Dagblaðið - 05.02.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1981.
II
Bæjarstjómarmenn á Dalvík:
Sverja afsér undirskriftalistana
—til stuðnings einum umsækjanda um lyf söluleyfið á staðnum
„Bæjarstjórn hefur engin afskipti
haft af þessu máli og það er misskiln-'
ingur að umrædd undirskriftasöfnun sé
að einhverju leyti á vegum bæjarstjórn-
ar,” sagði Valdimar Bragason bæjar-
stjóri á Dalvík I gær þegar hann var
inntur eftir hugsanlegum afskiptum
bæjaryfirvalda af veitingu lyfsöluleyfis
í Dalvíkurapóteki sem gerð hefur verið
að umræðuefni. Svavar Gestsson heii-
brigðisráðherra veitti Óla Þ. Ragnars-
syni yfirlyfjafræðingi í Vesturbæjar-
apóteki lyfsöluleyfi á Dalvik. Umsækj-
endur um leyfið voru þrir. Lyfjafræði-
nefnd og landlæknir mæltu með að
Freyja V.M. Frisbæk Kristensen yfir-
lyfjafræðingur í Kópavogsapóteki
fengi leyfið, en Óli Þ. kæmi næstur í
Séð yfir fundarsalinn. Á miðri mynd eru hjónin Erna Finnsdóttir og Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
DB-mynd Einar Ólason.
Sjálfstæðismenn funda um borgarmálefni:
Erfiðleikamir íflokknum ná
ekki til borgarmálaf lokksins
—sagði Markús Öm Antonsson
,,Það var ánægjulegt að lesa það i
Dagblaðinu að sjálfstæðismenn
væru í sókn i borginni og er vonandi
að sú spá rætist,” sagði Davíð Odds-
son, sem var framsögumaður ásamt
Markúsi Erni Antonssyni á hverfa-
fundi í Sigtúni í gærkvöldi um stefnu
sjálfstæðismanna í borgarmálefnum.
Davíð ræddi stóraukna skatt-
heimtu hins nýja meirihluta borgar-
stjórnar, bæði á einstaklinga í formi
útsvara, gatnagerðargjalda og fast-
eignagjalda. Þá kreppti hækkað að-
stöðugjald að atvinnurekstri.
Sagði Davíð, að hækkanir væru
réttlættar með hækkununum í ná-
grannabæjarfélögum. Hins vegar
væri ekki notuð sama viðmiðun, ef
einhver gjöld lækkuðu annars staðar.
Hann kvað sjálfstæðismenn myndu
fella i burtu óbilgjarnar hækkanir í
álögum á borgarana. Alls konar auk-
in skattheimta vinstri meirihlutans
hefði ekki skilað sér í bættri þjón-
ustu.
Davíð brá upp litskyggnum af
mörgum skóladagheimilum, barna-
heimilum, dagvistunarstofnunum og
leikskólum, sem hann kvað núver-
andi meirihluta þakka sér og hælast
yfir. Þá nefndi hann félagsmiðstöð í
Árbæ og sundlaugina í Breiðholti.
Allt væru þetta framhaldsfram-
kvæmdir eða lokaáfangar á því sem
ákvarðanir hefðu verið teknar um af
meirihlutastjórn sjálfstæðismanna í
borgarstjórn.
„Ég geri þann fyrirvara á skoðana-
könnun Dagblaðsins, að úrtakið var
ekki nægilega stórt,” sagði Markús
Örn Antonsson borgarfulltrúi.
„Samt teljum við, að þetta séu upp-
örvandi fréttir,” sagði Markús örn.
Hann taldi skattheimtu núverandi
meirihluta glórulausa.
Hann sagði fulltrúa vinstri flokk-
anna orðna hrædda og ,.glundroðinn
mun grassera í þessum meirihluta það
sem eftir er kjörtímabilsins eins og
hingáð til,” sagði Markús örn.
„Erfiðleikarnir, sem við höfum átt
við að glíma í flokknum, ná ekki til
borgarstjórnarflokksins,” sagði
Markús Örn. Hann bætti við: „Þar
ríkir einhugur, forystan hefur endur-
nýjað sig eins og jafnan áður. Við
sjálfstæðismenn munum ganga fram
í einhuga breiðfylkingu í næstu
borgarst jórnarkosningum. ’ ’
Innan við hundrað manns sóttu
þennan fund, sem var fyrir félög
sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi,
Langholti, Smáibúða-, Bústaða- og
Fossvogshverfi.
Fyrirspurnir og umræður urðu á
eftir framsöguerindum.Fundarstjóri
var Garðar Ingvarsson hagfræð-
ingur.
