Dagblaðið - 15.10.1979, Blaðsíða 39

Dagblaðið - 15.10.1979, Blaðsíða 39
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 1979. Varaði við nasistum Jón Haraldsson arkitekt ræðir um daginn og veginn i útvarpi i kvöld. DB-mynd Bj.Bj. —enfékk engan hljómgrunn fyrr en of seint Richard Burton í hlutverki Churchill í myndiimi í kvðld Sjónvarpið sýnir í kvöld brezkt sjónvarpsleikrit um Winston Churchiil. „Myndin gerist að mestu 6—7 árin fyrir siðari heims- styrjöldina,” sagði þýðandi mynd- arinnar, Jón Thor Haraldsson. ,,Hún er aðallega bein lýsing á ferli Churchill. Hann var eini maðurinn sem varaði við uppgangi fasismans á þessum árum. Hann var mjög utangarðs í pólitíkinni um þetta leyti þrátt fyrir að íhaldsflokkurinn færi með völd í landinu,” sagði Jón. Margir koma við sögu d myndinni, Hitler og utanríkisráðherra hans, Ribbentropp.NevilleChamberlain, sem þá var forséetisráðherra Breta og þótti linur í framgangi mála er heims- styrjöldin var að brjótast út. Stanley Baldwin en honum muna eflaust margir eftir úr þáttunum um Simpson hjónin, en hann var forsætis- ráðherra Breta á þeim árum, er Ját- varður stóð í ástarsambandi sínu. Ját- varður sjálfur kemur einnig við sögu í myndinni og að þessu sinni er það Dýrlingurinn sjálfur sem bregður sér í hlutverk hans. Myndin gerist öll á árunum 1936— 40 en þá var Churchill flotamála- ráðherra; hún endar á að Churchill tekur við forsætisráðherrastólnum af V___________________________________ Richard Burton, leikannn alkunm, fer með hlutverk Winston Churchiil i mynd sem sjónvarpið sýnir i kvöld. Chamberlain en þeirri stöðu gegndi , leikur Richard Burton og þykir hann hann til 1945. Churchill i myndinni skila hlutverki sínu mjög vel. -ELA. Bamadegjnum frestað Barnadegi útvarpsins, sem DB skýrði frá á dögunum, hefur verið frestað til 22. nóvember. Tónlistardeild útvarpsins krafðist þess að fá lengri tíma til að undirbúa sinn þátt í deginum og var því tekið til þess bragðs að fresta honum. Barnadagurinn átti að vera nk. fimmtudag. Var þá ætlunin að dagurinn yrði helgaður börnum að meira eða minna leyti og að börn tækju þátt í þvi sem þar væri að gerast. -ELA. » Börnin þurfa vist ennþá að biða eftir barnadeginum i útvarpi þvi honum hefur verið frestað f mánuð. DB-mynd Bj.Bj. V_____________________ „ÆTLIÉG VERÐIEKKI ELLIDAUÐ í ÞESSU” — segir Ásta Ragnheiður um kyimingar sínar á þættínum „Þessi þáttur er alltaf eins, fólk er alltaf að biðja um að þátturinn verði lengdur en hann er nú sjötíu mínútur og ég held að það sé algjört hámark,” sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, kynnir Laga unga fólksins, t samtali við DB. „Vinsælasta lag þáttarins er Gotta Go Home með Boney M. Mjög mikið er beðið um sömu lögin í þættinum,” sagði Ásta, ,,en ég reyni að spila þau lög sem minnst er beðið um og sem sjaldnast heyrast. Núna fæ ég alveg heilmikið af bréfum frá skólum utan af landi. Fyrir þennan þátt í kvöld fékk ég beiðnir um fimmtíu lög en ég get aðeins leikið þrettán. Þrettán lög er standardinn i þættinum, en ef mjög mikið er af kveðjum fara þau niðurí tólf.” Ásta Ragnheiður hefur kynnt Lög unga fólksins síðan 1976. Áður voru yfirleitt tveir stjórnendur þátt- arins, kven- og karlkyns. Nú hefur Ásta ein tekið við stjórninni eins og flestir vita. „í fyrstu átti ég bara að vera ein til bráðabirgða en svo hefur þetta þróazt svona áfram. Ætli ég verði ekki ellidauð í þessu starfi," sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir að lokum. -ELA. «c Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, kynnir Laga unga fólksins. Ásta sér einnig um þema-vikur barnaársnefndar og er einmitt á þönum þessa dagana að útbúa sjónvarps- og útvarpsefni. _____________________________/ UM DAGINN 0G VEGINN - útvarp M. 19.40 BYGGINGARLIST Á ÍSLANDI ,Ætli ég tali ekki um vegleysur í mér finnst nauðsynlegt að vekja athygli íslenzkri byggingarlist. Um ástand og á því,” sagði Jón. horfur og hvað sé framundan í þeim Fyrir utan það ætlar Jón að ræða efnum,” sagði Jón Haraldsson arkitekt stefnuna í byggingariðnaðinum og í samtali við DB. Jón talar í útvarpi í hvaða veg við eigum að ganga í þeim kvöld um daginn og veginn. efnum. Jón hefur nokkrum sinnum áður rætt um daginn og veginn í út- „Einnig mun ég ræða um hvernig varpi og þá ævinlega vikið að þessu staðið er að byggingarlist og viðhorf efni. Þátturinn Um daginn og veginn er ráðamanna til hennar. Það er ekki tuttugu mínútna langur. mikiðrætt um þetta mál hér á landi og -F.LA l * HAFSKIP H.F. HOLLAND Enn ný þjónusta Hafskips h/f við innflytj-. endur og útflytjendur. Höfum nú hafið regfulegar siglingar með „bretta — gáma — ro/ro” skipi til ROTTERDAM Lestum annan hvern fimmtudag, næstu lestunardagar eru: \ „Borre" 18. október „Borre" 1. nóvember „Borre" 15. nóvember „Borre" 29. nóvember Umboðsmaður er: Pakship BV, van Weerdenpoolmanweg 25—31 Telephone; 302911 / Telex: 28564 Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafskips h/f Sími: 21160 Telex: 2034

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.