Dagblaðið - 26.02.1979, Blaðsíða 24
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
24
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrc
ítalir sigruðu
Hollendinga
íMílanó
— 3-0 og ítalir hafa ekki
tapaðíátta áráítalfu
ítalir sigruðu Hollendinga, silfur-
liðið frá HM í Argentínu 3—0 í Mílanó
á Ítalíu á laugardag. Sannfærandi og
öruggur sigur en Ítalir hafa ekki tapað
landsleik á Ítalíu nú i átta ár — mikil
sigurganga þar. Hollenzka liðið var án
nokkurra lykilleikmanna og það voru
aðeins Van der Kerkhof bræðurnir,
ásamt Wildschut og Jansen, sem sýndu
góðan leik í hollenzka liðinu, sem ann-
ars olli vonbrigðum, og vildu Hollend-
ingar kenna um hinu langa hléi, sem
veriö hefur í Hollandi vegna veðurs.
Ekki hefur verið leikið þar í 2 mánuði.
,,Ég er ánægður með leik ítala. Þeir
sönnuðu að Ítalía er eitt af stórveldum
knattspyrnunnar i Evrópu í dag, þó ég
auðvitað geri mér grein fyrir að Hol-
lendingar hafi verið án leikmanna eins
og Krol, Arie Haan, Rensenbrink og
Neeskens,” sagði Enzo Bearzot eftir
leikinn. Italir náðu forustu þegar á ní-
undu mínútu í Mílanó. Þá var Roberto
Bettega á ferðinni, skoraði af stuttu
færi. Á 18. minútu bætti Paolo Rossi
við öðru marki ítala úr vítaspyrnu eftir
að Ernie Brandts hafði fellt Marco
Tardelli. Og Tardelli var sjálfur á ferð-
inni á 43. mínútu er hann skoraði eftir
sendingu félaga síns frá Juventus,
AntonioCabrini.
Af sóknarmönnum Hollands var það
aðeins Willy van der Kerkhof sem
sýndi eitthvað, aðrir voru slakir. Jan
Peters átti gott skot, en var varið. í
raun var eina tækifæri Hollendinga
þegar Piet Wildschut komst í gegn en
Conti varði skot hans. En Enzo Bear-
zot hitti naglann á höfuðið er hann
sagði: „Þetta var ekki lið Hollands eins
og við þekkjum það”. Áhorfendur í
Mílanó voru 64 þúsund.
Níu met á
meistaramóti
unglinga
•— í lyftingum
Meistaramót unglinga í lyftingum
var haldið í Laugardalshöll um helgina.
Þar litu níu met dagsins Ijós en úrslit
urðu:
52 kg flokkur. Þórhallur Hjartarson,
ÍBA. Snaraði 50 kg, jafnhattaði 55 kg,
samtals 105 kg.
í 60 kg flokki. Sigurvcgari Þor-
valdur Rögnvaldsson, KR.Snaraði 85 kg
sem er unglingamet, og jafnhattaði
102.5. Samtals 187.5 sem er nýtt
unglingamet. Annar þar varð Ágúst
Magnússon ÍBA og þriðji Ólafur
Magnússon ÍBA.
67.5 kg. flokkur. Haraldur Ólafs-
son, ÍBA. Snaraði 100.5 kg, nýtt
unglingamet, jafnhattaði 130 kg sem er
nýtt íslandsmet. Hann lyfti samtals
230 kg sem er íslandsmet, cn í auka-
tilraun jafnhattaði Haraldur 132.5 kg.
75 kg flokkur. Leifur Björnsson,
sigurvegari. Snaraði 90 kg, jafnhattaði
107.5, samtals 197.5 kj>. Ánnar varð
Hermann Haraldsson, ÍBV og þriðji
Gylfi Gislason ÍBA. Þorsteinn Leifsson
féll úr keppni en jafnhattaði 145.6 sem
er nýtt Islandsmet og þar féli síðasta
met Skúla Óskarssonar, sem nú hefur
snúið sér eingöngu að kraftlyftingum.
82.5 kg flokkur. Sigurvegari Guðni
Helgason KR. Snaraði 115 kg, jafn-
hattaði 135 kg, samtals 250 kg. Annar
varð Bragi Helgason KR og þriðji
Jóhann Gislason ÍBV. 90 kg. flokkur,
þar sigraði Gísli Ólafsson, ÍBA. Hann
snaraöi 102.5 kg, jafnhattaði 140 kg,
samtals 242.5 kg. Annar varð Ingvar
Ingvarsson, KR 100 kg flokkur. Þar
sigraði Sigmar Knútsson, ÍBA, snaraði
110 kg, jafnhattaði 145, samtals 255.
Annar varð Viöar Sigurðsson, KR.
110 kg flokkur. Þar sigraði Jón P.
