Dagblaðið - 26.02.1979, Side 18

Dagblaðið - 26.02.1979, Side 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR26. FEBRÚAR 1979. FUGL í HREIÐRI Á GRÆNU TRÉ —námsgleði hjá ungum listamönnum í Myndlista- og handíðaskólanum Mallo-sófasettið er vandað, efnismikið og þér getið valið um sex ólík munstur i áklæði Litið inn i stærstu husgagnaversiun landsins. Og það kostar ekkert að skoða pao Kostar eKKert ao sKooa. Húsgagnadeild Jón Loftsson hf. i— □ l: lj lj lj CL l_j L_ __i l_ i__I Hringbraut 121 Sími 2 86 01 í vor verður siðan haldin sýning á verkum nemenda Myndlista- og hand- íðaskólans og þá eru verk barnanna einnig sýnd. Þá geta ungir listamenn og stoltir leitt pabba og mömmu um sýningarsvæðið og sýnt þeim fugl eða tré, „sem ég gerði sjálfur/sjálf”. -JH. Liturinn blandaður. Bláu og gulu sullað saman cftir smekk og útkoman cr mis'munandi græn. 2 3 6 SÆTA ETTIÐ ’MALLO — 6 óvenju lágu verði miðað við gæði, Staðgreiðsluverð kr. 299.500.- Námsleiði þekkist ekki hjá börnunum í Myndlista- og handíða- skóla íslands. Það er fyrirbrigði sem ekki verður vart fyrr en siðar á lífs- leiðinni: í barnadeildinni eru börn á aldrinum 5—7 ára og fá þau þarna sína fyrstu tilsögn í listsköpuninni. Kennarinn, Jóhanna Þórðardóttir, leyfir hverju barni að njóta sín og ráða þau að nokkru sjálf hvað þau gera. Byrjað er á auðveldan hátt og mótað úr pappírsmassa. í þeim verkefnum þurfa börnin ekki að spyrja margs, þar sem efnið er auðvelt viðfangs og ímyndunaraflið fær að njóta sin. Þegar DB leit inn hjá krökkunum voru þau að blanda liti, því nú átti að mála tré, sem þau höfðu gert í sameinungu úr pappírsmassa. Auk þess átti hvert barn sinn fugl á trénu. At- kvæðagreiðsla fór fram um litinn á trénu og réð meirihlutinn að sjálf- sögðu. Langflestir vildu hafa tréð grænt, og því var það málað grænt af mikilli innlifun. Þá voru krakkarnir og að búa til brúður. Hausarnir voru límdir á gos- flöskur. Þegar hausinn er fullskapaður er hann tekinn af og málaður og brúðan sett í föt og síðan má fara í leikbrúðuleik. Um daginn fór allur skarinn á Náttúrufræðistofnunina og skoðaði fugla og dýr. Síðar á að skoða fleiri söfn og fara út í náttúruna þegar fer að vora. Þegar inn er komið er hægt að mynda það sem sást í leir, klippa út eða teiknaþað. Og svo er að þvo sér vel á eftir. DB-myndir Bjarnleifur. Það hjálpar að reka út úr sér tunguna þegar maður þarf að vanda sig. V

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.