Dagblaðið - 02.04.1979, Side 19

Dagblaðið - 02.04.1979, Side 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979. I Iþróttir Iþróttir 19 íþróttir Iþróttir 9 KR í 1. deild - KR sigraði Þór 28-15. Sigraði í 2. deildogleikur ,,KR tryggði sér sæti i 1. deild íslandsmótsins með sigri gegn Þór, 28—15, í 2. deild á föstudagskvöldið. Þar með lauk viðburðarikum kafla í sögu KR á 80 ára afmaeli féiagsins — á einni og sömu vikunni vann KR bæði deild og bikar i körfunni og klykkti siðan ót með sigrí i 2. deild. í hand- knattieik. TU hamingju KR. Og sigur KR gegn Þór var öruggur, næsta átakalítill. Til þess voru yfir- burðir KR allt of miklir, nánast um einstefnu að ræða. KR-ingar börðust vel frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu, gáfu aldrei þumlung eftir gegn næsta áhugalausum Þórsurum. Og uppskeran var 13 marka sigur. Allir leikmenn léku vel en i markinu varði Pétur Hjálmarsson mjög vel, þar í 1. deild íhaust er gott efni á ferð. Bjöm Pétursson var markhæstur leikmanna KR með 10 mörk. Haukur Ottesen og Sigurður Páll skoruðu fjögur mörk hvor, Þor- varður 3, Símon Unndórsson og Krist- inn Ingason 2 mörk. Ólafur Lárusson og Ingi Steinn 1 mark. Hjá Þór var Sigurður Sigurðsson markhæstur með fjögur mörk, ásamt Sigtryggi Guðlaugssyni. KR leikur því í 1. deild — eftir aðeins árs fjarveru. KR féll niður síðastliðið vor, nokkuð óvænt. í upphafi mótsins þá voru KR-ingar mjög frískir en dapraðist flugið er á íslandsmótið leið. KR lætur slikt áreiðanlega ekki henda aftur — nú reynslunni ríkara. -H. Halls. „FRÁBÆR LEIKUR - - FRÁBÆR URSLIT” — sagði Halli í Turninum, formaður Þórs ef tir að Þórarar höfðu sigrað Ármann 20-19 Í2. deild liðsins mjög góðan dag og í því lá 1* Þór Valtýsson hefur sloppið í gegn en brotiö erá honum. DB-mynd Ragnar Sigurjónsson. aði Stjörnuna 24-19 — Í2. deild Stjarnan hafnaði i næstneðsta sæti 2. deildar eftir ósigur gegn Þrótti í Garðabæ á föstudagskvöldið. Þróttur og Stjarnan börðust um að forðast aukaleik við næstefsta lið 3. deildar — og Þróttur hafði betur, 24—19. Það var jafn leikur, mikil barátta en Þróttur reyndist sterkari á loka- sprettinum. Markhæstu leikmenn Þróttar voru þeir Konráð Jónsson og Páll Ólafsson með sex mörk en hjá Stjörnunni skoraði Eggert ísdal mest — 9 mörk. Staðaní2. deild Úrslit leikja i 2. deild um helgina urðu: KR-Þór, Ak. 28—15 Þór, Eyjum-Ármann 20—19 Stjarnan-Þróttur 19—24 Staöan i 2. deild er nú en aðeins einn leikurer eftir: KR 14 Þór, Eyjum 14 KA Þór, Ak. Þróttur Ármann Stjarnan Leiknir 3 335—269 20 5 270—255 19 5 323—282 18 6 287—264 15 6 318—301 14 5 272—260 14 9 301—300 10 „Frábær leikur, frábær úrslit,” sagði Haraldur Þór í Eyjum — en betur þekktur i Eyjum sem Halli i Turninum, formaður handknattleiksdeildar Þórs eftir sigur Þórara á Ármanni i 2. deild íslandsmótsins i Eyjum á föstudags- kvöldið. Þór sigraði 20—19 og tryggði sér annað sæti i 2. deild. Árangur sem enginn reiknaði með i Eyjum fyrír- fram. ,, Við erum ákveðnir að láta ekki þar við sitja,” sagði Haraldur, „heldur vinna sæti i 1. deild og komast í hóp þeirra beztu.” Annað sætið i 2. deild gefur rétt til að leika við annaðhvort ÍR eða HK um sæti í 1. deild í haust. Það var sannarlega líf í tuskunum í viðureign Þórara og Ármenninga. Þórarar komu mjög ákveðnir til leiks, og tóku strax forustu í leiknum. Komust í 