Dagblaðið - 05.02.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1981.
64. skoðanakönnun Dagbladsins:
Ertþú fylgjandi eða andvfgurþvíað leyfð verðisalaáfengsölshérálandi?
BJORINN VARD UNUR
—enmjótt
erá
mununum
Bjórinn varð undir í skoðanakönn-
un, sem Dagblaðið hefur nú gert —
þótt ekki muni miklu. Fylgi bjórsins
hefur hrakað, frá því að DB gerði sams
konar kannanir i fyrra og hittifyrra.
í könnun Dagblaðsins fyrr á árum
og Vísis þar áður laut bjórinn jafnan í
lægra haldi. f skoðanakönnun, sem
Dagblaðið gerði í marz 1978, reyndust
46 af hundraði fylgjandi bjórnum en
tæplega 48 af hundraði voru andvígir.
Bjórinn hafði þá unnið mjög á frá enn
eldri könnunum. Siðan gerðist það í
könnun, sem birt var í ársbyrjun 1979,
að bjórinn varð ofan á í fyrsta skipti.
Þá voru 48 af hundraði fylgjandi bjór,
tæplega 42 af hundraði andvígir og
rúm 10 af hundraði óákveðnir. Þetta
endurtók sig í könnun, sem birt var
fyrir ári, í febrúar 1980. Þá voru rúm
49 af hundraði með bjórnum, rúm 42
af hundraöi á móti og rúm 8 af
hundraði óákveðnir. í ljósi þess hlýtur
það að verða stuðningsmönnum bjórs-
ins áfall, að hann er nú aftur orðinn
undir í ársbyrjun 1981.
Úrslitin urðu þau að þessu sinni, að
44.3 af hundraði segjast fylgjandi bjór,
48.3 af hundraöi kveðast andvígir, 4,3
afhundraði eru óákveðnir og 3 af
hundraðiviljaekki svaraspurningunni.
Sérstaka athygli vekur, hve fáir eru
óákveðnir. Bjórmálið er greinilega
mikið á döfinni manna á meðal þannig
aö nær allir hafa sina skoðun „á
hreinu”. Af þeim, sem taka afstöðu,
eru því nú 47,8% með en 52,2% á móti
áfengaölinu.
Þessi könnun var gerð samtímis þeim
skoðanakönnunum, sem DB hefur birt
síðustu vikur um stjórnmálin. Úrtakið
var 600 manns, helmingur af hvoru
kyni og helmingur á Reykjavíkursvæð-
inu og þá helmingur utan þess svæðis.
Konur úti á landi
ráða úrslitum
Geysilegur munur er á afstöðu til
bjórmálsins eftir því, hvort um er að
ræða karla eða konur og eftir því hvort
menn eru búsettir á höfuðborgarsvæð-
inu eða úti á landsbyggðinni. Þetta
hefur lika komið í ljós í fyrri DB-könn-
unum um þetta mál.
Töluverður meirihluti karla á höfuð-
borgarsvæðinu styður bjórinn.
Naumur meirihluti karla úti á lands-
byggðinni styður einnig bjórinn. En
annað er uppi á teningnum hjá kven-
þjóðinni.
Nokkur meirihluti kvenna á höfuð-
borgarsvæðinu er andvigur bjórnum.
Konur úti á landsbyggðinni ráða þó úr-
slitum. Meðal þeirra er talsvert stór
meirihluti á móti bjórnum.
- HH
Fagna þessari niðurstöðu
segir Helgi Seljan alþingismaður
„Ég hefi tekið fullt mark á skoðana-
könnunum Dagblaðsins. Þær hafa
gefið rétta mynd og ég fagna þeirri
þróun í afstöðu manna til bjórsins, sem
fram kemur nú,” sagði Helgi Seljan,
alþingismaður Austurlands.
,,Ég hefi út af fyrir sig verið hissa á
því, að meirihluti hefur verið fyrir
bjórnum. Þar sem ég þekki bezt til
eystra, hafa menn ekki viljað viðbótina
við þá neyzlu áfengis, sem fyrir er.
Eftir því að dæma hefi ég haldið, að
ennþá færri vildu bjórinn en skoðana-
könnunin segir til um,” sagði Helgi.
„Menn hafa talið, að bjórinn yrði
hrein viðbót en kæmi ekki i staðinn
fyrir aðrar tegundir áfengis. Þá hafa
menn talið að hann myndi færa
áfengisneyzluna jafnvel enn neðar í
aldursflokka, þar sem hann yrði fljót-
lega almenn verzlunarvara. Eins og ég
sagði áðan fagna ég þessari niður-
stöðu,” sagði Helgi Seljan.
