Dagblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979.
3
Of fáar flugfreyjur f
nýju Flugleiðaþotunni?
Hin nýja breiðþota Flugleiða við
komuna hingað til lands f janúar sl.
DB-mynd Hörður.
„Langförull” skrifar:
Það er í sjálfu sér ákaflega ánægju-
legt, að við íslendingar skulum sífeUt
vera að auka við og baeta flugflota
okkar og þjónustu við víðförla
íslendinga.
Sjálfur hugði ég gott til glóðar-
innar núna fyrir skömmu,!er ég varð
þess var úti í New York, að farar-
skjóti minn þaðan til íslands yrði
nýja „Tían” eins og hún mun vera
köUuð. Ég hafði verið í héimsókn hjá
vinafólki ekki langt frá Dallas í Texas
og flogið með slíku flugskipi þaðan
og átti vart orð til að lýsa hrifningu
minni. Út til New York hafði ég hins
vegar lent á venjulegu vélunum og
flogið með vél ekki ólíkri þeirri, sem
Flugfélagið á eða 727 til Dallas.
Flugtak tókst auðvitað vel og síðan
var farið að bera fram veitingar. Þá
kom heldur betur annað hljóð í
strokkinn. VéUn var að vísu troðfuU,
en ég sá ekki betur, og fékk raunar
staðfest, að flugfreyjumar væru of
fáar um borð? Þjónustan hjá þeim
var eftir beztu getu, en mig rak í
rogastanz þegar ég komst að því að
þær voru aðeins níu um borð, and-
stætt því sem gerist erlendis, t.d. hjá
flugfélagi því, sem ég flaug með frá
Dallas. Þar voru fjórtán flugfreyjur
um borð samkvæmt alþjóðlegri
reglugerð.
Matur og kaffi var borið fram seint
og síðar meir, en maður gat ekki
annað en vorkennt stúlkunum, sem
þó reyndu að koma fram við reiða
farþegaaf kurteisi.
Bezt gæti ég trúað því að þeir
Flugleiðamenn hafi enn einu sinni
komið fram með eitt snjallræðið i
rekstri flugfélags. Sem sagt að fækka
flugfreyjunum!
Ef svo er, þá hafa þeir Sigurður
Helgason og örn Johnson sett heims-
met í vitleysu. Ég fæ a.m.k. ekki séð
hvaða tilgangi það þjónar að hafa
rúmlega 350 manns svekkta og reiða í
farþegarými þotunnar, til þess eins
að hafa flugmennina ánægða því
varla er verið að spara við sig flug-
freyjur nema til þess að geta aurað
saman í nýhækkað kaup flugmanna!
Mér þætti vænt um, ef Dagblaðið
aflaði frekari upplýsinga um þetta mál
og birti hér í blaðinu. Og í öllum
bænum, get ég fengið eitthvað annað
en venjulegt kjaftæði úr Sveini
Sæmundssyni um málið? Spumingin
er, hvers vegna eru svona fáar flug-
freyjur um borð í hinni nýju vél Flug-
leiða?”
DB hafði samband við Svein
Sæmundsson hjá Flugleiðum.
„Þetta mál er einmitt nú í athug-
un,” sagði Sveinn. „Við komum til
með að ráða fleiri flugfreyjur í vélina
í sumar, en ég veit ekki enn hversu
margar. Eins og flestir vita höfum við
ekki haft svona vél áður og verður
því reynslan að skera úr um málið.
Vænta má að vélarnar verði fullar
yfir páskana og þá ætti að liggja Ijóst
fyrir hvort flugfreyjur em of fáar eða
ekki. Samkvæmt alþjóðlegum
reglum skal ein flugfreyja vera á
hverja 50 farþega, en á stuttum
leiðum eru þær yfirleitt hafðar
fleiri.”
,,En sem sagt, málið er í athugun.”
RAGNHEIÐUR
KRISTJÁNSDÓTTI!
\Hringið í síma
27022
milli kl.\13 og 15
á Hótel ÍDftleiðum
Um páskahelgina er heilmikið um að vera í Víkinga-
salnum á Hótel Loftleiðum. Þar efnum við til sérstakrar
páskahátíðar. Vönduð skemmtiatriði verða flutt og
Ijúffengir veisluréttir framreiddir.
Dagskráin verður sem hér segir:
LAUGARDAGUR FYRIR PÁSKA: Opið frá kl. 19
Kertaljósakvöld
MATSEÐILL:
Forréttir:
Sveppasúpa eða
Fyllt egg, a la Russe
Aðalréttir:
Fyllt smálúðuflök, Richepin eða
Grísakótiletta, Hawaii eða
Glóðarsteikt lambalæri,
Pommes Berny eða
Heilsteikt nautafillé, Bordelaise
Ábætir:
Diplómatabúðingur í súkkulaðibollum
Garðar Cortes syngur einsöng.
Undirleik annast Kristína Cortes.
Sigurður Guðmundsson leikur til
kl. 23.30
PÁSKADAGUR OG ANNAR f PÁSKUM. HÁDEGI
Fjölskyldijfiátíð
Kalt borð:
Fjölbreytt úrval kaldra kjöt7 og fisk-
rétta. Rómaðir veisluréttir.
Auk þesssérstakurmatseðill fyrir börn.
Afsláttarkjör við kalda borðið:Ókeypis
fyrir börn yngri en 2ja ára. Hálft verð
fyrir 2ja til 12 ára.
„Söngur, leikur og létt gaman“ -
skemmtiefni fyrir börn. Hermann
Ragnar stjórnar.
Sigurður Guðmundsson leikur undir.
Öll börn fá verðlaun.
Hér er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur, vini og aðra til
að gera sér dagamun, og njóta líðandi stundar.
Borðpantanir hjá veitingastjóra í síma 22321 og 22322.
Verið velkomin.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Hver heldur þú að
verði íslandsmeistari
í handknattleik?
Sveinn Þormóösson IJósmyndari: Þvi
miður held ég að það verði Vikingur.
Ég segi því miður vegna þess að ég er
Valsmaður.
Óli Gréfar Metúsalemsson verkfræði-
nemi: Ég vona að Vikingur verði ts-
landsmeistari en í íþróttum hefur
maður ekki ástæðu fyrir neinu. Maður
baraheldur meðeinhverju liði.
Gústaf Skúlason, 10 úra: Vikingar auð-
vitað af því að þeir eru beztir og þeir
eru líka meö alla landsliðsmennina.
Elfas Eliasson, 11 úra: Ég held að það
verði Víkingar. Þeir eru langbeztir og
vinnaallt.
Ágúst Loftsson, 13 úra: Það veit ég
ekki. Ég fylgist ekkert með handbolta.