Dagblaðið - 26.02.1981, Qupperneq 31
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1981
31
9
Útvarp
Sjónvarp
i)
MYNDBROT - útvarp kl. 21,30:
FRJALST KYNLÍF OG SAM-
EIGINLEGT BARNAUPPELDI
— ungur maður hyggst stofna AAO-kommúnu hér á landi á næstunni
— rætt við þrjá menn um störf þeirra, áhugamál og KVsviðhorf
Myndbrot nefnist þáttur sem Birna
G. Bjarnleifsdóttir stjórnar og er á
dagskrá útvarps í kvöld. Flún ræðir
við Lilju Ólafsdóttur, Guðmund S.
Jónasson og Ottó A. Michelsen um
störf þeirra og áhugamál.
Guðmundur S. Jónasson er ungur
maður sem dvalizt hefur mikið er-
lendis. Hefur hann m.a. búið í
kommúnum, svokölluðum AAO-
kommúnum en þær eru dreifðar víðs
vegar um alla Evrópu. Guðmundur
hyggst stofna eina slíka hér á landi á
næstunni.
í AAO-kommúnu er kjamafjöl-
skyldan ekki til. Þar fer fram sam-
eiginlegt barnauppeldi og tilfmningar
sem yfírleitt eru bældar í venjulegum
þjóðfélögum, fá að njóta sín. Má
nefna kynhvötina en í AAO-komm-
únum er stundað frjálst kynlíf, þó
innanvissra marka.
Lilja Ólafsdóttir er nemi í lagadeild
Háskóla fslands. Hún er núverandi
formaður Orators, félags laganema,
og er hún fyrsta konan sem gegnir því
embætti. Lilja segir frá námi sínu,
lífsviðhorft og lýsir áliti sínu á AAO-
kommúnum.
Loks verður spjallað við Ottó A.
Michelsen, forstjóra IBM og Skrif-
stofuvéla, um starf hans og uppbygg-
ingu fyrirtækja hans. Auk þess ræðir
hann um áhugamál sitt, kirkjustarf,
en hann hefur niikið unnið fyrir Bú-
staðakirkju. Þá mun hann segja álit
sitt á ungu fólki i dag.
- KMU
Cuðmundur S. Jónasson — hyggst
stofna AAO-kommúnu hér ú landi á
næstunni.
Er kommúnufjölskyldan það sem koma skal?
Lilja Ólafsdóttir — fyrsta stúlkan
sem gegnir Tormannsemhætti í Ora-
lor. DB-mynd Bj.Bj.
DOMSMAL - útvarp kl. 20,05:
HVER BER ÁBYRGD
Á VÖRU í FLUTNINGI?
í þættinum Dómsmál í kvöld segir
Björn Helgason hæstaréttarritari frá
máli sem Hæstiréttur dæmdi í fyrir
nokkru og fjallar um ábyrgð vöru-
flutningamiðstöðvar á vöru í flutn-
ingi.
Að sögn Björns er hér frekar um
einfalt mál að ræða en málavextir eru
í stuttu máli þeir að pakki með tveim
loftnetum í týndist í flutningi og
spurðist aldrei meir til hans. Eig-
andinn vildi fá bætur fyrir en
vöruflutningafyrirtækið taldi sig
undanskilið þeirri ábyrgð.
Mál var höfðað og segir Björn
Helgason okkur frá niðurstöðum
dómsins og því sem liggur til grund-
vallarhonum. -KMU
KRISTJAN MAR
UNNARSSON
Björn Helgason hæstaréttarritari.
NEMENDALEIKHÚSIÐ
Peysufatadagurinn
eftir Kjartan Ragnarsson.
Sýning fimmtudag 26. febr. kl. 20
og sunnudag 1. marz kl. 20.
Miðasala opin i Lindarbæ frá kl. 16—19 alla daga, nema laugar-
daga. Miðapantanir í sima 21971 á sama tima.
