Dagblaðið - 21.05.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1981.
5
Niðurstaða sérfæðinga Haf rannsóknastof nunar:
SÁRALÍTIL SÓKNARMINNKUN
í ÞORSKINN1980ÞRÁTT
FYRIR LENGRA VEIÐIBANN
— leggja til 400 þús. tonna þorskveiðikvóta í ár og
samdrátt í ýsu- og sfldveiðum
Fjölgun þorskveiðibannsdaga á sl.
ári skilaði ekki umtalsverðri sóknar-
minnkun í þorskinn. Þorskafli togara
óx meira en sem nam aukningu
þorskafla á sóknareiningu. Að
minnsta kosti 5 nýir togarar bættust 1
flotann árið 1980 þannig að sáralítið
dró úr sókninni þrátt fyrir lengra
þorskveiðibann.
Þetta kemur fram í nýútkominni
skýrslu Hafrannsóknastofnunar um
„ástand nytjastofna á íslandsmiðum
og aflahorfur 1981”.
Fiskifræðingar leggja til að
hámarksþorskveiðiaflinn við ísland í
ár verði 400 þús. tonn. Með þeirri
nýtingu næstu árin náist hámarksaf-
rakstur úr þorskstofninum um
miðjan næsta áratug. Verði ársaflinn
hins vegar 450 þús. tonn næst
hámarksafrakstur aldrei. Áætluð
stærð hrygningarstofns þorsks
(fiskur sem er 7 ára og eldri) er 275
þús. tonn um þessar mundir. Séu
veidd árlega 400 þús. tonn af þorski
kemst hrygningarstofninn i 613 þús.
tonn árið 1986. Séu árlegar veiðar
450 þús. tonn verður hrygningar-
stofninn hins vegar aðeins 342 þús.
tonn árið 1986.
Lagt er til að ýsuafli í ár fari ekki
upp fyrir 50 þús. tonn. í fyrra lagði
Hafrannsóknastofnun til 60 þús.
tonna hámarksafla á ýsuveiðum. Nú
er orðið ljóst að þar var byggt á of-
metinni stærð árgangs frá 1976. Þvi
Vestmannaeyjabátur kemur að landi með góðan farm af þorski: Hafrannsókna-
stofnun telur ófært að leyfa meiri þorskveiðar I ár en sem nemur 400 þús. tonnum.
er nú lagt til að kvótinn sé 50 þús.
tonn.
Ufsaaflinn í fyrra var 57 þús. tonn.
Þá var lagt til að veidd yrðu í hæsta
lagi 60 þús. tonn. Fiskifræðingar
telja óhætt að hafa kvótann í ár aftur
60þús. tonn.
Varðandi slldveiðarnar er lagt til
að hámarksafli lækki í 40 þús. tonn í
ár, úr 45 þús. tonna kvóta I fyrra.
Ástæðan er sú að hrygningarstofn
sumargotsslldar mun minnka árið
1981 miðað við 1980. Árgangurinn
frá 1975 var ofmetinn, árgangurinn
frá 1976 er mjög lélegur og árgangur-
inn frá 1977 er hægvaxta og kemur
seinna i gagnið en venja er.
- ARH
Franski
hanskinn "
til húðfegrunar
Stöðug notkun hanskans í baði og ákveðni um holl-.
ari lífshætti og matarvenjurfesta heillavænleg áhrif
af notkun hans í sessi.
„Franski hanskinn" er góð hjálp til lausnar á
leiðum vanda.
14 daga skilafrestur
Efþú ert ekki 100% ánœgð með franska hanskann
eftir 14 daga notkun er þér frjálst að endursenda
hann og við endurgreiðum þér andvirði hanskans
umyrðalaust.
Blaðið „Líkamsrœkt
og næring'fylgir
hverjum hanska. í
blaðinu eru m.a.
greinar um baráttuna
gegn cellulite-hnútum
og hollt matarœði.
Sendið mér □ stk. „franska hanskann” kr. 87.- + póstkostn.
Nafn .......
Heimilisfang
Pöntunarsími 44440
Póstverslunin
Heimaval Box 39 Kópavogi
Strigamokkasínur
Litír: Hvítt
Bleikt
Svart
Nr. 35-41
ÓDÝRI SKÓVERSLUN siM|
SKÓKJALLARINN HELGA 71556
Barónsstíg 18 - Simi 23566 Feilagöróum - Breióholti
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
Aðalfundur deildar 4
verður haldinn í Gaflinum Hafnarfirði v/Reykja-
nesbraut laugardaginn 30.5 kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf, skírteini sýnist við
innganginn. Innheimtustjóri verður á staðnum.
Deild 4 - Stjórnin.