Dagblaðið - 26.02.1981, Side 19
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
19
Danadrottning íveizlunni miklu f gærkvöldi:
„ÞJÓÐ GETUR VERIÐ
MIKIL ÞÓ EKKISÉ
HÚN FJÖLMENN”
„ísland er eitt yngsta lýðveldi
Evrópu. Þar í landi ríkja elztu þing-
ræðishefðir í heiminum. Það sýnir
hve saga Islands er mögnuð og stór-
kostleg, eins og Dönum er kunnugt
frá barnæsku,” sagði Margrét Þór-
hildur drottning meðal annars ■ í
skálaræðu sinni í veizlunni sem hún
hélt forseta ísiands i gærkvöldi.
„Það mun ekki koma yður á óvart
að danska þjóðin ber mikla virðingu,
mættum vér segja aðdáun, fyrir ís-
landi. íslenzka þjóðin er óvefengjan-
leg sönnun þess að þjóð getur verið
mikil þó hún sé ekki fjölmenn, að
áhrif þjóðar byggjast ekki eingöngu á
valdi, heldur einnig á frumleika og
andiegu sjálfstæði. Og að söguleg
meðvitund og hefð þarf ekki að leiða
til þess að maður horfi með söknuði
til liðinna tíma, heldur styrkir þjóð-
ina bæði í nútíð og framtíð.
Þegar íslendingar kusu Vigdísi
Finnbogadóttur sem forseta, vakti
það hrifningu og athygli um heim all-
an. í fyrsta sinn varð kona þjóðhöfð-
ingi lands síns í lýðræðislegum kosn-
ingum. I Danmörku fylltust menn
einnig lotningu og aðdáun. Starfs-
ferill yðar er fagurt dæmi um að
hverju er unnið og hvað í boði er á
öllum sviðum menningar í landi yðar
um þessar mundir. Síðan þér tókuð
við tignarembætti yðar höfum vér
Danir getað fylgzt með frammistöðu
yðar að nokkru leyti og þér hafið
unnið hjarta vort með hlýjum per-
sónuleika yðar, skarpri greind og
hæfni til að tjá hugsanir og tilfinn-
ingar í orðum sem einnig vér í okkar
landi getum skilið: Þér talið eins og
maður við mann.”
Vigdís Finnbogadóttir sagði m.a. í
sinni ræðu:
„íslendingur ættaður af Vestfjörð-
um hefur enn fylgt þeim vana að
segja sögur af göfugu kóngafólki þar
sem hann sækir heim erlenda hirð. í
mínu valdi stendur hvorki að yrkja
kvæði né flytja með mér konungsger-
semi sem hvítabjörninn. En vináttu
þjóðar minnar flyt ég með mér — ef
til vill er það konungsgersemi í heimi
sundurlyndis og tortryggni. Ég flyt
kærar kveðjur og hlýhug íslenzku
þjóðarinnar, sem ég veit að dáir yður
sem náinn vin.
Á íslandi ríkir hrifning á því sem
franskt er og það ekki að ástæðu-
lausu. Þar vita allir að þér, yðar
hátign, haftð gert það sem við hin
getum ekki státað af, að færa nær
hvor annarri norræna og rómanska
Gjafirnar sem Vigdis Finnbogadóttir færði konungsfjölskyldu Danmerkur.
Drottningin fékk skartgrip sem f senn er hálsmen og næla. Gullsmiðirnir Hjördís
Jafetsdóttir og Áslaug Gissurardóttir hönnuðu og smiðuðu hann að ósk forseta.
Á honum er þurrkaður islenzkur fjögurra laufa smári sem festur er á hrafntinnu-
flöt en umgjörðin er úr silfri. Drottningin fékk einnig hátiðarútgáfuna af Heims-
kringlu, en Henrik prins fékk ferðabók Gaimard með teikningum Mayers.
Prinsar tveir fengu lopapeysur og húfur í stíl til að verjast dönskum vetrargaddi.
Margrét Þórhildur drottning í Dan-
mörku. Myndin var tekin í veizlu,
sem þáverandi forseti íslands, dr.
Kristján Eldjárn, hélt drottningu í
opinberri heimsókn hennar til íslands
1973.
menningu — eins og þér, yðar kon-
unglega tign, Hinrik prins, sannið
bezt. Þar er hvor menningarheimur-
inn hinum hvatning.
Okkur verður oft hugsað til prins-
anna ungu. Börnin eru kjarninn í til-
veru okkar. Hversu önnum kafin sem
við kunnum að vera, megum við
aldrei gleyma að skylda okkar er að
búa í haginn fyrir börnin — eins og
foreldrar okkar bjuggu í haginn fyrir
okkar.
