Dagblaðið - 26.02.1979, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRUAR 1979.
17
„Kosningabomba” eða hvað?
Félagsstofnun stúdenta (FS) hefur
verið mikið til umræðu upp á
síðkastið. Ekki hafa það einungis
verið námsmenn við Háskólann sem
sýnt hafa þeirri umræðu áhuga.
Mörgum er því Ijóst hið mikilvæga
hlutverk þessarar þjónustustofnunar
stúdenta. Ástæður þessarar miklu
umræðu nú eru vafalaust sífelldar
fréttir af erfiðri fjárhagsstöðu
fyrirtækisins, fyrirhuguðum
uppboðum á eignum FS, rafmagns-
lokun og nú síðast frétt í blaði Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúdénta, um
ótrúlega bókhaldsóreiðu hjá Félags-
stofnun. í Dagblaðinu, mánudag 19.
feb., birtir svo Bolli Héðinsson, for-
maður Stúdentaráðs Háskóla
íslands, grein eftir sig þar sem hann
fjallar um þessa bókhaldsóreiðu og
sínar skoðanir á henni. Þá tinir hann
ýmislegt fleira til af vettvangi
stúdentamálefna. Ætla ég hér að
reifa nokkur atriði sem Bolli impraði
á í grein sinni.
Óstjórn á
Félagsstofnun
Sem kunnugt er gengur rekstur
Félagsstofnunar stúdenta afar
erfiðlega. Ágreiningur er um af
hverju. „Vinstri menn”, sem hafa nú
meirihluta í Stúdentaráði, telja einu
ástæðuna vera þá að ríkisvaldið hafi
ekki lagt FS til það fjármagn, sem
nauðsynlegt hefur verið. Við Vöku-
menn erum sammála því að ríkisvald-
ið hafi brugðist FS að nokkru. En við
teljum að óstjórn í rekstri Félags-
stofnunar og bókhaldsóreiða eigi
einnig mikinn þátt i því hvernig
komiðer.
Við höfum árum saman gagnrýnt
reksturinn og lagt fram í Stúdenta-
ráði margar tillögur um breytingar í
rekstri fyrirtækisins. „Vinstri menn”
og fulltrúar þeirra í stjórn FS, sem
mynda meirihluta hennar, hafa látið
þær flestar sem vind um eyrun þjóta.
Aðalstarf þeirra hefur verið að
heimta meiri peninga frá ríkisvaldinu
en þeir hafa ekki fengist til að líta í
eigin þiarm. í október sl. var okkur
svo nóg boðið. Við kröfðumst fundar
í Stúdentaráði þar sem gerð yrði grein
fyrir stöðu Félagsstofnunar og
áætluðum breytingum á rekstrinum
ef einhverjar slíkar væru á döfinni.
Erfitt reyndist þeim að gefa glöggar
upplýsingar um stöðu fyrirtækisins
og var ekki nema von. Síðasta, þá
nýkomin, ársskýrsla stjórnar FS var
nefnilega frá því 1976 og því lítið
hald í henni. Ársreikningar ’77 og ’78
voru í vinnslu og hafði uppgjör ársins
’77 dregist að sögn þeirra vegna
„erfiðleika í tölvuvinnslu”. Ekki
komu fram neinar hugmyndir hjá
þeim „Vinstri mönnum” um
rekstrarúrbætur. Eftir sem áður yrði
allri orku eytt i að reyna að sarga út
meira fjármagn frá ríkinu.
Það var svo rétt eftir síðustu
áramót, að grunur okkar
Vökumanna, um að óhreint mjöl
fælist í hornum FS, staðfestist. í Ijós
kom að „erfiðsleikarnir í
tölvuvinnslunni”, sem svo höfðu
verið nefndir, stöfuðu af því að þá-
verandi framkvæmdastjóra FShafði,
af enn ókunnum orsökum, láðst að
skila inn til Reiknistofnunar H.í.
