Dagblaðið - 26.02.1981, Síða 32
SJÓMENN OG ÚTVEGS-
MENN SÖMDU í NÓTT
— verkfalli á f iskiskipaf lotanum af lýst í gærkvöldi
— lífeyrissjóðstrygging sjómanna lækkuð Í60 ár
Samkomulag náðist í nótt miili
sjómanna og útgerðarmanna og var
það undirritað af deiluaðilum fyrir
kl. 1 í nótt. Áður höfðu sjómenn af-
lýst verkfalli, sem átti að koma til
framkvæmda á fiskiskipaflotanum á
miðnætti. Síðasta samningalotan var
löng og ströng; og eftir hádegi í gær
voru menn nánast lokaðir inni hjá
ríkissáttasemjara.
Sjómenn biðu eftir viðbrögðum
ríkisstjórnarinnar og eftir fund með
ráðherrunum Svavar Gestssyni og
Ragnari Arnalds, þar sem Svavar
lýsti þvi yfir að ríkisstjórnin myndi
standa við loforð sín I lífeyrissjóðs-
málum, aflýstu sjómenn verkfallinu.
Ríkissáttasemjari og flestir
samningamanna sváfu í morgun,
þannig að ekki náðist í þá. Þó náðist í
Tómas Ólafsson í samninganefnd
sjómanna og sagði hann að sam-
komulagið byggðist á endurskoðun
samningsins og áfanga sem náðist í
lí feyrissjóðsmálum.
Svavar Gestsson félagsmála-
ráðherra sagði í morgun að ríkis-
stjórnin myndi beita sér fyrir
breytingum á lögum um almanna-
tryggingu og yrði lífeyrissjóðs-
trygging sjómanna lækkuð niður í 60
ár, eftir samfelld störf á sjó í 25 ár.
Þá yrðu breytingar á lífeyrissjóði
sjómanna, þannig að landvinna
sjómanna, t.d. við net, yrði gjald-
skyld til lifeyri ssjóðs sjómanna.
Svavar sagði að það sem um hefði
verið samið væri mál sjómanna og
útvegsmanna að undanskildum
breytingum á lögum um almanna-
tryggingar. Þær breytingar sem
gerðar verða eru mál sem fjallað
hefur verið um lengi,” sagði Svavar.
-JH.
■
Unnið við löndun í Reykjavíkurhöfn I gaer. Togararnir þrír, sem sjást á myndinni, Hjörleifur, Jón Baldvinsson og Bjarni Benediktsson fóru allir út I gær. -DB-m.vnd S.
Stereóútvarp um allt land í haust
,,Við vonum að með haustinu
vcrði komið stereóútvarp um allt
land. Það er verið að leita tilboða í
bunað til að flytja stereósendingarnar
norður og höfum við gefið sex
mánaða afgreiðslufrest. Ég á þvi von
á að ákvörðun verði tekin mjög fljót-
lega um frá hverjum búnaðurinn’
verði keyptur,” sagði Hörður,
Vilhjálmsson fjármálastjóri útvarps i
samtali við DB í morgun.
„Tilboð hefur komið frá Siemens
á sjónvarps ,,link” sem kostar 40
þúsund þýzk mörk. Talið er að
búnaðurinn muni kosta um eina
milljón íslenzkra króna og síðan
verði um 200 þúsund króna upp-
setningarkostnaður,” sagði Hörður.
„Notazt verður við flutningskerfi
sjónvarpsins á Vaðlaheiði sem sendir
álram til Gagnheiðar.”Ef að líkum
lætur ættu Norðlendingar og Aust-
firðingar að geta hlýtt á
stereósendingar útvarpsins í septem-
ber og verður þá stereó um alit land.
-ELA
íslendingurinn laus úr fangelsinu íKaupmannahöfn:
„FÓR BEIUR EN Á HORFÐIST’
— sagði sr. Jóhann Hlíðar — litið mjög alvarlegum augum
ef lögregla f starf i verður fyrir aðkasti
„íslenzki sjómaðurinn er laus
allra mála hér, það þarf aðeins að
koma honum heim, en útlendinga-
eftirlitið mun annast það. Hann
kemur því annaðhvort heim í dag eða
á morgun,” sagði Jóhann Hlíðar
prestur í Kaupmannahöfn.
„Pilturinn kom fyrir rétt i
fyrradag og hlaut að vísu nokkru
lengri dóm en þá 30 daga, sem hann
hafði setið inni, en þar sem ábyrgzt
var að hann fengi vinnu strax og
hann kæmi heim til íslands var
honum sleppt strax.
j DB í gær var greint frá því að
maðurinn hefði fengið 40 daga dóm,
en vonir stæðu til þess að hann yrði
styttur í 30 daga. Það var hins vegar á
misskilningi byggt að þessi dómur
bættist við fangelsisvist mannsins.
