Dagblaðið - 21.05.1981, Page 6
Schmidt vill
f lýta viðræð-
umstórveld-
anna tveggja
Helmut Schmidt, kanslari Vestur-
Þýzkalands, kom í opinbera heimsókn
til Washington í gær. Hann átti strax
viðræður við Alexander Haig utanrík-
isráðherra og er talið að hann hafi á
fundinum látið í ljós þá ósk V-Þjóð-
verja að viðræðum Bandaríkjanna og
Sovétrikjanna um takmörkun vfgbún
aðar verði flýtt.
Grimuklæddir IRA menn bera félaga sinn til grafar. Þrír IRA menn hafa nú látið Iffið af völdum mótmælasveltis og sá fjórði er að dauða kominn.
Júgóslavfa:
Fimm Albanir
fangelsaðir
Fimm Albanir hafa verið fangelsaðir
í Júgóslavíu. Er þeim gefið að sök að
hafa stofnað ólögleg samtök í landinu
sem hafi á stefnuskrá sinni að beita sér
fyrir aðgerðum fjandsamlegum stjórn
landsins og að ógna landamærum
Júgóslavíu.
Þriðji IRA-maðurinn látinn í Maze af völdum mótmælasveltis:
Þessu heldur áfram
þar til Bretamir
aóhafast eitthvað”
— Raymond McCreesh, 24 ára, lézt í nótt eftir að hafa svelt sig í 61 dag
RaymondMcCreesh, 24 ára gamall
félagi ( írska lýðveldishernum IRA,
lézt i nótt eftir 61 dags mótmæla-
svelti. Hann er þriðji IRA-maðurinn í
Maze-fangelsinu á Norður-írlandi
sem lætur lífíð á þennan hátt. Fjórði
IRA-maðurinn er einnig mjög hætt
kominn enda hefur hann svelt sig
jafnlengi og McCreesh. Ekkert lát
virðist vera á þessum aðgerðum IRA-
manna og hafa þeir lýst því yfir að
fjórir menn munu stöðugt vera í mót-
mælasvelti þar til brezka stjórnin
hefur gengið að kröfum þeirra um að
þeir verði meðhöndlaðir sem póli-
tískir fangar.
Áður en tvær klukkustundir voru
liðnar frá dauða McCreesh í nótt lýsti
talsmaður Sinn Fein, hins pólitíska
arms IRA, því yfir að nær víst væri
að einhver mundi taka við af
McCreesh i mótmælasveltinu, eins og
átti sér stað eftir dauða þeirra Bobby
Sands og Francis Hughes.
Talsmaðurinn sagði: „Það virðist
sem þessu muni halda áfram þar til
Bretarnir aðhafast eitthvað.” Brezka
stjórnin hefur hins vegar margsinnis
lýst því yfir að fangarnir séu glæpa-
menn og ekki komi til greina að veita
þeim réttindi pólitískra fanga.
Lögregla og öryggisvarðlið voru
með sérstakan viðbúnað í Belfast þar
sem óttazt var að kæmi til óeirða eins
og átti sér stað eftir dauða þeirra
Sands og Hughes. írskir lýðveldis-
sinnar líta á fangana sem eru í mót-
mælasvelti sem þjóðhetjur og er út-
för þeirra gerð I samræmi við það.
Síðastliðinn þriðjudag létu fímm
brezkir hermann lífið á Norður-ír-
landi er bifreið þeirra var sprengd í
loft upp skammt frá heimili
McCreesh. IRA hefur lýst því yfir að
sprengingin hafi verið hefnd fyrir það
að brezka stjórnin skuli ekki hafa
gengið að kröfum fanganna. Sagði í
tilkynningu IRA, að margar slíkar
sprengingar mundu koma í kjölfarið.
í síðustu viku sagði brezka stjórnin
að McCreesh hefði beðið um mat en
snúizt hugur á síðustu stundu. Sinn
Fein og fjölskylda hans hafa neitað
þessu.
McCreesh var dæmdur í fjórtán
ára fangelsi í marz 1977 fyrir morðtil-
ræði við brezkan hermann, fyrir að
bera skotvopn og fyrir að vera félagi í
IRA. í átján mánuði var hann í klefa
með Francis Hughes, sem lét líflð í
siðustu viku.
