Dagblaðið - 05.02.1981, Side 1
7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1981 — 30. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Niðurstöður skoðanakönnunar DB:
BJÓRINN VARD UNDIR
Bjórinn varð undir i skoðana-
könnun, sem DB hefur nú gert. Fólk
var spurt hvort það væri fylgjandi
eða andvigt þvi aö leyfð yrði sala á á-
fengu öli hér á landi. Af heildinni
sögðust 48,3 af hundraði vera því
andvígir. 44,3 af hundraði kváðust
fylgjandi bjórnum. Aðeins 4,3 af
hundraði voru óákveðnir og 3%
vildu ekkisvara.
Þetta þýðir, að af þeim sem
tóku afstöðu voru 52,2 prósent and-
vígir bjórnum, en 47,8 prósent fylgj-
andi.
Annað var uppi á teningnum í
skoðanakönnunum, sem DB gerði
um bjórinn i fyrra og hittifyrra. Þá
voru stuðningsmenn áfenga ölsins
heidur fleiri en andstæðingar þess.
Meirihluti karla er fylgjandi
bjórnum en öflugri meirihluti kvenna
er honum andvígur. -HH.
Sjá nánar um niðurstöður
könnunarinnar og viðtöl á
bls. 4.
Lœkjargötuskúlptúr. Þessi byggingarlist í Lœkjargötunni er ekki
varanleg, en gefur ungu stúlkunni skemmtUega umgjörð. Sólargeisl-
arnir rúða strikum og línum og minna okkur ú það að svartasta
skammdegið er að baki og birtan eykst með degi hverjum.
DB-mynd Einar Ólason.
FLUGSTOÐVARBYGGING
í KEFLAVÍK Á NÆSTA LEITI?
málið rætt á sérstökum þingf lokksfundi í Framsóknarf lokknum
Ný flugstöðvarbygging á Keflavíkur-
flugvelli var til meðferðar á sérstökum
fundi í þingflokki framsóknarmanna
síðastliðinn mánudag. Utanríkisráð-
herra, Ölafur Jóhannesson, hafði
framsögu um málið og gerði ítarlega
grein fyrir áætlunum um framkvæmdir
við þetta mannvirki með myndum,
teikningum og útreikningum.
Varð nokkur umræða um máiið og
ýmsa þætti þess á þingflokksfundinum.
Var það ekki útrætt þegar fundi lauk
og ekki endanleg ákvörðun tekin um
það hvernig þingflokkurinn og ráð-
herra myndu halda á næsta framhaldi
málsins á þingi.
Kostnaðaráætlun við sjálfa flug-
stöövarbygginguna er 40 milljónir
Bandaríkjadollara. Að auki er áætl-
aður kostnaður við gerð akbrauta og
ýmsan ytri búnað 25 milljónir dollara,
eða samtals 65 milljónir dollara i allt
þettamannvirki.
Bandariskt fjárveitingarvald í þess-
um efnum hefur samþykkt að standa
undir kostnaði við akbrautir og annan
ytri búnað, sem áætlað er að kosta
muni 25 milljónir doilara. Auk þess
liggur fyrir fjárveiting sama aðila til
greiðslu helmings kostnaðar við flug-
stöðvarbygginguna sjálfa, eða samtals
45 milljónir dollara. Kemur þá í hlut ís-
lendinga að greiða 20 milljónir dollara
við þessaafmörkuðu framkvæmd.
Þetta jafngildir rúmlega 40 milljörð-
um gamalla króna, þar sem kostnaðar-
hlutur íslendinga yrði 12,5 milljarðar
gamalla króna.
Samkvæmt heimildum DB er málið
rætt í ríkisstjórninni af nokkurri var-
færni, en þó einkum að frumkvæði
utanríkisráðherra, sem eðlilegt er.
- BS
Borga dýra prentun ístað þess að auglýsa
Tapar skatturinn á því að prenta leiðbeiningar í stað þess að semja við dagblöðin um birtingu?
— Sjá athugasemd á bls. 11
Sjálfsagt
að leyfa
bjórinn
— tfmafrektað
drekkasigfullan
íhonum—sagði
Jón G. Sólnes
forstjóri
„Mér kemur þetta ekki á
óvart,” sagði Jón Sólnes, for-
stjóri og fyrrum alþingismaður.
„Mín skoðun er sú, að fylgi við
bjórinn hafi minnkað, meðal
annars ef til vill vegna'bruggsins.
Ég heyri lítið talað um bjór
núna,” sagði Jón.
,,Ég flutti á sínum tíma þings-
ályktunartillögu um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um bjórinn. Ekki
vegna þess að ég væri alveg viss
um að hann yrði samþykktur,
heldur var afar einfalt að tengja
þá kosningu almennum kosning-
um,” sagði Jón Sólnes. Hann
sagði ennfremur:
„Ég tel að það sé sjálfsagt að
leyfa mönnum að drekka bjór.
Mín skoðun hefur ekkert breytzt í
þvimáli. Það er óeðlilegt að geta
kevpl og drukkið í gallonavis bál-
sterkt brennivín en ekki með
nokkru móti góðan bjór. Ungir
menn og frískir höfðu ekki tíma
til að drekka sig fulla í bjór þegar
jég var yngri.” -BS
Tilslökunar-
stef nan í
áfengismál-
um hef ur
gengið sér
til húðar
— sagði Ólafur
Haukur Ámason
„Mér þykir mjög ánægjulegt
að heyra þetta,” sagði Ólafur
Haukur Árnason áfengisvarnar-
ráðunautur. Ef þetta reynist rétt
bendir það til þess að almenning-
ur sé á móti tilslökunum í áfengis-
málum. Má í því sambandi benda
á atkvæðagreiðslu um opnun á-
fengisútsölu á Selfossi og
Seltjarnarnesi,” sagði Ólafur.
,,Ég held að viðhorf
Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna hafi að einhverju leyti
komizt tii almennings hér. Niður-
stöður þeirrar stofnunar eru alger
andstaða við alla tilsökun í á-
fengismálum.
Tilslökunarstefnan hefur
gengið sér til húðar. Jafnvel þær
þjóðir, sem lengst hafa gengið í
tilslökunarátt hafa nú snúið við
blaðinu og beitt sér fyrir auknum
hömlum, eins og til dæmis Frakk-
land,” sagði Ólafur Haukur
Árnason.