Dagblaðið - 21.05.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1981.
DB á ne ytendamarkaði
Verðlaunaf jölskylda janúarmánaðar:
„FÖLK EYÐIR MEIRA EFT-
IR MYNTBREYTMGUNA”
Fyrsta agúrkuveizla sumarsins haf in:
Þriðjungs verðlækkun hjá Sölufélaginu
Það gefur manni visst aðhald í pen-
ingamálum aö standa í einhverjum
framkvæmdum. Annars skilur
maður oft ekki í hvaö allir pening-
arnirhafafarið.
Annað er áríöandi núna, það er að
halda bókhald eftir að nýja krónan
kom til sögunnar. Mér finnst, og
öllum sem ég tala við, að fólk eyöi
mun meiru en það gerði fyrir breyt-
inguna. Ég vinn í búð hálfan daginn
og fólk kaupir ótrúlega margt núna
sem það gerði ekki áður. Það hikar
ekki við að senda börnin sín með 100
krónur í barnaafmæli þó það hefði
líklega ekki hvarflað að því að senda
það með 10 þúsund gamlar krónur.
. Þaö er líka sálrænt aö þegar fólk
talar um stórar upphæðir talar það
enn í gömlum krónum. Finnst hitt
líklega ekkert vera.”
Mikill verðmunur
milli verzlana
Anna var spurð aö þvi hvernig hún
hagaði sínum innkaupum.
,,Ég reyni að fara í Hagkaup að
minnsta kosti einu sinni til tvisvar í
mánuði. Áður en ég fór að vinna úti
fórum við yfirleitt einu sinni i yiku, á
föstudögum. En núna vinn ég sjálf til
sjö á föstudögum og er jafnvel ekki
komin heim fyrr en hálfátta. Og þá
nenni ég ekki af stað aftur. Ég reyni
heldur að fara á morgnana. Þá er líka
minna að gera og allt miklu rólegra.
Þess á milli verzla ég í búðunum
hérna í kring. Þar er notalegur andi
og ég þekki fólkið. En það munar
ekkert smávegis á verði. Ég tók eftir
þvi t.d. um daginn að það munar
heilum tveim krónum á einu einasta
sykurkilói. Það munar um minna
þegar þetta safnast saman.
Nú, á haustin tek ég alltaf slátur og
reyni að kaupa kjöt í heilum
skrokkum. Hænur og kjúklinga
kaupi ég i stórum stil beint frá búun-
um og annaö eftir þessu,” segir
Anna.
Hún þakkar mér fyrir timbrið og
segir brosandi að það sé góð fjárfest-
ing þvi hægt sé að selja notað móta-
timbur fyrir svipað verð og nýtt. Við
kveöjumst með virktum.
- DS
Nú stendur yfir fyrsta „agúrku-
veizlan” þeirra í Sölufélagi garö-
yrkjumanna. Verð á agúrkum hefur
nú lækkaö um þriðjung. Fyrsti flokk-
ur kostar 18 kr. i heildsölu og annar
flokkur 12 kr. Það þýðir útsöluverð
upp á um 25 kr. á I. fl. og um 16,50 á
II. fl. í sýröar gúrkur er vel hægt að
nota annan flokk. Hann er yfirleitt
ekkert frábrugöinn fyrsta flokki
nema aöeins i útlitinu. — Vel má vera '
að enn frekari verðlækkun verði
þegar lengra líður á sumarið, svona
upp á sultugerð. En okkur finnst var-
legt að treysta nokkru um verðlækk-
anir og vissara að nota tækifærið og
kaupanúna.
Eitt fyrsta boðorð þeirra serrt ætla
aö sulta eða súrsa er aö allir hlutir
sem unnið er með veröa að vera
tandurhreinir, bæði glös, skálar og
balar og öll áhöldin. Engir sýklar
mega komast í framleiðsluna, annars
skemmist allt. Uppskriftir að sýrðum
gúrkum eru svipaðar en eiga þaö
sameiginlegt aö vera góðar og punta
svo sannarlega upp á matargerðina
okkar.
—
Eitthvað það einfaldasta sem hægt
er aö hugsa sér i salatgerð er gamal-
dags agúrkusalat. Þá er agúrkan
sneidd mjög þunnt, hægt aö gera þaö
með ostahníf, salti og hvítum pipar
stráð yfir og örlitlum sykri og sföan
ediksblöndu hellt yfir. Þeta er senni-
lega elzta og frumstæðasta gerð af
síðari tíma grænmetissalötum. —
Svona salat var boriö fram í afdala-
sveitum meö sunnudagssteikinni þótt
menn heföu aldrei heyrt getið um
annað grænmeti en kartöflur, rófur
og rabarabara. Og í næstu skál var
kakkþykkt jarðarberjasultutau, með
jarðarbeijum sem vom eins og grjót-
hnullungar!
Þrátt fyrir þetta fmnst mér svona
agúrkusalat reglulega gott. Það er líka
hentugt aö þvi leytinu að hægt er að
fínsneiða agúrkurnar og frysta þær f
litlum plastpokum. Þá eru þær
aðeins þiddar í edikslegjnum.
Asíusultaöar agúrkur
Við birtum hér uppskriftina að
asíusultuðum agúrkunum, jafnvel
þótt við höfum birt hana nokkrum
Agúrkur hafa undanfarið verið scldar á lækkuðu verði.
sinnum áður. En þaö em alltaf nýir
að bætast i hóp þeirra sem prófa upp-
skriftirnar og ekki víst að menn læri
þær utan að þótt þær séu notaðar
einu sinni eða tvisvar.
