Dagblaðið - 26.02.1981, Page 18
18
I
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
NJARÐVKIURSUT BKARSINS
D
Njarðvíkingar fengu heldur betur að
hafa fyrir sigri sinum gegn Stúdentum
er liðin mættust í „Ijónagryfjunni” í
Njarðvík i gærkvöld. Heimamenn sigr-
uðu 95—89, eftir að staðan hafði verið
56—53 i leikhléi, en sigurinn hékk á
bláþræði. Munurinn fór aldrei upp
fyrir 4 stig ef undan er skilin lokastað-
an i leiknum.
Það var fyrst og fremst stórkostlegur
leikur Mark Coleman í fyrri hálfleikn-
um sem hélt Stúdentum í nágrenni við
—unnu 95-89 sigur á Stúdentum í baráttuleik syðra í gærkvöld
íslandsmeistarana. Hann skoraði 27
stig auk þess sem hann hélt Danny
Shouse gersamlega niðri. Blokkeraði
nokkrum sinnum frá honum skot og
Shouse skoraði ekki nema rúmlega 10
stig.
Strax í byrjun síðari hálfleiksins
Coleman 4. villu sína og varð þá að
slaka verulega á gæzlunni á Shouse,
sem fór þá loks almennilega í gang. Var
gersamlega óstöðvandi og stigunum
rigndi niður. Þegar ein mínúta var til
leiksloka var munurinn aðeins tvö stig,
91—89. Þorsteinn Bjarnason brauzt þá
inn í vörn ÍS og reyndi körfuskot.
Mörgum fannst það nokkuð djarft og
um leið anzi óhnitmiðað en hvað um
það, í körfunni hafnaði knötturinn og
sigur Njarðvíkur var svo gott sem
tryggður. í lokin bættu þeir við einni
körfu svo sigurinn varð 6 stig á endan-
um.
Útlendingarnir í liðunum báru höfuð
og herðar yfir aðra leikmenn. Skoruðu
báðir 38 stig í leiknum og brilleruðu
sinn hálfleikinn hvor. Árni
Guðmundsson og Gísli Gíslason áttu
báðir mjög góðan leik fyrir ÍS svo og
Bjarni Gunnar í síðari hálfleiknum.
Albert Guðmundsson átti mjög góðan
fyrri hálfleik. Hjá Njarðvík var liðs-
heildin öllu jafnari og dreifðist stiga-
skorunin verulega.
Það óhapp varð að Jónas Jóhannes-
son meiddist á hné og er jafnvel talið að
um slæm meiðsl geti verið að ræða.
Áhorfendur voru tiltölulega fáir í
Njarðvík í gærkvöld enda hafa flestir
vafalítið búizt við stórsigri. -SSv.
ítalir áttu aldrei mögu-
leika gegn Evrópuliöinu
mörk Simonsen, Woodcock og Halilhodzic tryggðu Evrópu 3-0 sigur
Evrópuúrvalið átti aldrei í neinum
vandræðum með að sigra ítali er liðin
mættust i ágóðaleik í Rómaborg i gær-
kvöld til styrktar þeim er verst urðu úti
i jarðskjálftunum miklu á Ítalíu fyrr i
vetur. Evrópuliðið sigraði 3—0 og
hafði allan timann tögl og hagldir. Var
engu líkara en leikmenn þess hefðu
leikið saman frá örófi alda, en ítalska
liðið virkaði ákaflcga ósannfærandi.
Aðeins 13.000 manns mættu til að
sjá leikinn, sem fór fram í úrhellisrign-
ingu. Hagnaður af honum varð þvi
miklum mun minni en gert hafði verið
ráð fyrir, eða sem svarar 35.000 sterl-
ingspundum.
Fyrsta mark Evrópuliðsins skoraði
Allan Simonsen eftir að Dino Zoff
hafði hálfvarið þrumuskot frá Hansi
Miiller, sem átti stórkostlegan leik með
Evrópuúrvalinu. A 56. mínútu bætti
Júgóslavinn Halilhodzic annað markið
með glæsilegri aukaspyrnu. Knötturinn
skrúfaðist inn í markið án þess að Zoff
kæmi neinum vörnum við.