»
Helgi Seljan: ,,Menn hafa talið að
bjórinn yrði hrein viðbót.”
Mannréttindi að fá að drekka bjór
—myndi greiða því atkvæði á Alþingi, segir Vilmundur
Gytfason alþingismaður
árWfcu i fáii ~~
,,Ég er yfirleitt hrifinn af skoðana-
könnunum Dagblaðsins en er þó eng-
inn bókstafstrúarmaður á þær,” sagði
Vilmundur Gylfason alþingismaður.
„Yfirleitt er það lítið sem ber á milli
fylgis og andstöðu við bjórinn. Svo er
enn. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar,
að ég tel að bjór eigi að leyfa. Ég myndi
greiða atkvæði með því á Alþingi, ef
einhver kæmi með tillögu um það. Ég
hefi ekkert slíkt í huga,” sagði Vil-
mundur.
„Það eru mannréttindi að fá að
drekka bjór. Enda þótt niðurstöður í
skoðanakönnunum rokki lítið eitt til,
þá breytir það mér ekkert,” sagði Vil-
mundurGylfason. -BS
Vilmundur Gylfason: ,,Ég
greiða atkvæði með því á Alþingi,
einhver kæmi með tillögu um það.”
Niðurstöður skoðanakönnunarínnar uröu þessar:
Fylgjandi bjórnum .. 266 eða 44,3%
Andvígir .. 290 eða 48,3%
Óákveðnir .. 26 eða 4,3%
Vilja ekki svara .. 18 eða 3%
Ef aðeins eru teknir þeirf sem tóku af-
stöðu, verða niðurstöðurnar þessar:
Fylgjandi 47,8%
Andvígir 52,2%
Ummæli félks í könnuninni:
„ Tveggja ára
fyllirT
„Hef kynnzt bjórnum sem sjó-
maður og er andvigur honum, því að
erfitt er að umgangast hann,” sagði
karl á Reykjavikursvæðinu. ,,Ég er
algerlega mótfallinn sölu á bjór. Hann
mundi stórauka drykkjuskap, sem er
ærinn fyrir,” sagði kona á Norður-
landi eystra. Ég er nú ekki hræddur
um sjálfan mig, en ég er andvígur
því, að öl verði leyft,” sagði kari á
Austurlandi.
lög að hafa hér bjór,” sagði kona á
landsbyggðinni. ,,Ég er á móti ölium
áfengum drykkjum,” sagði kona úti
á landi. „Hlýt að vera andvíg. Islend-
ingar mundu fara á tveggja ára fylli-
rí, ef bjórinn kæmi. Viðeigum frekar
að drekka vatnið. Við eigum bezta
vatn í heimi,” sagði kona úti á landi.
„Islendingar færu bara i sterkari
drykki eftir eitt bjórglas,” sagði kona
úti á landi.
„Ég er algjörlega mótfallinn bjórn-
um. Hann yrði bara til þess, að
krakkarnir byrjuðu fyrr að sulla,”
sagði karl á Norðurlandi vestra.
,,Það mundi auka drykkjuskap,”
sagði karl á Reykjavikursvæðinu.
„Bjór bætir ekki að neinu leyti
drykkjusiði hér á landi, ég er algjör-
lega á móti,”sagöi karl á Reykja-
víkursvæðinu., ,Það er nóg brennivin
fyrir, pilsnerinn dugar,” sagði karl á
Reykjavikursvæðinu. „Ég hef séð
áfengt öl erlendis og veit, að það
gefur ekki góða raun," sagöi kona á
Reykjavíkursvæðinu. ,,Ég er mikið á
móti bjórnum, hef séð of marga, sem
hafaoröið áfcnginu að bráð,” sagði
kona á höfuðborgarsvæðinu.
„Raunin er sú erlendis, að menn
drekka þá meira og i vinnunni,”
sagði kona á Reykjavikursvæðinu.
„Það yrði meiri drykkja og tíma-
eyðsla,” sagði kona á Reykjavlkur-
svæðinu. „Bjórinn yki drykkjuskap
unglinga,” sagði kona á höfuð-
borgarsvæðinu. „Þá yrði enn meira
fyllirí og óþverri,” sagði enn ein
kona á höfuðborgarsvæðinu. „Ég er
á móti þvi vegna unglinganna,” sagði
kona 1 sveit. „Ég er á móti öllu á-
fengi,” sagði kona á Noröurlandi
vestra. „Við höfum ckkert við bjór
að gera inn i landiö, nógur er ósóm-
inn samt,” sagði karl á Suðurlandi.
