Dagblaðið - 02.04.1979, Side 17

Dagblaðið - 02.04.1979, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979. 17 A ' : ...... I.ífið gengur sinn vanagang og munnskepnan virðisl gela aðiagað sig flcstum aðstæðum. Maðurinn á myndinni er með kornabarn sitl i fanginu en i hinni hend- inni heldur hann á vélbyssu enda rétt nýbúinn að gera byltingu gegn keisa<-a og þá þykja vélbyssur mesta þarfaþing. Við hlið hans stendur kona hans og þau hjóna- kom, sem búa í Teheran í íran voru á leið í verzlun og þá gaf hinn ötuli uppreisnar- maður sér tíma til að gæta barnsins á mcðan. Hætt er nú við að eiginkonan liafi þurft að bera allar vörurnar heim því varla verður meira krafizt al' eiginmanninum með báðar hendur fullar. Stjáni blái er orðinn fimmtugur þó ekki verði það séð á kappanum. í fyrstu var Stjáni eingöngu á hvíta tjaldinu en seinna meir fór hann að birtast í fjölmörgum blöðum og tímaritum, sem aðalpersónana í teiknimyndasögum. Maðurinn, sem er með honum á myndinni mun heita Jack Mercer og hefur haft það að aðalatvinnu í hvorki meira né minna en 45 ár að teikna Stjána bláa og allt hans lið. Erlend myndsjá Fyrsta danska rafknúna skellinaðran hefur séð dagsins Ijós. Voru það nemendur og kennarar tækniskólans í Slagelse sem verkið unnu. — Ellerten — eins og Danir kalla skellinöðruna getur komizt í allt að 32 kílómetra hraða á klukkustund og farið 40 kílómetra á einni rafhleðslu. Algengustu skellinöðrurnar í Danmörku ná 40 kílómetra hraða. Sjö klukkustundir tekur að hlaða rafgeymi nýju skellinöðr- unnar eftir hvern 40 kilómetra akstur. Góðar horfur eru taldar á að farið verði af fjöldaframleiða rafskeilinöðruna. Kynvillingar eru mörgum þyrnir í augum en þó mun það ekki algengt að gnptð se til jafnróttækra aðgerða gegn þeim og fylgismcnn trúarleiðtogans Kohmeini i Iran. Þar munu margir þeirra cinfaldlega hafa verið leiddir fram i einfaldri röð og síðan skotnir. a a AQUITAINE MARITIME AGENCIES LIMITED Nýr umboðsmaöur fyrir Hafskip hefur tekið til starfa í Englandi. Þettaerfyrirtækið: Aquitaine Maritime Agencies Ltd. 2/4 York Road, Felixstowe, Suffolk. Það er þekkt fyrir góða og kröftuga þjónustu og er von okkar að það marki tímamót í flutningamálum allra þeirra sem flytja vörur til eða frá Englandi. í Bretlandi eru nú söfnunarstöðvar fyrir vörur okkar í eftirtöldum borgum, Aquitaine Maritime Agencies Ltd. Aöalskrifstofa: 2/4 York Road, Felixstowe, Suffolk, England Telex 987210 Tel. (03942) 78888 UMSJÓN: David Bloomfield Skrifstofa í London: Peek House, 20 Eastcheap, London EC3M 1EE UMSJÓN: Ray Smith, John Wickham. HAFSKIP HF Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu, Sími 21160 - Telex 2034 Okkar menn i Englandi London, Birmingham, Manchester, Leeds, Newcastle. Siglingarokkartil og frá Ipswich eru reglulegar á 12-14 daga fresti. Næstu skip er lesta í Ipswich eru: Rangá 04.04 Skaftá 18.04 Rangá 02.05 Skaftá 16.05 Rangá 30.05 Hafið samband við skrifstofu okkar nú þegar eða við okkar menn í Englandi og við munum leitast við að leysa flutningamál ykkar.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.