Dagblaðið - 02.04.1979, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979.
6
V
Norska bif reiðaeftirlitið:
„Rall-stýrin eru lífshættuleg”
„Ekkert eftirlit með slíkum aukahlutum hérlendis,” segir Guðni Karlsson hjá Bifreiðaeftirlitinu
„Töff” bíl.,i eiga helzt að vera
með breiðum felgum, fjölmÖrgum
aukaljósum, rallstrípur eða borða og
rallstýri. Samkvæmt könnunum sem
norska bifreiðaeftirlitið hefur fram-
kvæmt hefur hins vegar komið í ljós
að margar gerðir rallstýranna eru
beinlínis hættulegar lífi og limum
ökumanna.
Engin slík könnun hefur farið fram
hérlendis „til þess höfum við enga
möguleika,” sagði Guðni Karlsson,
forstöðumaður Bifreiðaeftirlits ríkis-
ins, er við bárum málið undir hann.
„Við höfum ekki gefið fulla skoðun
út á sum stýrin en hérlendis er enginn
sem hefur eftirlit með innflutningi
varahluta og aukahluta í bíla,” sagði
Guðniennfremur.
í grein í norska blaðinu Motor er
fjallað um þetta mál: og grípum við
hér niður í grein þessa:
„Skyndilega „hlýddi” stýrið ekki
hreyfmgum mínum og áreksturinn
var óumflýjanlegur,” sagði maður
nokkur sem lent hafði í árekstri, er
kannað var sérstaklega hvers vegna
þetta hefði gerzt. Rallstýrið, eða GT-
stýri eins og þau nefnast einnig, hafði
einfaldlega losnað frá stýrisstöng-
inni, tennurnar í gripinu höfðu
brotnað og þar með var stýrið laust.
Gerist oft
„Við þekkjum vandamálið og
getum nefnt fjölda tilfella þar sem
þetta hefur komið fyrir,” segir Otter
^ verkfræðingur hjá bifreiðaeftirlitinu
norska í viðtali við Motor. „Oftast
eru það tennumar i gripinu sem
brotna, þegar stýrinu er þröngvað á.
Þær passa kannski ekki alveg við
gripið á stýrisstönginni og þá er ekki
að spyrja að afleiðingunum. Eins
skemmast þessi stýri oft við það að
þau eru lamin á með hamri. Þeir sem
selja bíla sína taka oft með sér rall-
stýrið og þær tilfæringar slíta auð-
vitað stýrisstönginni og festingunum.
Eins getur það valdið því að stýris-
hringurinn sjálfur hefur skaðazt og
brotnar, þótt menn taki ekki eftir
því. Og ég get nefnt dæmi um að
menn hafi gert sér lítið fyrir og sett
bátastýri úr plasti á bíla sína til þess
eins að sýnast „töff”. Slíkt er
auðvitað stórhættulegt. ”
Bifreiðaeftirlitið
aðvarar
„Við vörum fólk auðvitað við því
að setja slík stýrishjól á bíla sína,”
segir Otter í viðtalinu. „Þau hafa
enga kosti fram yfir hin og oftast eru
þau úr lélegra efni en upprunalegu
stýrin. Þeir sem á annað borð hafa
ákveðið að fá sér slíkt stýri ættuað
kaupa það sem uppfyllir eftirfarandi
kröfur:
1. Stýrishringurinn úr heilsteyptum
léttmálmi og helzt ekki boltaður eða
negldur við rimarnar. Um stýris-
hringinn á einnig að vera höggvarnar-
efni. Flestar verzlanir sem verzlameð
þessa hluti eiga að geta veitt upplýs-
ingar um hversu stór hringurinn á að
vera.
2. Rimarnar séu tiltölulega breiðar
ogekki með götum.
3. Að miðhluti stýrisins sé þrýsti-
steyptur í málm, þannig að tennurnar
séu eins sterkar og mögulegt er. Þú
skalt aðgæta vandlega að þú sért með
rétta árgerð og bílategund. Það er
mjög sjaldgæft að rallstýri úr einni
bílategund hæfi annarri.
Það er ákaflega mikilvægt fyrir þá
sem einnig eru með breið dekk undir
bílum sinum að þeir kaupi vönduð
rallstýri, ef þeir kaupa þau á annað
borð. Breiðu dekkin auka nefnilega
mikiðálagiðá stýrið.
Það er á þína
ábyrgð
Eins og áður segir hefur ekki farið
nein heildarkönnun fram á þessum
stýrum á vegum Bifreiðaeftirlitsins
og enginn hefur eftirlit með gæðum
þessara vara. Það er því þitt að
fylgjast vandlega með því að stýrið sé
vandað, ef þú ætlar að fá þér slíkan
grip.
Allar vörur til
skíðaiðkana
Atomic skíði
Salomon bindingar
Byrjendaskíði
ákr. 7.620.-
Skíðastaf ir — hanskar
Gleraugu
Opið frá kl.
10-12 og 1-6
Opiðá
laugardögum
til kl. 4.
Sportmarkaðurinn
Grensásvegi 50 — Sími 31290
Vinsœl
fermingargjöf
Skart
gripaskrín
í miklu úrvali
e
Mjög hagstœtt
verð
PÓSTSENDUM
Magnús E. Baldvinsson s/f
Laugavegi 8. Sími 22804
HEIMSFRÆGU ÚRIN - 60 GERÐIR
1 ÁRS ÁBYRGÐ. PANTIÐ í
SÍMA 50590 EÐA BRÉFLEGA
Kr.um- Ki.1175.. Kr.10.7K.. Kr. 1lt2n, Kr.llSM, Kr. 12300, Kr. 1Z400, Kr. 11ZS0, Kr. 10.S00,
Nr.l. Nr.2. Nr.l N>. 4. Nr. 5. Nr.O. Nr.7. Nr.O. Nr.l.
Kr. 11.750, Kr. 0.700,
Nr.10. Nr.11.
ÚR-VAL
Nr. 14. Nr. 15,
PÓSTSENDUM
MAGNÚS GUÐLAUGSSON
STRANDGÖTU 19 - HAFNARFIRÐI
Fjöldi rallstýra er á markaðinum hérlendis og er rétt að vera á
varðbergi um gæði þeirra. Allavega skulu menn kynna sér reglur
varðandi þau áður en þeir kaupa.
DB-mynd Hörður.
—