Dagblaðið - 04.02.1980, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. FEBRUAR 1980.
I
Iþróttir
Iþróttir
14
I
Iþróttir
Iþróttir
KA SIGRAÐIAFTUR-
ELDINGU LÉTTILEGA
Einn leikur var háður í bikarkeppni
HSÍ á Akureyri á föstudagskvöldið.
KA sigraði þá Aftureldingu úr Mos-
fellssveitinni með 34 mörkum gegn 29
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
15—11 KA i vil. Burðarásar í liði KA
voru þeir Alfreð og Gunnar Gíslasynir
og voru þeir heldur betur i stuði. Þeir
skoruðu 8 fyrstu mörk KA og í heildina
skoraði Alfreð 15 mörk.
Markvarzlan var sæmileg hjá báðum
liðum. Hjá KA stóð Ólafur Haraldsson
i markinu en í liði Aftureldingar var
það gamla KR-kempan Emil Karlsson..
Hann hefur þó áreiðanlega oftast varið
betur en að þessu sinni.
Mörk KA: Alfreð 15/4, Gunnar 8/3,
Þorleifur 4/2, Jóhann 3, Jóhannes 2,
Guðm. L. og Guðm. Guðm. 1 hvor.
Afturelding reyndi að taka Alfreð úr
umferð um miðjan fyrri hálfleikinn en
það gekk lítið. Hann reif sig hvað eftir
annað lausan og ekki var að sökum að
spyrja. Knötturinn hafnaði í netinu.
Gunnar, bróðir hans, var mjög ógn-
andi í sókinni og sterkur í vörninni en
það var aðeins Steinar Tómasson, sem
stóð upp úr meðalmennskunni hjá
Aftureldingu. Hann skoraði mörg
glæsileg mörk.
Um miðjan siðari hálfleikinn var
munurinn orðinn 10 mörk, 25—15, en
þá tók að gæta kæruleysis hjá KA og
Afturelding saxaði á forskotið, en tókst
þó ekki að nálgast KA að neinu marki.
Mörk UMFA: Lárus 10, Steinar 7,
Gústaf 4, Þórður 4, Björn 2 og Magnús
og Ingvar I hvor.
Dómarar voru þeir Stefán Arnaldss.
og Gunnar Jóhannsson og dæmdu
ágællega.
- GS
Heppnissigur
KR á Akureyri
- KR sigraði Þór 14-12 í Skemmunni
KR-stúlkurnar sigruðu stöllur sínar
úr Þór á Akureyri í gærdag með 14
mörkum gegn 12. Slaðan í hálfleik var
8—6 KR I vil. Sigur KR var engan veg-:
inn sanngjarn og hefðu réttlátustu úr-
slitin verið jafntefli.
Jafnræði var með liðunum framan
af og á 15. min. var staðan t.d. 4—4.
Tvö Islands-
met í Eyjum
Vestmannaeyingurinn sterki,
Kristján Kristjánsson, var í miklum
ham í Eyjum á laugardag er þar fór
fram lyftingamót. Kristján setti tvö
íslandsmet, en hann keppir í 60 kíló-
gramma flokki.
Fyrst lyfti hann 165 kílóum í hné-
beygju og þá 275 kg í réttstöðulyftu.
Það gerir 440 kiló samanlagt og sá ár-
angur er einnig íslandsmet. Að auki
voru nokkur Vestmannaeyjamet sett en
mikil gróska er nú í lyftingunum i Eyj-
um allt frá því Óskar Sigurpálsson kom
til eyjarskeggja.
- FÓV.
KR komst í 6—4 en Þór jafnaði með
harðfylgi 6—6. Lokaorðið i fyrri hálf-
leiknum áttu svo KR-dömurnar er þær
bættu tveimur mörkum við.
Þær héldu siðan uppteknum hætti í
síðari hálfleiknum og þegar 12 mín.
voru til leiksloka var staðan orðin 14—
8 þeim í hag. En þá var eins og skrúfað
væri fyrir allt hjá þeim og Þór tók að
minnka muninn. Hefði ekki komið til
afar óhagstæð dómgæzla er ekki gott
að segja til um hvernig leikurinn hefði
þróazt. T.d. komst Magnea Friðriks-
dóttir inn í sending og óð upp allan
völl. Illa var brotið á henni, en aðeins
dæmt aukakast í stað vítakasts. Þetta
skipti sköpum í leiknum þvi Þór var að
vinna upp muninn og staðan 14—10.
Undir lokin, þegar KR leiddi 14—12,
brauzt Valdís inn úr horninu og gróf-
lega var brotið á henni. Ekkert var
dæmt hjá þeim dómurum Jóni Hensley
og Ólafi Haraldssyni og KR slapp því
fyrir horn.
Mörk Þórs: Harpa 5/5, Magnea 3,
Valdís 2/1, Þórunn I og Dýrfinna 1.
Mörk KR: Hansína 6/1, Hólmfríður
3/3, Hjördís 2, Anna Lind, Olga og
Arna 1 hver.
- GS
Þór — KR 12-14 (6-8)
ÍslandsmAtið i handknattloik, 1. doild kvonna. Þór - KR12-14 (6-8). Akureyri 3. fobrúar.