svonefndum villulista, sem er ein-
hvers konar leiðréttingalisti eftir
fyrstu keyrslu bókhaldsins '11. Þetta
varð svo til þess að öll árskeyrslan '11
varð tóm endaleysa. Þetta virðist enn
sem komið er vera meginástæðan
fyrir þessum ótrúlega drætti á frá-
gangi bókhaldsins '11 og ’78. Ekki
liggur fyrir, er þetta er ritað, hvenær
endurskoðað bókhald FS fyrir '11 og
’78 kemur til með að liggja fyrir. Til
gamans má geta þess hér að þegar
stjórn FS samþykkti í mars 1977 þá
„snjöllu” hugmynd þáverandi fram-
kvæmdastjóra FS að tölvuvinna
bókhald fyrirtækisins þá var það
m.a. „til að gera mögulegt að fá
meiri upplýsingar fyrr” (!!!) í
Vökublaðinu áðurnefnda var þessi
bókhaldsóreiða Félagsstofnunar
kynnt stúdentum og var þar einnig
bent á ýmis dæmi þess að hún hefur
getað haft veruleg áhrif á rekstrar-
grundvöll fyrirtækisins. Ekki þarf
víst að tíunda það hér hversu mikil-
vægt það er að hafa góðar reiður á
bókhaldi fyrirtækja.
Það vakti mikla furðu mína þegar
ég las ummæli núverandi framkvstj.
FS, Skúla Thoroddsen, er blaða-
maður Dagblaðsins bar undir hann
fréttina í Vökublaðinu. Skúli sagði
að bókhaldsóreiða FS væri auðvitað
bara „kosningabomba” hjá
Vökumönnum. Þetta er mjög
einkennilegt vegna þess að Skúli var
sjálfur aðalheimild Vökublaðsins í
þessu máli. En vel að merkja: Skúli er
góður og gildur „vinstri” maður i
skilningi Bolla, formanns Stúdenta-
ráðs, og skoðanabræðra hans. Fyrir
utan það að hann var löngum sér-
stakur trúnaðarmaður „vinstri
manna”ámeðan Itann stundaði nám í
Háskólanum var hann virkur félagi í
KHML, KSML og KFÍml og hvað
þau heita, þessi samtök pólitískra
sveimhuga hér. En Skúla verður nú
að lærast, ef hann ætlar sér að
gagnast fyrirtækinu sem hann starfar
hjá, að hætta að taka pólitíska af-
stöðu i málum er snerta Félags-
stofnun. Allir sem vilja að Félags-
stofnun stúdenta verði komið á
réttan kjöl hljóta að viðurkenna rétt
skynsamlegrar umræðu um fyrir-
tækið og vandamál þess.
Ráðherra
skipar nefnd
Á fundi um lánamál stúdenta, sem
haldinn var í vetur, kynnti fjármála-
ráðherra hugmynd sína um skipun
nefndar sem kanna skyldi rekstur FS
og gera tillögur til úrbóta. Vorum við
Vökumenn vongóðir um að nú væri
loks komið að því að nefnd sérfróðra
manna færi í saumana á Félags-
stofnun og von yrði á raunhæfum
breytingum til úrbóta. Heldur varð
þó yfirlýsing fjármálaráðherra okkur
skammgóður vermir. Um miðjan
janúar sl. tilkynnti menntamála-
ráðherra að hann hefði ákveðið að
koma á fót nefnd „til að gera tillögur
um hvernig best megi tryggja
rekstrargrundvöll Félagsstofnunar
stúdenta í framtíðinni”.... t nefnd
þessa tilnefndu sömu aðilar, að
viðbættu fjármálaráðuneyti, og skipa
stjórn FS. Við Vökumenn mótmælt-
um þegar skipun nefndarinnar, ,
töldum hana lítinn vanda leysa. Helst
væntum við sem niðurstöðu nefnd-
arinnar háværs kalls tíl „stóra
bróður” um að stóraukið ríkis-
framlag sé það eina sem Félags-
stofnun vanti, ekkert að rekstri fyrir-
tækisins. Við teljum nú rétt, eins og
mál standa, að Alþingi hlutist til um
það að nefnd menntamálaráðherra
verði leyst upp og sett á fót nefnd
óháðra sérfræðinga sem rannsaka
skuli ofan í kjölinn rekstur og stjórn-
un Félagsstofnunar stúdenta undan-
farin ár og geri tillögur til úrbóta.
Félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta
Aðaláróður „vinstri manna” fyrir
kosningar i Háskólanum beinist að
því að tengja okkur Vökumenn
við „íhald” og „auðvald” og segja
að Vaka sé útibú frá Sjálfstæðis-
flokknum í Háskólanum, eins konar
litli Heimdallur. En auðvitað vita
þeir betur og allir, sem kýnna sér
stefnuskrá Vöku og starf okkar í
Stúdentaráði og viðar, sjá að Vaka er
félag allra lýðræðissinnaðra
stúdenta, hvort sem þeir hafa kosið
að skipa sér í stjórnmálaflokka eða
ekki, og að stefnuskrá Vöku er sann-
gjörn málamiðiun í þeim atriðum
sem lýðræðissinna hefur helzt greint
á um. Ég held að því miður hafi þessi
áróður þeirra „Vinstri manna” haft
nokkur áhrif á fylgi Vöku í Há-
skólanum. Ég held þó að stúdentar
séu að átta sig á sannleikanum í þessu
máli.
„Vinstri menn"
—allir kommar
Hverjir eru þá þessir „Vinstri
menn” sem hafa verið í meirihluta í
Stúdentaráði Háskóla íslands undan-
farin ár? Eitt er víst og það er að allir
segjast þeir vera lýðræðissinnar.
Meinið er bara að skilningur þeirra á
hugtakinu „lýðræði” er allur annar
en þessi varanlegi sem finnst í orða-
bókum. Mér finnst honum svipa mest
til þess skilnings sem notaður er fyrir
austan járntjald. Þessir „Vinstri
menn” hafa nú um nokkurt árabil
kynnt þjóðinni málstað sinn i út-
varpsdagskrá 1. desember og mun*
víst óþarft að fjölyrða um það hér.
Talsmenn „Vinstri manna”, eins og
t.d. Bolli formaður Stúdentaráðs,
halda því fram að þeirra flokk eigi
allir stúdentar að fylla sem ekki eru
sjálfstæðismenn. Halda þeir félagar
að allir íslenzkir vinstri menn séu
marxistar? Tveir af þremur
íslenskum lýðræðisflokkum, Alþýðu-
flokkur og Framsóknarflokkur,
kenna sig stundum við hugtakið
vinstri (svo óljóst sem það hugtak nú
er). Skoðum nú niðurlag tillögu sem
samþykkt var í Stúdentaráði vegna 1.
maí 1978 með öllum atkvæðum
„Vinstri manna” gegn atkvæðum
Vökumanna: „En það duga engin
vettlingatök í viðsjárverðum heimi og
haráttan má ekki minnka, þó að
stundarhagsmunum sé náð, heldur
eflast og beinast að því að uppræta
mein okkar þjóðfélags, efnahags-
kerfi auðvaldsins. Islensk verkalýðs-
hreyfing þarf að standa sameinuð í
baráttu sinni og verður því að vinna
gegn faglegum klofningi innan
hennar. Jafnframt verður að hnekkja
veldi þeirra innan launþega-
samtakanna er ganga braut stéttar-
samvinnustefnu og eru handbendi
auðvaldsins á annan hátt.” Segja
þessi orð ekki einhverja sögu?
Mergurinn málsins er greinilega sá
að meirihlutamenn í Stúdentaráði
telja alla íslenzka vinstrisinna
byltingarmenn.