Silvia komin
á f rímerki
Svíar eru ákaflega stoltir af drottn-
ingunni sinni, henni Silviu. Eru þeir á
einu máli um að Karl Gústaf hafi valið
vel þegar hann valdi Silviu sem lífsföru-
naut sinn. Nú hafa Svíar heiðrað
drottninguna ungu með þvi að setja
mynd hennar á frímerki, að verðgildi
1,75 sænskra króna. Það var hirðljós-
myndarinn Claés Lewenhaupt sem tók
myndina sem prýðir frímerkið.
Uppgjafaforsetar
hrifnirafKína
Kína virðist heilla fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna mjög. Gerald Ford sótti
Kínverja heim fyrir nokkrum vikum og
nú eru þeir Richard Nbton og Jimmy
Carter með svipuð áform á prjónun-
um. Nixon mun halda til Beijing í
febrúar á næsta ári til að minnast þess
að tíu ár eru þá liðin frá hinni sögulegu
heimsókn hans sem forseta Bandaríkj-
anna til Kína, sem varð upphafið að
nýjum samskiptum þjóðanna. Þetta
verður þriðja ferð Nixons til Kina frá
því hann lét af embætti og alveg eins og
I ferðum hans 1976 og 1979 verður
hann þar í boði Kínverska alþýðulýö-
veldisins. Sömu sðgu er að segja af
Carter og varaforsetanum hans Walter
Mondale en þeir ráðgera hvor í sinu
lagi Kínaferð einhvern tima á þessu ári.
Jlmmy Carter, fyrium Bandarikjafor-
seti, hyggur á Kínaferð elnhvern tima
siðar á árinu.
VINIMUEFTIRLIT RÍKISIIMS __________________________
Síðumúla 13, 105 Reykjavík, Sími 82970
Auglýsing um gildistöku nýrra lagaákvæða
um vinnu
barna og unglinga
Þann 1. janúar s.l. tóku gildi ný lög nr. 46/1980 um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Samkvæmt 10. kaf la þessara laga má ekki ráða börn (þ.e. einstakl-
inga yngri en 14 ára) til erfiðra og hættulegra starfa. Til slíkra
starfa teljast t.d.: Uppskipun, vinna við hættulegar kringumstæð-
ur eða vélar sem valdið geta slysi, meðferð hættulegra efna eða
þau störf er hafa í för með sér slíkt andlegt og/eða Ifkamlegt álag
að hamlað geti vexti þeirra og þroska.
Unglingar, 14 og 15 ára, mega ekki vinna lengur en 10 klst. á dag og
skal vinnutíminn vera samfelldur.
Þeir, sem eru 16 og 17 ára, skulu hafa minnst 12 tíma hvíld á sólar-
hring, og skal hvíldartíminn að jafnaði vera á tímabilinu milli kl.
19 og 7.
Vinnueftirlit ríkisins getur veitt heimild til þess að vinnutími
unglinga, 16 og 17 ára, fari fram á venjulegum vinnutíma fullórð-
inna í viðkomandi starfsgrein þegar aðstæður gera slíkt nauðsyn-
legt.
Reykjavík, 18. maí 1981 _
Geymið auglýsinguna og festið upp á vinnustöðum
Afrískir
siðir
íkirkjum
Tveir afrfskir prestar, sem
starfa á vegum ensku- og
frönskumælandi safnaða í
Afriku, hafa borið fram kröfu
um að afrískir siðir verði teknir
upp í guðsþjónustum. Ef kröfur
þeirra ná fram að ganga, mun
verða um afdrifaríkar breytingar
að ræða á því guðsþjónustuformi
sem þróazt hefur innan evrópsku
kirkjunnar.
Aðrir eru þeirrar skoðunar að
fella eigi afrfska siði inn í hefð-
bundið guðsþjónustuform og
gera þannig helgihaldið aðgengi-
legra fyrir Afrikubúa. M.a. eigi
að nota þjóðleg afrisk hljóðfæri
og afrískan klæðnað við guðs-
þjónustur.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
REUTER