Dagblaðið - 26.02.1981, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRUAR 1981
Veðrið
Qert er réð fyrir vaxandi austanátt
og afðan auðaustanátt á landinu,
slyddu aða rigningu á Suður- og Vast-
uriandi an rigningu á Austuriandi.
Vaður fer hlýnandi.
Klukkan 8 voru suðaustan 3, skýjað
og 1 stig (Reykjavlc, suðsuðaustan 5,
skýjað og 1 stig á Gufuskákim, hssg-
viöri, hálfskýjað og 1 stig á Gattar-
vha, hœgviðri, skýjað og 1 stig á'
Akureyri, suðaustan 3, alskýjað og 1
stig á Raufarhöfn, haagviðri,
slydda og 0 stig á Dalatanga,austsuð-
austan 8, rígning og 4 stig á Hðfn og
austsuðaustan, rigning og 2 stig á'
Störhöfða.
í Þórahöfn var abkýjað og 5 stig,
iáttskýjað og -2 stig ( Kaupmanna-
höfn, abkýjað og -3 stig f Osló, þoku-
móða og -1 stig í Stokkhólmi, mbtur
og 1 stig f London, þokumóða og -4
stfg f Hamborg, þokumóða og 0 stig f
Parb, hálfskýjað og 2 stig f Madrid,
háifskýjað og 11 stig f Lbsabon og
skúrir og 7 stig f New York.
Ártfliát
Guflný Guflmundsdóttir, sem lézt 26.
janúar sl., fæddist 29. janúar 1891 að
Þrastastaðagerði á Höfðaströnd.
Guðný ólst upp hjá Guðbjörgu Jóns-
dóttur og Þórarni í Enni. Árið I9ll
giftist hún Rögnvaldi Sigurðssyni og
áttu þau 12 börn. Bjuggu þau á Litlu-
Brekku á Höfðaströnd í I9áren þálézt
Rögnvaldur. Nokkru seinna fluttist
Guðný til Siglufjarðar og bjó þar til
æviloka. Hún starfaði við fiskvinnslu á
Siglufirði. Síðastliðin 2 ár dvaldist
Guðný á Sjúkrahúsi Siglufjarðar.
Baldvin Einarsson forstjóri, sem lézt
I8. febrúar sl., fæddist 22. febrúar
1913 á Eyri í Skötufirði. Foreldrar hans
voru Einar Þorsteinsson og Sigrún
Kristín Baldvinsdóttir. Baldvin
stundaði nám við Menntaskólann á
Akureyri og lauk gagnfræðaprófi 1913,
síðan stundaði hann störf sem
verzlunarmaður í Reykjavík. Árið 1936
réðst hann til starfa hjá vátryggingar-
skrifstofu Trolle og Rothe hf. i Reykja-
vik og starfaði hann á þeirra vegum til
ársins 1943. Það sama ár voru
Almennar tryggingar stofnaðar og var
Baldvin einn af stofnendum og var
hann valinn til að veita félaginu for-
stöðu. Baldvin var kjörinn í varastjórn
félagsins 1967 og í aðalstjórn árið 1971,
formaður stjórnarinnar var hann
kjörinn árið 1975 og gegndi hann því
starfí til dauðadags. Árið 1943
kvæntist Baldvin Kristínu Pétursdóttur
og áttu þau 2 dætur.
Fannar Guflmundsson sem lézt í Land-
spítalanum föstudaginn 20. febrúar sl.,
verður jarðsunginn fráLitlu kapellunni
1 Fossvogskirkju föstudaginn 27.
febrúar kl. 13.30.
Halldór Einarsdóttir, Meðalholti 10,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 27. febrúar kl. 13.30.
Kristófer Kristófersson, sem lézt 14.
febrúar sl., fæddist 16. október 1889.
Foreldrar hans voru Kristófer
Sturluson og Margrét Hákonardóttir.
Kristófer bjó í Fremri-Hvestu í nær 30
ár en árið 1946 fluttist hann til
Bíldudals og skömmu seinna hóf hann
störf á olíuskipinu Þyrli þar sem hann
vann í rúm 10 ár. Árið 1956 fluttist
hann til Reykjavíkur. Árið 1918 kvænt-
ist Kristófer Ingibjörgu Halldóru
Gestsdóttur og áttu þau 5 börn.