Yðar hátign, Ingiríður drottning,
eitt sinn krónprinsessa íslands. Ég
flyt kveðjur frá mörgum vinum yðar
og Friðriks konungs, vinum sem
minnast gagnkvæmra heimsókna
þjóða okkar. Kveðju frá vinum, sem
og vinum þeirra og barnanna. ísland
gleymir ekki að eitt þeirra nafna sem
þér og hans hátign konungurinn
völduð fyrsta barni yðar var hljóm-
mikið íslenzkt nafn. Nafn er hluti
þess sem ber það og fylgir honum
ævina alla. Við á íslandi erum stolt af
því að hin danska drottning hefur
kosið að auðkenna listsköpun sína
með hinu íslenzka nafni sínu.
- ARH
Hafnarbúar tóku hlý-
lega á móti Vigdísi
INDIANA
LEÐUR
MOKKA
SÍNUR /
NA j
iS
/
Litir. Hvitt og biatt
AJr 28 34 kr. 149.50
Hr 34 41 kr 159.50
Póstsendum samdœgurs
^ ^ \ EG/LSGÖTU3
{ SIM118519
7Gy\ I BARÓMSSTIG 18
L IL/ SÍM123566
DOMUS MED/CA
Trésmiðir
Haldinn verður góuþorri laugardaginn 28.
feb. kl. 20 að Suðurlandsbraut 30. Þorra-
matur og diskótek. Aðgöngumiðar seldir á
skrifstofunni, Suðurlandsbraut 30.
Skemmtinefnd T.R.
Bóka
mark
aðurinn
Góðar
bækur
Gamalt
veró
Frá Eiríki Jónssyni, fréttamanni DB I
Kaupmannahöfn, i gærkvöldi:
Fjöldi fréttamanna var samankom-
inn á Kastrupflugvelli um tíuleytið í
morgun, í kulda en birtu þó, til að
taka á móti Vigdísi Finnbogadóttur
forseta og fylgdarliði. Reist hafði
verið skrautlegt tjaid framan við
flugstöðvarbygginguna í dönsku
fánalitunum og þar voru nálægt 100
lífverðir dönsku hirðarinnar. Þeim
var örugglega minna kalt en öðrum
viðstöddum, þökk sé loðhúfum
þeirra.
Skömmu eftir að klukkan sló 11
kom svartur Bentiey brunandi að
tjaldinu og út úr honum stigu
Ingiríður drottningarmóðir, Bene-
dikta drottningarsystir og Ríkharður
. hennar ektamaki. Þau eengu inn í
tjaldið þar sem fyrir voru Einar Ág-
ústsson sendiherra og frú Þórunn
Sigurðardóttir ásamt öðrum embætt-
ismönnum, bæði dönskum og
íslenzkum. Þá bar að Rolls Royce-bil
með Margréti drottningu og Henrik
prins innanborðs. Drottning kannaði
lífvörðinn en beið síðan eftir íslenzku
gestunum. Á slaginu kl. hálftóif
renndi þota Flugleiða upp að tjaldinu
góða. Einar Ágústsson gekk um borð
en rétt á eftir birtist svo Vigdís Finn-
bogadóttir. Hún heilsaði gestgjöfum
sínum, en kannaði siðan lífvörðinn i
fylgd drottningar. Eftir stutta sam-
verustund í tjaldinu skipti fólkið sér
milli bíla sem biðu i röðum. Rolls
Royce var fremstur, síðan komu
nokkrir Bentleyar og þar næst
Benzar. Á leiðinni að konungshöll-
inni var víða fólk sem beið á gang-
stéttum eftir að þjóðhöfðingjarnir
ækju framhjá. A Kongérís Nytorv
var fjöldi fólks og á svölum Konung-
lega leikhússins stóð barnahópur
veifandi íslenzkum og dönskum fán-
um. Við sjálfa höllina var flest fólkið
og reyndar samfellt mannhaf á gang-
stéttum frá Kongens Nytorv að höll-
inni. Undir hallarvegg biðu 50
knapar á hestum, en forseti og
drottning fóru rakleiðis inn þegar
þangað var komið, en komu skömmu
síðar fram á svalir á höllinni ásamt
Henrik prinsi og vinkuðu mannfjöld-
anum. Að þvi búnu var setzt að
snæðingi og engum hleypt þar að
nema tignum gestum.
Vigdís tók svo á móti erlendum
sendimönnum í höllinni um fjögur
leytið, en um kvöldið var á dag-
skránni kvöldverður drottningar. Þar
fluttu þær báðar ræður, drottning og
forseti, og var þeim sjónvarpað um
Danmörku og útvarpað til íslands.
- ARH
Fimmtudaginn
Föstudaginn
Laugardaginn
Mánudaginn
Þriðjudaginn
Miðvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
Laugardaginn
26. febrúar frákl.
27. febrúar frá kl.
28. febrúar frá kl.
2. marz frá kl.
3. marz frá kl.
4. marz frá kl.
5. marz frá kl.
6. marz frá kl.
7. marz frá kl.
9-22
9-19
9-18
9-18
9-18
9-18
9-22
9-19
9-18
Bokamarkaðunnn
SÝNINGAHÖLLINNI
ÁRTÚNSHÖFÐA