Dagblaðið - 21.05.1981, Side 10
IU
(
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
68. skoðanakönnun Dagblaðsins: Hvaða arm Sjálfstaaðisflokksins telurþú þig helzt styðja?
Gunnarsarmurinn kemur beztút
Gunnarsarmur Sjálfstæðisflokksins
kom bezt út þegar DB spurði stuön-
ignsmenn flokksins hvaða arm Sjálf-
stæðisflokksins þeir teldu sig helzt
styðja.
Klofningurinn í Sjálfstæðisflokkn-
um er opinn og hverjum landsmanni
ljóst að mikill hluti sjálfstæöismanna
skiptist í ,,arma” sem einatt berjast
hart innan flokksins og utan. Því er
áhugaverð spurning hvernig þeir, sem í
skoðanakönnun DB um flokkana tóku
afstöðu með Sjálfstæðisflokknum,
skiptast milli armanna. Dagblaðið
spurði þennan hóp þeirrar spurningar.
Um var að ræða 170 manns.
Niðurstöður urðu þær að 70 sögðust
styðja Gunnarsarminn, eða 41,1 pró-
sent af hópnum. 34 sögðust fylgja
Geirsarminum að málum, eða 20 pró-
sent. 10 kváðu sig styðja Albertsarm
flokksins, eða 5,9 prósent. 56 sögðust
ekki vilja taka áfstöðu til arma í Sjálf-
stæðisflokknum, eða 32,9 prósent af
hópnum.
Dagblaðið hefur ekki áður spurt
slíkrar spurningar i skoðanakönnunum
en svipaðar spurningar hafa verið
notaðar til aö fara nærri um hvernig
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins
skiptast. Þannig hefur DB sérstak-
lega athugað hvernig stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins greinast
í afstöðu til rikisstjórnarinnar. Út
hefur komið að nokkurt jafnræði væri
milli stuðningsmanna og andstæðinga
rikisstjórnarinnar í röðum sjálfstæðis-
manna. Þessir hópar hafa veriö ámóta
stórir. Dagblaðiö hefur einnig spurt
áður fyrr hvort stjórnmálamanninn
menn styddu frekar, Geir Hallgrímsson
eða Gunnar Thoroddsen. Þá hefur
Gunnar haft vinninginn, bæði meðal
stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins og
annarra, stundum i hlutfallinu 3:1
meöal sjáifstæðismanna.
í könnuninni nú fékk Gunnarsarm-
urinn tvöfalt fylgi á við Geirsarminn,
eins og fyrr segir.
Niflurstaflan um röð
armanna er marktœk
í þessu tilviki var veriö að athuga
hóp sem i voru 170 manns. Þegar
hópurinn verður tiltölulega litill geta
frávik orðið veruleg og mun meiri en í
stærri hópum. Því er eðlilegt að spurt
sé hvort rööin á „örmunum” sé mark-
tæk miðað við könnun DB á þessum
hóp. Stærðfræðilega má hugsa sér að
skekkja í niðurstööum geti orðið allt að
tvö standardfrávik, það er tvisvar
sinnum kvaðratrótin af útkomunni hjá
hverjum hóp. Samkvæmt því er fylgi
Gunnarsarmsins á bilinu 53 til 87, fylgi
Geirsarmsins á bilinu 22—46, Alberts-
armsins á bilinu 4—16 og þeir sem ekki
taka afstöðu eru frá 41 til 71. Tölfræði-
lega er niðurstaöan um röð armanna
því vel marktæk og öruggt að fullyrða
að Gunnarsarmurinn sé stærri en
Geirsarmurinn og Geirsarmurinn
stærri en Albertsarmurinn. Hér hefur
verið nefnd ein tölfræðileg aðferð við
mat á fráviki í slíkri könnun. Fleiri að-
ferðir koma að sjálfsögðu til greina við
slíkt mat. Rétt er að undirstrika að
mjög ólíklegt er að skekkjan nái því að
vera tvö staðalfrávik, húner að öllum
lfkindum mun minni í þessari könnun.
-HH
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu
þessar:
Gunnarsarmur...........70eða41,1%
Geirsarmur...............34eða20%
Albertsarmur..........10 eða 5,9%
Taka ekki afstöðu
tilarma................56eða32,9%
Ummæli fólks í könnuninni:
„HAFA FARIÐ
ILLA MEÐ
GUNNAR”
Geir Hallgrfmsson, formaður Sjálf-
stæðlsflokksins: fylgi 20% þeirra sem
afstöðu tóku.
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra:
fylgi 41,1% þeirra sem afstöðu tóku.
Albert Guðmundsson alþinglsmaður:
fylgi 5,9% þeirra sem afstöðu tóku.
