Dagblaðið - 26.02.1979, Side 30
Til leigu
64 ferm húsnæði á 4. hæð við Suður-
landsbraút — Sérlega hentugt fyrir ljós-
myndastofu, einnig fyrir skrifstofur o.fl.
Uppl. í síma 10862 eftir kl. 5 og kl. 9—
12f.h.
Útgáfuþjónusta fyrir félög og fyrirtæki
Getum bætt við okkur verkefnum á sviði útgáfuþjónustu, svo sem um-
sjón með útgáfu félagsblaða, afmælisrita, svo og á sviði kynninga og
auglýsinga.
Sérþekking á sviði efnisgerðar, auglýsingasölu, hönnunar, auglýsinga-
dreiBngar, kynningar og prentunar.
NESTOR, ÚTGÁFUFYRIRTÆKI
Herbert Guðmundsson - Sími 83842.
100-120 FERMETRA
HÚSNÆÐIÓSKAST
undir þrifalegan veitingarekstur í eða nálægt
miðbænum.
Má þarfnast lagfæringar.
Upplýsingar hjá auglýsingaþjónustu Dag-
blaðsins, sími 27022.
Auglýsing
Þeirra
eigin
orð
Guðmundur J. GuAmundsson
STEFNUBREYTING Alþýðuflokks og Alþýðubandalags og verka-
lýðeforingja þessara tveggja flokka varðandi vfsitölubindingu
kaupgjalds hefur vakið þjóðarathygli. í febrúar töldu þessir aðilar
vfsitöluskerðingu launa „kaupránu. Nú telja þeir vfsitöluskerðingu
launa nauðsynlegan þátt f viðnámi gegn verðbólgu. Morgunblaðið
mun á næstunni birta nokkrar tiivitnanir f ummæli þessara aðila f
ræðu og riti, sem undirstrika þessa stefnubreytingu.
Fullar verðlagsbætur
eina vörn launafólksins
— sagði Guðmundur J. 23. júní
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands
íslands og varaþingmaður
Alþýðubandalagsins sagði 23.
júní f tilefni af ársafmæli sól-
stöðusamningannai
„Samningarnir bundu loks enda
á þriggja ára tímabil samfelldrar
kjararýrnunar. Kaupmaetti launa
var lyft verulega, einkum lág-
launa. Tekin voru inn að nýju
ákvæði um fulla og óskerta
vísitölu, fullar verðlagsbætur skv.
vísitölu er eina vörn launafólks
gegn því, að verðbólgan rífi niður
kaupmáttinn. Full vísitala er líka
beinlínis vörn gegn óðaverðbólgu.
Reynslan sýnir, að því skertari
sem vísitalan er, þeim mun meiri
er verðbólgan. í samræmi við sína
verðbólgustefnu þurfti ríkisstjórn
framsóknar og íhalds auðvitað að
eyðileggja vísitöluákvæðin með
ítrekaðri lagasetningu. Þess vegna
eru samningarnir ekki í gildi. Þess
vegna þurfum við að setja þá í
gildi með því að koma ríkisstjórn-
inni frá.“
Okkur er full alvara í því
að styðja þessar aðgerðir
| — sagði Guðmundur J. 28. nóv.
um 8% „kauprán”
iGUÐMUNDUR J. Guðmundsson í
ræðu á Alþingi hinn 28. nóv. sl.:
„Kauphækkunin er 6,12%. Um það
þurfum við nú ekki að deila...
