Dagblaðið - 26.02.1979, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
Borgarstjórn:
Lóðaskortur meginorsök sam-
dráttar í byggingariðnaði
„Höfuðvandinn sem byggingariðn-
aður á nú við að etja í höfuðborginni er
sá að mikill samdráttur hefur þegar
orðið í lóðaúthlutun. Fyrirsjáanlegt er
að frekari samdráttur verður a.m.k. á
næstu árum,” segir i greinargerð með
tillögu sem borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins fluttu i borgarstjórn Reykja-
víkurnýlega.
Þar sagði ennfremur að ársfjórð-
ungslegar kannanir á byggingarstarf-
semi staðfesti stöðugan og vaxandi
skort á lóðum sem meginorsök fyrir
ónógum verkefnum í byggingariðnaði.
Tillagan var flutt í tengslum við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar borgarinnar.
í fyrri hluta tillögunnar lýsa borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins áhyggjum
yfir því að lóðaúthlutanir muni dragast
stórlega saman á þessu ári og verða
minni en nokkru sinni fyrr.
Er talið útlit fyrir að ekki verði út-
hlutað fleiri lóðum en fyrir 100 íbúðir á
árinu. Sé það langt undir meðaltali þess
íbúðafjölda sem nauðsynlegt er að
byggja árlega.
Er lagt til að borgarstjóm samþykki
því að flýta sem mest undirbúningi
væntanlegra byggingarsvæða. Verði og
stefnt að því að úthlutun lóða verði í
samræmi við íbúðaþörfina.
Meðal annars er lagt til að bygging-
arsvæðum verði í meira mæli en gert
hefur verið, úthlutað til byggingaraðila
í samvinnu við heildarsamtök fieirra.
Slíkar úthlutanir fari fram áður en til
deiliskipulags kemur og fái samtök
væntanlegra byggjenda að taka þátt í
ákvörðun skipulagsins.
Þá er lagt til að hraðað verði stað-
festingu aðalskipulags Reykjavíkur frá
1977.
„Mér var sagt að ég yrði
að hætta að borða
regiuiegar
máitíðir ef ég viídi
grennast En með hjáip
Ayds hefur mér iærzt
hvernig ég get borðað
á réttan hátt
Hvers vegna
Aydsverkar
Ayds hjálpar til að hafa
hemil ó matarlystinni. Það
hjálpar til að borða hita-
einingasnauða fæðu og
forðast fitandi mat. Það er
eina leiðin til að grennast
og halda áfram að vera
grannur. Og — vegna þess
að það tekur tíma að venj-
ast nýjum matarsiðum —
fæst Ayds i pökkum sem
innihalda fjögurra vikna
birgðir. Hver skammtur
inniheldur 25 hitaeiningar.
í september 1977 var Doreen Fox 82,5 kíló að
þyngd. Hún hyrjaói þá að nota Ayds til þess að hafa
hctnil á matarlystinni og í janúar 1978 var hún komin
niður í 65 kíló að þyngd. í janúar 1979 var hún enn 65
kíló. Hvernig hefur henni tekizt þetta?
Doreen segir: „Ég vil taka það skýrt fram að ég
borða reglulega og hef alltaf gert. Ég borða sama mat
og maðurinn minn og börnin okkar tvö. Ég hef ekki
efni á — og langar heldur ekki til — að kaupa sérstakt
megrunarfæði fyrir mig. Galdurinn er fólginn í minni
skömmtum. Og þar er það Ayds sent hjálpar. Með
hjálp Ayds hef ég lagt niður þann ósið að klára lcifar
barnanna. (Ég er vön að segja við sjálfa mig að ég sé
cngin ruslatunna!) Ég hét sjálfri mér því að ég skyldi
ALDREI FRAMAR verða 82.5 kíló að þyngd og ég
hef haldið þyngdinni í skefjum i meira en ár. Það
mcrkir ekki að ég sé í stöðugum megrunarkúr. Ég
eiska mat og ég clska Ayds fyrir að hafa átt þátt í að
kenna mér að borðaá róttan hátt."
Hvernig Ayds verkar
Það er álit margra vísindamanna að þegar
blóðsykurinn minnkar, segi heilinn: „Ég er svangur!”
Augljóslega gerist þetta oftast skömmu fyrir venjulegan
matmálstíma en það gctur líka gerzt á milli mála. Ff þú
horðar eitt eða tvö Ayds (gjarnan með heitum drykk
sem hjálpar þér að melta það) hálftima fyrir máltíð,
eykst hlóðsykurinn og matarlystin minnkar.
Loks er lagt til að skipulega verði hverfa með fjárhagslegum og tækni-
unnið að endumýjun eldri borgar- legum stuðningi borgarinnar. BS.
Trúnaðarráð
Dagsbrúnar
gegn
tillögum Ólafs
Trúnaðarráð Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar hefur lagzt af þunga gegn
frumvarpsdrögum Ólafs Jóhannes-
sonar forsætisráðherra.
Fundur í trúnaðarráðinu sl.
fimmtudag mótmælti „harðlega þeim
hugmyndum sem fram eru settar í
frumvarpinu um skerðingar á
umsömdum reglum um verðbætur á
vinnulaun,” eins og segir í frétta-
tilkynningu frá Dagsbrún.
„Sérstaklega mótmælir fundurinn
þeim tillögum, að taka óbeina skatta
og niðurgreiðslur út úr vísitölunni og
að takmarka greiddar verðbætur við
5% á hverju verðbótatímabili, hvað
sem verðlagshækkunum liður. í þessu
sambandi minnir fundurinn á að með
ráðstöfunum 1. desember sl. tóku
launþegar drjúgan þátt í því að gefa
ríkisstjóminni vinnufrið, en undir-
strikar jafnframt að kaupgjald verka-
fólks er ekki orsök vandans í efnahags-
málum og að það má með engu móti
skerða.”
ÓV.
Öðru hjólinu stolið
frá ungum náms-
manni á sama árinu
„Þetta er mikill skaði fyrir mig, ef
mér tekst ekki með ykkar hjálp og
annarra að finna reiðhjólið mitt
aftur,” sagði Trausti Valdimarsson er
hann kom á ritstjórn DB og sagði sínar
farir ekki sléttar.
Á föstudaginn var um kl. 6 lagði
Trausti nýlegu reiðhjóli sínu á standara
alveg upp við Útvegsbankann, við þann
gluggann sem veit út að Lækjartorgi og
klukkunni þar.
„Það liðu ekki margar mínútur frá
því ég lagði hjólinu og þar til ég ætlaði
að grípa til þess aftur, en hjólið var
horfið þegar að því kom,” sagði
Trausti.
Trausti er ungur námsmaður, sem
notar hjólið sitt mikið. Þetta er mikið
tjón fyrir hann. Það sem meira er, að
fyrir svo sem hálfu ári var stolið
hjólinu sem hann átti þá.
Hjólið er nýlegt, með lukt og
dynamó og vel með farið. Felgustærðin
er 23 tommur. Verksmiðjunúmer á
hjólinu er 5190597.
Ef einhver verður hjólsins var er
hann vinsamlega beðinn að hafa-
samband við Trausta á Grettisgötu 57
B, eða í síma 13971. Eins mætti koma
upplýsingum til Dagblaðsins í síma
27022. Fundarlaunum er heitið.
-BS.