Ágústa Jóhannsdóttir, sem lézt 20.
febrúar sl., fæddist 16. ágúst 1895 að
Laugarási 1 Biskupstungum. Foreldrar
hennar voru Vilborg Aronsdóttir og
Jóhann Bjarnason. Ágústa ólst upp hjá
Guðfinnu Erlendsdóttur og Guðmundi
Vigfússyni. Ágústa flutti með fóstur-
foreldrum sinum til Reykjavíkur 11 ára
gömul. Árið 1915 giftist hún Þórhalli
Jóhannessyni en hann lézt árið 1924.
Þá hóf hún störf hjá Lyfjaverzlun
ríkisins. Árið 1927 giltist hún
Guðmundi Halldórssyni. Þau ætt-
leiddu 2 börn. Ágústa verður
jarðsungin ídag, 26. feb., kl. 13.30, frá
Háteigskirkju.
Edda Kvaran, Efstasundi 94 Reykja-
vik, lézt að heimili sínu 25. febrúar.
Hólmfriður Kristjánsdóttir lézt að
Hrafnistu þriðjudaginn 24. febrúar sl.
Jóhann Sigurgeirsson pípulagningar-
meistari, Barmahlíð 38, lézt
mánudaginn 16. febrúarsl. Jarðarförin
hefur farið fram.
Rudolph J. Eyland verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 27.
febrúar kl. 10.30.
Guðjón Arngrímsson fyrrverandi
gjaldkeri, sem lézt 18. febrúar sl.,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 27. febrúar kl. 13.30.
Guðmundur Ragnarsson, Espigerði 4,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudagjnn 27. febrúar kl. 16.30.
Sigurlina Kbenezersdóttir, Tómasar-
haga 41, verður jarðsungin frá
Neskirkju föstudaginn 27. febrúar kl.
15.
Anna Sigríður Einarsdóttir, sem lézt
14. febrúar sl. að heimili sinu Klepps-
vegi 120, verður jarðsett föstudaginn
27. febrúar frá Fossvogskirkju kl. 15.
Nýr sýslumaður
Hinn 19. febrúar 1981 skipaði forseti Islands, sam-
kvæmt tillögu dómsmálaráðhcrra, Sigurð Helgason
hæstaréttarlögmann bæjarfógeta á Seyðisfirði og
sýslumann Norður-Múlasýslu, frá 1. marz 1981.
Brautskráning kandídata
frá Háskóla íslands
Afhending prófskírteina til kandídata fer fram við
athöfn í hátíðasal háskólans laugardaginn 28. febrúar
1981 kl. 14. Rektór háskólans. prófessor Guðmundur
Magnússon, ávarpar kandídata en siðan afhenda
deildarforsetar prófskírteini. Að lokum syngur Há
skólakórinn nokkur lög undir stjórn Hjálmars Ragn-
arssonar.
Að þessu sinni verða brautskráðir 52 kandidatar og
skiptast þeir þannig: Embættispróf i lögfræði 2, BA-
próf i heimspckideild 14. próf í islensku fyrir erlenda
stúdenta I,lokapróf ibyggingarverkfræði 1 Jokapróf í
vélaverkfræði 2, lokapróf í rafmagnsverkfræði 1, BS-
•próf I raungrcinum 10, kandidatspróf í viðskipta-
fræðum 9. aðstoðarlyfjafræðingspróf 2. BA-próf í
félagsvísindadeild 10.
0G ÞÁ VAR KÁTT
IH0UINNI, HÖUINNI
Örlögin og Vigdís Finnbogadóttir
réðu þvi að ég reis úr rekkju eld-
snemma i gærmorgun og gekk
óvenjusnemma til náða í gærkvöldi,
eftir að hafa hlýtt á ræðuhöld, glasa-
glaum og íslenzkan þjóðsöng leikinn
á yfirhraða í kóngshöllu Dana. Send-
ingarskilyrðin voru að vísu ekki upp
á það bezta, en engu að síður lagði ég
við hlustir þegar svo hátíðlegar ræður
voru fluttar okkur yfir hafið.
Það sást vel í gærkvöldi hve brýnt
það er fyrir sjónvarpið okkar að fá
skerminn Skyggni í gagnið til að
flytja okkur myndir frá fjarlægum
löndum af atburðum sem gerast sam-
stundis. Engar filmur bárust frá Dan-
mörku og við urðum að láta okkur
nægja nokkrar Ijósmyndir frá hátíða-
höldunum. Við þurfum að bíða róleg
til föstudagskvölds og líta á dýrðina
um það bil er opinberri heimsókn
forsetans lýkur! Einu kvikmyndirnar
sem sjónvarpið sýndi voru frá Kefla-
vikurflugvelli i gærmorgun þegar
Vigdís og fylgdarlið lögðu í’ann fyrir
allar aldir. Við DB-menn böðluðumst
þangað suður eftir í hríðarhraglanda
og ófærð til að fylgja sendimönnum
okkar síðustu metrana um borð í þot-
una, svona rétt til að þeir færu ekki
með vitið úr landinu. Þarna biðum
við ásamt sjónvarpsmönnum og
kuldastjörfum heiðursverði löggu-
manna, Flugleiðaforstjóranum og
handhöfum forsetavalds sem tóku
við æðsta embætti þjóðarinnar um
leið og Vigdís hvarf inn í þotuna.
