Dagblaðið - 26.02.1979, Side 22

Dagblaðið - 26.02.1979, Side 22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUD\3UR26. FEBRÚAR 1979. 22 HEIMILIS- ELDAVÉLIN er landsþekkt fslenzk fram- leiðsla. Frá stofnun hafa verið fram- leiddar um 60 þúsund eldavél- ar. Þrjár gerðir eru fáanlegan. Gerð E, fristandandi, 90 cm borðhæð. Gerð HE, fyrír háan sökkul. Innbyggingarsctt, borðhella og ofn. Allar fáanlegar með klukku- baki, grilli og f 6 Rafha-litum. viðurkennd varahluta-og viðgerðarþjónusta sími 84445 og 86035 Landvarzla - gæzlustörf Vegna þess að ósamið er um kaup og kjör gæzlumanna á ferðamannastöðum, vill Félag gæzlumanna biðja þá, sem ætla að ráða sig til slíkra starfa, að hafa samband við stjórn fé- lagsins eða skrifstofu Alþýðusambands ís- lands Féiag gæJumanna. Lítið blóm sem bætir loftið Olíuféiagið Skeljungur hf Shell Þetta litla, laglega blóm er Airbal blómið. Við það er fest lítil plata, sem unnin er úr ferskum náttúruefnum. Hreinsar andrúmsloftið, - gefur góða lykt. Límist á alla siétta fleti. Tilvalið í snyrti- og bað- herbergi. Fæst á bensínstöðvum Shell, apótekum og í fjölda verslana. Heildsölubirgðir: Smávörudeild. Sími 81722 Aókoman é slysstaðnum aðfaranótt laugardagsins var óglæsileg. Mazda-bifreiðin nánast ónýt og hin mikifl skemmd. -DB-mynd: RagnarTh. ÖKUMAÐUR Á FLÓTTA UNDAN LÖGREGLUNNI OLU STÓRSLYSI Geysiharður árekstur varð um kl. hálf tvö aðfaranótt laugardagsins á mótum Miklubrautar og Grensásvegar á Reykjavík. BMW-bifreið ók þar á talsverðri ferð yfir gatnamótin á rauðu Ijósi með lögreglubíl á eftir sér og lenti beint inn í hliðina á nýlegri Mazda-bifreið, sem var að fara Grensásveginn yfir Miklubraut. Við höggið hentist ökumaður BMW-bifreiðarinnar í gegnum fram- rúðuna og skarst talsvert í andliti. 1 hinum bílnum voru hjón. Slasaðist konan alvarlega, mjaðmagrindar- brotnaði, fótbrotnaði og hlaut fleiri meiðsli, og var flutt á gjörgæzludeild. Hún komst þar til meðvitundar á laug- ardagsmorgun og er ekki i lífshættu. Eiginmaður hennar rifbrotnaði og marðist talsvert en fékk að fara heim eftir að hafa fengið læknishjálp. Fyrr um kvöldið hafði lögreglan lýst eftir ökumanni BMW-bifreiðarinnar, en þá hafði hann ekið utan í bifreið í Ármúla og síðan stungið af. Laust fyrir kl. 01.30 um nóttina tóku lögreglu- menn á eftirlitsferð eftir bilnum, þar sem honum var ekið ljóslausum eftir Miklubraut. Þegar þeir komu að bílnum jók ökumaðurinn hraðann og rásaði á milli akreina m.a. með þeim afleiðingum að hann rakst utan í lög- reglubílinn. Hann gaf síðan hressilega i með þeim hörmulegu afleiðingum, sem lýst var. Ökumaðurinn var talinn ölvaður við aksturinn og grunur lék á að ökumaður Mazdabifreiðarinnar hefði einnig verið lítillega undir áhrifum áfengis. -ÓV. lárnblendiverksmiðjan: Tilboð í f lutninga i kisiljarm opnuð 1. marz „Þetta gengur svona þokkalega, við eigum von á skipi með jámgrýti um næstu helgi,” sagði Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri Járnblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga i viðtali við Dagblaðið. „Þetta er einn gríðar- mikill kapall sem þarf að ganga upp fyrir gangsetningardaginn, en við vonum að allt standist.” Áformað er að hefja starfsemi bræðsluofnsins eftir rúman mánuð, eða 1. apríl nk. og sagði Jón, að enn væri eftir að fullganga frá samningum við verkalýðsfélög og tilboð í flutninga á kísiljárni frá verksmiðjunni yrðu opnuð í næstu viku. -HP. Jón Kjartansson dreginn til haf nar Loðnuskipið Jón Kjartansson varð enn fyrir óhappi i fyrrinótt. Fór skipið til veiða á sunnudag eftir vikustöðvun. Orsök hennar var að annað skip sigidi í nót Jóns Kjartanssonar og tætti hana svo illa að viðgerðin tók viku. Svo gerðist það nú er skipið var á leið til lands með fullfermi úr fyrstu ferð eftir stöðvunina að stimpilhringur bilaði í vél. Var Goðinn fenginn til að draga skipið til hafnar og var komið að landiigær. Regína/ASt. Verkalýðurinn breiðu bökin stjómarinnar Fasteignagjöld á Eskifirði hafa hækkað um 47% frá því í fyrra, að sögn hins unga bæjarstjóra Áskels Jónssonar. Heildarupphæð þeirra er um 36 milljónir. Aðstöðugjöld nema samtals 34 milljónum og áætluð út- jsvör á árinu eru 153 milljónir. Eru þau miðuðvið 11% markið. Útsvörin í fyrra voru 96 milljónir og höfðu um láramót innheimzt 90% af upphæð- inni. Ég hringdi til nokkurra húseigenda og spurði hvort þeim fyndist fast- eignagjöldin há. Flestir svöruðu neit- andi, kváðu eðlilegt að þau hækkuðu eins og allt annað en betra væri að næg atvinna yrði. Eskfirðingar eru svo heppnir að eiga duglega og fyrir- hyggjusama atvinnurekendur í hví- vetna. Ein kona svaraði með illsku og gremju að þau hjón væru að hugsa um að selja sitt nýbyggða hús og fá leigt hjá bænum í blokk sem byggja á á þessu ári og næsta. Kvað konan það hróplegt ranglæti að fólk í eigin húsum væri skattlagt svo mikið sem nú er, bæði með fasteignagjöldum og tekjum af eigin húsaleigu. „Það er verkalýðurinn sem vinnur nótt með degi sem orðinn er að breiðu bökun- um hjá núverandi stjórn,” sagði kon- an. Regína/ASt. Vörubifreiðastjórar skora á ríkið að gef a tollana eftir þegar eldsneytið hækkar Landssamband vörubifreiðastjóra skorar eindregið á ríkisstjóm og Al- þingi að lækka tolla og gjöld af olíu og bensíni til þess að draga úr þeim gífurlegu hækkunum á þessum vörum sem nú eru framundan. Telur Landssambandið óhjá- kvæmilegt að þær miklu byrðar sem hinar erlendu verðhækkanir hafa í för með sér dreifist með einum eða öðrum hætti á alla landsmenn, en bitni ekki einvörðungu á þeim sem háðir eru kaupum á olíu og bensíni. Verðhækkanirnar mega ekki undir nokkrum kringumstæðum verða grundvöllur aukinna skatttekna hins opinbera af þessum vörum. Ofangreid ályktun var gerð í stjóm Landssambandsins í gær. „Við telj- um óhugsandi annað en á þessu máli vérði tekið,” sagði Einar ögmunds- son, formaður þess, í viðtali við DB í gær, „og af ályktun okkar er auðséð hverja nauðsyn við teljum á að það verði gert með þeim hætti sem í henni kemurfram.” BS.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.