Dagblaðið - 26.02.1981, Qupperneq 3
3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
Nokkrar staðreyndir um:
Störf og stjómarkjör
—á 6. þingi Alþýðusambands Suðurlands
Spurning
dagsins
Finnst þór gaman
í vinnunni?
Ómar Halldórsson, fulltrúi sveinafé-
lags málmiðnaðarmanna Rangár-
vallasýslu.
Dagana 21. og 22. febrúar sl. var
haldið 6. þing Alþýðusambands Suð-
urlands (ASS). Fyrri dagurinn fór að
miklu leyti i allt að 9 ára gamlar pólit-
ískar þrætur. Þó svo að meirihluti
þingheims væri sammála um að
leggja niður þessar þrætur.
Á sunnudag var gengið til kosninga
með tilheyrandi hrossakaupum.
Kjörnefnd kom sér ekki saman um
hverja skyldi tilnefna til forseta og
trúi ég því að minnihluti hafi þurft að
fá sárabætur þegar kom að tilnefn-
ingu til stjórnar og varastjórnar.
Vítaverð vinnubrögð
Á laugardag þegar skipað var I
nefndir álpaðist einhver til að stinga
upp á bréfritara í kjörnefnd, en þá ef-
aðist einhver um minn pólitíska litar-
hátt og þar með var það úr sögunni.
Ég tók tvo kjörnefndarmenn tali,
þá er ég taldi mig gleggst þekkja, sinn
í hvoru lagi að þingstörfum loknum á
laugardag og tjáði þeim að ég gæfi
kost á mér í stjórn í versta falli í vara-
stjórn. Ekki virtist skorta hlýhug í
minn garð, en minna varð um efnd-
irnar.
Ég verð að viðurkenna að ég hef
aldrei verið kenndur við stjórnmála-
flokkana, en reynt að láta sannfær-
inguna hjálpa mér við ákvarðana-
töku, en slíkt er greinilega ekki í tizku
innan alþýðusamtaka þessa lands.
Svo heyrist hjá sömu aðilum að
verkalýðshreyfingin ætti að koma
sameinuð fram til að skelfa stjórn-
völd, þvilík hræsni segi ég.
Þessi börn una sér vel á barnaheimil-
inu.
Fóstrur:
Einn kröf u-
gerðar
hópurinn
enn
Móðir skrifar:
Nú er risinn upp einn kröfugerða-
hópurinn enn. Nú eru það fóstrur,
sem heimta hærra kaup. Hvar ætla
þessar kaupkröfur að taka enda?
Varla við það að gengið verði að
kröfum fóstra, enda kom það skýrt
fram í sjónvarpsviðtali við eina
fóstruna um daginn.
Svo taka fjölmiðlamir viðtöl við
foreldra, sem eiga börn á þessum
barnaheimilum eða leikskólum eða
hvað þetta heitir nú allt saman og
auðvitað þorir engin annað en að
taka undir kröfurnar með
fóstrunum.
Ég skil ekki i að það þurft há-
menntaðar manneskjur á þessar
stofnanir. Ég veit ekki betur en að
bamauppeldi haft gengið ágætlega
hjá misjafnlega litið menntuðum
mæðrum þessa lands.
Hér eru málmiðnaðarmenn að steypa I mót.
Nú væri hægt að segja því málar
maðurinn sig ekki í réttum lit, en
málið er bara ekki svona einfalt,
vegna þess að kakan er ekki lengur til
skiptanna innan ASS.
Við iðnaðarmenn eigum engan
mann í stjórn eða varastjórn ASS.
Þetta þykir mér hróplegt ranglæti
þegar sum verkalýðsfélög eiga tvo
menn í stjórn og/eða varastjórn.
Þetta eitt sýnir glögglega virðingar-
leysi verkalýðsfélaganna á Suður-
landi í garð iðnsveinafélaganna, hér
virðist pólitískur litarháttur ekki
duga til.
Þeir sem sömdu dagskrá þingsins,
höfðu vit á því að hafa kosningarnar
síðast á dagskrá, trúlega til að koma i
veg fyrir óánægjuraddir.
Þessu er hérmeð komið á fram-
færi.
Raðhúsgögn
á hagstæðu verði,
sem gefa marga möguleika
- í stofuna, í sjónvarpsherbergið —
Útsölustaðir:
Bláskógar, Ármúla 8, Reykjavík.— Ingvar og Gylfi, Grensásvegi 3, Reykjavík.
Húsgagnaval, Smiðjuvegi 30, Kópavogi.— Stofan, Akranesi. — Ljónið, ísafirði.
Vörubær, Akureyri. — Tréborg, Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði.
Bústoð, Keflavík.— Úlfar Guðjónsson hf., Reykjavíkurvegi 78, Hafnarfirði
Framleiðandi:
Form-Bólstrun sf., Auðbrekku 39, Kópavogi
Einar Geir Þorstelnsson framkvaemda-
stjóri: Já, ég kann vel við mig~í
vinnunni. Starfið er skemmtilegt.
Guðmundur Bjarnason sölumaður: Já,
það er virkilega gaman I vinnunni.
Guðni Guðmundsson sölumaður: Já,
ég kann vel við mig I vinnunni.
Guðrún Pálsdóttlr nemi i HÍ: Já, já,
þaðerágætt.
Guðbjörg Bárðardóttlr afgreiðslumær:
llá, já, þetta er ágætt.
Þóra Þórisdóttlr afgreiðslum
sérstaklega.