Dagblaðið - 05.02.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1981.
ð
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Kengúruungi fœr poka
fylli afpoppkomi
Taktu nokkur i nesti — Þessi kengúruungi er að fá sér nokkur poppkorn í nesti
áður en móðirin hoppar I burtu. Venjulega leyfa kvenkynskengúrur ekki
ókunnugum að mata afkvœmi sln. Sérstaklega ekki meðan þau eru ipokanum —
en þessi litla stúlka hefur sennilega litið nógu vinsamlega út til að fú að gera það.
Sólóplata með
Stevie Nicks
kemur út í vor
Stevie Nicks söngkona hljóm-
sveitarinnar Fleetwood Mac hefur
boðað útkomu fyrstu sólóplötunnar
sinnar með vorinu. Það táknar þó
ekki, að hún hafl sagt skilið við
félaga sína. Hljómsveitin starfar
áfram eftir sem áður.
Söngkonan sagði nýlega í blaða-
viðtali að á plötunni yrði talsvert af
rokkmúsfk í bland við hugljúfari lög,
svo sem Bella Donna og Bit Of Gold
And Braid.
Fleetwood Mac var á hljómleika-
ferð 1 heila átta mánuði á síðasta ári.
„Við vorum gjörsamlega útbrunnin
eftir að ferðinni lauk,” sagir Nicks.
Hún bætti því við að erfiðasti hluti
þess að gera sólóplötu væri að velja
lögin á hana. „Ég þurfti að velja úr
300.000 lögum, sem ég á á lager,”
sagði hún. — Þekktustu lög Stevie
Nicks eru án efa Dreams, Rhiannon,
Landslide og Sara.
Fjöldi fólks kemur fram með
Stevie Nicks á sólóplötunni. ,,Ég
hefði getað hringt í Lindu Ronstadt
eða Barbru Streisand og beðið þær
að syngja bakraddir, en mig langaði
að halda þessu öllu innan fjölskyld-
unnar. Ég bað því vinkonur mínar að
taka bakraddirnar að sér,” sagði
Stevie Nicks. Jafnframt bauð hún
samstarfsfólki sínu í Fleetwood Mac
að gera það sem því sýndist á plöt-
unni.
Stevie Nicks gekk til liðs við Fleet-
wood Mac árið 1975 ásamt þáverandi
kærasta sínum Lyndsey Bucking-
ham. Þau gerðu sjö ára samning við
hljómsveitina. Síðan þau slógust í
hópinn hafa komið út fjórar LP
plötur með Fleetwood Mac, þar af
tvær tvöfaldar. Senn hefst vinna við
eina enn. Stevie Nicks lofaði þvi að
sú plata yrði frábær.
a pappirnum
Ríkasti maður sem uppi hefur
verið er talinn hafa verið Henry B.
Stuart. En samt hafa fáir heyrt hans
getið.
Þegar Stuart lézt árið 1938 var
hann talinn eiga 624,022,682,470,990
$.Við treystum okkur ekki til að segja
þessa upphæð í orðum en víst er að á
þeim tíma voru ekki til svo miklir
peningar í heiminum.
Þessi hrikalegi auður varð þannig
til að árið 1897 gerði Stuart samning
við George nokkurn Jones. Stuart
lánaði Jones fé gegn 10% mánaðar-
vöxtum. En svo óheppilega vildi til
að Stuart týndi samningseyðublaðinu
og Jones sá sér leik á borði og
borgaði ekki skuldina. En mörgum
áður síðar, árið 1921, fann Stuart
aftur samninginn og höfðaði þegar
mál gegn Jones. Dómstóllinn komst
að því að Jones bæri að greiða Stuart
300 milljarða dollara. En allt sem
Stuart tókst að kria út úr Jones voru
19.$
Henry B. Stuart var sem sagt bara
pappírsmilljónamæringur og ekki sá
eini í heiminum. Árið 1971 gaf
Cambridge háskólinn i Englandi eftir
skuld við þýzkan prentara upp á
117,165,398,000 $ en sú upphæð
hafði vaxið af 40% láni frá árinu
1521.
Afkomendur prentarans greiddu
upphaflegu skuldina 250 árum siðar,
árið 1770 en án vaxta sem voru 5% á
ári.
Önnur skrýtin krafa var gerð árið
1943. Liðsforingi nokkur í Englandi
tók eftir því að skráning hans í herinn
var dagsett árisð 1443 í stað 1943.
Hann krafðist því launa 500 ár aftur i
tímann. Herinn gerði hins vegar
kröfu á móti þar sem hann sem elzti
starfandi liðsforinginn bæri ábyrgð á
sumum eignum sem herinn hafði
tapað sl. 500 ár. Krafan sem herinn
gerði var 30 $ hærri en krafa liðs-
foringjans.
Stevie Nicks sagdi þaö erfiðasta við að gera sólóplötu vera aö velja á hana lögin. Hún
kvaðst hafa þurft að velja úr þrjú hundruð þúsund lögum.
Ungfrú
líkamsrœkí
Langar þig í sjómann, góði? Já
hún er ekkert blávatn hún Rachel
McList, þó hún sé ekki nema 25 ára.
Rachel var nýlega kosin ungfrú
Olympia. Eins og sjá má er hún lif-
andi sönnun þess að konur þurfa
ekki að missa kynþokka sinn þó þær
stundi líkamsrækt.
Rachel er handhafi bæði að
amerískum og alþjóðlegum meist-
aratitlum í líkamsrækt sem er lanzi
gott þar sem það er ekki meira en
ár síðan hún hóf líkamsrækt fyrir
alvöru. Nú heldur ef til vill einhver að
þessu fagra útliti fylgi tómur kollur,
en ekki aldeilis. Rachel hefur B.S.
gráðu í líkams- og heilsufræðum.
Tígrisdýr í vígahug
reynist vera stór kisulóra
Það lítur út fyrir að þetta 300 punda bengalska tígrisdýr ntuni rífa
þjálfara sinn Bill Flemming í tœtlur á myndinni hér til vinstri.
En sem betur fer er Esi, en það er nafn tígrisdýrsins, aðeins að lát-
ast. Esi og Bill eru þarna að leika sér í vatninu. Á myndinni hér að
neðan sýnir Esi að hún er í rauninni bara blíð kisulóra, þar sem hún
situr og fœr mjólkursopa hjá þjálfara sínum og vini.
1