Dagblaðið - 26.02.1979, Page 27
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
27
Iþróttir
Iþróttir
I
Tekizl í hendur yfir nelið, eða svo mætli halda en það var hvergi gefið eftir þegar I.augdælir og stúdentar mættust i I
deild í blaki.
1 4mmm.1w.mm
'WwmÍ- z Wk
tizscs ? j '■ . lii' Tni ijifiíf
Fram sigraði
HK í Bikarnum
—24-22 í hörkuleik í Höllinni
Fram sigraði HK i bikarkeppni HSÍ
I Laugardalshöll á laugardag, 24—22.
Hörkuleikur þegar liðin mættust i
Höllinni, jöfn og tvísýn barátta eins
og í fyrri leikjum Fram og HK í 1. deild
en þá sigraði Fram í báðum leikjuuum
með aðeins eins marks mun. í Höllinni
hins vegar skildu 2 mörk en Fram
skoraði 24 mark sitt aðeins þremur
sekúndum fyrir leikslok.
Viðureign Fram og HK var ákaflega
jöfn, allan leikinn og jafnt á öllum
tölum upp í 11 —11 en Fram hafði yfir i
leikhléi, 12—11, en Viðar Birgisson
skoraði 12. mark Fram aðeins þremur
sekúndum fyrir leikslok i miklum
darraðardansi.
Fram komst yfir, 14—12 og síðan
17—13 í siðari hálfleik. Á 10. minútu
skildu fimm mörk, 20—15 Fram í vil.
En HK náði að minnka muninn i 20—
18, 21 — 19 og þegar tæp minúta var
eftir skildi aðeins eitt mark, 23—22.
En Fram átti síðasta orðið í leiknum,
Atli Hilmarsson var þá að vcrki.
Markhæstur leikmanna Frarn var
Gústaf Björnsson með 10 mörk, 7 viti.
Atli Hilmasson skoraði 5 mörk og
Theódór Guðfinnsson 4 ntörk, ört va\-
andi leikmaður. Hjá HK skoraði
Stefán Halldórsson mest, 5 mörk,
Hilmar Sigurgislason 4 og þeir Friðjón
Jónsson, Jón Einarsson og Kristinn
Ólafsson 3 mörk — aðrir minna.
-H. Jónsd.
KA sigraði KR
á Akureyri
— og spennan í 2. deild er nú í algley mingi
Það var hörkuleikur þegar KA co
KR mættust í 2. deild Íslandsmótsins i
handknattleik á föstudagskvöldið.
Hinir um 250 áhorfendur vel með á
nótunum og KA gerði sér lítið fyrir og
sigraði KR i annað sinn á skömmum
tíma, nú 26—25.
En KR-ingar fóru illa að ráði sínu.
Aðeins rúmri mínútu fyrir leikslok
fengu þeir víti og gátu jafnað, 25—25
— en Gauti varði frá Símoni Unndórs-
syni. KA brunaði upp og skoraði 26.
mark sitt. KR náði að minnka muninn
enn, i 26—25 en um seinan. KA vann
þýöingarmikinn sigur og enn opnast 2.
deildin meir.
Nánast er orðið ómögulegt að segja
til um hver ber sigur úr býtunt. Leikur
KA og KR var allan tímann mjög jafn,
jafnt á flestum tölum en KA hafði yfir
14—12 í leikhléi.
Jón Árni Rúnarsson var óstöðvandi i
byrjun síðari hálfleiks er hann skoraði
5 mörk í röð fyrir KA. Alls skoraði Jón
Árni 8 mörk, 2 viti. All'reð Gíslason
skoraði 5, einnig Þorleifur Ananiasson.
Hjá KR voru þeir markhæstir Björn
Pétursson og Símon Unndórsson með 8
mörk, Símon 6 víti. Ólafur Lárusson
skoraði 4 mörk.
ST.A.
Fyrsti sigur Víkings
DB-mynd Bjarnleifur.
UMFL sótti dýrmæt
stig til Reykjavíkur
—er þeir sigruðu Stúdenta 3-1 í Hagaskóla. Þróttur er nú í
efsta sæti í blakinu
í 1. deild kvenna. Staða Þórs nú vonlítil
, Baráttan i 1. deild i blaki er nú í al-
gleymingi. Þróttur og Laugdælir hafa
nú forustu, bæði lið með 20 stig, en í
þriðja sæti koma íslandsmeistarar
stúdenta með 18. Laugdælir komu til
höfuðborgarinnar í gær og mættu
meisturum ÍS í Hagaskóla. Hörku-
viðureign, þar sem hvergi var gefið eftir
Svigmót ÍR
Svigmót ÍR var haldið i Hamragili
sunnudaginn 25. febrúar. Veður var
frekar óhagstætt til keppni og snjór lit-
ill. Keppt var einungis I barnaflokkum.
Úrslit voru sem hér segir:
10 ára og yngri stúlkur:
Kristín Olafsdóttir KR 84.36
Þórdis Hjörleifsd. Viking 103.38
Svava Skúladóttir Á. 124.36
Fleiri luku ekki keppni af 5.
10 ára og yngri drengir.
