Dagblaðið - 26.02.1981, Page 5
DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981___________________ 5
Tveir þingmenn Reykvíkinga leggja framfyrírspum á þingi:
FIMM BEITTAR SPURNMGAR
UM SKREFAMÆUNCATÆKIN
Enn er ef azt um hver ákvað tækjakaupin og á grundvelli hvaða heimilda
„Hver tók ákvörðun um að setja
upp tækjabúnað til að mæla lengd
símtala og innheimta afnotagjöld í
samræmi við það?” er inntak fyrir-
spurnar sem Birgir ísl. Gunnarsson
og Friðrik Sophusson hafa lagt fram
á þingi og æskja svara samgönguráð-
herra við.
Spurningarnar sem þeir tvímenn-
ingarnir vilja að Steingrímur Her-
mannsson ráðherra póst- og síma-
mála svari eru fimm talsins:
1. Hver tók ákvörðun um þennan
tækjabúnað og á grundvelli hvaða
heimilda?
2. Er fyrirhugað að búnaður til
mælinga á lengd slmtala verði
settur upp víðar á landinu og þá
hvar og hvenær?
3. Hvaða meginsjónarmið koma til
með að ráða í þeirri endurskoðun
gjaldskrár sem þessi búnaður
hefur í för með sér?
4. í svari samgönguráðherra við
fyrirspurn á síðasta þingi um
lengd skrefa segir: „Hæstvirtur
samgönguráðherra mun að sjálf-
sögðu velja réttláta lengd innan-
bæjarskrefa og skrefagjald”.
Hver verður „hin réttláta lengd
innanbæjarskrefa” og hvert
verður skrefagjaldið?
5. Hyggst ráðherra láta stýra gjald-
töku þannig, að ekki verði þung-
bært fyrir fólk, sem notar síma
mikið af félagslegum ástæðum,
t.d. elli- og örorkulifeyrisþega?
Mikill fjöldi fólks hefur látið í ljós
andúð á fyrirhuguðu skrefagjaldi og
má síðast minnast heimsóknar
margra tuga fulltrúa af þingi Banda-
lag kvenna sem leituðu ásjár þing-
manna Reykjavíkur í málinu, einkum
til varnar elli- og örorkulífeyrisþeg-
um. Aðrir hafa bent á að skrefamæl-
ingatækin séu óheyrilega dýr og taki
mörg ár að vinna þann kostnað upp.
Auk þess er því haldið fram, að farið
hafi verið að einhverju leyti framhjá
Alþingi varðandi heimildir til kaupa
á tækjabúnaðinum.
- A.St.
Skátar kynntu fréttamönnum hugmyndir slnar um fyrirkomulag landsmótsins. Stand-
andi við borðsendann er Gunnar Jónsson mótsstjóri.
DB-mynd: Guðbrandur Magnússon.
Akureyrarskátar
boða til landsmóts
—íslenzkra skáta í Kjamaskógi ísumar
Næsta sumar verður haldið 18.
landsmót íslenzkra skáta og hefur
mótsstaður verið ákveðinn Kjarna-
skógur við Akureyri. Talsmenn skáta
segja að áætlað sé að um eitt þúsund
skátar sæki mótið, meðal annars
erlendis frá.
Kjarnaskógur er útivistarsvæði
Akureyringa, þrjá kilómetra sunnan
við bæinn. Þar verður byggður sér-
stakur skátabær með torgum og
götum, en tjöld verða að sjálfsögðu í
stað húsa. Eins og vera ber í alvöru-
bæ verður þarna banki, pósthús, sím-
stöð, verzlun, dagblað og samkomu-
staðir. ÖIl dagskrá mótsins verður
gerð af skátunum sjálfum, engir að-
keyptir skemmtikraftar koma þar við
sögu. En dagskráin mun þannig
skipulögð, að margt fer fram sam-
tímis. Verða margir átta manna
flokkar sem hver um sig fær einhver
verkefni við að glíma. Þá verða fjöl-
skyldubúðir á staðnum fyrir aðstand-
endur skátanna.
Kjarnaskógur er viðkvæmt svæði
og því verður lögð þung áherzla á að
ganga vel um svæðið og sagði Gunn-
ar Jónsson mótsstjóri að strax að af-
loku mótinu ætti ekki að sjást að
þar hefði verið haldið fjölmennt mót.
Daglega verða skátafélögum þeim
sem ganga bezt um svæðið veitt verð-
laun til að efla góða umgengni.
Mótsgjald verður 725 krónur og er
þá innifalinn allur matur, sem skát-
arnir munu síðan sjálfir matreiða.
Mótsstjórnin taldi sig hafa fyrir því
nokkra vissu að veður yrði gott, eftir
að hafa haft samband við veðurguð-
ina.
- GM, Akureyri.
