Dagblaðið - 26.02.1981, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
Knsuvíkurskóli
— mætti ekki hafa
einhver not af
honum?
Guðmundur skrifar:
Það var alveg stórgaman að sjá
það í DB sl. þriðjudag að loksins
skuli vera hægt að hafa einhver not
af Krísuvíkurskólanum margfræga.
Krísuvíkurskóli er og verður tal-
andi dæmi um hrapalleg mistök kerf-
isins. En væri ekki hægt að finna ein-
hver hagnýtari not fyrir þessa bygg-
ingu en að gera hana að svinastíu?
Lesið yfirsvínum í Krísuvíkurskóla.
DB-mynd Einar Ólason.
Mikið liggur á nýjum barnalögum Bréfritari gerir athugasemd við þau í núverandi m.vnd þeirra.
Francois Fons yfirmatsveinn á Hótel Sögu matreiðir fyrir Vigdisi i Danmörku.
íslenzkur
matsveinn
—fari með Vigdfsi til Danmerkur
Ella hringdi:
Ég er afskaplega hrifin af forseta
okkar Vigdísi Finnbogadóttur, en nú
finnst mér bregða skugga á í sam-
bandi við Danmerkurferð hennar.
Mér finnst ekki ná nokkurri átt að
hún skuli ætla að hafa með sér
franskan kokk til að matreiða ís-
lenzkan mat. Auðvitað á hún að hafa
með sér íslenzkan matsvein. Það ætti
að vera úr nógu mörgum að velja. Ég
er afskaplega skúffuð yfir þessari
ráðstöfun.
Alþingi:
BARNALOC
— hásetinn greiðir barnsmeðlag með
vélstjóranum
Barnakarl hringdi:
Ég er hérna með tvær litlar sögur
sem mig langar til að segja þing-
mö.tnum vegna fyrirliggjandi barna-
lagafrumvarps, ef það nær fram að
ganga að greiða skuli meðlag með
,,börnum” til 20áraaldurs.
Fyrri saga: Háseti og vélstjóri róa
á sama bát frá Grindavík, hásetinn
greiðir barnsmeðlag með vél-
stjóranum.
:t
■nda þœinnam Unu. ^ g& f(eda) „g
mmMlla^inda lyr!r^n,ir á ad hréf eige <">
lengri en 200 DB er milH kl.
Þaðerveríðaðbyggja
hjúkrunarheimili f Kópavogi!
Seinni sagan: Dráttarbílstjóri hjá
Vegagerð ríkisins flytur jarðýtu
norður í land, ýtustjórinn greiðir
barnsmeðlag með dráttar-
bílstjóranum.
Hvernig verður það þegar stiklað
verður á stóru í sögu alþingis: Krafla,
Víðishús, Þórshafnartogari og barna-
lög?
Gísli Sigurbjörnsson skrifar:
í blöðum — einnig í útvarpi, er
mikið skrifað og sagt um það
neyðarástand sem rikir — og hefur
árum saman verið — í málefnum
sjúkra, hrumra, oft einstæðinga, sem
eru komnir á efri ár. Stóri hópurinn,
þessir sem alltaf er gleymt, geðtrufl-
að, senilt, aldrað fólk, er alveg látið
eiga sig.
Nú á allt að gera, helzt klára allt á
morgun, en það tekur ár og dag fyrir
framkvæmdamenn fólksins að koma
þessu i lag, nokkur ár ef að vanda
lætur.
Þess vegna væri rétt fyrir þá og
þær sem vilja leggja þessu málefni
lið, peninga, að hjálpa þeim í Kópa-
vogi til þess að koma hjúkrunarheim-
ilinu sem þau eru að reisa sem allra
fyrst í gagnið. Þau geta að sjálfsögðu
gert þetta allt með eigin samtaka-
mætti, en ef við í nálægum bæjarfé-
lögum hjálpum til þá myndi hjúkr-
unarheimilið komast upp fyrr og
verða mörgum til hjálpar.
Kona var rétt i þessu að hringja til
mín. Hún hefur nokkurt fé sem hún
vill láta til hjálpar og spurði mig
ráða. B-álmuna ætlar borgin að reisa
en í Kópavogi er verið að byggja, þar
á er reginmunur. Þess vegna skulum
við sameinast um að leggja fram fé til
þessara framkvæmda. Það skiptir
ekki máli hvort gamla konan eða
gamli maðurinn er úr vesturbænum,
af Seltjarnarnesi eða úr Kópavogi.
Það eitt skiptir máli að hjálpin komi
sem fyrst.
Raddir
lesenda
Bréfritari minnir á hjúkrunarheimilið sem verið er að byggja i Kópavogi. M.vndin
sýnir aldrað fólk i góðum félagsskap.
GÍSLI SVAN
EINARSSON