15 meðalstórar agúrkur (má gjarna
veraannarfl.)
1 lftri edlk
1/21 vatn
5 meðalstórlr laukar
1 pakki asiukrydd (má gjarnan vera
melra)
DB-mynd Ari.
750 gr sykur
1 hnefi gróft salt
Gúrkurnar eru flysjaðar, skornar í
bita sem eru síðan „klofnir” I þrennt
eða fernt, saltinu stráð yfir og þetta
látið liggja yfir nótt. Þá er lögurinn
útbúinn, laukarnir flysjaðir og
skornir I sneiðar (eöa báta eftir þvi
sem hver vill) og gúrkubitar og
laukur látið i stóra skál eða vaskafat
(fæstir eiga nægilega stóra skál).
Leginum er síðan hellt yfir. Þetta er
geymt á köldum stað i sjö sólarhringa
og hrært í svona einu sinni á dag með
trésleif (mjög áríðandi).
Þá er allt látið í pott, hitað upp að
suöumarki (en má ekki sjóða), látið á
tandurhrein glös sem er lokað strax.
Ef vill má láta rotvarnarefni út í sam-
kvæmt leiðarvísi sem því fylgir.
Þetta er nokkuð stór skammtur en
heldur sér í sæmilegri geymslu í allt
aðár.
Kryddagúrkur
1 kg agúrkur
1/41 edik
2 negulnaglar
500 g sykur
T stk. kanlll
Agúrkurnar eru flysjaðar og
skornar í hæfilega bita. Lögurinn er
útbúinn og hitaður að suðu, en ekki
látinn sjóða, þá hellt yfir agúrkubit-
ana og síðan látiö á tandurhrein glös
og þeim lokað.
Ef lesendur luma á einhverjum
sniðugum uppskriftum væri gaman
að heyra frá þeim. - A.Bj.
—segir ung Reykjavíkurhúsmóðir
„Ég hef aldrei unnið í happdrætti
:ða neinu slíku. Það eina sem ég hef
unnið I er útdrátturinn hjá ykkur og
það tvisvar frekar en einu sinni,”
sagði verðlaunahafi janúarmánaðar,
Anna Jensen. Anna hlaut vinning
Neytendasíðunnar fyrir febrúar-
mánuð 1979 og aftur núna.
„í hittifyrra átti einmitt að fara að
ferma hjá mér. Ég fékk matarúttekt
fyrir tæpar 90 þúsund krónur og það
bjargaði okkur algjörlega,” sagði
Anna.
Vinningurinn núna var að upphæð
1700krónurog valdi Anna sér timbur
I nýja húsið sitt fyrir þá peninga. Hún
og maður hennar, Sigmundur
Tómasson, ætla að fara að byggja sér
raðhús vestur á Eiðsgranda og voru
að byrja að kaupa sér timbur er vinn-
ingurinn barst. Uppistöðuefni
vantaði tilfinnanlega og ákváðu
hjónin að kaupa hluta af þvi fyrir
vinninginn. Húsasmiðjan varð fyrir
valinu sem söluaðili. Reyndar eru
1700 krónur engin ósköp upp I
timbrið því það verða nokkrir tugir
þúsunda í viðbót sem það kemur til
með að kosta.
Viöbrigöi að fara
úr Breiðholtinu
Anna og Sigmundur búa núna í
Bakkahverfinu I Breiðholti. Þau eiga
þrjú börn, Ólaf 15 ára, Margréti 12
ára og Tómas Jón 4 ára. Ibúöin er
orðin of lítil og varð að stækka. „Ég
held aö það verði mikil viðbrigði aö
fara héðan. Bakkahverfiö er einna
bezt skipulagða hverfið í bænum.
Eldri sonur minn hefur til dæmis
verið hér allan sinn skólaaldur og
hefur aldrei þurft aö fara yfir götu til
þess að komast í skóla. Stutt er I
búðir og fyrir mig í vinnuna. En
maðurinn minn vinnur vestur á
Granda þannig aö þetta er óraleið
fyrir hann og mikill kostnaður við
benslnkaup,” sagði Anna.
Þau hjónin höföu nokkrum
sinnum sótt um lóð áöur en ekki
fengið fyrr en núna. Þau bjuggu til
að byrja með i Hafnarfirði en fluttu
fyrir nokkrum árum í Breiðholtið.
Bæði eru Reykvlkingar aö ætt og
uppruna.
Verðlaunafjölskylda janúarmánaðar, Anna, Tómas og Sigmundur, við háan timburhlaða I porti Húsasmiðjunnar. „Timbur
er góð Ijárfesting,” sögðu þau. DB-mynd Einar Ólason.
Nýja krónan blekkir
„Mér finnst alveg nauðsynlegt að
halda bókhald. Ég vil vita hvað ég
eyði miklu, til dæmis I mat,” sagöi
Anna þegar hún var spurð um
heimilisbókhaldið. Hún hefur sent
inn seðla i hverjum einasta mánuði
frá þvi í febrúar 1979. Þá barst fyrsti
seðillinn hennar, sá sem hún fékk
verðlaunin út á.
„Liðinn annaö hef ég verið
hálfónýt við þó ég sé alltaf að reyna
um hver mánaðamót að koma
honum 1 gott horf. En mér finnst I
rauninni ekki hægt að flokka þaö
saman sem ég gef krökkunum af pen-
ingum og það sem ég fer með í að
borga reikninga. En núna, þegar við
erum að fara að byggja, verður nauö-
synlegt aö skrá allt húsinu viðkom-
andi og þá kemur hitt líklega llka.