„Þetta fór betur en á horfðist,”
sagði sr. Jóhann. „Það er litið mjög
alvarlegum augum ef lögregla i starfi
verður fyrir aðkasti en að öðru leyti
var hér um smátt mál að ræða og
hefði ekki verið gert mikið veður út
af því ef lögregluþjónn hefði ekki átt
í hlut”. Eins og DB hefur greint frá,
henti Íslendingurinn flösku i andlit
lögreglumanns á veitingahúsi i
Kaupamannahöfn, þannig að lög-
reglumaðurinn hlaut sár af. Lög-
reglan hafði verið kölluð til vegna
óláta mannsins. Sjómaðurinn er 21
árs og frá Hafnarfirði að sögn sr.
Jóhanns.
„Piltinum hefur liðið vel í fang-
elsinu,” sagði sr. Jóhann. „Hann var
í Blegdams fangelsi, en þar voru 90
aðrir fangar. Ég heimsótti hann alla
virka daga meðan hann var þar, en á
laugardögum og sunnudögum má
ekki heimsækja fangana, svo skrítið
sem það er. Hann er hress og var
sæmilega ánægður með matinn í
fangelsinu. Þá gat hann horft á
sjónvarp þar.”
Að sögn sr. Jóhanns situr nú
enginn íslendingur í dönsku fangelsi.
-JH.
frjálst, áháð dagblað
FIMMTUDAGUR 26. FEB. 1981.
Hún er áhyggjulaus um fóstrudeiluna
þessi — enda varla nógu gömul til að
verkfall fóstra hafi áhrif á Iff hennar.
DB-mynd: Sig. Þorri.
Foreldrar
þrýstaá
bæjaryfirvöld
— íKópavogi um að
semja viðfóstrur
„Boltinn er hjá Starfsmannafélagi
Kópavogs, sem er að skoða málið. Ég
get ekkert sagt um hver framvindan
verður en tel þó ólíklegt að eitthvað
gerist i þessari viku,” sagði Jóhann H.
Jónsson formaður bæjarráðs í Kópa-
vogi í morgun. Hann ásamt öðrum
bæjarráðsmönnum, Bjarna Þór Jóns-
syni bæjarstjóra og bæjarritara voru á
fundi með foreldrum barna á dagvist-
um í Kópavogi í gær og skýrðu sjónar-
mið bæjaryfirvalda í deilunni við fóstr-
ur. Fóstrurnar komu einnig og skýrðu
sín sjónarmið en viku síðan af fundi
ásamt forystumönnum bæjarins.
Alls sóttu á annað hundrað jnanns
foreldrafundinn og var þar samþykkt
að skora á Starfsmannáfélag Kópa-
vogs að hraða viðræðum við bæjarráð
um lausn á kjaradeilunni við fóstrur.
Einnig kemur fram í ályktun frá fund-
inum áherzla sem foreldrar leggja á
mikilvægi fóstrustarfa. Nauðsynlegt sé
að laun fóstra séu í samræmi við þá
ábyrgð sem þær bera. „Fundurinn
telur hættu á að hæfir starfskraftar
veljist ekki framvegis til fóstrustarfa ef
starfið er ekki metið til launa að verð-
leikum,” segir í lok ályktunar foreldra.
í bígerð er að stofna foreldrafélag
barna á dagvistum Kópavogs. Þá er
hugur í foreldrum að mæta á bæjar-
stjórnarfund sem boðaður er í bænum
á morgun. Þar mun þó ekki á dagskrá
að ræða fóstrumálið, samkvæmt upp-
lýsingum DB i morgun. Dagvistir í
Kópavogi hafa verið lokaðar síðan á
mánudag vegna uppsagna fóstranna og
hvorki gengið né rekið í samningum
þeirra við bæjaryfirvöld. Ljóst er að
bærinn er í verri samningsaðstöðu nú
en áður eftir að Akureyrarbær ákvað
aðganga að kröfum fóstra þar í bæ.
-ARH.
Sof naði út
f rá logandi
vindlingi
íbúar fjölbýlishúss nr. 128 við
Kleppsveg kvöddu slökkvilið til er þeir
urðu varir við reykjarlykt í stigagangi
klukkan rúmlega hálfsex i gær. Kom
liðið fljótt á vettvang. í ljós kom að í
einni íbúðinni hafði maður sofnað i
rúmi sínu undir sæng, en ekki slökkt í
vindlingi áður en værðin féll yfir hann.
Eldur komst í sængina.
Maðurinn hrökk upp af værum
blundi en hafði ekki skaðazt af óhapp-
inu. Eldur komst í sængina en aðrar
skemmdir urðu mjög óverulegar. Fram
skal tekið að ekki var um áfengi að
ræða í þessu óhappi.
-A.St.