6—3, 10—6 og síðan í leikhléi var 12—7 fyrir Þór. í byrjun síðari hálfleiks juku heima- menn enn forskot sitt og þegar Sigmar Þröstur varði tvö vítaköst í röð og Þór komst í 15—7, allt útlit fyrir stórsigur heimamanna. En þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá Þór. Þeir gerðu þá reginskyssu að slappa af, voru allt of bráðir í leik sínum. Ármenningar neituðu að leggja árar í bát og gengu á lagið. Með miklum dugnaði tókst Ármenningum að saxa á forskot Þórara. Staðan breyttist í 17—15, Þór svaraði með tveimur mörkum án þess að Ármann næði að svara, 19—15. Aðeins um tvær mínútur til leiks- loka og sigurinn virtist í höfn. En Geir Hallsteinsson, þjálfari Ármanns var ekki af baki dottinn. Hann skipaði sin- um mönnum að leika maður á mann og við því áttu heimamenn ekkert svar. Ármenningar skoruðu fjögur mörk í röð — náðu aðjafna, 19—19. Spennán i húsinu var gífurleg — og hinir 400 áhorfendur fengu sannarlega að svitna á lokamínútunum. Þegar aðeins 34 sekúndur voru til leiksloka brauz! Her- bert Þorleifsson, línumaðurinn snialli í gegnum vörn Ármenninga og á hon- um var brotið. Góðir dómarar leiksins, þeir Jón Hauksson og Ólafur Jóhannesson, dæmdu umsvifalaust vítakast, og allt ætlaði vitlaust að verða í húsinu. Það var hinn harðskeytti Ásmundur Friðriksson sem fékk það örlagahlutverk að framkvæma víta- kastið. Hann brást ekki félögum s'mum og skoraði örugglega, við gífurlegan fögnuð áhorfenda, fólkið þusti út á gólfið og klukkan var stöðvuð. En þær sekúndur sem eftir voru tókst Ármanni ekki að skora — og fögnuður áhorf- enda geysimikill. Lið Þórs lék þennan leik eins og meistarar i 45 mínútur. En reynsluleysi háði liðinu mjög í lokin. Beztu menn liðsins voru Hannes Leifsson og Sigmar Þröstur. Annars áttu allir leikmenn styrkur liðsins. Ármenningar virkuðu óöruggir, sérstaklega í fyrri hálfleik. Markvarzlan hjá Ragnari var slök en hún gerbreyttist þegar Heimir Gunnarsson kom inn á.Hann varði eins og berserkur og var bezti maður liðsins, ásamt Jóni Viðari, en barðist af fullum krafti allan timann og lék aðalhlutverkið í lokin, skoraði fjögur af fimm síðustu mörkum Ármanns. Flest mörk Þórs skoraði Hannes 9 — 2 víti. Ásmundur Friðriksson 3. Flest mörk Ármanns Pétur Ingólfsson sex, 3 víti, Jón Viðar 5 og Þráinn Ásmundsson 3 mörk. D-stigs nám- skeið KSÍ Tækninefnd KSÍ gengst fyrír Knatt- spyrnuþjálfaranámskeiöi á D-stigi (III stigi) dagana 6.-9. april nk. fyrrí hluta og 24.-27. maí nk. síðari hluta. Aðalkennarí á þessu námskeiði, sem er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi, verður Mr. Terry Casey nám- stjóri hjá enska knattspyrnusam- bandinu. Umsækendur skulu hafa lokið II stigi (C-stigi) og þjálfað i a.m.k. eitt ár. Umsóknum skal fylgja afrit af skír- teini II. stigs ásamt upplýsingum um þjálfarastörf. Umsóknir berist hið fyrsta til skrif- stofu KSÍ, sem gefur allar frekarí upplýsingar. Fall eða von. Þeir eru einbeittir strákarnir úr HK i varnarveggnum, þar sem Magnús Sigurðsson tekur aukakast eftir venjulegan leiktima. Magnús reyndi að vippa — en yfir. Fylkir féll i 2. deild — HK eygir enn von. DB-mynd Hörður Vilhjálmsson. HK bjargaði sér f rá bráðu falli ef tir 16-16 jaf ntef li botnliða Það var mikil spenna i Höllinni á laugardag þegar Fylkir og HK mættust í 1. deild Islandsmótsins i handknatt- leik. Og mikið í húfi — Fylkir varð að sigra til að forðast fall, HK að hljóta stig. Kópavogsliðinu tókst það — það er að hljóta stig, þvi liðin sldldu jöfn, 16—16 i hörkuleik, og spennandi en ekki alltaf að sama skapi vel leiknum. Fylkir féll þvi i 2. deild, en flest bendir nú til að HK leiki við Þór, Vestmanna- eyjum um sæti i 1. deild i haust. Það hafa aldrei verið jafnmargir áhorfendur að leikjum þessara botnliða í vetur, eða um 700 manns. Þeir voru vel með á nótunum, hvöttu menn sina mjög. Áhangendur HK höfðu miklu að fagna lengst af — eða í 40 minútur en eftir það sótti Fylkir mjög á. HK fékk óskabyrjun, komst í 5—0 eftir 10 mínútna leik og það virtist ætla að stefna i öruggan sigur Kópavogsliðsins. Tvívegis brunuðu leikmenn HK upp í hraðaupphlaupi og skoruðu, mis- notuðu meira að segja það þriðja. Baráttan sat í fyrirrúmi hjá HK, bæði i vörn og sókn, og í markinu varði Einar Þorvarðarson mjög vel. Það var ekki fyrr en á 11 mínútu að Fylkir komst loks á blað, að Magnús Sigurðsson skoraði. Risinn Einar Einarsson bætti síðan við öðru marki Fylkis, 2—5. Það sem eftir var fyrri hálfleiks var jafnræði með liðunum — og HK hafði yfir i leikhléi, 9—6. Rétt eins og í upphafi leiksins, þá byrjaði HK síðari hálfleik af miklum krafti. Hilmar Sigurgíslason kom HK í 10—6, Fylkir svaraði en þeir Hilmar og Stefán bættu við tveimur mörkum fyrir HK og fimm mörk skildu — 12—7. Fallið blasti við Fylki — en leikmenn neituðu að leggja árar í bát. Fylkir náði mjög sterkum varnarleik og tók óðum að saxa á forskot HK. Eftir 13 minútna leik skildi aðeins eitt mark — 12—11 HK í vil. Fjögur mörk Fylkis í röð. Já, það sannanðist enn einu sinni að liði HK virðist alveg fyrirmunað að halda góðu forskoti. En Stefán Halldórsson kom HK í 13—11. Gunnar Baldursson minnkaði muninn aftur í eitt mark og á 17. minútu jafnaði öm Hafsteinsson 14— 14. Hilmar kom HK aftur yfir, 15— 14, en Einar Ágústsson jafnaði enn, 15—15. Aftur var Hilmar á ferðinni, 16—15, en Einar Einarsson jafnaði, 16—16. Og fjórar mínútur eftir — spennan í hámarki og baráttan á vellinum hörð, hvergi gefið eftir. En þessar fjórar mínútur leiddu ekki af sér mark, tvívegis missti HK knöttinn og síðustu 40 sekúndurnar hélt Fylkir knettinum. Einar Einarsson, kom knettinum í markið en áður hafði verið flautað, fríkast á HK. Sekúndumar tifuðu hver af annarri og leiktíminn rann út — Fylkir átti þá frikast. Magnús Sigurðsson tók það en fann ekki leiðina í markið. Fylkir féll í 2. deild — leikmenn HK fögnuðu mjög. Góður endasprettur HK fyrst og fremst foröaði frá falli í 2. deild. Fimm stig úr þremur síðustu leikjum liðsins, en HK vermdi lengst af neðsta sæti í 1. deild. Fylkir fékk þrjú stig úr tveimur siðustu leikjum sínum, en það dugði ekki til. Aðeins þrir leikmanna HK skoruðu mörkin gegn Fylki — landsliðs- maðurinn Hilmar Sigurgíslason var í miklum ham og skoraði átta mörk og Stefán Halldórsson 7 mörk, 3 víti. Jón Einarsson skoraði síðan 16. mark HK. Hjá Fylki skoraði Einar Einarsson mest, 5 mörk, Gunnar Baldursson 4, Örn Hafsteinsson 3, Magnús Sigurðsson, Sigurður Símonarson, Halldór Sigurðsson og Einar Ágústsson 1 mark hver. Þier Björn Kristjánsson og Gunnlaugur Hjálmarsson dn’mrlu viðureign Fylkis og HK. H.Halls. Þróttur sigr- JAFNTEFU DUGÐIEKKI0G FYLKIR FÉLL í 2. DEILD

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.