Dagblaðið - 26.02.1981, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
DB á ne ytendamarkaöi
Krafa um að:
Umbúðir séu merktar
greinilega og á íslenzku
Umbúðir utan um vörur eru oft á
tiðum hannig merktar að fyrir
almenning er erfitt að gera sér grein
fyrir innihaldinu. Stundum eru
leiðbeiningar um notkun, innihalds-
upptalning og pökkunardagur alls
ekki merkt og í öðrum tilfellum og
þeim iiklega fleiri eru upplýsingarnar
á erlendum tungum. Þó margir geti
lesið sér að gagni ensku og eitthvert
Norðurlandamál og til sé fólk hér á
landi sem les bæði tungur manna og
engla eru hinir Iíklega fleiri sem eru
ómælandi og ólæsir á annað en
íslenzku. Því er það bagalegt að ekki
skuli vera í gildi regla sem kveður á
um skyldu til þess að hafa upplýsing-
ar á vöru á íslenzku. Ellegar að
innflytjendur finni hjá sér hvöt til
þess að sjásvo um.
Sem betur fer eru þeir þó nokkrir
sem breytt hafa til betri vegar. Nefna
má sem dæmi að Moon Silk sjampó
er með íslenzkum leiðbeiningum utan
á og Serla salernis- og eldhúsrúllur
eru vandlega merktar með
upplýsingum um magn, bæði í þyngd
og fjölda „eyðublaða”.
Vörumerking er ekki bara sjálf-
sögð og eðlileg, hún getur verið lífs-
nauðsynleg. Fólk hefur ofnæmi fyrir
ólíklegustu hlutum og viti það ekki
hvað í vörum er geta þær jafnvel
riðið því að fullu. Það er líka til
mikillar hjálpar ef t.d. börn drekka
einhvern hreinsilög að vita hvað í
honum er. Þá geta læknar tekið betri
ákvörðun um frekari viðbrögð.
íslenzkir vöruframleiðendur
standa sig alls ekki sem skyldi, þó
ætla mætti að þeir mikluðu ekki fyrir
sér prentun á umbúðum með
INNIHALDIÐ VILL
LEITAUPPÚR
„FULLKOMNUSTU”
UMBÚÐUNUM
Margir hafa kvartað yfir því við
okkur að þeim þættu umbúðirnar
sem notaðar eru í höfuðborginni
undir einn lítra mjólkur og pela af
rjóma vera mjög óhentugar. Vill
innihaldið skvampast upp úr um-
búðunum eftir að búið er að opna
þær, jafnvel tæplega háegt að geyma
mjólkina í kæliskápshurðinni vegna
þess arna.
Forráðamenn Mjólkursam-
sölunnar I Reykjavik hafa látið í Ijós
þá skoðun að þessar umbúðir séu ein-
mitt allra fullkomnustu mjólkur-
umbúðirnar sem hægt er að hugsa
sér. Þær er hægt að fylla alveg
Klippið göt á bæfli hornin, en
„auka” gatifl má ekki vera nema
mjög lítifl. Sýnist sem blm. sé í þann
veginn að klippa alltof stórt gat á
rjómafernuna sina.
DB-mynd Bjarnleifur.
þannig að ekkert loft verður eftir inni
í þeim. Þykir það til bóta fyrir
innihaldið því súrefni getur haft
skemmandi áhrif á mjólkurvörurnar.
Okkur hefur verið bent á gott ráð
til þcss að koma í veg fyrir að
innihaldið skvampi upp úr
umbúöunum. Klippið tvö göt á
hverja fernu, bæði á það hornið sem
merkt er fyrir kiippingu og einnig á
hitt hornið. Götin mega hins vegar
ekki vera nema mjög lítil, sér í lagi
„auka” gatið. Með þessu móti
skvettist í það minnsta síður upp úr
umbúðunum.
-A.Bj.
Húsráö
Meóan ynf’stu börnin eru að vaxa úr
Krasi ttn ennþá kuma fyrir slys má
setja vinil-háó neóan á sófapáðana.
Þepar barnið situr í sófanum snýr
vlnilið upp, annars niður. Yftr borð-
stofustólana má i sama tilyanyi
strekkja plœra plastjilmu.
★
Blettum eftir uliumálninau má oft ná af
höntlum sér með barnaolíu.
★
Blekblettir nást afhöndum með smjitr-
líki op rökum klút.
★
Sítrónusafi yetur oft eytt lykt. Lauk-
lykt af höndum oy önnur matarlykt
hverfur oft við að hendurnar eru nudd-
aðar með sitrónusafa. Hálf sítróna i ís-
skápinn eyðir oft lykt í honum.
★
Eftir að hafa hreinsað ofninn má eyða
hinni hvimleiðu hreinsiefnalykt meó
þvi að baka í ofninum örlítið appelsinu-
hýði.
★
Sé kveikt á kertum eyðist oft slgarettu-
reykurinn í íhúðinni.
upplýsingum á móðurmálinu. Oft á
tiðum er innlend vara alls ekki merkt
og stundum eru upplýsingarnar verri
en engar. Innlent sælgæti er þannig
til dæmis ekki merkt með sykur-
innihaldi, sem skiptir þó miklu máli,
t.d. fyrir sykursjúka.
Þó að í gildi séu reglur sem skylda
framleiðendur unninna matvæla til
þess að merkja þau með innihalds-
upplýsingum, er farið lystilega í kring
um þær. Mjólkurvörur hvers konar
eru dæmi um það hvernig ætti að
fara eftir reglunum. En aftur á móti
sælgætið (sem hlýtur að teljast til
matvöru þó einhverjir telji það skil-
greiningaratriði), dæmi um hið gagn-
stæða.