- BS
Framkvæmdastjóri Dagblaðsins:
Hagfræði sem erfitt
er að setja sig inn í
— kostnaður við skattabæklinginn hefði greitt átta auglýsingasíður
íöllum dagblöðunum
Vegna fréttar í DB í dag 4/2 um þau
tilmæli nokkurra dagblaða að ríkið
greiddi kostnað vegna birtingar leið-
beininga til framteljenda í dagblöðum,
er rétt aðeftirfarandi komi fram:
Það er skoðun framkvæmdastjóra
DB að eðlilegt sé að fyrir þessa þjón-
ustu sé greitt eftir gildandi auglýsinga-
taxta, eins og gert er við allar aðrar al-
mennar tilkynningar ríkisvaldsins til
borgaranna. í því tilfelli, sem hér um
ræðir, var ríkisskattstjóra tjáð þessi
skoðun, en jafnframt tekið fram, að
blaðið mundi ekki nota neitun á birt-
ingu leiðbeininganna sem þrýsting á
ríkissjóð um greiðslu. Á hinn bóginn
fullvissaði ríkisskattstjóri blaðið um,
að þessi afstaða yrði ekki notuð til að
hlunnfara DB, ef sá háttur yrði hafður,
á, að greiðslur væru inntar af hendi til
annarra.
Nú hefur það komið fram, að for-
ráðamenn ríkissjóðs hafa fremur valið
þá leið að láta prenta bækling og dreifa
með framtölum en að greiða blöðun-
—um-fyrir—birtingu umræddra leiðbein-
inga. Kostnaður við þessa prentun og
dreifingu er vægilega áætlaður 150 til
170 þúsund nýkrónur. Sú upphæð
hefði nægt til að koma þessum boð-
skap hins opinbera til skila í 6 dag-
blöðum, 8 síðum i hverju blaði og
greiða fyrir það eðlilegt birtingarverö
auglýsinga. Geta menn svo dæmt um,
hvor leiðin þeim finnst eðlilegri, ekki
hvað sizt með það í huga, að ríkis-
sjóður hefur, af pólitískum ástæðum,
tekið að sér að greiða sömu blöðum, að
undanskildum Morgunblaðinu og Dag-
blaðinu, fyrir hundruð eintaka sem
ekki eru látin af hendi.
Þetta er hagfræði sem erfitt er að
setja sig inn í.
Sveinn R. Eyjólfsson
frkvstj. DB.
röð umsækjenda.
Svavar Gestsson sagði í útvarpsvið-
tali á þriðjudagskvöldið og í Morgun-
blaðsviðtali á þriðjudaginn að „menn á
Dalvik og þar á meðal fjölmargir for-
ystumenn á staðnum fóru þess sérstak-
lega á leit við mig að Óli yrði ráðinn og
stóðu þeir m.a. að undirskriftasöfnun”
(tilv. i Mbl.).
Freyja telur að fram hjá sér hafi verið
gengið fyrst og fremst vegna þess að
hún er kona. Hún lagði málið fyrir
Jafnréttisráð. Ráðherrann mótmælir
því að hafa mismunað eftir kynjum, en
að reynsla Óla Þ. hafi vegið þyngra. Þá
fullyrðingu rökstuddi hann ekki frekar
í útvarpi eða Morgunblaði.
Dagblaðið leitaði upplýsinga um
málið í gær. Kom í Ijós m.a. að
Matthias Bjarnason þáverandi heil-
brigðisráðherra veitti fyrir fáeinum
árum manni lyfsöluleyfi I Ingólfs-
apóteki í Reykjavík þrátt fyrir að land-
læknir og lyfjafræðinefnd hefðu
mælt með öðrum umsækjanda. Að
minnsta kosti það fordæmi er til. Hins
vegar voru margir viðmælendur DB
sem til mála þekkja á því að ráðherrar
ættu skilyrðislaust að fara eftir áliti
umsagnaraðila, ekki sizt þegar land-
læknir og lyfjafræðinefnd væru sam-
mála.
Þá kom í ljós við eftirgrennslan Dag-
blaðsins að undirskriftalistarnir til
stuðnings Óla Þ. Ragnarssyni lágu ekki
opinberlega frammi á Dalvík til undir-
ritunar. Ættingjar umsækjandans og
konu hans frá Akureyri áttu frum-
kvæði að undirskríftunum og fengu
20— 30 manns til að skrifa á þá, þar á
meðal tvo bæjarstjórnarmenn. Bæjar-
stjórinn og 5 aðrir bæjarstjórnarmenn
lýstu yfir þvi í gær að undirskri ftalist-
arnir væru þeim óviðkomandi, en tóku
fram að þeir væru með því á engan hált
að leggja dóm á umsækjendur.
Dalvíkurapótek þjónar um 3400
manns á Dalvík, Ólafsfirði, Hrísey,
Svarfaðardal og Árskógsströnd.
- ARH