Almenningsálit
Hryggilegt er að líta til þess hversu
róttæklingum í Háskólanum hefur
tekist með öfgaskoðunum sínum og
óvinsælum tiltektum að setja niður
álit islenzks almennings á stúdentum
og Háskólanum. Hvað segir Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir í Dagblaðinu
í byrjun desember sl. um „Vins'iri
menn” í Háskólanum: „Sá armi
lýður, hinn raunverulegi verkalýður,
er skrautfjöður, sem notuð er á tylli-
Kjallarinn
Tryggvi Agnarsson
dögum. Ef þetta fólk kemst í yfir-
mannastöður fer minna fyrir verka-
lýðsástinni og þarf ekki nema undir-
tyllu á launaskrifstofu til. Drottinn
minn, hvað ég er orðin leið á þessu
fólki.” En hróður stúdentaleiðtoga
okkar fer víða. Norrænn forustu-
maður í félagslífi stúdenta í sínu
landi, er ég hitti fyrir nokkru, sagði
mér að í sínum hópi og víðar þar sem
hann þekkti til væru forustumenn
heildarsamtaka íslenzkrar náms-
mannahreyfingar nefndir „guerillas”
eða skæruliðar vegna þeirra aðferða
sem þeir kysu að beita í baráttu sinni.
Er ekki mál til komið að fara að
söðla um?
Stúdentablaðið
Sumir hafa viljað halda því fram
að helzt megi líkja Stúdentablaðinu
við klámrit. Aðrir líta á blaðið sem
einbert pólitískt öfgarit í ætt við þau
sem kollegar „Vinstri manna” í
ýmsum félögum gefa út, svo sem
Stéttabaráttuna og Neista. Um þetta
má sjálfsagt lengi deila. En ef því er
haldið fram að Stúdentablaðið þjóni
tilgangi sínum sem almennur vett-
vangur fyrir áhugamál okkar stúd-
enta og ærlegt tæki í hagsmunabar-
áttu okkar hljómar það eins og léleg-
ur brandari i minum eyrum. Það er
rétt að árétta það hér að allir innrit-
aðir stúdentar við Háskólann eru
skyldaðir til að kaupa blaðið.
Öllum tillögum Vökumanna unt
breytingar á skipulagi blaðsins hefur
verið vísað á bug. Við Vökumenn
ihugum nú hvort ekki sé ástæða til að
taka upp harða baráttu gegn skyldu-
áskriftinni verði ekki gerð bragarbót
á blaðinu.
Vökublaðið
Það hefur mikið farið í taugarnar á
„Vinstri mönnum” hve blaðaútgáfa
Vöku hefur verið öflug. Á meðan
stúdentar verða að punga út millj-
ónum á milljónir ofan í Stúdenta-
blaðið hefur Vaka fjármagnað blað
sitt með auglýsingum og sent það öllu
stúdentum heim, ókeypis.
Vökublaðið er líka auðvitað unnið í
sjálfboðavinnu en Stúdentablaðinu
dugar ekkert minna en launaður rit-
stjóri. Róttæklingarnir kunnaauðvit-
að skýringu á þessu. Hún er sú að all-
ir atvinnurekendur hljóti að vera vit-
lausir í að auglýsa í Vökublaðinu til
að hjálpa Vökustaurum að berja á
kommunum . . . Ég held nú að allir
þeir sem barizt hafa í að gefa úl
skólablöð viti betur. það er mikil
vinna að safna auglýsingum í shk
blöð og við einfaldlega leegjum hana
á okkur en „Vinstri menn” síður.
Eða byrja þeir e.t.v, á því að segja
þeim, sem þeir ætla að fá auglýsingar
hjá, hvað muni verða gert við þá eftir
byltinguna? Ef svo er þá skil ég nú
mæta vel aðsöfnunin gangi treglega.
Tryggvi Agnarsson,
formaður Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúdenta.
Meira
Fást nú aftur í PALESANDER 0. FL VIÐARTEGUNDUM
VELJUM
ÍSLENZKT
BERIÐ
SAMAN
VERÐ 0G
GÆÐI
OPIÐ
FÖSTUDAGA
TIL KL. 7
LAUGAR
DAGA FRÁ
KL. 10-12
•
VERZLIÐ
HJA FRAM-
LEIÐANDA
einnig mikið úrval annarra húsgagna, t.d. Dropa skápa- og hillusam-
stæöur, sófasett, 3 geröir, Spira svefnbekkur, sófabord, forstofuhús-
gögn, boröstofuborö, borðstofustólar, skrifstofuskrifborð.
A.GUÐMUNDSSOIM HF
Húsgagnaverksmiðja
Skemmuveg 4, Kópavogi — Sími 73100