VIDEO
¥
¥
¥
¥
Litli bamatiminn í utvarpi kl. 17,40:
Uf og leikir barna
FYRIR 70-80ÁRUM
nen
Kv
VHS videospólur til leigu í miklu úrvali ásaml mvnd-
segulbandstækjum og litasjónvörpum. Ennfremur eru
til leigu 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur í
rnjög miklu úrvali í stuttum og löngum útgáfum. bæði
þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16
mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin. Walt
Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir full-
orðna m.a. Jaws, Marathon man, Deep, Grease. God-
father, Chinetown o.fl. Filmur til sölu og skipta.
Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla daga -yC.
nema sunnudaga.
Kvikmyndamarkaðurinn Sími 15480
Skólavörðustíg 19 (Klapparstígsmegin)
KVIKMYNDIR
—ífrásögn Jónasar frá Brekknakoti
Námsvist í Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld munu væntanlcga veita cinuni Islendingi skólavist og styrk til háskólanáms i
Sovctrikjunum háskólaárið 1981 —82. Umsóknum skal komið til mcnntamálaráóuncytisins.
Hverfisgötu 6. I0l Reykjavik. fyrir 25. mars n.k. og fylgi staöfcst afrit prófskirlcina ásamt mccV
mælum. — Umsóknareyðublöðfást í ráðuncytinu.
Monntamálaráðuneytið, 23. febrúar 1981.
„Uppistaðan í Litla barnatímanum í
dag verður spjall Jónasar frá Brekkna-
koti um líf og leiki barna fyrr á tímum,
eða fyrir 70—80 árum,” sagði Dóm-
hildur Sigurðardóttir kennari á Akur-
eyri, umsjónarmaður þáttarins kl.
Auk frásagnar Jónasar frá Brekknakoti í Litla barnatímanum frá Akureyri í dag les
átta ára stúlka þjóösögur — m.a. söguna af því hvers vegna rjúpurnar hafa loðna
fætur. DB-mynd EÓ.
17.40 i dag.
Einnig kemur fram átta ára gömul
stúlka, Elín Eydís Friðriksdóttir, sem
les tvær þjóðsögur. „Sú fyrri segir frá
hvernig huldufólkið varð til — það er
sagan um óhreinu börnin hennar Evu
— og hin segir frá hvers vegna rjúpan
hefur loðnar fætur,” sagði Dómhiidur.
Dómhildur Sigurðardóttir er ein
þriggja akureyskra kvenna, sem á und-
anförnum vikum hefur annazt Litla
barnatímann. Hinar tvær eru Heiðdís
Norðfjörð og Gréta Ólafsdóttir. Þetta
verður fjórði og síðasti timinn, sem
Dómhildur annast — að sinni.
Hún segist þó vonazt til að geta geri
fleiri útvarpsþætti í framtíðinni, því
það sé bráðskemmtilegt. „Það er gotl
að skiptast svona á um þetta við hinat
tvær,” sagði hún, ,,en vafalaust yrði
þetta eitthvað erfiðara ef ég væri aðeins
ein.”
Dómhildur er kennari við Lundar
skóla á Akureyri, sem er nýlegur skoli
uppá Brekku, eins og heimamenn
segja. Sem stendur er Lundarskóli
barnaskóli en verður áður en langt um
líðurgrunnskóli. -ÓV
BMW 728 árg. 1978 Renault 20 TL árg.1978
BMW 525 árg.1974 Renault 20 TL árg. 1977
BMW 520 árg. 1978 Renault 12 TL árg. 1971
BMW 320 árg. 1979 Renault 5 GTL árg. 1980
BMW 320 árg.1978 Renault 5 TL árg. 1975
BMW 318 autom. árg. 1979 Renault4TL árg. 1979
BMW316 árg.1980 Renault 4 VAN F6 árg. 1977
BMW 320 árg. 1980 Renault 4 VAN F6 árg.1978
KRISTINN GQJÐNASON HF.
L SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 J