Dagblaðið - 26.02.1981, Qupperneq 1
7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 26. FEBRUAR 1981 - 48. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI27022.
Sto/fð iírbréfasafni Tryggva Gunnarssonar íSeðlabankanum:
DYRMÆT FRIMERKIOG UM-
SLÖG SELD TIL ÚTLANDA
Rannsóknarlögregla ríkisins rann-
sakar nú hvarf nokkurra verðmæta,
einkum gamalla frímerkja og um-
slaga með frímerkjum, úr skjala-
geymslu Seðlabanka íslands. Hefur
starfsmaður bankans, maður á fer-
tugsaldri, verið úrskurðaður í gæzlu-
varðhald í Sakadómi Reykjavíkur til
4. marz næstkomandi að beiðni
Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna
málsins.
Rökstuddur grunur leikur á því að
verðmætum frímerkjum hafi verið
stolið úr skjalageymslu bankans og
þau verið seld, meðal annars til út-
landa og þá að minnsta kosti í ein-
hverjum tilvikum fyrir milligöngu fri-
merkjakaupmanna. Beinist grunur
. um aðild að þessum verknaði að
starfsmanni þeim sem nú situr í
gæzluvarðhaldi. Hafði hann, vegna
starfs síns í bankanum, aðgang að
hinum verðmætu skjölum.
Með samanburði við skjalaskrár er
nú kannað hvað horftð hefur úr
skjalageymslunni og þá að sjálfsögðu
með yfirheyrslum líka og öðrum til-
tækum ráðum.
Með sérstöku samkomulagi var
bréfasafni Tryggva Gunnarssonar,
Gránufélagsforstjóra, alþingismanns
og bankastjóra íslands, „deponer-
að” til varðveizlu í skjalasafni Seðla-
bankans, eins og það er kallað á safn-
mannamáli, en það er í eigu Þjóð-
minjasafnsins. Tryggvi hafði mikil
umsvif lengst ævi sinnar. Hann var
m >
Umslagið sem tókst að haimta aftur frá Sviss
er úr brófasafni Tryggva Gunnarss.
Tryggvi geymdi bréf þau sem hann
fékk oftast í umslögum með frí-
merkjunum á. Var bréfasafn Tryggva
skráð á fullkominn og nákvæman
hátt í Þjóðminjasafninu. Eitthvað
hefur horfið úr þessu bréfasafni en
auðvelt er vegna skráningarinnar að
skoða það.
Vitað er um eitt umslag sem komið
var á markað í Sviss. Tókst að ná því
heim þegar uppvíst varð um misferl-
ið. Þótt erfitt sé að meta það ná-
kvæmlega til verðs, er ætlun fróðra
manna að verð þessa umslags sé alls
ekki undir tveim milljónum g.króna
og jafnvel fjórum sinnum sú fjárhæð
eftir atvikum.
Sem fyrr segir er málið í rannsókn.
Er hún mikið verk og er þvi hraðað
eftir föngum.
-BS.
meðal annars kaupstjóri Gránufé-
lagsins með búsetu í Kaupmannahöfn
frá 1873 en varð bankastjóri Lands-
banka íslands 1893.
INNIER AÐALL LISTAMANNS”
„Auðmýkt gagnvart listinni hefurþú í ríkum mœli, ” varsagt við einn listamanninn,
sem hlaut Menningarverðlaun Dagblaðsins, I afhendingarhófinu í gœr. Það sama má
vafalaust segja um alla listamennina, sem hlutu verðlaunin I ár — / þriðja sinn sem
þeim er úthlutað.
Á myndinni eru I fremri röð frá vinstri: Þorsteinn frá Hamri (bókmenntir), Sigur-
björg Sigurðardóttir (f.h. föður slns, Sig. Sverris Pálssonar, kvikmyndir) og Sigurjón
Ólafsson (myndlist). t efri röðfrá vinstri: Oddur Björnsson (leiklist), Gunnar Guðna-
son og Hákon Hertervig (byggingarlist) og Jón Ásgeirsson (tónlist).
DB-mynd: Einar Ólason.
—sjánánarábls. 14-15
Menningar-
verðlaun
DBveittígær:
Forseti í
gæru,
drottning
í pels
Frá Eiriki Jónssyni fréttamanni
DB í Kaupmannahöfn:
Danir eru rækilega minntir á
Island og íslenzk málefni i dag ekki
síður en í gær og undanfarna daga.
Morgunblöðin lýsa heimsókn Vigdís-
ar Finnbogadóttur í smáatriðum,
jafnt klæðnaði fyrirmanna sem mat-
seðli í veizlu drottningar. Politiken
segir í fyrirsögn: Forseti í gæru,
drottning i pels og BT segir að Vigdís
hafi borið með sér hlýju, jafn af-
slöppuð og innileg sem hún sé. Þá
birtir Politiken i dag langt viðtal við
Selmu Jónsdóttur, forstöðumann
Listasafns íslands, um listsköpun
íslendinga. Og áhorfendur sjónvarps
í kvöld fá sinn skammt. Sjónvarpað
er beint frá sýningu á ballettinum
Sylfiden í Konunglega leikhúsinu,
þar sem forseti íslands verður
viðstaddur. Þá er á dagskránni
vikingaþáttur eftir Magnús Magnús-
son og síðast en ekki sizt klukku-
stundarþáttur um Snorra Hjartarson
og skáldskap hans. Snorri hiýtur
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs í ár, sem kunnugt er.
Vigdís Finnbogadóttir var í gær
sæmd Filaorðunni, æðsta heiðurs-
merki sem drottning Dana veitir.
Fílaorðuna bera einungis þjóð-
höfðingjar, en einnig hefur hún verið
veitt visindamanninum Niels Bohr
og stofnanda Austur-Asíufélagsins,
A.C. Hansen. Drottning færði Vig-
disi gjafir í gær, og Ástriður dóttir
hennar fékk Ragnars sögu
Loðbrókar, sem drottningin sjálf
myndskreytti.
Veizlan sem haldin var i Riddara-
salnum f Kristjánsborgarhöll þótti
með ólikindum fín. Á matseðlinum
voru hænsnasúpa, kolaflök, nauta-
fillet og hnetuis. Og að sjálfsögðu
valin vín með, m.a. franskt vin frá
árinu 1966 (brúðkaupsári Margrétar
og Henriks!).
-ARH.