Sigmarsson, KR. Hann snaraði 95 kg
jafnhattaði 130 kg, samtals 225. Og í
110 kg og yfir sigraði Ágúst Kárason,
KR. Hann snaraði 137.5 kíló og sló þar
með elzta metið í lyftingum, sem
Gústaf Agnarsson setti 1972. I
jafnhöttun fóru 170 kg upp, samtals
307.5 kg sem er nýtt met.
Þeir hafa jafnað, þeim tókst það. Eiginkonur íslenzku leikmannanna — en átta þeirra komu saman og hlustuðu á lýsingu Hermanns Gunnassonar, fögnuðu
mjög, stukku á fætur er Bjami jafnaði. Þeim tókst það! Þær eru frá vinstri, Erna, kona Steindórs, Kristín hans Árna fyrirliða, Ingibjörg hans Brynjars, Gunna hans
Þorbjörns Jenssonar, Kristín hans Olafs Víkings, Elsa hans Stefáns, Jóna hans Jóns Péturs og Ásta hans Þorbjörns Guðmundssonar. DB-mynd Bjarnleifur.
Jafnteffi í Sevilla!
—ísland og Tékkóslavía skildu jöfn, 12-12 í Sevilla á laugardag.
Viggó Sigurðsson og Bjarni Guömundsson snjallir
Hallur Símonarson í Sevilla:
,,Ég hugsaði aðeins um eitt — að
skora,” sagði Bjami Guðmundsson,
hinn eldfljóti Valsmaður er á laugar-
dagskvöldið skoraði jöfnunarmark
íslands gegn Tékkum í jafnteflinu í
Sevilla, 12—12. íslenzka liðið missti
knöttinn þegar 50 sekúndur voru til
leiksloka og Jóhann Ingi lét íslenzka
llðið umsvifalaust leika maður á mann.
Og sekúndurnar tifuðu hver af annarri
og 11....10....9 og þá skyndilega náði
íslenzka liðið knettinum, Jón Pétur
sendi umsvifalaust fram yfir Tékkana.
Hann vissi sem var að þar væri Bjarni
fyrir, sem var fljótur að átta sig, fékk
knöttinn og með Tékkana á hælunum
brunaði Bjarni upp og jafnaði, 12—12
— jafntefli staðreynd.
íslenzka liðinu hafði tekizt það sem
enginn átti von á eftir hinn slaka leik
gegn ísraelsmönnum. Að já jöfnu gegn
Tékkum. Og íslenzka liðið sýndi gífur-
lega sterkan varnarleik hér í Sevilla.
Þeir voru klettar í vörn, Stefán
Gunnarsson, Ólafur H. Jónsson og
Árni Indriðason og í markinu stóð
Ólafur Benediktsson og varði af snilld.
í sókninni lék Viggó Sigurðsson sinn
bezta landsleik, var hreint stórkost-
legur. Gífurlega ógnandi, með snerpu
sinni og krafti. Auk þess að skora
þýðingarmikil mörk þá opnaði hann
laglega fyrir Bjarna og sámvinna þeirra
var stórkostleg. Vigttó Sigurðsson var
Viggó Sigurðsson — „toppklassi” í
Sevilla, eins og pólski þjálfarínn orðaði
það.
án nokkurs vafa maður íslenzka liðsins
í Sevilla — stórkostlegur. Viggó
byrjaði stjörnuleik sinn um miðjan
hálfleik. Þá var gífurleg harka í
leiknum. Tékkar tóku hraustlega á í
vörninni og íslenzka liðið átti i erfið-
leikum með að finna leiðina i net-
möskva marks Tékka. Aðeins eitt
mark á 15. mínútum og það skoraði
Ólafur Jónsson úr horninu, stórkost-
legt mark eftir laglega leikfléttu. En í
kjölfarið fylgdu tvö stangarskot,
Ólafur og Axel. Og Tékkar komust í
9—6, Bjarni komst í gegn en var varið
og Jón Pétur og Tékki voru reknir af
velli. Viggó Sigurðsson minnkaði mun-
inn í 9—7 og síðan skoraði Bjarni
Guðmundsson áttunda mark íslands,
9—8 eftir að Viggó Sigurðsson hafði
opnað vel fyrir Bjarna. Tékkar
skoruðu tíunda mark sitt, 10—8 og 21.
mínúta liðin af síðari hálfleik. ísland
minnkaði muninn enn í eitt mark, 10—
9. Viggó úr víti eftir að hafa brotizt í
gegn og fiskað vítið. Tékkar svöruðu
enn, enn var Papernic á ferðinni en
hann skoraði 8 af 12 mörkum Tékka.
Enn minnkaði Viggó Sigurðsson
muninn, 11 —10 úr víti. Bjarni fiskaði
víti eftir að Viggó hafði opnað fyrir
hann. En Paprinic jók forustu Tékka
enn, 12—10, úr víti og fimm mín
mínútur eftir.
