Dagblaðið - 26.02.1981, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
16
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
íþróttir
Möguleikamir hæpnir
—ísland þarf að vinna Pólland til að eiga möguleika á 5. sætinu
Eftir tapið hræðilega fyrir Frökkum
i gærkvöld eru möguleikar íslendinga á
að komast í úrslit heimsmeistara-
keppninnar í V-Þýzkalandi á næsta ári
nánast úr sögunni. Vissulega eru þeir
enn fyrir hendi. Til þess að svo geti
orðið þurfa íslendingar að sigra Pól-
verja og ef mið er tekið af síðustu 11
viðureignum þjóðanna verður það
varla ofan á. Pólverjar hafa nefnilega
unnið 10 af síðustu 11 leikjum gegn
okkur — eitt jafntefli.
Staðan í riðlunum er nú þessi þegar
aðeins eitt leikkvöld er eftir.
A-RIÐILL
Pólland—Svíþjóð 24—17
Frakkland—ísland Holland—Austurríki 23—15 14—12
Pólland 4 4 0 0 105-69 8
Svíþjóð 4 3 0 1 76-74 6
ísland 4 2 0 2 80-69 4
Frakkland 4 2 0 2 81-80 4
Holland 4 10 3 67-81 2
Austurriki 4 0 0 4 51-87 0
B-RIÐILL
Danmörk— Noregur 26—17
ísrael—Búlgaría 26—25
I Tékkóslóvakia—Sviss 14—12
Tékkóslóv. 4 4 0 0 80-55 8
Sviss 4 3 0 1 69-67 6
Danmörk ' 4 2 0 2 93-80 4
Búlgaria 4 2 0 2 88-88 4
ísrael 4 1 0 3 75-96 2
Noregur 4 0 0 4 61-90 0
Danir eru svo gott sem öruggir með
a.m.k. þriðja sætið úr því Búlgarir töp-
uðu gegn ísrael. Danir mega jafnvel
tapa fyrir Sviss og halda 3. sætinu samt
því varla vinna Búlgarir Tékkana í
lokaumferðinni. Fari svo ólíklega að
ísland vinni Pólland annað kvöld
mætir liðið líkast til Sviss (eða Dönum)
í leiknum um 5. sætið svo fremi Frakk-
ar vinni ekki Asuturríkismenn með
12—15 marka mun.
Elskuleg þjónusta í þægilegu umhverfi
★ Gæti fengið hverja heiðarlega
hríðskotabyssu til að skammast
sín ★ Grettir í máli, myndum og
miðjuopnu ★ Stjörnumessa Vikunnar og
Dagblaðsins ★ 1001 nótt
vrotiv
9. tbl. 43. áre. 26. febrúar 1981 —
Verð I8 nýkr.
Danir líkja óförum sinna i
Svai
algert
Frá Magnúsi Glslasyni, fróttamanni Dag-
blaðsins á B-halmsmeistarakeppninni í
Frakklandi:
íslenzkur handknattleikur varð fyrir sinu
mesta áfalli i gegnum tíðina hér i Besacon i
gærkvöld, þegar landsliðið sem menn höfðu
vonað að næði einu af 5 efstu sætunum tap-
aði fyrir Frökkum i B-keppninni með hvorki
meira né minna en átta marka mun, 15—23,
eftir að hafa veriö undir í hléi 7—9. Ósigur-
inn þýðir því i raunin i ekkert annað en að is-
lenzka liðið muni leika um 7. eða 8. sæti í
keppninni og sitja áfram á meðal B-liðanna.
Sigur yfir Pólverjunum er svo fjarlægur, að
bezt er að hugsa ekki um þann möguleika, þó
svo Pólverjar megi við því að tapa honum
eftir sigur yfir Svíum í kvöld, 24—17. Inn-
byrðisstaða á milli liða ræður sætaniður-
röðun, verði þau jöfn að stigum. Við hjökk-
um þvi sennilega i sama farinu fram að
næstu B-keppni.
Launuðu með mörkum
Íþróttahöllin hér i Besancon var þéttsetin
í kvöld, 3000 áhorfendur, sem hvöttu sína
menn ákaft. Áður en leikurinn hófst voru að
venju leiknir þjóðsöngvar þjóðanna, en sá
sislenzki er alltaf að styttast. Aðeins lagið við
tvær siðustu ljóðlfnurnar var spilað og var
það 1 fullu samræmi við getu okkar í
leiknum. Miðað við tvo undanfarna leiki
voru ekki nema tvær línur eftir í liðinu úr
löngu lagi. Ekki er heldur hægt að segja að
Frakkar hafi launað með öðru en mörkum
oddfánanna sem íslenzku leikmennirnir
afhentu þeim fyrir leikinn.
Fórnuðu höndum
Á leið okkar frá Lyon í morgun ásamt
landsliðinu í fremur þreytandi ferðalagi, sem
tók fjórar klukkustundir, hittum við á áning-
arstað Hollendingana sem töpuðu fyrir
Frökkunum i fyrrakvöld. Þegar þeir heyrðu
að austantjaldsdómarar ættu að dæma leik-
inn við Frakkana fórnuðu þeir höndum og
töldu þá alla saman dæmigerða heimadóm-
ara, enda hefðu tveir slikir haft af þeim jafn-
teflið gegn Frökkum. Við, fréttamennirnir,
vorum því dálítið uggandi, þegar Rúmenarn-
Sigurður Sveinsson var einn örfárra leikmanna i
Hans framlag dugði þó skammt þrátt fyrir mörkii