Fyrst var almúginn rekinn um borð.
Alþýðan fór inn í þotuna að aftan.
Framdyrnar voru ætlaðar þeim sem
iiærra voru í mannvirðingarstigan-
um. Fyrst kom svört drossía akandi
út að vél. Út úr henni steig maður
nokkur berhöfðaður, með kunnug-
legt bros á vör og voldug sólgleraugu.
Fát kom á heiðursvörðinn eitt andar-
tak. En svo kom í ljós að hér var
kominn utanríkisráðherrann, sá er
Á Koflavkurfkigv«U •Idsnwnma f gaarmorg-
un: Utan úr myrfcrinu og hriðarfjúklnu kom ráö-
herra, sem rnöur f kigskýlum, meö bros é vör
og sóigleraugu. Boðlnn og búlnn tll að skála
vlð kónga og drottningar f Danaveldi.
DB-mynd: Síg. Þorri.
ræður málefnum flugskýla og Helgu-
víkur. Hann var sýnilega með bjart-
sýnni mönnum í upphafi ferðar og
mætti sólglerjaður til leiks. Svo
komu þremenningarnir sem eru í
sameiningu forseti til sunnudags og
síðast birtist forsetabíllinn. Ejtthvað
af þessu fengum við að sjá í sjónvarp-
inu en Margréti Þórhildi fáum við
ekki að líta á í kassanum fyrr en
annað kvöld.
Fréttir sjónvarpsins var hið eina
sem ég hafði lyst á af matseðli þeirrar
ágætu stofnunar i gærkvöldi. Ég stóð
mig betur við útvarpshlustun, enda
dagskráin þar girnilegri fyrir minn
smekk.
Vettvangsþátt Ástu R. og Sigmars
hlustaði ég á að vanda, enda oft góð-
meti á boðstólum hjá þeim. (Innskot:
Því er Ásta titluð „samstarfsmaður”
en ekki stjórnandi þáttarins eins og
Sigmar?? Og hvers vegna var fyrrum
kvenkyns meðstjórnandi Morgun-
póstsins ævinlega kynnt sem hún
væri „til aðstoðar” Páli Heiðari og
Birgi Sig. ?)
Hrafn Gunnlaugsson flutti gagn-
rýni um Sölumaður deyr í Þjóðleik-
húsinu. Hrafn er nýbyrjaður sem
„krítíker” hjá Sigmari og Ásty og
þykir mér góður. Sveinn E. getur
verið ánægður með hve góðir leik-
gagnrýnendur veljast í þennan þátt.
Halldór Reynisson flutti langan og
óáheyrilegan pistil um efnahags-
stefnu Reagans kúreka í Hvíta hús-
inu, þar sem auk þess kom fátt eða
ekkert fram sem ekki hafði heyrzt hér
áður. Ekki trúi ég öðru en að í því
stóra landi sé hægt að finna eitthvað
til að tala um sem útilokað er að hafi
heyrzt hérlendis. Og Leifur Þórarins-
son talaði svo að síðustu um sin-
fóníutónleika.
íþróttabölið er farið að setja mark
sitt á mig, sbr. svo bregðast krosstré
. . . Á menntaskólaárunum var ég
virkur félagi í Sporni, sem barðist
ötullega gegn bölinu sem íþróttaiðk-
un leiðir yfir þjóðir. Spornisfélögum
var bannað flest, að viðlögðum sekt-
um og brottrekstri, sem telja mátti
með góðu móti til íþrótta. Þó mátti
hlaupa í Ríkið við Hólabraut ef
mikið lá við. Nú er svo komið fyrir
mér að ég fer stundum í sund eða á
skíði, í vetur hef ég keypt tvo get-
raunaseðla í hverri viku, horft einu
sinni á leik í ensku knattspyrnunni í
sjónvarpinu og nú síðast hlustað í tvi-
gang á Hermann lýsa handboltaleikj-
um í Frakklandi. í fyrra skiptið stóð
ég með íslendingum, enda leit strax
út fyrir að þeir burstuðu Austurríki. í
gærkvöldi ákvað ég strax að vera
hlutlaus framan af seinni hálfleik en
halla mér heldur að Frökkum þegar
líða tók á leikinn, enda sagði Vigdís í
ræðunni í gærkvöldi að íslendingar
væru svo skotnir i franskri menn-
ingu. (Eða þannig). Og auðvitað stór-
sigruðum við íslendingana í leik
dagsins.