,,Ég er á móti bjórnum. Viö megum
ekki dekra við alkóhólistana," sagði
kona á höfuðborgarsvæðinu. „Mér
þykir bjór góður en treysti þjóöinni
ekki til að fara með hann,” sagði
kona á Reykjavlkursvæöinu.
,,Ég er á móti bjór og held, að allir
hljóti að vera það, úr þvi að Pétur er
hættur að berjast fyrir honum,"
sagði karl á Reykjavikursvæðinu.
„Ég er á móti bjórnum. Ég var í Svi-
þjóð I fjögur ár, eftir að hann var
gefinn frjáls. Þaö var ljót útkoma, og
Svíar gáfust upp á þvi aftur,” sagði
karl á Reykjavíkursvæðinu. ,,Á
móti. Við erum svo vanþroska i
menningarlegu tilliti,” sagöi karl á
höfuðborgarsvæðinu. „Bjór skapar
unglingavandamál eins og erlendis,”
sagði kona úti á landi. „Ég var fylgj-
andi bjór en snerist eftir aö hafa
kynnzt bjórdrykkju unglinga í Dan-
mörku,” sagði karl úti á landi. ,,Ég
hef kynnzt bjór erlendis og áfengis-
málunum gegnum starfið og er alger-
lega á móti bjórnum," sagði kona úti
á landi. ,,Það mætti vanta bæði vin
og tóbak á íslandi. Ætti að varða við
„í Ríkinu"
„Fylgjandi bjórnum, ef hann
verður aðeins seldur I „Rikinu” og
veitingahúsum en ekki í matvöru-
verzlunum,” sagði kari á Reykja-
víkursvæðinu, og margir tóku undir
það. „Það mundi draga úr neyzlu
sterkra drykkja,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu. ,,Ég tel, að
bjórinn mundi draga úr áfengis-
ncyzlu,”sagöi kona í Kefiavík.
„Fylgjandi. Það er ómögulegt, að
einstakar stéttir hafa forréttindi i
þessum efnum,” sagði karl i Kefla-
vík. „Fylgjandi. Það er hvort eö er
bruggað,” sagði kona á Hvolsvelii.
„Ef hann yrði bara seldur i Rikinu,
er ég fylgjandi honum,” sagði kona á
Isafirði. „Með, það ætti þá að selja
hann I Rikinu og allur ágóöi að renna
til afengisvarna,” sagði karl I Hvera-
gerði. „Ég vil endilega fá bjór,”
sagði karl i sveit. „Það má selja bjór i
Rikinu til reynslu,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu. „Fyrst hitt
áfengið er, má bjórinn vera lika,”
sagöi kona á Reykjavlkursvæðinu.
„Sjálfsögð mannréttindi að fá áfengt
öl,” sagði karl á Reykjavikursvæð-
inu. „Við hljótum að þola að hafa
bjórinn í Ríkinu og f hálfum og
heilum kössum,” sagði karl á
Rey kj avíkursvæöinu.
„Það er hvort sem er bruggað í
öðru hverju húsi,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu. „Styð ölsölu
undir eftiriiti ÁTVR,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu. „Ég er fylgj-
andi bjórnum. Hvi ættum við ekki að
geta passað okkur eins og aðrir?”
sagði karl á Vestfjörðum. „Bönn eru
til hins verra. Það verður að kenna
fólki að meðhöndla bjórinn,” sagði
kona á Reykjavikursvæðinu. „Sjálf-
sagt að leyfa fólki að velja og hafa
bjór, ef vill,” sagði kona á Reykja-
víkursvæðinu. „Það á að selja bjór-
inn i kössum í Ríkinu,” sagði karl á
höfuðborgarsvæðinu. „Menn eiga að
mega kaupa bjór eins og annað
áfengi,” sagði karl úti á landi.
„Auðvitað vil ég bjór, ekki bara i
Ríkinu, heldur i næstu búð,” sagði
kona úti á landj.
„Ég er orðinn svo leiður á að
brugga sjálfur, að ég vil geta keypt
þetta tilbúið, en það má setja reglur
um dreifingu eins og um vin,” sagði
karl úti á landi. „Bjór, eindregið
fylgjandi honum, enda er ég frá
Þýzkalandi,” sagði kona úti á landi.
- HH