Höfn íHomafirði:
TORKENNILEGUR
HÁVAÐIVIÐ
SILFURBRAUTINA
— veghefill sást, en hann var mönnum í barnsminni
ungarnir hafa sett upp skilti við Silfur-
brautina, þar sem gatan er merkt sem
jeppavegur. Silfurbrautin er malargata,
en við hana standa blokkir, Viðlaga-
sjóðshús og elli- og hjúkrunarheimilið
á Höfn. Þá er ekið eftir götunni út á
nýrri götur þorpsins.
bað er þvi íbúum Silfurbrautar gleði-
efni að tilkynna að gatan er fær öllúm
bílum eins og er.
- Júlía, Höfn.
Fólk við Silfurbraut á Höfn í Horna-
firði, sem er ein fjölmennasta gatan í
plássinu, heyrði óvenjulegan hávaða í
gærmorgun. Menn flýttu sér út í glugga
til að sjá hverju þetta sætti. Kom
þá í ljós að þarna var veghefíll að störf-
um. Slikt verkfæri var elztu mönnum
hefur gatan verið nánast ófær í lengri
tíma.
Holurnar eru svo tröllauknar að gár-
Kosið ífulltrúaráð Alþýðuflokksins íReykjavík:
Atkvæðatölumar
leyndarmál krata
Alþýðuflokksfólk í Reykjavík kaus
um helgina 61 aðalmann og 14 til
vara í fulltrúaráð flokksins í borg-
inni. Litlar breytingar urðu á skipan
fulltrúaráðsins og því „tæpast efni á
að nokkur fái sjokk af því að sjá úr-
slitin,” eins og einn forystumaður
flokksins orðaði það. Dagblaðið fór
fram á að fá atkvæðatölur einstakra
manna í fulltrúaráðinu, en árangurs-
laust. Sagt var að fyrir fjórum árum
hafi verið ákveðið að halda tölunum
leyndum til að forða þeim frá
sárindum, sem þótti sinn hlutur rýr.
Tuttugu atkvæðaflestu menn í full-
trúaráðinu, í réttri röð:
Emilía Samúelsdóttir, Eggert G.
Þorsteinsson, Sigurður E. Guð-
mundsson, Bjarni Guðnason, Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir, Björgvin Guð-
mundsson, Baldvin Jónsson, Gyifi Þ.
Gíslason, Bragi Jósepsson-Jón Bald-
vin Hannibalsson, Þorsteinn Eggerts-
son, Björgvin Vilmundarson, Guð-
mundur Haraldsson, Bjarni P.
Magnússon, Jarþrúður Karlsdóttir,
Hörður Óskarsson, Jón Hjálmars-
son, Björn Vilmundarson, Jón
Magnússon, Gunnar Eyjólfsson.
- ARH
Verkalýðsforysfan hafði
öðrum hnöppum að hneppa
- en að mæta á f und með launafólki að ræða kjaraskerðinguna
„Það hefðu einhverntíma þótt tið-
indi til næsta bæjar að varla heyrðist
hósti eða stuna frá forystu verkalýðs-
ins þegar launafólk er svipt umsömd-
um vísitölubótum,” segja áhuga-
samir félagar innan BSRB og
Stéttabaráttuhópurinn í verkalýðs-
hreyfingunni, í báðum tilfellum fólk
sem andæfir verkalýðsforystunni og
vill ekki missa 7% af verðbótum á
launin sín möglunarlaust þann 1.
marz.
Hóparnir tveir höfðu boðað til
fundar um kjaraskerðinguna á
laugardaginn og buðu nokkrum for-
ystumönnum verkalýðshreyfingar-
innar til skrafs um málið. Niður-
staðan var þessi, samkvæmt tilkynn-
ingu fundarboðenda, sem DB barst í
gær:
„Forseti ASÍ, Ásmundur Stefáns-
son, getur ekki mætt, þ.e. hann
verður á Akureyri þessa helgi. For-
maður BSRB, Kristján Thorlacius,
tilkynnti eftir 6 daga umhugsun að
hann gæti ekki mætt, þ.e. hann þarf
að nota þessa helgi til undirbúnings
fyrir væntanlega utanferð. Varafor-
seti ASÍ, Björn Þórhallsson, er að
flytja skrifstofu sina þessa helgi og
getur ekki mætt. Guðjón Jónsson í
miðstjórn ASÍ er löglega afsakaður,
p.e. hann er með aðalfund i sínu
félagi á sama tíma. Benedikt Davíðs-
son, einnig í miðstjórn ASÍ, sagði
hreinskilnislega að hann hefði ekki
áhuga á málinu.” Þar með var sú
ákvörðun tekin að fresta fundi, en
fundarboðendur spyrja hvort „sant-
ráðsmakkið við ríkisstjÓEnina og at-
vinnurekendur sé þeim (verkalýðsfor-
ystunni) hugleiknara en fundir með
verkafólki?”
- ARH
AÐEINSI
EINA
VIKU
A STELLUM OG KERAMIK
ALLT______
HOFÐABAKKA 9
SÍMI85411
:1v,
\ OR LWTOJ