Flvers kyns hreinsiefni hlýtur að
þurfa að merkja vel því röng notkun
getur haft illar afleiðingar.
Það ætti að vera bæði innflytjend-
um og innlendum framleiðendum
kappsmál að merkja vöru sína vel og
á íslenzku. Það er að vísu erfiðara
með erlendu vöruna en þó hefur
komið í Ijós, m.a. á þeim tveim
dæmum, sem fyrst eru nefnd, að
þetta erhægt.
-DS.
D
Moon Silk sjampóifl er eini hreinsi-
lögurinn sem við höfum rekizt á méð
íslenzkum upplýsingum utan á. Fleiri
mættu fara að dæmi Halldórs Jóns-
sonar innflytjanda.
DB-mynd Kinar Ólason.
Borgames og Akranes:
800 króna munur á lyftiduftsdós
Verðkönnun framkvæmd af Borgarfjarðardcild Ne.vtendasamtakanna. Verðlagsstofnun annaðist gagnavinnslu.
Könnunin var framkvæmd á Akranesi 24.11 sl.
Neskjör Borgarnesi. Kjörbúð KB Borgarnesi Vörumarkaður KB Borgarnesi. Einarsbúð Akranesi. Bkagaver Akranesi.
Sykur 2 kg. 1925,- 2134,- 1870,- 1940,- 1945,-
Fl&rsykur 1/2 kg. 675,- 727,- — 585,- —
Sirkku mola6ykur 1 kg. — 1265,- — 1242,- 1155,-
Pillsburys hveiti 5 lbs. 1170,- — 1160,- 1160,-
Robin Hood hveiti 5 lb6. — 1116,- 1137,- — —
Pama hrísmjöl 350 gr. 560,- 557,- 439,- 381,- 550,-
River rice hrfsgrj&n 454 gr. 435,- 484,- 431,- 430,- 430,-
Solgryn haframjöl 950 gr. 935,- 956,- 811,- 922,- 915,-
Kellogs corn flakes 375 gr. — 1658,- — 1694,- 1595,-
r slenskt matarsalt Katla 1 kg. 318,- 495,- 412,- 454,- —
Reykjane6salt ffnt 1 kg. — 341,- — —
Royal lyftiduít 450 gr. 762,- 1072,- 924,- 930,- 930,-
Golden Lye’s sýr&p 500 gr. 2400,- 2298,- — 1660,- 2505,-
Royal vanillubuCingur 90 gr. 210,- 297,- 220,- 260,- 255,-
Maggi 6veppasupa 65 gr. 310,- 293,- — 307,- 315,-
Vilko 6veskjugrautur 185 gr. 487,- 675,- 552,- • 670,- —
Melroses te 40 gr. 490,- 488,- 494 ,- 460,-
Fr&n mj&lkurkex 400 gr. 720,- 705,- 608,- 639,- 540 ,-
Ritz saltkex rauður 200 gr. — — — — —
Korni flatbröd 300 gr. 570,- 577,- 523,- 565,- 530,-
Fr&n kremkex 664 ,- 730,- 629,- 666,- 670 ,-
Ora grænar baunir 1/1 d&s 800,- 890,- — 859,- 870,-
Ora rauökál 1/2 d&s 940,- 831,- 719,- 934,- 935,-
Ora bakaOar baunir 1/2 d&s 805,- 810,- — — 890,-
Ora fiskbuÖingur 1/1 d&s 1350,- 1252,- 1209,- 1314,- 1350,-
Ora lifrarkæía 1/8 d&s — 552,- 402,- — 580,-
Ora mafskorn 1/2 d&s 940,- 942,- 813,- 876 ,- 930,-
T&matsosa Valur 430 gr. 693,- 690,- 530,- 695,- 690 ,-
T&mats&sa Libbys 340 gr. 594 ,- 685,- — 660,- 660,-
Kjuklingar 1 kg. 4510,- 3700,- — 3710,- 3750,-
Nautahakk 1 kg. 4457,- 4457,- — 4985,- 3404,-
Kindahakk 1 kg. 3863,- 3863,- — 4185,- 3863,-
Gunnars majones 250 ml. 560,- 566,- — 564 ,- —
Eee 1 kg. 2700,- 2750,- — 2760,- 2750,-
Sardfnur f olfu K. J&nsson 106 gr- — — 512,- 520,-
Regin WC pappfr 1 rulla 245,- 236 ,- 208,- — —
Melitta kaffÍ6Íur No. 102 40 pokar 470,- 426,- 349,- 404,- 470,-
C-ll þvottaeíni 3 kg. — 3728,- 3298,- 3575,- —
Þvol uppþvottalögur 2,2 ltr. 1646,- 1847,- 1634,- 1734,- 1661,-
Hreinol grænn 0,5 ltr. 605,- 514,- — 554,- 474 ,-
Lux handsápa 90 gr. . 365,- — 298,- 344,- 330,-
Dún mýkingarefni 1 ltr. 1115,- 1057,- 935,- 947 ,- 1003,-
Colgate tannkrem íluor 90 gr. 700,- 680,- 573,- 680,- 680,-
Eplaejamp& Sjöfn 295 ml. — 1044,- 923,- 1034,- —
Nivea krem 60 ml. 617,- 615,- — 619,- 715,-