Viggó minnkaði muninn enn í eitt
mark, 12—11. Braust glæsilega i gegn
og skoraði, fallegt mark og liðlega
Svona þekkjum við Bjama Guðmunds-
son og ekki i fyrsta sinn að hann jafnar
á lokasekúndum. Hér einmitt jafnar
hann gegn Ungverjum fyrír tveimur
árum.
þrjár og hálf mínúta eftir. Tékkar voru
gífurlega taugaóstyrkir en íslenzka liðið
óx með hverri mínútunni. Tékkar
reyndu allt hvað þeir gátu að halda
knettinum. Dæmd leiktöf á Tékka en
ísland missti knöttinn. Aftur í vörn,
aftur misstu Tékkar knöttinn, Ólafur
Jónsson brunaði upp í hraðaupphlaupi
en tékkneski markvörðurinn stöðvaði
hann, mjög ólöglega. Víti hefði átt að
dæma, en aðeins aukakast, og liðlega
mínúta eftir. En þegar 50 sekúndur
voru eftir var dæmdur ruðningur á Jón
Pétur. „Maður á mann”, hrópaði
Jóhann ingi. Nauðvörn Islands og þeg-
ar 9 sekúndur voru eftir misstu Tékkar
knöttinn. Jón Pétur bætti heldur betur
fyrir ruðninginn, sendi umsvifalaust
fram og þar var fremstur Bjarni
Guðmundsson og jafnaði — 12—12.
Jafntefli í Sevilla staðreynd.
Glæsilegur leikur íslands, sér í lagi
eftir slakan leik gegn ísrael. Encgsagði
eftir viðureign Tékka og ísraelsmanna
að ég væri bjartsýnn. íslenzka liðið olli
mér að visu miklum vonbrigðum gegn
ísrael en strákarnir bættu það upp gegn
Tékkum. Það hafa í gegn um árin alltaf
verið hörkuleikir gegn Tékkum...
tvisvar hefur ísland unnið, leikurinn í
Sevilla var fimmta jafntefli þjóðanna
en lOsinnum hafa Tékkar sigrað.
Ávallt hörkuleikir. Afrek íslands er
enn meir í ljósi þess að í fyrri hálfleik
unnu íslendingar upp fjögurra marka
forustu Tékka. Axel kom íslandi í 1 —
0, eina mark hans en hann fékk snert af
fiensu og hefur verið hálfslappur.
Skarð þar fyrir skildi. Tékkar komust í
3—1, síðan 6—2, Ólafur H. Jónsson
skoraði annað mark fslands. Þetta var
afleitur kafii, þrívegis misnotuð víti,
Axel tvivegis og Jón Pétur einu sinni.
Jón Pétur minnkaði muninn í 6—3,
Ólafur H. Jónsson i 6—4 svo 7—4,
en Páll skoraði slðasta mark fyrri hálf-
leiks, 7—5. í síðari hálfleik náðu
Tékkar þriggja marka forustu, 9—6, en
með krafti, baráttu, sér i lagi i vörninni
tókst að minnka muninn og jafna á
siðustu sekúndum leiksins og þar lék
allt íslenzka liðið stórt hlutverk... en
stærst samt þeir Viggó Sigurðsson og
Bjarni Guðmundsson, skoruðu sex
síðustu mörk íslans.
-h. sím.
Erfiðar mínút-
ur gegn ísrael
— en gegn Tékkum
varég stoltur
Hallur Símonarson í Sevilla:
„Ég hef aldrei upplifað erfiðari
mínútur en gegn ísrael. Þá fór ég út
þegar 15 mínútur voru eftir. Hreinlega
gat ekki afborið að horfa á. Hins vegar
var það þægileg tilfinning, stórkostleg
tilfinning að horfa á íslenzka liðið gegn
Tékkum — þá var ég stoltur,” sagði
Júlíus Hafstein, formaður HSI eftir
jafntefli Tékka og íslendinga í Sevilla.
„En," bætti Júlíus við, „þetta er
persónulegur sigur Jóhanns Inga lands-
liðsþjálfara.”
Viggó kom mér
mjög á óvart
— sagði Jóhann Ingi, þjálfari
íslenzka landsliðsins
Hallur Símonarson í Sevilla:
„Ég tel þennan leik hápunkt ferils
míns sem landsliðsþjálfara, þó ég verði
að segja eins og er að erfit: sé að velja á
milli sigursins í Randers og jafnteflisins
hér í Sevilla,” sagði Jóhann Ingi, þjálf-
ari íslenzka landsliðsins eftir jafnteflið í
Sevilla, 12—12.
„íslenzka liðið lék mjög sterkan
varnarleik, þann sterkasta sem ég hef
séð til íslenzka landsliðsins. Viggó Sig-
urðsson kom mér verulega á óvart, svo
ég segi alveg eins og er. Var yfirvegaður
en ekki eins taugaóstyrkur og æstur
eins og á móti ísrael. Sýndi stórkostleg-
an leik en sem heild fyrst og fremst lék
ísland stórkostlega,” sagði Jóhann
Ingi ennfremur.