Dagblaðið - 26.02.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
9
Thatcher hót-
að við komuna
tilAmeríku
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra, kom til Bandaríkjanna í
gær og voru miklar varúðarráðstafanir
hafðar við komu hennar og öryggis-
gæzla víðtækari en venja er. Ástæðan
mun vera sú að hótun hafi borizt í sam-
bandi við heimsókn Thatchers. Tals-
maður lögreglunnar neitaði að láta
uppi hvers konar hótun hefði verið um
að ræða. Thatcher ?r fyrsti þjóðarleið-
togi stærstu bandalagsríkja Bandarikja
á Vesturlöndum sem hittir Ronald
Reagan að máli eftir að hann tók við
embætti forseta 20. janúar síðastliðinn.
„Engin rúss-
nesk vopn í
El Salvador”
Sovétríkin hafa neitað ásökunum
Bandaríkjamanna um að þáu leggi
skæruþðum vinstri manna i E1 Salva-
dor til vopn. Fullyrða þau að enginn
sovézkur hermaður eða hernaðarlegur
ráðgjafi sé í E1 Salvador. Leonid Zámy-
atin forstöðumaður upplýsingadeildar
utanríkismála innan sovézka Kommún-
istaflokksins sagði að skjöl sem emb-
ættismenn Hvíta hússins í Washington
hefðu lagt fram til sönnunar því, að
Sovétmenn sendu vopn til E1 Salvador
væru blekkingar.
Grikkir ótt-
ast annan
jarðskjálfta
Þúsundir Grikkja höfðust við undir
berum himni síðastliðna nótt af ótta
við að annar öflugur jarðskjálftakipp-
ur yrði. Nú er ljóst að 13 manns fórust í
jarðskjálftanum á þriðjudag og meira
en hundrað manns slösúðust.
Útimessa páf ans í Nagasakí fór f ram í snjókomu og gaddi:
Margir ofkældust
imessu hjá páfanum
—flytja varð yf ir f immtíu manns á sjúkrahús
Jóhannes Páll páfi annar messaði
í gær undir berum himni í Nagasakí í
Japan í snjókomu og gaddi. Svo
ntikill var kuldinn að margir þeirra
er tóku þátt í guðsþjónustunni of-
kældust og varð að flytja yfir
fimmtíu manns á sjúkrahús.
. Alls mættu um 47 þúsundir
manna til guðsþjónustunnar og
reyndu að halda á sér hita með því að
vefja um sig teppi. Guðsþjónustan
fór fram á Matsuyama íþrótta-
leikvellinum i Nagasakí og hefur
annar eins mannfjöldi aldrei tekið
þátt í rómversk-kaþólskri guðsþjón-
ustu í Japan, enda eru flestir ibúanna
þar í landi búddhatrúar og fæstir
kristnir.
Stærsti kristni söfnuðurinn í
Japan er í Nagasakí, borginni sem
lögð var í eyði ásamt Hirósíma er
Bandaríkjamenn vörpuðu kjarn-
orkusprengjum á borgirnar.
Þetta er versta veður sem orðið
hefur í fjölmörgum útiguðsþjónust-
um páfa. Hann lét sér þó ekki bregða
og flutti messuna eins og ekkert hefði
ískorizt.
Jóhannes Páll páfi annar.
Samarnir þrir er verið hafa i hungurverkfalii undanfarnar vikur hafa nú hætt þvi þrátt
fyrir að norsk stjórnvöld hafi ekki fallizt á kröfur þeirra. Stjórnvöld þykja þó hafa
slakað verulega á og samarnir telja sig hafa unnið nokkuð með hungurverkfalii sinu.
Myndin var tekin er einn samanna, Mikkel Eire, var fiuttur á sjúkrahús i Stokkhólmi
en þangað flúðu samarnir fyrir skömmu, af ótta við að næring yrði þvingúð ofan í þá í
Osló. Læknar segja að margar vikur muni liða þar til samarnir þoli að neyta venju-
legs matar á ný.
Jaime Milans del Bosch hershöfðingi átti að verða hinn nýi Franco Spánar ef
byltingartilraunin hefði heppnazt.
Margir þekktir borgarar viðriðnir byltingartilraunina:
BYLTINGARTILRAUNIN
MUN VÍÐTÆKARIEN
TAUÐ VARÍFYRSW
— Calvo Sotelo verður næsti forsætisráðherra Spánar
Rannsókn á aðdraganda bylting-
artilraunarinnar á Spáni er ekki að
fullu lokið en heimildir innan hersins
greina að byltingartilraunin hafi
verið mun víðtækari en í fyrstu var
talið.
Innanríkisráðherrann Juan Jose
Roson sagði í samtali við dagblaðið
E1 Pais, að velþekktir borgarar
kynnu að hafa verið viðriðnir
tilraunina, án þess að hann nefndi
nokkur nöfn í því sambandi.
Búizt er við að kröfur um auknar
hreinsanir innan hersins verði há-
værari á næstunni. Embættismenn
innan stjórnarflokksins hafa þó ekki
tekið undir slíkar kröfur, enda óttast
þeir að slíkt kynni að auka á spennu í
landinu sem er þó talin ærin fyrir.
Calvo Sotelo féklc hreinan
meirihluta við atkvæðagreiðslu um
hann sem forsætisráðherra í þinginu
i gær og búizt er við að hann muni
ekki draga á langinn að mynda nýja
stjórn miðjumanna og binda þar með
enda á þá óvissu sem rikt hefur í
spænskum stjórnmálum siðan
Adolfo Suarez sagði af sér embætti
forsætisráðherra 29. janúar síðast-
liðinn.
Mikii geðshræring ríkti meðal
þingmanna er þingið kom saman að
nýju í gær og föðmuðust pólitískir
andstæðingar og mikil fagnaðarlæti
urðu er þingmaðurinn þakkaði
konunginum Juan Carlos fyrir hans
hlut f að koma i veg fyrir byltinguna.