Undirskriftir til styrktar
umbótum við heita lækinn
á annað þúsund undirskriftir af hentar f orseta borgarst jórnar
Hópur fólks, sem nefmr sig Sam-
stöðu, hefur staðið fyrir undirskrifta-
söfnun að undanförnu um tillögur til
æksilegra úrbóta á svæðinu við heita
lækinn í Nauthólsvík. Samstaða af-
henti Sigurjóni Péturssyni forseta
borgarstjórnar undirskriftirnar nú í
vikunni. Alls söfnuðust á annað þús-
undundirskriftir.
Þór Þ. Þorgrímsson, talsmaður Sam-
stöðu, sagöi í viðtali við DB að Sigur-
jón hefði veriö jákvæður og tekið vel í
umbætur við heita lækinn.
Samstaða er reiðubúin til samstarfs
við borgaryfirvöld til framdráttar um-
bótum við lækinn en aðstaða þar er
heldur frumstæð. Félagar i Samstöðu
telja að hundruð manna stundi böð i
heita læknum sér til heilsubótar og hafi
þannig fengið umtalsverðan bata. Þá
benda þeir á að lækurinn og umhverfi
hans gefi fjölskyldum tækifæri til þess
að vera saman úti í náttúrunni og það
innan borgarmarka Reykjavíkur.
Samstaða hefur samið umgengnis-
reglur fyrir þá sem nota lækinn þar sem
menn eru beðnir að ganga þrifalega um
og hlffa gróðri. ökutæki og hjól eru
ekki heppileg á hinum afmörkuðu
svæðum og menn eru beðnir að baða
sig ekki í nærfötum. Sápuþvottur fari
aðeins fram fyrir neðan neðsta fossinn í
læknum.
Dýraþvottur fari ekki fram í lækn-
um, ölvun verði bönnuð og notkun
gieríláta sömuleiðis vegna slysahættu.
Þá ættu menn að ganga um svæðið í
hlffðarskóm. -JH
Heiti lækurinn Nauthólsvfk er vinsæll,
sérstaklega á góðviðrisdögum. Ný-
stofnuð samtök til verndar læknum og
umhverfi hans hafa nú beðið borgar-
yfirvöld um bætta aðstöðu við læklnn.
„Ég styð Gunnarsarminn af því að
ég styð Pálma,” sagði karl i Húna-
vatnssýslu þegar hann svaraði spurn-
ingunni i skoðanakönnumnni. „Ég tel
að Gunnar hafi staðið sig bezt sjálf-
stæðismanna en flokksbræður hans
hafa farið mjög illa með hann. Ég vona
að þeim óhróðri ljúki fljótlega,” sagði
kona á Norðurlandi eystra sem sagðist
styðja Gunnarsarminn. „Styð Gunn-
arsarminn skilyrðislaust,” sagði karl í
sveit. „Ég er i Gunnarsarminum. Ef
Gunnar „reddar” þessu ekki gerir það
enginn,” sagði.karl úti á landi.
„Ég er í stjórnarandstöðu og fylgi
Geir,” sagði karl úti á landi. „Sjálf-
stæðismenn hljóta að styðja Geir,”
sagði konan í sveit. „Ég styð Geir. Ég er
alveg á móti Gunnari eftir þetta sem
hann gerði mínum flokki, Sjálfstæðis-
flokknum,” sagði kona á Vestfjörðum.
„Ég hef alltaf dáðst að Albert. Hann
hefur sjálfstæða stefnu, styður
stundum þennan, stundum hinn,”
sagði kona á Reykjavíkursvæðinu sem
taldi sig í Albertsarmi.
„Mér finnst hvorugur nógu góður,
Gunnar eða Geir,” sagði karl úti á
landi. „Ég styð Sjálfstæðisflokkinn,
ekki Gunnar eða Geir,” sagði kona á
Akranesi. „Það á að stokka upp í for-
ystu Sjálfstæðisflokksins. Þeir eiga
báðir að segja af sér í haust, Gunnar og
Geir,” sagði karl á Akureyri. „Þið, fjöl-
miðlarnir, eruð að splundra flokkn-
um,” sagði karl á Suðurnesjum. „Eru
komnir armar? Það er bara einn Sjálf-
stæðisflokkur og ég kýs hann,” sagði
karl í Hveragerði. „Eruð þið búnir að
búa til tvo Sjálfstæðisflokka? Ég segi
ekkert um neinn arm,” sagði karl á
Neskaupstað. - HH
GARÐE/GENDUR TAK/Ð EFT/R!
SELJUM MOLD
DAGANA 23. OG 24. MAÍ
PANTAN/R / S/MA
40314 OG 44026
HE/MKEYRSLA
LIONSKLÚBBURINN MUNINN, KÓPAVOGI