Dagblaðið - 21.05.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Nýjasta nýtt í orkusparnaðarmálum: ( irtolux Ijósaperan.
Dýrðarljómi
okkar tíma
Að
fleygja
aurunum
— eða hvað?
Flest getur fólki dottið í
hug. Á þessum síðustu og
verstu tímum, þegar allir
eru í mestu peningavand-
ræðum — alla vega á
skattaskýrslum — þá eru
til menn sem lima peninga
á bílana sina.
Bernard Evans, 27 ára
gamall framkvæmdastjóri
i Buckinghamshire á Eng-
landi, hefur þakið Míníinn
sinn 8.000 smápeningum.
Ekki þótti honum það
samt nóg, svo hann fékk
Rolls-Royce fyrirtækið til
þess að hanna bílinn upp
að innanverðu.
Nú er sennilega ekki
hægt að gera meira fyrir
einn lítinn Míní enda er
Bernard að hugsa um að
selja fyrirbærið; telur sig
jafnvel munu stórgræða.
Bernard Evans þaktl Mínílnn sinn
smápeningum og lét Rolls-Royce
hanna bilinn að innan.
Hrcyknir forcldrar (i röndóttu buxunum) ásamt hlaupakappanum unga.
Sally Silva, 4 ára, á harðahlaupum i cinni maraþonkcppninni.
— fæst í búö
Iþeirra orða fyllstu merkingu má kalla þessa nýju „Ijósaperu" skinandi dtvmi um
framjárir í orkusparnaðarmálum.
„Peran” var kynnt nýlega á Hanover vorusýningunni margfrœgu. Hún er ekki
eyðslufrekuri en hver onnur 25 vatta pera en hirtan sem hún skilar mœlist vera ein 75
vött. Undrið nefnist Circolux og er sögð endast í 6.000 klukkustundir — kunnugir
segja það sexfalda endingu venjulegrar Ijósaperu.
Cireolux kostar vist rctt um 100 ísl. kr. Það her þó að hafu í huga að dýrðarljómar
hafa aldrei fengizt fyrir ekkert — að þvi ógleymdu að þeir hafa ekki verið á hvers
mannsfœrifyrr en nú.
Fjögurra ára
maraþonkappi
— hleypur 80 km á viku
Fjögurra ára að aldri er Sally Silva
orðin maraþonkappi. Hún hleypur að
meðaltali um 80 kílómetra á viku hverri
— svona til þess að halda sér við — og
hefur tekið þátt í fimm maraþon-
hlaupum. Lengsta hlaup hennar hingað
til mun vera um 17 kílómetrar.
Faðir hennar, Alfredo Silva, er
íþróttakennari og ákafur trimmari.
Hann segir Sally hafa hlaupið með sér
frá því að hún var 3 ára gömul.
Ekki fara neinar fregnir af að telpu-
hnokkinn hafi unnið nein hlaup, enn
sem komið er, en koma tímar koma
ráð. Ef hún er ekki efnileg hver er það
þá?
Ljóti andarunginn
breyttist í svan
Barbara Bach fyrr og nú
Nýja konan hans Ringo
Starr, Barbara Bach, segist
hafa verið „ljótur andarungi
með skakkar tennur” þegar
hún var lítil.
í ævintýrinu hans H.C. And-
ersen breyttist ljóti andarung-
inn í svan og allt endaði vel.
Samkvæmt því sem við bezt
fáum séð hefur töluvert rætzt
úr telpunni. Sautján ára gömul
var hún þegar orðin þekkt
fyrirsæta. Hún lék í einni Bond
myndinni og þangað hafa yfir-
leitt ekki valizt ljótustu konur í
heimi svo verra hefði þetta get-
að verið.
FÓLK