Dagblaðið - 21.05.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
Amerískur kvikmyndaíðnaður sem afþreyingarefni:
Þegar amerísk kókauglýsing
verður bíómynd og öfugt
— eins og allir vita er léleg af þreying
betri en engin afþreying
Sámur skrifar:
Það var út af grein sem kom i Dag-
blaðinu núna á föstudaginn, 15. maí.
Greinin var um afþreyingarefni ríkis-
útvarpsins og kvikmyndahúsa hér á
landi og bar höfundarnafnið
„Grandvar skrifar”.
Loksins, loksins, loksins! Það var
kominn timi til að við fengjum sér-
fræðilegt álit i þessu máli.
Já, Grandvar minn, eða má ég
kalla yður Granda? Þér kunnáttu-
maður sem sprautið yfír okkur for-
heimskaðan almúgann úr ótæmandi
brunni þekkingar. Hvar værum við
stödd á þessum krítísku tímum, þar
sem amerísk kókauglýsing verður
bíómynd og öfugt, ef við hefðum
ekki að leiðarljósi menn eins og yður,
sem af einstakri ósérhlífni deila
meðal fólks af kenningum sínum um
þróun og framgang kvikmynda-
gerðar á 20. öldinni, byggðum á hár-
nákvæmum mælingum á auglýsinga-
tíma sjónvarpsins?
Mikið flón hefur maður verið að
sjá ekki að eina raunhæfa mæli-
einingin yfir gæði sjónvarpsefnis sé
sá tími sem fer í auglýsingar áður en
ákveðið efni hefst og þá eru gæðin í
réttu hlutfalli við tímann eða t
sinnum kg (k er í þessu tilfelli ad-
vertisment konstant eða auglýsinga-
fasti).
Hvará
gamla
fólkið að
ganga
þegarbúið
er að leyfa
hjólreiðar
á gang-
stétt-
.?
Fullorðin kona hringdi:
Mig langar að koma á framfæri
þeirri spurningu til stjórnenda um-
ferðarmála hvar gamia fólkið eigi nú
að ganga þegar búið er að leyfa hjól-
reiðar á gangstéttum. Gamla fólkið á
margt hvert erfitt um gang og á því
erfitt um vik að víkja sér undan hjól-
reiðamönnum sem koma kannski
brunandi eftir gangstéttunum.
Ennfremur vil ég koma því á fram-
færi að lögbinding bílbelta ein sér
dregur ekki úr slysum. Það er ógæti-
legur akstur sem oftast veldur slysum
og ekki bjarga bílbeltin gangandi veg-
farandum frá slysum. Það á þvi að
vera sjálfdæmi hvort bílbelti séu
notuð en bæta þyrfti í staðinn um-
ferðarmenninguna.
GISLI SVAN
EINARSSON
Með hnitmiðuðum rökum og út-
skýringum hafið þér leitt gónverja i
allan sannleikann um það hvernig
fjármál kvikmyndaiðnaðarins eru í
beinu samhengi við góða og lélega
framleiðslu eða svo ég vitni í ritgerð-
ina yðar frá 1974, en þar segir orð-
rétt: „Much money good movie, no
money no movie”.
Eins og allir vita er léleg afþreying
betri en engin afþreying.
Ég er viss um það, Grandi minn,
að þér hafið opnað augu velflestra
fyrir þessu málefni. Þér voruð hnytt-
inn í orðavali, stíllinn blandaður
léttri gamansemi á köflum og kæru-
leysislegur andi sveif yfir málfarinu.
Já, Grandi minn, þetta er það sem
fólkið vill heyra og lesa nú á dögum,
staðreyndir númer eitt, tvö og þrjú.
Ég get meira að segja heyrt fólkið
hrópa nafnið yðar á götum úti.
Að lokum vil ég mælast til þess að
útvarpsráð splæsi á yður myndsegul-
bandstæki og öllum Dallas þáttunum
á myndsegulbandi, fyrir framlag yðar
til málstaðarins „Dallas þættina
heim”.
P.S. Vinsamlegast þýðið og stað-
færið yfir á íslenzku amerísku rop-
vatnsauglýsingarnar.
„Eins og aliir vita er léleg afþreying
betri en engin afþreying,” segir
Sámur og á þar sennilega m.a. við
Dallas þættina.
Karfavogur
2ja herb. íbúð í kjallara. Sérinngangur. Stórt eld-
hús. Dyr út í garðinn.
Nýbýlavegur
2ja herb. íbúö í 5 íbúða húsi. Innbyggður bilskúr.
Krummahólar
2ja herb. íbúð í lyftuhúsi með bílskýli. Mikil sam-
eign.
Hörðaland
2ja herb. sérlega rúmgóð og falleg íbúð á jarð-
hæð. Gengið út i sérgarð. Gluggi á eldhúsi.
Fellsmúli
2ja herb. íbúð sem snýr í suður á efstu hæð. Sér-
lega vel með farin ibúð, meö góðu fyrirkomulagi.
Útsýni.
Hamraborg
2ja herb. íbúð, sem snýr í suður á efstu hæð í
lyftuhúsi. Stórglæsilegt útsýni. Bilskýli.
Efstihjalli
2ja herb. nýleg íbúð i 3ja hæða húsi. Suðursvalir.
Kaplaskjólsvegur
2ja herb. íbúö á 1. hæð í sambýlishúsi. Suður-
svalir. Fallegíbúð.
Holtsgata
2ja herb. íbúö á jarðhæð. Gengið út í garðinn.
Snotur eign í góðu ástandi.
Vesturberg
3ja herb. ibúð á jaröhæð. íbúð í góðu ástandi.
Sérgarður.
ÁHtamýri
3ja herb. mjög rúmgóð íbúð á jarðhæð. Rólegur
staður. Nýtt gler. Skipti á 4ra herb. ibúð í Selja-
hverfi.
Seltjarnarnes
3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjórbýlishúsi. íbúðin er
tilbúin undir tréverk og málningu og til afhend-
ingarstrax. Gott fyrirkomulag.
Engjasel
3ja herb. mjög stór ibúö, ca 96 m2 á 1. hæð. Suð-
ursvalir. FuIIfrágengin sameign og bílskýli. Laus
1/8. Aðeins 6 ibúöir i stigahúsinu.
Lyngmóar
3ja herb. ibúö með bilskúr. Nýlegt hús á góöum
stað. Losun eftir samkomulagi.
Furugrund
3ja herb. rúmgóð og falleg ibúð í 3. hæða sam-
býlishúsi. Suðursvalir. Herb. í kjallara.
KJÖREIGN SF.
SIMAR
85988 85009
Leirubakki
3ja herb. íbúð á 2. hæö. Sérþvottahús inn af eld-
húsi. Herb. i kjallara. Góð íbúð á frábærum stað.
Suðursvalir.
Fellsmúli
3ja herb. vönduð ibúð á 2. hæö. Nýleg teppi.
Sameign i góðu ástandi. Þægilegur staður.
Hóaleitisbraut
4ra til 5 herb. íbúð á jarðhæð, ca 120 m\ Nýtt
eldhús. Flísalagt bað með glugga. íbúðin er í mjög
góðu ástandi. Björt ibúð. Bilskúrsréttur.
Efstasund
4ra herb. ibúð á jarðhæð. Sérinngangur. Stór lóð.
Rólegur staður.
H verfisgata —
Hafnarfjörður
Efri hæð í tvibýlishúsi, talsvert endurnýjuð.
Stærð ca 80 ferm. Bilskúr. Verö aðeins 340 þús.
Miklabraut
Rúmgóð 4ra herb. íbúð á efstu hæð (rishæð).
íbúðin er í góðu ástandi. Nýtt gler og þak.
ÁHhaimar
4ra-5 herb. íbúð á efstu hæð í sambýlishúsi. Eftir-
sóttur staður.
(rabakki
4ra herb. snotur íbúð á 2. hæð. Tvennar svalir.
Sérþvottahús. Hagstætt verð.
Kleppsvegur
4ra herb. íbúð i góðu ástandi. Ekkcrt áhvílandi.
Laus. Nýtt gler.
Saljabraut
4ra herb. íbúð tilbúin undir tréverk. Frágengið
bílskýli, rafmagn frágengiö, grunnmálað til af-
hendingar strax.
Laufvangur
Sérstaklega rúmgóð 4ra til 5 herb. íbúð á efstu
hæð. Stórar suðursvalir. Sérstaklega rúmgott eld-
hús og þvottahús inn af því. Mikið af skápum.
Góð eign.
Þrastarhólar
5 herb. íbúð á efstu hæð í 5 íbúða húsi. 4 svefn-
herb. Sér þvottahús. Stórt baðherb. Gluggar í
þrjár áttir. Tvennar svalir. Sérlega gott fyrir-
komulag á íbúðinni, bílskúr.
Hverfisgata
4ra herb. íbúð í góðu ástandi á efstu hæö í stein-
húsi. Góð eign á viðráðanlegu verði.
ÁKheimar
Rúmgóð íbúð á efstu hæö í sambýlishúsi. íbúðin
er um 120 fm í góðu ástandi.
Kinnar
Sérhæð, um 95 fm. með sérinngangi og sérhita 'r
tvíbýlishúsi. Stór bílskúr.
Dúfnahólar
5 til 6 herb. íbúð á 1. hæð í 3ja hæða húsi. Stærð
um 146 fm. Innbyggður stór bilskúr á jarðhæð.
Skipti á minni eign möguleg.
Grettisgata
Hæð og ris í járnklæddu húsi. Stærð um 150
ferm. Svalir. Mikið endurnýjað. Laust.
Raðhús
Seljahverfi
Höfum vönduð raðhús í Seljahverfi. Möguleikar
á tveimur íbúðum. Vel staðsettar eignir.
Laugalœkur
Raðhús í góðu ástandi, á miðhæö, stofur, eldhús
og snyrting. Á efri hæð 3 rúmgóð herb. og bað-
herb., i kjallara 2 góð íbúöarherb., þvottahús og
geymslur. Vel byggt hús.
Mosfellssveit
Einbýlishús, ekki fullbúiö en vel íbúöarhæft. Bein
sala eðá skipti á minni eign.
Nýlendugata
Eldra steinhús aö nokkru leyti endurnýjaö. Hægt
að lyfta þakinu. ódýr eign.
Skeiðarvogur
Raöhús á þremur hæðum. Vel umgengið hús i ró-
legu hverfi. Ákveðið í sölu. Skipti á minni eign
möguleg.
Barónsstfgur
Einbýlishús á góðum staö. Steinhús á þremur
hæðum. Bilskúr. Eignin er geysilega mikið endur-
nýjuð og í sérstaklega góðu ástandi. Möguleikar á
tveimur íbúðum eða íbúð með góðri vinnuað-
stöðu á 1. hæð. Möguleikar að taka minni íbúö
uppi kaupverð.
Ásbúfl
Raðhús á 2 hæðum. Glæsileg eign ekki fullfrá-
gengin, gott fyrirkomulag, tvöfaldur bílskúr 50
fm.
Sumarbústaflur
Einstaklega vandaður sumarbústaður, ca 45 ml
að stæró. Bústaðurinn er fullbúinn og er staðsett-
ur við Hraunborgir. Ljósmyndir og teiknlngar á
skrifstofunni.
Kjöreignf «5988 95009
Ármúli 21, Reykjavík
Dan V. S. Wiium lögfr. — Ólafur Guðmundsson sölum.
Spurning
dagsins
Ræktar
þú kartöflur?
Erna Særún Vilmundardóttir hús-
móðir: Já, það geri ég, þannig fæ ég
miklu betri kartöflur en hægt er að fá í
búðum.
Eyrún Jóhannsdóttir húsmóðir: Já,
það geri ég, bæði vegna ánægjunnar og
hreyfingarinnar. Svo hittist fjölskyldan
öll í kartöflugarðinum.
Hlöðser Bergmundsson kennari: Nei,
vantarahugaáþví.
Sæmundur Skarphéðinsson, vinnur við
netagerð: Nei, ég hef ekki aðstöðu til
þess en vildi gjarnan ef aðstæður væru
fyrir hendi.
iMmm)
WÞC 4
Skarphéðinn Jónsson, vinnur við neta-
gerö: Já, það hef ég alltaf gert. Hollur
er heimafenginn baggi.
Skúli Sveinsson sölumaður: Nei, það
geri ég ekki, vantar aðstöðu.