. Baztu leikmonn. Hansina Melsteó, KR, 7, Hjördis Sigurjönsdóttir KR, 7, Hjóimfriður
Jóhannesdóttir KR, 8, Magnoa Friðnksdóttir Þór, 8, Harpa Sigurðardóttir Þór 6,
Þór. Edda Öriygsdóttir, Kristin Ólafsdóttir, Magnoa Friðriksdóttir, Harpa Sigurðardóttir,
Guðný Bergvinsdóttir, Hanna Rúna Jóhannsdóttir, Freydís Halldórsdóttir, Þómnn Sigurðor
dóttir, Vakfís Hollgrimsdóttir, Dýrfinna Torfadóttir, Sigriður Sigurðardóttir, Þórey Friðriks-
dóttir.
KR. Helga Bachmann, Ása Ásgrimsdóttir, Honsina Melsteð, Hjördis Sigurjónsdóttir, Arna
Garðarsdóttir, Olga Garðarsdóttir, Hjálmfriður Jóhannesdóttir, Ellý Guðjohnson, Guðrún
Vilhjálmsdóttir, Korólína Jónsdóttir, Anna Lind Sigurðsson.
Jón Einarsson, HK — knattspyrnukappinn kunni i Val — lék IR-inga oft grátt i leiknum á laugardag. Hér er hann kominn i
færi þegar gripið er í handlegg hans. DB-mynd Ragnar Th.
Með slíkum leik áfram
getur HK forðazt fall
— HK vann öruggan sigur á ÍR í 1. deild íslandsmótsins
í handknattieik á laugardag
,,Eg þakka góðum þjálfara, Þor-
steini Jóhannessyni, og gjörbreyttum
liðsanda þá miklu breytingu, sem hefur
orðið á leik HK i síðustu leikjum
liðsins. Sigurinn gegn IR var alltaf
öruggur,” sagði Þorvarður Áki Eiríks-
son, formaður Handknattleiksfélags
Kópavogs, eftir að lið hans hafði sigrað
ÍR i 1. dcild karla i handknattleiknum á
laugardag i Laugardalshöll. Lokatölur
19—15. Annar sigur HK i röð og liðið
er nú komið af botni 1. deildar. Það fór
ekki milli mála að betra liðið sigraði á
laugardag. Kópavogsstrákarnir voru
mun belri — gneistuðu af leikgleði og
baráttuvilja. Léku oft á tíðum mjög
hraðan handknattleik og voru sterkir í
vörn. að baki frábær markvörður
Einar Þorvarðarson. Það var meira en
ÍR réð við — liðið átti aldrei möguleika
að bjarga stigi i þessum leik.
„Þetta var góð afmælisgjöf — HK
Óvænt hjá Skaganum
— ÍA vann öruggan sigur á Þór í bikamum, 24-19
átti tíu ára afmæli á dögunum — og nú
ræður gamli, góði liðsandinn rikjum,”
sagði Jón Ármann Héðinsson, fyrrum
alþingismaður, eftir leikinn. Hann var í
hópi dyggra stuðningsmanna HK, sem
mjög studdu við bakið á sínum mönn-
um með hvatningarhrópum meðan á
leiknum stóð. Hins vegar heyrðist varla
stuna þegar ÍR skoraði.
Það hefur orðið gjörbylting hjá H K í
siðustu leikjunr — hófst, þegar liðið
stóð lengi vel í Víkingum í sjöttu um-
ferðinni. Siðan sigur á Fram í þeirri
sjöundu og nú á ÍR. Með slíkum leik
áfranr getur HK hæglega varizt falli —
nokkuð sem fáum datt vist í hug eftir
fimnr fyrstu umferðirnar, þegar HK
tapaði og tapaði með miklum mun.
Auk Einars markvarðar áttu þeir
Hilmar og Jón Einarsson stórleik í HK-
liðinu — Jón skoraði grimmt úr horn-
inu í fyrri hálfleiknum. Lék skemmti-
lega á varnarmann ÍR, sem settur var
honum til höfuðs, en í s.h. tókst ÍR að
mestu að setja undir þann leka. Þá
reyndu í R-ingar að taka Hilmar úr um-
ferð. Það var vonlaust verk í þeim
ham, sem Hilmar var í. ÍR-liðið hefur
verið dauft í síðustu leikjum sínum.
aðeins Þórir markvörður og Bjami
Bessason, sem sýndu eitthvað. Erfiður
vetur framundan og þó á liðið þann
leikmann, sem flest mörkin skorar i
deildinni, Bjarna Bessason.
Talsverð taugaspænna var í mönnum,
þegar leikurinn hófst, og bæði lið mis-
notuðu vítakast á fyrstu min. Siðan
mikið jafnræði lengi vel. Allar jafn-
teflistölur upp i 6—6, þar sem HK
skoraði yfirleitt á undan. ÍR þó einu
sinni yfir, 5—4. En þegar tíu mín. voru
eftir af f.h. þökkuðu HK-menn fyrir
samfylgdina. Skoruðu fjögur mörk i
röð, 10—6, ogeftir það má segjaað úr-
slit hafi verið ráðin. Staðan i hálfleik
10—7 fyrirHK.