Tíu mínútum fyrir leikslok tók Jesus
Zamora á sprett og gaf síðan laglega
fyrir markið þar sem Tony Woodcock
þurfti ékki annað en að ýta knettinum
yfir marklínuna. Alls skipti Jupp Der-
Cruyff sveik Leicester
—forráðamenn félagsins æf ir vegna f ramkomu Cruyff, sem
ákveðið hefur að leika með spænsku 2. deildaviiði
Það væri Ijótt að segja að hinn 33 ára
gamli Johan Cruyff (Crijuff) legði sig
ekki í lima við að koma heimspressunni
á óvarl. DB skýrði frá þvi eitt fjölmiðla
í gær að hann hefði samið við enska 1.
deildarliðið Leicester City i fyrrakvöld,
en i gær bárust þær fréttir að hann
hefði rift þeim samningi og hygðist
leika með spænska 2. deildar liðinu Le-
vante frá Valencia út keppnistimabilið.
Forráðamenn Leicester eru æfir, en
geta sjálfum sér um kennt því sam-
kvæmt samningnum, sem þeir gerðu
við Cruyff, gátu báðir aðilar rift
honum með 36 stunda fyrirvara. „Mér
líkar ekki veðráttan í Englandi á
Láta „pressuliðið”
mæta Pólverjum
Frá Magnúsi Gíslasyni, frétta-
manni DB í Frakklandi:
Þrált fyrir augljós vonbrigði allra i-
þróttafréttamannanna reyndu menn að
gera að gamni sinu i gærkvöldi. Ræddu
mikið um það hvernig hægt væri að
vinna sigur á Pólverjum og komust aö
þeirri niðurstöðu að réttast væri að láta
blaðamennina leika gegn Pólverjunum.
Þeir gætu varla leikið verr en landinn í
gærkvöld.
Hugmyndin var þá að þeir Þórarinn
Ragnarsson Morgunblaðinu og Her-
mann Gunnarsson, útvarpsmaður,
lékju i hornunum. Sigmundur Ó.
Steinarsson, SOS, á Visi, færi i markið
og þeir Ingólfur Hannesson,
Þjóðviljanum og Ragnar Örn Péturs-
son á Tímanum yrðu bakverðir. Síðan
myndu þeir fá tvo lánsmenn — hugsan-
lega Július Hafstein, formann HSI, og
Pál Eiriksson lækni. Fréttamanni DB
var tjáð að honum væri ætlað aö vera á
klukkunni í fyrri hálfleik en dæma í
þeim siðari — þvi miöur væri ekkert
pláss í liðinu.
þessum árstíma og því fannst mér
meira freistandi að leika suður á Spáni
þar sem ég þekki vel til,” sagði Cruyff
er fréttamenn ræddu við hann.
Ákveðið hefur verið að Cruyff leiki
sinn fyrsta leik með Levante á sunnu-
daginn og þeir áhangendur Leicester,
sem keypt höfðu miða á leikinn gegn
Forest á laugardag og ætluðu að berja
snillinginn augum, verða að kyngja því
að Leicester-liðið verður eins skipað og
um sl. helgi, hvort sem þeim líkar það
betur eða verr. -SSv.
Sigurður
Sverrisson
Lokaleikurinn
íúrvalsdeild
Siðasti leikurinn i úrvalsdeildinni fer
fram í íþróttahúsi Kennaraháskólans
kl. 20 i kvöld og mætast þá Stúdentar
og ÍR. Með sigri i kvöld tryggir ÍS sér 3.
sætið i úrvalsdeildinni, en sigri
Stúdentar heldur KR 3. sætinu á betri
stigamismun.
wall, sem stjórnaði Evrópuúrvalinu,
Fimm varamönnum inn á í hálfleik en
Enzo Bearzot, sfjóri ítalanna, skipti
fjórum inn á.
