Dagblaðið - 17.04.1979, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. APRlL 1979.
&
GÐRÐO
Vólsleðahjálmar —
Vélhjólahjálmar
öryggishjálma/r fyrir aiiar mótoríþróttir
Super Motocross
lokaður torfœruhjálmur
fyrir torfœrusniHinginn
og allur útbúnaður.
Svo er til MAGURA
bensíngjafir, kúplings-
og bremsuhandföng á
okkar lága verði.
Nýtt — nýtt: Stýri í öll-
um regnbogans litum.
Munið okkar lága verð.
— PÓSTSENDUM.
MONTESAUMBOÐIÐ
Véihjóiaverziun H. Ó/afssonar
Þingholtsstræti 6 — Sími 16900
Útboð
Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir
tilboðum í lagningu 4. og 5. áfanga hita-
veitudreifikerfis, lagnalengd verkanna er
11 km, í tvöföldu dreifikerfi.
Útboðsgögn eru afhent á Bæjarskrifstof-
unni Vestmannaeyjum og verkfræði-
skrifstofunni Fjarhitun hf. Reykjavík
gegn 30 þús. kr. skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð í Ráðhúsinu Vestmanna-
eyjum þriðjudaginn 24. apríl kl. 16.
Stjóm veitustofnana Vestmannaeyjabœjar.
EINBÝLISHÚS TIL SÖLU
Á DRANGSNESI
Til sölu einbýlishúsið Grundartangi, Drangsnesi
Strandasýslu. Húsið er á einni hæð, ca 104 ferm og er
m.a. 3 svefnherbergi, stofa, góð geymsla, baðherbergi,
eldhús og búr. Timburhús byggt 1975 úr „húseining-
um” frá Siglufirði. Laust til afhendingar 15. júní nk.
Skriflegum tilboðum sé skilað til Fasteignasölunnar
Miðborg, Nýja Bíó-húsinu, Reykjavík. Réttur áskilinn
til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
HAFNARBÍÓ
Flagð undir
fögru skinni
Úrvalsgaman-
mynd með úr-
valsleikurum.
Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11.
"NASTY
HAÐITS" 1
TVÖ SKIP FENGU
Á SIG BROTSJÓ
Sambandslítið varð við Ársæl KE og Rán HF, enallt fór
beturenáhorfðist
Tvö íslenzk skip lentu í vandræðum
í hafi suðaustur af íslandi aðfaranótt
föstudagsins langa, en þá geisaði fár-
viðri á þessum slóðum. Skipin voru
Ársæll frá Keflavík, 250 lesta skip, sem
var á leið til Danmerkur til vélar-
skiptingar og togarinn Rán úr Hafnar-
firði, sem var á leið til Hull í söluferð.
Fengu bæði skipin á sig brotsjói og
brotnuðu rúður í brúm þeirra, og tæki
biluðu, m.a. talstöðvartæki.
Slysavarnafélagið reyndi eftir beztu
getu að halda sambandi við skipin og
sagði Hannes Hafstein DB að lengi
hefði Skaftafell borið skilaboð á milli.
Skaftafellið lónaði undan veðrinu og
missti samband við Ársæl er vega-
lengdin milli skipanna óx.
Að kvöldi föstudagsins langa fór vél
frá Landhelgisgæzlunni austur með
landi og náði sambandi við skips-
höfnina á Ársæli. Engan skipsmann
hafði sakað, en tæki í brú skemmzt,
m.a. stóra miðbylgjutalstöðin, og
einnig hafði rafmagn að mestu farið af
skipinu vegna þess að vatn komst að
leiðslum. Bað SVFÍ strandgæzluna í
Færeyjum að fylgjast með Ársæli.
Síðar hafði Laxá samband við
Ársæl og hafði áhöfn hans þá tekizt að
gera svo vel við skaðann sem varð að
ákveðið hafði verið að hætta við
viðkomu í Færeyjúm og halda rakleiðis
áfram til Danmerkur.
Rán varð ekki eins illa úti og Ársæll
og hélt ferðinni áfram en hafði sam-
band við nærstödd skip á sömu leið,
að sögn Hannesar Hafstein.
-ASt.
Lík hins týnda fannst við Örfirisey
Lík Hilmis Bjarnasonar, tæplega Skipuleg leit slysavarnafélags- og skógar að undanförnu. Þykir jafn
þrítugs stýrimanns í Kópavogi, fannst í hjálparsveita hófst þennan morgun og sennilegt aö hann hafi fallið í höfnina
örfirisey að morgni föstudagsins hafði leit ekki staðið nema rétt um eins og hann hafi fallið í sjóinn við
langa. Var þá tæp vika liðin síðan klukkustund er líkið fannst. Voru það örfirisey.
Hilmir heitinn sást síðast á Lækjar- Ingólfsmenn sem leituðu í örfirisey. -ASt.
torgi. Hilmir hafði ekki gengið heill til
íslandsmet í maraþon-körf ubolta
Átta ungir ofurhugar úr ungmenna- Hófu þeir leikinn kl. 9 árdegis á hafa betur gert enn á Islandi í þessum
félaginu Einherja á Vopnafirði unnu föstudaginn langa og léku síðan stanz- efnum.
það afrek að setja íslenzkt maraþonmet laust til kl. 12.30 á laugardag eða í 27 -ASt/HK Vopnafirði.
i körfuknattleik fyrir helgina. klukkustundir og 30 mínútur. Engir
Fermingin er stór stund í lífi hvers unglings
og auðvitað vilja ættingjarnir festa þá stund á filmu, eins
og hér i Bústaðakirkju i gær.
DB-mynd Ragnar Th
Á f jórða hundrað unglingar
voru fermdir um helgina
— kirkjusókn var góð, sérstaklega á páskadagsmorgun
Hátt að fjórða hundrað ungmenni
voru fermd í Reykjavík og nágranna-
kaupstöðunum Kópavogi og Hafnar-
firði yfir páskana. Haft er eftir
dómprófastinum i Reykjavík, Ólafi
Skúlasyni, að kirkjusókn um helgina
hafi verið góð, sér í lagi í árdegismessu
á páskadag. Eftir hádegið fór veður
hins vegar að batna og er viðbúið að
einhverjir hafi þá tekið ökuferð út í
náttúruna fram yfir kirkjuferð.
Auk allra ferminganna áttu prestar
landsins annríkt við að skíra ungbörn
um helgina.
-ÁT