... niðurgreiðslur hafa ekki verið
af verkalýðshreyfingunni almennt
afsagðar, þó það megi færa rök að
því hvernig tekna til þeirra sé
aflað... Það hefur ár eftir ár verið
samið um beina skatta í kjara-
samningum. Það er ekki nýtt
atriði... Okkur er full alvara í því
Verkamannasambandið, sem lýsir
sig reiðubúið til að styðja þessar
aðgerðir... Ég er ákaflega
ósmeykur við að koma fram fyrir
mína félaga með jæssa réttinda-
löggjöf. Það er fráleitt að tala þar
um einhver 3% fyrir t'd. opinbera
starfsmenn. Að vísu var nú
einhver sérstök yfirlýsing í sam-
bandi við það, þá er meginhlutinn
af þessum tillögum réttindi, sem
þeir hafa og ég sé enga ástæðu til
að láta lægst launaða fólkið vera
afskipt í, en þessar félagslegu
úrbætur geta í mörgum tilfellum
verið mikið meira en 3%. í öðrum
tilfellum geta þær verið minna...
Ég býst við að ép mundi vilja hafa
þessar aögerðir tóluvert öðru vísi
en þær eru...“
Nokkrir sjálfstæðismenn,
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
Verður Gamla Garði lokað:
Eftirlitsmenn voru á staðnum að kanna ástandið i kjallara Gamla Garðs.
Framkvæmdafé búið
—f ramkvæmdir langt komnar en ýmislegt vantar enn
„Það eru tíu herbergi hér í
kjallaranum á Gamla Garði,” sagði
Benjamín Bjartmarsson garðprófast-
ur. „Ástandið hér var orðið mjög
slæmt og því hafa staðið yfir
viðgerðir t allan vetur.”
Málefni Gamla Garðs og Félags-
stofnunar stúdenta eru enn í
sviðsljósinu vegna fjá'rskorts. Pétur
Orri Þórðarson stjórnarmaður í
Félágsstofnun sagði í viðtali við DB
að framkvæmdafé væri þrotið áður
en framkvæmdum væri lokið og væri
kjallari Gamla Garðs því alveg
ónothæfur. Fjárveitingavaldið hefði
ekki staðið við loforð sín og því gæti
Félagsstofnun ekki gripið til annarra
ráða en loka Gamla Garði.
Brunamálastofnun og heilbrigðis-
eftirlit hafa gert ýmsar athuga-
semdir við húsnæðið og sagði Pétur
Orri að Félagsstofnun tæki ekki
ábyrgð á íbúum hússins að óbreyttu
ástandi.
Dagblaðsmenn gengu um kjallara
Gamla Garðs í fylgd með
garðprófasti. Hann sagði að skipt
hefði verið um allar lagnir og
innréttingar mikið endurnýjaðar.
Framkvæmdir eru nú komnar á loka-
stig og því væri mjög illa farið ef
framkvæmdir stöðvuðust á þessu
stigi vegna fjárskorts.
-^Brunamálastofnun fór fram á að
settur yrði brunastigi á húsið og
neyðarlýsing. Það hefur ekki verið
gert. Þá er þak hússins ónýtt en eng-
ar líkur eru á viðgerð á því í náinni
framtið.
Benjamín garðprófastur sagði að
loforð hefði fengizt á síðasta ári fyrir
lánveitingu vegna þessara fram-
kvæmda og síðan fjárveitingu á fjár-
lögum. „En það virðist hafa verið
skrúfað fyrir það allt saman.”
Dagblaðið ræddi stuttlega við
Höskuld Jónsson ráðuneytisstjóra í
fjármálaráðuneytinu um málefni
Garðanna. Höskuldur sagði að fjár-
veiting til Garðanna heyrði fremur
undir fjárveitinganefnd en ráðuneyti.
Höskuldur sagði þó að til
ráðstöfunar árin 1978—79 væru 55
milljónir króna.
,,Á miðvikudag kemur saman
hópur manna, til þess að fjalla um
þessi mál,” sagði Höskuldur. „Þar
verður tekin ákvörðun um fram-
haldið og könnuð blaðaskrif um
þetta mál og hvort það er rétt sem
þar er haldið fram.”
-JH.
Péá v " /
Unnið við viðgerðarstörf i einu herberginu.
DB-myndir Bjamleifur.