfnunina
’ÓLEYMD BÖRN 79„
giro nr. 1979-04