Dagblaðið - 05.02.1981, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1981.
fl
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Reagan
boöar
aðgerðir
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
mun i dag halda sjónvarpsræðu, þar
sem hann gerir grein fyrir sjónarmiðum
sínum í efnahagsmálum, hvaö hann
telji vera að og hvað hann vonist til að
geta gert við vandanum.
Efnahagsmálin voru aöalmál kosn-
ingabaráttunnar enda er verðbólgan i
landinu nú um 13 prósent, atvinnuleysi
um 7,4 prósent og forvextir 20 prósent.
Bifreiöaiðnaðurinn á í gífurlegum
erfiðleikum og fjárlagafrumvarpið
gerir ráð fyrir halla tólfta árið i röð.
Forsetinn lagði leið sina óvænt i
þinghúsið í gær og ræddi þar í tæpa
klukkustund við þrettán þingmenn.
Talið er fullvist að efnahagsmálin hafi
borið þar á góma.
í kosningabaráttunni lofaði Reagan
að lækka skatta um 10 prósent á ári
næstu þrjú ár um leið og hann lofaöi
auknum útgjöldum til hermála.
REUTER
Bandarísk kona kemur fyrir rétt í íran:
Bandarískur blaðamaö-
ur sakaöur um njósnir
—annar Bandaríkjamaður látinn laus — Fjórír Bretar ennþá íhaldi írana
—ákvörðunar í máli þeirra lofað f I jótlega
Bandarisk kona, Cynthia Dwyer
blaðamaður, hefur verið leidd fyrir
rétt í Iran sökuð um njósnir. Á sama
tima var annar Bandaríkjamaöur sem
verið hefur i fangelsi í fran látinn laus
og skýrt frá því að ákvörðun yrði
fljótlega tekin í máli Bretanna
fjögurra sem verið hafa í haldi í íran.
Bandaríkjamaðurinn sem látinn
var laus heitir Mohi Sobhani. Hann
er tölvufræðingur og er af írönskum
ættum. Hann var handtekinn í sept-
embermánuöi slðastliönum. Ekket
var minnzt á þriðja Bandaríkja-
manninn sem verið hefur i haldi í
Iran, Zia Nassri, en hann er fæddur í
Afganistan.
Það var svissneski sendiráðsmað-
urinn Wilhelm Schmidt, sem greindi
frá þessu í gær. Schmidt gætir hags-
muna Bandarikjanna í íran.
Schmidt sagði að dóms væri að
vænta yfir Cynthia Dwyer innan
fárra daga. Á sama tíma og hún kom
fyrir byltingardómstólinn í Teheran
greindi aöaldómarinn, Ayatollah
Mohammad Beheshti, frá því að
rannsókn á máli fjögurra Breta sem
verið hafa í haldi í íran væri því sem
næst lokið.
Einhver hefur látið svo ummælt, að hinn nýi forsætisráðherra Noregs, Gro Harlem Grundtland, sé fæddur með silfurskeið i
munninum. Faðir hennar, dr. Gudmund Harlem, var félagsmála- og varnarmálaráðherra I stjóm Einars Gerhardsen og
móðir hennar, Inga Harlem, var einkaritari Trygve Bratteli forsætisráðherra. Gro hefur frá unga aldri verið flokks-
bundin i Verkamannaflokknum. Hún er læknir að mennt en hætti vinnu við doktorsritgerð er henni var boðin umhverfismála-
ráðherrastaða árið 1974. Skipan hennar i embætti forsætisráðherra hefur mælzt mjög vel fyrir i Noregi.
Erlendar
fréttir
Hvalveiðar
Riíssa
haWaáfwíl
— fréttin frá Tass
reyndiströng
Nýlega greindi Tass-frétta-1
I stofan sovézka frá því að Sovét-1
menn hefðu ákveðið að hætta I
hvalveiðum. Nú hefur Alþjóðlega
náttúruverndarsambandið í Sviss
I lýst þvl yfir að frétt þessi fái ekki
I staðizt. Náttúruvemdarsamband-I
ið fékk þær upplýsingar frá við-l
komandi ráðuneyti í Sovétríkjun-J
um að Sovétrikin myndu halda á-1
fram veiðum í samræmi við þá |
I kvótaskiptingu sem Alþjóðahval-
| veiðiráðið hefði ákveðið.
Tass-frétdn, sem meðal annars |
| var talsvert til umræðu hér á
landi, er þvl eftir öllum sólar-1
merkjumaðdæma röng.
Pölska stjórnin fellst ekki á afsögn ráðamanna íBielsko-Biala:
SAMNINGA VWRÆÐUR
FÓRU ÚTUM ÞÚFUR
—* Walesa hvetur til setuverkfalla ef stjómvöid
beitavaldi
Hæstlréttur Póllands mun I næstu viku fjalla um þá kröfu pólskra bændá að þeir
fái að stofna sjálfstæð verkalýðsfélög.
Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
samtaka sjálfstæðu verkalýðs-
félaganna I Póllandi, hefur hvatt
verkamenn í héraðinu Bielsko-Biala í
suðurhluta Póllands til að gripa til
setuverkfalla verði þeir beittir
„þvingunaraðgerðum’’.
Hvatning Walesa er enn eitt
merkiö um að spenna aukist nú á ný I
Póllandi eftir að slitnaði upp úr við-
ræöum stjórnvalda og Einingar I
gær, nfunda dag verkfallsins í
Bielsko-Biala, sem hefur lamaö allt
athafnallf þar. Vinna hefur legið þar
niöri I um 120 mikilvægum iðnfyrir-
tækjum og opinberir embættismenn
segja að verkfallið kosti sem svarar
75 milljónum islenzkra nýkróna á
dag.
Verkamenn fóru I verkfall tíl að
leggja áherzlu á þá kröfu slna að
þrjátíu opinberum embættísmönnum
I héraðinu verði vikið frá störfum.
Fimm embættismenn I héraðinu, meö
héraðsstjórann Jozef Labudek í
broddi fylkingar, buöust I gær til að
segja af 'sér en rikisstjórnin hefur
neitaö að fallast á afsögn þeirra.
Írakskir skriðdrekar f Iran.
Rússneskir skrið-
drekar tii íraks
—Komu þeir frá Póllandi?
Bandarískir embættismenn telja að
sovézku skriðdrekarnir hundrað sem
sendir hafa verið áleiðis til Íraks kunni
að hafa komið frá Póllandi.
Saudi-Arabía leyfði að
skriðdrekarnir yrðu fluttir um þeirra
yfirráðasvæði enda styður stjórn
Saudi-Arabíu írak í styrjöldinni við
íran.
Hin opinbera fréttastofa íraks réðst
í gær óbeint að Sovétmönnum fyrir að
standa ekki við skuldbindingar sínar
um vopnasölu. Sovétmenn voru þó
ekki nefndir á nafn I fréttinni, þar sem
sagði að írak myndi ekki gleyma fram-
komu þeirra „sem ekki standa við
skuldbindingar sínar”. Embættismenn
telja það með vilja gert hjá Sovét-
mönnum að láta skriðdrekana koma
frá Póllandi. Þannig geti þeir frekar
haldið þvi fram að þeir séu hlutlausir í
styrjöld íraks og írans.