Einar Óskarsson Á. 100.56
Egill Jónsson ÍR • 124.06
Valdimar Kristinsson Á. 128,49
Keppendurvoru 14.
11—12árastúlkur:
Tinna Traustadóttir Á 87.74
Helga Stefánsson ÍR 92.75
Dýrleif Guðmundsdóttir Á. 102.43
Keppendur voru 12.
11—12 ára drengir:
Ragnar Sigurðsson KR 98.46
Egill Örn Egilsson Á. 102.36
Vilbergur Sverrisson KR 114.06
Keppendur voru 17.
(Þorri)
en Laugdælir tóku bæði stigin með sér
austur fyrir fjall, sigruðu 3—1.
Stúdentar byrjuðu leikinn af miklum
krafti í Hagaskóla og komust í fyrstu
hrinunni í 7—0 og sigruðu síðan 15—3.
Virtist þá sem Laugdælir ættu ekki
möguleika gegn sterkum stúdentum en
leikurinn átti eftir að breytast. Laug-
dælir létu ekki bilbug á sér finna og
sigruðu í næstu hrinu, 15—11. í þriðju
hrinunni komust Laugdælir í 8—0 en
ÍS náði að jafna, 11 —11, en þá
sprungu þcir og I.aúgdælir sigruðu
15—11. Það var því að duga eða drep-
asl fyrir ÍS ifjórðu hrinunni og hún var
mjög jöfn þó Laugdælir hefðu lengst af
undirtökin. Komust í 4—0, síðan II—6
en stúdentar náðu enn að jafna, 13—
13, en sprungu síðan á limminu og
Laugdælir fóru með bæði stigin úr
Hagaskóía, 3—1 sigurvegarar.
Þróttarar komust því upp i efsta sæti
1. deildar ineð öruggum sigri á Eyfirð-
ingum, 3—0 i Hagaskóla. Sigruðu,
15— 11, 15—6, 15—9 og þar með
bundu Þróttararendaá tvo tapleiki, sex
taphrinur i röð en Guðmundur Pálsson
lék með að nýju og var Þrótturum mik--
ill styrkur.
Áður höfðu Eyfirðingar tapað fyrir
Mími á Laugarvatni. Lokatölur þar
urðu 3—2 Mími í vil, 15—4, 3—15,
16— 14,4—15, 15—7.
Staðan i 1. deild er nú:
Þróttur 13 10 3 32—15 20
Laugdælir 13 10 3 31 — 18 20
ÍS 13 9 4 32—17 18
UMSE 11 1 10 11—32 2
Mímir 12 I II 11—35 0
Þá fór fram einn leikur í 1. deild
kvenna, ÍS sigraði ÍMA 3—1, 6—15,
15—5, 15—10, 15—13. Og í 2. deild
sigraði ÍMA lið Breiðabliks 3—1 sunn-
an heiða. Blikarnir sigruðu í fyrstu
hrinunni 15—6 en síðan töpuðu þeir
þremur hrinum, 14—16, 8—15, 11 —
15.
Víkingur vann sinn fyrsta sigur i I.
deild kvenna í gær er Víkingur sigraði
Þór 15—8 í Laugardalshöll. Öruggur
sigur og aldrei spurning hvort liðið
væri sterkara.
Með ósigri i Höllinni stefnir nú í að
Þór falli beint i 2. deild. Víkingur eygir
nú möguleika á að þoka sér upp töfl-
una, en i tveimur fyrstu leikjum sínum,
gegn FH og Val gerði Vikingur jafntefli
en i kjölfarið fylgdu fimm töp.
Á laugardag sigraði KR lið Þórs, þá
13—9. Það var nokkuð öruggur sigur,
Þór hélt í við KR fram í miðjan fyrri
hálfleik en síðan ekki söguna meir. KR
komst í 8—5, síðan 11—5 en lokakafl-
ann drógu Þórsarar nokkuð á án þess
þó að ógna sigri KR.
Þriðji leikurinn um helgina var
viðureign FH og Breiðabliks. FH vann
þar öruggan sigur, 10—4. Staðan i 1.
deild kvenna er nú:
Fram 10 9 0 1 128-79 18
KR 10 6 0 4 113-103 12
FH 7 5 1 1 95-77 11
Haukar 11 5 1 5 111-127 11
Valur 8 4 1 ■y !%-103 9
Brciðahlik 8 1 5 67-96 5
Vikingur 8 1 T a 81-96 4
Þór 8 0 ö 5 5115 0
STAÐANí
2. DEILD
Staðan í 2. deiid er nú:
KR 12 7 2 3 289—237 16
Þór, AK 11 7 1 3 223—195 15
Ármann 12 6 2 4 253—230 14
KA 11 6 0 5 216—196 12
Þór, Eyjum 10 5 2 3 182—189 12
Stjarnan 10 5 0 5 225—209 10
Þróttur 10 4 1 5 232—217 9
Leiknir 11 0 0 11 160—296 0
t,
adidas
íþróttavörur best þekktar — mest seldar.
Adidas íþróttavörur
ogAdidasskór
fást íflestum
sportvöruverzlunum.