Hvað er Bahá'í trúin?
Opið hús að Óðinsgötu 20 öll fimmtudagskvöld frá
kl. 20.30. Allir velkomnir:
iiiiil
AA-samtökin
í dag. limmtudag, verða fundir á vegum AA-sam
takanna scm hér scgir: Tjarnargata 3c kl. 21:Tjarnar
gata 5b (Ungt fólkl kl. 21 og 14: Laugarncskirkja kl.
21: Kópavogskirkja kl. 21; Ólafsvík. Safnaðarhcimili.
kl. .21: Sauðárkrókur. Aðalgata 3. kl. 21; Akurcyri.
Gcislagata 39. (s. 96-22373) kl. 21; Scyðisfjörður.
Safnaðarhcimili. kl. 21; Vestmannaeyjar. Hcimagata
24 (s. 98 1140). kl. 20.30: Selfoss, Selfossvcgi 9. kl. 21:
Keflavík. Klapparstígur 7 (s. 92-1800). kl. 21; Patreks
fjörður kl. 21; Blönduós. Kvennaskóli. kl. 21: Dalvik
kl. 21.
í hádeginu á morgun. fösludag. verða fundir scm
hér segir: Tjarnargata 3c kl. 12; Tjarnargata 5bkl. 14:
Akureyri. Geislagata 39 (s. 96-22372). kl. 12.
Neskaupstaður
Opinn umræðufundur til kynningar á Bahái trúnni
vcrður að Blómsturvöllum 15 föstudaginn 27. febrúar
kl. 21. Verið velkomin.
íslandsmótið
í handknattleik
Fimmtudagur 26. feb.
Laugardalshöll
|R — Valur, 1. fl. karla B. kl. 19.
Vikingur — ÍA. 1. deild kvenna. kl. 20.
lR - UMFN. 2. deild kvenna A, kl. 21.
Þróttur — Ármann, I. fl. karla B. kl. 22.
íslandsmótið í
körfuknattleik
Fimmtudagur 26. feb.
Íþróttahús Kennaraháskólans
IS — lR, úrvalsdeild, kl. 20.
Hótel Borg íkvöld
Hljómsveitin ÞEYR flytur í kvöld nýjar tónsmíðar
og syngur haitiskan tónseið. Einnig koma fram ný-
listamenn sem munu nýstreyma.
Sinfóníutónleikar í kvöld
Þrettándu áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsvcitar
Islands verða í Háskólabiói í kvöld og hefjast kl.
20.30. Efnisskráin verður sem hér segir: Stravinsky
Pulcinella-ballettsvita; Mozart — Pianókosnert KV
595; Ravel — Daphnis et Chloé.
Hljómsveitarstjóri er Jean-Pierre Jacquillat.
Einleikari er Anne Queffelec. Hljómsveitinni til að
stoðar við flutning Daphnis et Chloé er Hamrahlíðar
kórinn sem Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Nr. 39 — 25. febrúar 1981 Ferðamanna gjakfeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Saia
1 Bandarfkjadollar 6,511 6,529 7,182
1 Storlingspund 14,529 14£69 16,026
1 Kanadadollar 5,441 5,456 6,002
1 Dönsk króna 0,9903 0,9930 1,0923
1 Norakkróna 1,2103 1,2137 1,3351
1 Sœnsk króna 1,4146 1;4185 1,5604
1 Finnskt mark 1,6037 1,6081 1,7889
1 Franskur franki 1,3220 1,3267 1,4583
1 Belg. frankl 0,1899 0,1904 0,2094
1 Svissn. franki 3,4093 3,4188 3,7607
1 Hollenzk florina 2,8028 2,8106 3,0917
1 V.-Þýzkt mark 3,0961 3,1048 3,4151
1 Itölsk Ifra 0,00645 0,00647 0,00712
1 Austurr. Sch. 0,4388 0,4380 0,4818
1 Portug. Escudo 0,1160 0,1163 0,1279
1 Spánskur peseti 0,0757 0,0759 0,0835
1 Japanskt yen 0,03141 0,03150 0,03465
1 irskt ound SDR (sáratök dráttarréttindi) 8/1 11,402 8,0145 11,434 8,0387 12,577
# Breyting frá siðustu skráningu. Simsvari vegna gengisskróningar 22190.