Dagblaðið - 21.05.1981, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1981.
1
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Francois Mitterand þykir líkiegur til að veita rádherrum sínum meira sjálfstædi I
starfi en Giscard d’Estaing, fyrirrennari hans, sem þótti talsvert einráóur.
Mitterrand tekur
við embætti í dag
Francois Mitterrand tekur í dag viö
embætti Frakklandsforseta og verður
þar með 21. forseti Frakklands. Talið
er að hans fyrsta og þýöingarmesta
verk að lokinni innsetningarathöfn-
inni verði að velja nýjan forsætisráð-
herra.
Liklegast þykir að Pierre Mauroy,
borgarstjóri í Lille, verði fyrir valinu.
Talið er að Mauroy geti höfðað
til franskra kaupsýslumanna, sem
yfirleitt virðast hafa tekið kjöri Mitt-
errands illa og óttast afleiöingar þess.
Mitterrand er fyrsti forseti fimmta
lýðveldisins sem stendur frammi fyrir
þingi sem er honum að meirihluta til
andsnúið. Hann hefur þegar lýst því
yfir að hann muni boöa til almennra
þingkosninga um miðjan júni og
freista þess að vinna þingmeirihluta
fyrir stefnu sinni. Hún felur i sér
mjög veigamiklar breytingar í efna-
hags- og þjóðfélagsmálum frá stefnu
Giscard D’Estaing.
Al-Assad Sýriands-
forseti hafnar sátta-
tillögu Bandaríkjanna
Hafez Al-Assad Sýrlandsforseti
hefur hafnað sáttatillögu Bandaríkja-
manna í eldfiaugadeilu Sýrlendinga og
ísraelsmanna. Al-Assad hefur hins veg-
ar lýst því yfir að hann sé fylgjandi því
að Philip Habib, sendimaður Banda-
ríkjastjómar, haldi áfram sáttatilraun-
um sínum.
' „Fram að þessu hafa ekki komið
fram ákveðnar tillögur, aðeins kröfur
ísraelsmanna sem eru utan við allar
hefðir og rök,” sagði Al-Assad. Þessi
ummæli AI-Assads hafa dregið mjög úr
vonum manna um að Habib takist að
koma á sáttum. Al-Assad segir að eld-
flaugarnar í Líbanon hafi Sýrlendingar
sett upp til varnar árásum Israelsmanna
og þær ógni ekki öryggi ísraels.
Menachem Begin, forsætisráðherra
Israels, segir orð Al-Assad um tillögur
Habibs ósönn og öfgafull og „þau
auka okkur ekki bjartsýni á að frið-
samleg lausn sé á næsta leiti’ ’.
Hús Sutcllffe-hjónanna I Bradford.
Litlu munaði að hús Yorkshire-
morðingjans, Peters Sutcliffe, brynni
til grunna er eldur var borinn að því
fyrir skömmu.
Það vildi til að nágrannarnir heyrðu
brothljóð og gátu gert slökkviliðinu
viðvart áður en eldurinn hafði breiðzt
mjög út.
Tjónið var engu að siður metið á
1.000 pund. Sonja Sutcliffe, eiginkona
Peters, var í London til að fylgjast með
réttarhöldunum yfir manni sínun
þegar kveikt var í húsinu snemmi
morguns, áður en fólk var komið i
stjá.
Nágrannar Sutcliffes-hjónanna
Bradford kvarta undan því að enginr
friður sé fyrir forvitnu fólki sem kom
til að skoða húsið sem Yorkshire
morðinginn bjó í, maðurinn sem myrt
þrettán konur á fimm árum og reynd
að myrða sjö í viðbót.
Eldur borinn
að húsi Sut-
cliffehjóna
„Kæri morðingi!”
— Hættu að myrða lítil börn
— Opið bréf f rá tíu ára dreng til Atlanta-morðingjans
„Kæri morðingi!” Þannig hefst
bréf tíu ára gamals blökkudrengs i
Atlanta í Bandaríkjunum. Bréfið er
stílað á Adanta-morðingjann svo-
nefnda sem talið er að hafi banaö 27
svörtum börnum og ungmennum á
síðustu 22 mánuðum.
„Það er ekki vont að vera barn en
ég vil fá möguleika til að vaxa upp.
Hættu að ofsækja okkur svo við
verðum ekki hrædd við aö leika
okkurúti.
Mér þykir það leiðinlegt ef ein-
hver hefur verið vondur við þig
þegar þú varst lítill. En ef þér þykir
gaman að því að myrða börn þá ertu
kannski sjúkur eða eitthvað annað og
það er til fólk sem getur hjálpað þér.
Ég skrifa ekki undir þetta bréf og
ég fæ mömmu til að póstleggja það
fyrir mig langt í burtu frá heimili
mínu svo þú skaðir mig ekki eða vini
mína.
Ég vona að þú lesir þetta og hættir
að drepa lítilbörn.”
Bréf þetta þykir dæmigert fyrir þá
skelfingu sem ríkir meðal barna i At-
lanta sem ekki þora að leika sér úti af
ótta við að „maðurinn”, eins og
hann er kallaður í daglegu tali, ráðist
á þau.
Morðin í Atlanta I Bandaríkjunum hafa valdið mikilli skelfingu ibúanna. 27 blökk
börn og ungmenni hafa verið myrt á innan við tveimur árum.
PÓSTSENDUM
Skóverz/un
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöi/ — Sími 14181
Laugavegi 95— Sími 13570
1111