Liðin voru þannig skipuð: Evrópuúr-
valið: Arconada, Spáni, (Schumach-
er, V-Þýzkalandi), Kaltz, V-Þýzka-
landi, (Gerets, Belgíu), Krol, Hollandi,
Pezzey, Austurríki, Stojkovic, Júgó-
slavíu, Chamacho, Spáni, (Zamora,
Spáni), Wilkins, Englandi, Nehoda,
Tékkóslóvakíu, (Botteron, Sviss),
Halilhodzic, Júgóslavíu, Múller, V-
Þýzkalandi, Simonsen, Danmörku,
(Woodcock, Englandi). Ítalía: Zoff,
Bordon), Gentile, (Baresi), Cabrini,
Marini, Collovati, Scirea, Conti,
(Bagni), Tardelli, Graziani, Anto-
gnoni, (Angelotti), Bettega, (Altobelli).
Allan Simonsen kom Evrópuliöinu á
bragðið.
Tony Woodcock skoraði eitt marka
Evrópuliðsins gegn Ítaliu.
hjá Englandi
Englendingar sigruðu ÍRA 1—0 í
landsleik þjóðanna — leikmenn 21 árs
og yngri. Þá fór einn leikur fram í 2.
deild. Cardiff sigraði Newcastle 1—0 í
barningsleik. Staða Cardiff vænkaðist
nokkuð fyrir vikið en gengi Newcastle
er jafn afleitt ogfyrr.
Hörkuleikur
íKeflavík
í kvöld kl. 20 mætast í Keflavík ÍBK
og Valur í undanúrslitum bikarkeppni
KKÍ. Í gærkvöld báru Njarðvíkingar
sigurorö af Stúdentum syðra og þvi er
Ijóst hverjum sigurvegararnir í kvöld
munu mæta i úrslitaleiknum. Vals-
menn hafa vafalítið i hyggju að ná sér
niðri á Njarðvikingum eftir ófarirnar í
úrvalsdeildinni og ekki er að efa að
Keflvíkingar hafa fullan hug á að mæta
„stóra bróður” i úrslitum keppninnar.
Ekki þarf að efa að það yrði saga til
næsta bæjar. Sjón er sögu rikari og
fullvist má telja að iþróttahúsið í Kefla-
vík verði þéttskipaö í kvöid.
-SSv.
MikiH hugur hjá Skallagrími fyrir
komandi keppnsbmabil
—Gunnar Orrason gekk til liðs við Borgnesingana fyrir skömmu
Skallagrímsmenn fengu fyrir
skemmstu góðan liðsauka er Gunnar
Orrason, hinn eldfljóti framherji þeirra
Framara, tilkynnti félagaskipti yfir til
þeirra Borgnesinga. Áður höfðu þeir
fengið markvörðinn, Júlíus Marteins-
H
Gunnar Orrason hefur nú gengið til liðs
vð Skallagrím frá Fram.
son, frá Frömurum, en Skallagrímur
leikur nú í fyrsta sinn i 2. deildinni í
knattspyrnu.
Þá hafa þeir Borgnesingar fengið til
liðs við sig þá Bergþór Magnússon frá
Val og Helga Ásgeirsson frá Einherja,
Vopnafirði og einnig mun Einar
Friðþjófsson, sem ráðinn hefur verið
þjálfari liðsins, leika með því í sumar.
Á móti kemur að Skallagrímur hefur
misst Gunnar Jónsson, markakóng
liðsins til Ákurnesinga og þá er talið
óliklegt að Jón Steingrímsson, sem
leikið hefur körfuknattleik með Vals-
mönnum við góðan orðstír og lék með
Skallagrimi í fyrra, muni leika með í
sumar.
Undanfarin ár hefur knattspyrnan
átt fremur litlu fylgi að fagna í Borgar-
nesi og hefur körfuknattleikurinn notið
mestra vinsælda þar eins og reyndar í
langan tíma. - Með bættum árangri
Skallagríms hefur áhugi fólks fyrir
knattspyrnunni vaknað og í haust jjeg-
ar liðið vann sér sæti i 2. deildinni eftir
áralanga baráttu vaknaði mikill áhugi á
meðal knattspyrnuunnenda jafnt sem
annarra og hugur er í mönnum að
standa sig vel i 2. deildinni í sumar.
-SSv.
Aðalfundur
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Fylkis verður haldinn i félagsheimilinu
kl. 20.30 i kvöld, á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf.