Dagblaðið - 26.02.1981, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
<§
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
—Stjórn Reagans ákveðnari í stuðningi sínum við
herforingjastjórnina en Cartersstjórnin
Er El Salvador
nýtt Víetnam
fyrir Bandaríkin?
Bandarlkjamenn ætla sér nú að sanna að Sovétmenn standi bak við uppreisn vinstri manna i landinu.
að ákveða að hin hægri sinnaða her-
foringjastjórn í E1 Salvador, sem
talin var bera ábyrgð á ýmsum þeim
hryðjuverkum, er framin voru í land-
inu, ætti engan stuðning Bandaríkja-
manna skilinn. Það varð eftir áð
hryðjuverkasveitir hægrimanna í
óhugnanlega á upphaf þess að
Bandarikin urðu þátttakendur í
stríðinu í Víetnam.
Nú þegar er Bandaríkjastjórn
byrjuð að senda „ráðgjafa” sem eiga
alveg eins og i Víetnam á sínum tíma
að hjálpa herforingjunum að „friða”
landið. Samkvæmt þvi er skæruliðar
vinstrimanna segja er hér um að ræða
mörg hundruð menn. Forseti Ei
Salvador — Duarte — heldur því
fram að það sé alls ekki um neina
bandaríska ráðgjafa að ræða í E1
Salvador. Bandaríska sendiráðið í
San Salvador hefur hinsvegar til-
kynnt að það komi þrettán þyrluflug-
menn og fimm aðrir ráðgjafar frá
Bandaríkjunum til að skipuleggja
„vörnina næsta haust” í sveitum
landsins.
„Enginn þeirra er hernaðar-
ráðgjafi og þeir hafa ekki verið á bar-
dagasvæðunum,” segir talsmaður
bandaríska sendiráðsins í San
Salvador í samtali við fréttamann AP
fréttastofunnar.
Heimsókn Eagleburgers til Bonn
og annarra höfuðborga í Vestur-
Evrópu í síðustu viku virtist meðal
annars vera gerð í þeim tilgangi að
stöðva sendingar hjálpargagna frá
þessum þjóðum til E1 Salvador.
Ráðherranefnd Efnahagsbanda-
lagsins hafði einmitt nýsamþykkt að
veita E1 Salvador slíka hjálp. Hjálpin
„10 millj. króna” átti að fara um
hendur Alþjóða Rauða krossins en
það virðist ekki hafa verið Banda-
ríkjamönnum nægileg trygging fyrir
því að hún lenti ekki i röngum
höndum.
Efnahagsbandalagið hefur fallizt
á að fresta hjálpinni þar til banda-
ríska sendinefndin kemur til Evrópu
með „sannanir fyrir sovézkri íhlutun
í E1 Salvador.” Þess er beðið með
óþreyju hverjar sannanirnar eru.
Ljóst virðist vera að hinir vinstri-
sinnuðu uppreisnarmenn i El
Salvador njóta stuðnings stórs hluta
ibúanna, Kaþólsku kirkjunnar og
fjölmargra stjórnmálamanna sem
látið hafa af stuðningi við stjórnina
vegna hryðjuverka, sem hún er talin
bera ábyrgð á. Meira að segja
borgaralegar stjórnir nágrannaland-
anna Mexico og Venezuela hafa
snúið baki við herforingjastjórninni.
Þekktasta fórnarlamb borgar-
stríðsins í Ei Salvador er kaþólski
erkibiskupinn Oscar Amulfo
Romero sem var skotinn til bana af
leyniskyttum hægri manna, þar sem
hann söng messu við altarið í dóm-
kirkjunni í E1 Salvador.
Það var um líkt leyti sem Banda-
ríkjamenn byrjuðú að fá sig full-
sadda af stjórn E1 Salvador. Banda-
ríski sendiherrann i E1 Salvador
Robert White ásakaði hægri menn í
landinu um að fjármagna það sem
hann kallaði morðsveitir. •
„Við verðum að fylgja ítrustu
hlutleysisstefnu meðan þessar tvær
milljónir manna ákveða framtíð
sína,” sgaði Carter forseti í ræðu 19.,
nóvember sl. Ræðan var hugsuð sem
heilræði til handa Ronald Reagan
sem hafði sigrað í forseta-
kosningunum hálfum mánuði áður.
En ræðan heyrir nú fortíðinni til,
heilræðið er gleymt og hin sársauka-
fulla reynsla Víetnamstríðsins virðist
einnig gleymd.
„Þið þurfið ekki að hafa minnstu
áhyggjur af því að við höfum i
hyggju að gera E1 Salvador að nýju
Víetnam með viðtækri íhlutun
bandarískra hersveita.”
Þessi ummæli eru höfð eftir
Robert McFarlane, hinum nýja
ráðgjafa Ronalds Reagan í utanrikis-
málum. McFarlane lét þetta um
munn sér fara við yfirheyrslur hjá
þingnefnd ölgungadeildarinnar í
haust. Sömu skilaboð, næstum
orðrétt og næstum á sama tíma voru
flutt vestur-þýzku stjórninni af hin-
um nýja aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Eagleburger.
Eagleburger hefur að undanförnu
verið á ferð um Vestur-Evrópu til að
tryggja siðferðilegan stuðning við þá
krossferð gegn kommúnismanum,
sem Reagan hefur ákveðið að hefja
aðeins einum mánuði eftir að hann er
seztur á forsetastól í Bandaríkjunum.
Eagleburger hefur lofað því, að á
næsta hálfa mánuðinum muni
bandaríska leyniþjónustan CIA
Napoleon Duarte, forseti El Salvador.
Talið er, að 13 þúsund manns hafi fallið i F.l Salvador á siðastliðnu ári.
leggja fram sannanir fyrir því, að það
séu í raun Sovétríkin sem standi að
baki uppreisn vinstri manna í E1
Salvador. Heil sendinefnd Banda-
ríkjastjórnar mun flytja þessi
„sönnunargögn” til Evrópu.
Full ástæða er til að ætla, að hér
sé um glæný sönnunargögn að ræða.
Þannig var nefnilega komið málum
við lok valdaferils Carters, að stjórn
hans var komin á fremsta hlunn með
landinu, sem vinna með herforingja-
stjórninni, höfðu svívirt og síðan
myrt fjórar bandarískar nunnur, sem
komnar voru til E1 Salvador til að
vinna þar hjálparstarf á sviði
mannréttindamála.
Reagan forseti lítur allt öðrum
augum á þessi mál. Það má vel vera
að herforingjarnir séu hálfgerðir
bófar, en það má ekki gleyma
„rauðu hættunni”. Allt minnir þetta
Morðin á bandarisku nunnunum fjðrum vöktu mikinn óhug i Bandaríkjunum.