Lengi vel í s.h. voru HK-menn
fjórum til fimm mörkum yfir, 12—7,
13—8 og 14—9 en um miðjan hálfleik-
inn fór ÍR aðeins að saxa á forskotið.
Minnkaði muninn í 15—13 og þá voru
níu mín. til leiksloka. En Hilmar tók þá
til sinna ráða þrátt fyrir gæzluna,
skoraði þrjú mörk i röð. 18—14 og
sigur HK i höfn. Lokatölur 19—15 og
það var sanngjarn og verðskuldaður
sigur hjá Kópavogsliðinu.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason 5, Bjarni
Hákonarson 5/5, Sigurður I, Ársæll I,
Guðjón 1, Bjarni Bjarnason I og Pétur
1. Mörk HK: Hilmar 7/1, Jón 6,
Kristján 4/2 og Kristinn 2. -hsím.
Þriöju deildar lið Akurnesinga kom
lieldur betur á óvart um helgina er Þór
frá Akureyri, sem leikur í 2. deildinni,
kom í heimsókn. Leikur liðanna var
liöur í bikarkeppni HSÍ og leikar fóru
þannig að heimamenn sigruðu næsta
örugglega 24—19 eftir að gestirnir
höfðu leitl 11—8 i leikhléi. Greinilegt
að handknuttleikurinn er á hraðri upp-
leið á Akranesi.
Þórsarar voru allan fyrri hálfleikinn
yfir og þar til fram í miðjan þann
siðari. Þá tókst heimamönnum að
jafna og komast yfir og eftir það var
aldrei litið um öxl. Munurinn jókst
jafnt og þétt og í lokin skildu fimm
mörk.
Sigur Skagamanna var fyrir tvennt
merkilegur. Fyrst það að Þórsarar
höfðu örugga forystu í hálfleik og
síðan að Guðjón Engilbertsson, einn
helzti burðarás liðsins, fékk slæmt
högg i andlitið og kinnbeinsbrotnaði í
fyrri hálfleiknum. Hann var því lítið
með í þeim síðari en þá var það Jón
Hjaltalín Magnússon, sem gladdi tæp-
lega 300 áhorfendur með þrumuskot-
um sínum. Hann skoraði alls sex mörk
úr aðeins sjö tilraunum. Annars var
það barátta og aftur barátta sem færðu
Skagamönnum þennan sigur fyrst og
fremst og liðsheildin er helzti styrkleiki
liðsins.
Lið Þórs virkaði þunglamalegt og
varla líklegt til afreka ef ekki kemur til
breyting á leik þess.
Mörk ÍA: Jón Hjaltalin 6, Haukur
Sigurðsson 6/3, Kristján Hannibalsson
3, Þórður Eliasson 3, Ólafur Páll
Engilbertsson 2, Guðjón Engilbertsson
2, Hlynur Sigurbjörnsson 1 og Daði
Halldórsson 1.
Mörk Þórs: Sigtryggur Guðlaugsson
5/2, Pálmi Pálmason 4, Árni Stefáns-
son 4, Benedikt Guðmundsson 3,
Hrafnkell Óskarsson 2 og Valur Knúts-
son 1.
Dómarar voru þeir Grétar Vil-
mundarson og Stefán R. Hjálmarsson
og dæmdu þeir vel.
- SSv.
ÍR - HK 15-19 (7-10)
Ulandsmótið i handknattleik, 1. deild karta, IR — HK 15—19 (7—10) i Laugardalshöll 2. febrú-
ar.
Beztu leikmenn Hilmar Sigurgislason, HK, 8, Einar Þorvaröarson, HK, 8, Jón Einarsson, HK,
8, Þórir Flosason, ÍR, 7, Bjami Bessason, ÍR, 7.
ÍR: Þórir Flosason, Ásgrímur Friðriksson, Bjami Hákonarson, Sigurður Svavarsson, Bjami
Bessason, Ársœll Hafsteinsson, Guðjón Marteinsson, Guðmundur Þórðarson, Bjami Bjama-
son, Ólafur Tómasson, Pótur Valdimarsson.
HK: Einar Þorvaröarson, Bergur Þorgeirsson, Hilmar Sigurgíslason, Bergsveinn Þórarins-
son, Kristján Þ. Gunnarsson, Magnús Guðfinnsson, Gissur Kristinsson, Ragnar ólafsson,
Kristínn Ólafss^n, Jón Einarsson, András Gunnlaugsson, Gunnar Ámason.
Dómarar Gunnar Kjartansson og Óli Olsen. ÍR fékk 7 vitaköst — skoraði úr fimm. Einar
varði frá Sigurði og Bjama Hák. HK fékk 6 vití. Þórir varöi frá Ragnari og Kristjáni. Þá hittí
Ragnar ekki markið i fyrsta vítakastínu. HK nýttí þvi þrjú vitanna. Tveimur ÍR-ingum var vikið
af velli. Pétri og Bjama Bjamasyni — einum úr HK, Ragnari. Áhorfendur 200.