Dagblaðið - 21.05.1981, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1981.
Æskulýðsráð
Reykjavíkur:
Sumamámskeið
fyrirkrakka
hefjastbrátt
Sumarnámskeið sem Æskulýðsráð
Reykjavíkur hefur gengizt fyrir
undanfarin ár i æskulýðsmiðstöðv-
unum Fellahelli, Bústöðum og Þrótt-
heimum hefjast 1. júni næstkom-
andi. Innritun stendur nú yfir.
Námskeiðin eru ætluð krökkum á
aldrinum 7—12 ára. í Fellahelli
standa þau yfir í hálfan mánuð en i
eina viku i hinum miðstöðvunum.
Krakkarnir mæta kl. 10 að morgni og
eru á námskeiðinu til kl. 16. Farið er
með þá í leiki, iþróttir, ferðalög,
bæði innanbæjar og utan, siglingar
og ýmislegt fleira skemmtilegt.
Að sögn Sverris Friðþjófssonar,
forstöðumanns Fellahellis, hefur
yfirleitt verið mjög góð þátttaka í
námskeiðunum. Meiningin með þeim
væri að kenna börnum fleiri leiki og
þjálfa þau í að velja leiki sína sjálf.
-KMU
Sjómennfáelli-
lífeyrisextugir
— eftir25árastarf
á sjónum
Sú breyting á lögum um almanna-
tryggingar hefur nú verið samþykkt á
Alþingi að hver sem stundað hefur
sjómennsku i 25 ár eða lengur skal
eiga rétt á töku ellilifeyris frá og með
ðOáraaldri.
Starfsaldur sjómanna skal í þessu
sambandi miðast við að sjómaður
hafi verið lögskráður á íslenzkt skip
eigi minna en 180 daga á ári að
meöaltalií25ár.
Einnig voru gerðar breytingar á 12.
grein almannatryggingalaganna sem
fjalla um örorkustyrk. Eru þetta
heimildarákvæði sem heimila rýmk-
un réttar tjl örorkubóta, að settum
reglum Tryggingaráðs. -A.St.
Hundur
beittvöbörn
ogvar umsvifalaust
dæmdurtildauða
Á mánudag féll hundur i Hafnar-
firöi eftir að lögregluyfirvöld höfðu
kveðið upp yfir honum dauöadóm.
Hundurinn hafði gerzt sekur um að
bíta tvö börn, annað í enni, hitt í hné.
Hundurinn var með ól um hálsinn en
aö öðru leyti ómerktur.
Rannsóknarlögreglan syðra segir
að áverkar á börnunum séu ekki
taldir varanlegir.
Lögreglan iýsir hundahaldi (
Hafnarfiröi sem plágu og ótal kærur
berist vegna truflandi hávaða frá
þeim og annars ónæðis. - A.St.
Hrollvekjandi framtíðarsýn dregin upp ínýrri stefnuályktun
Evrópuráðsins um þróun heimsbyggðar:
Hemaðarútgjöld
30 sinnum hærri en
þróunaraðstoðin
— Ólaf ur Ragnar Grímsson flutningsmaður ályktunarinnar í Strassborg
Á fyrstu áratugum næstu aldar
gæti heildaríbúafjöldinn á „hótel
jörð” numið 8—12 milljörðum, sem
er nálægt því að vera hámark þess
fjölda sem getur þrifizt með góðu
móti á jörðinni. tbúaaukning jarðar-
innar mun nema nálægt 2 milljörðum
á næstu 20 árum. Mest fjölgun
verður í fátækari ríkjum og þar
munu margar borgir með 10—130
milljónum íbúa breytast i stjórnlaus
búsetusvæði fólks sem líður skort.
Þessar miður geðfelldu upplýs-
ingar koma fram í ítarlegri stefnu-
ályktun sem þing Evrópuráðsins sam-
þykkti í Strassborg fyrr í maimánuði.
Ólafur Ragnar Grímsson alþingis-
maður var flutningsmaður ályktunar-
innar. Hún er fimmtíu síðna saman-
tekt — byggð á skýrslum ýmissa al-
þjóðastofnana og annarra aðila.
Ályktunin ber yfirskriftina: „Þróun
heimsbyggðar: Þarfir mannkyns og
auðlindir jarðarinnar.” Þess eru
engin dæmi fyrr að islenzkur þing-
maður sé flutningsmaður að meiri-
háttar máli á vettvangi Evrópuráðs-
ins.
Framtíðarsýnin sem dregin er upp í
stefnuályktuninni er á köflum vægast
sagt hrollvekjandi. Á jörðinni búa nú
um 800 milljónir manna við sára fá-
tækt, hungursneyð og sjúkdóma.
Bilið milli rikra þjóða og fátækra
eykst. Þjóðartekjur þróunarland-
anna þyrftu að tuttugufaldast á
næstu árum til að þau yrðu sambæri-
leg við lífskjör Evrópubúa á siðasta
áratug. Innan 60 ára verða margir
mikilvægustu málmarnir i iðnaðar-
framleiðslu Vesturlanda gegnir til
þurrðar og eftir 40 ár verða allir
skógar sem hægt er að nýta í
þróunarlðndunum horfnir. Árlega
bætast við eyðimerkur jarðar svæði
sem svara til stærðar minni landanna
á meginlandi Evrópu.
Hálfur milljarður manna býr við
vatnsskort. Áætlað er að um næstu
aldamót muni tugir þjóða 1 Afrfku,
Asiu og Suður-Ameríku hafa nýtt til
fullnustu alla vatnsöflunarmöguleika
sína. í upphafi næstu aldar myndi öll
íbúaaukning í þessum heimshluta
leiða til óhugnanlegra vandamála
vegna vatnsþurrðar.
Lýst er yfir stuðningi við víðtækar
aðgerðir til að draga úr fólksfjölgun.
Evrópuriki eru hvött til að stuðla að
því að árið 1984 verði allt að 1000
milljónum dollara varið til þessa.
Hernaðarútgjöld ríkja eru sögð 30
sinnum hærri en gjörvöll aðstoð og
fjárframlög ríkra þjóða til hinna fá-
tækari. Hernaðarútgjöld á hálfum
degi myndu nægja til að fjármagna
útrýmingu á malaríu.
- ARH
Olafur Ragnar Grímsson flytur ræðu sina á Evrópuráðsþinginu í Strassborg.
Stúdenta
• •• r r
gjotm í a
frá Glit
Glæsilegir listmunir úr steinleir
sem vakiö hafa athygli heima og erlendis
Hannaðir af Eydísi Lúövíksdóttur og
Þór Sveinssyni. Vasi, skál eöa platti
— engir tveir hlutir eru eins.
Listgripir sem jafngaman er aö gefa
— og aó þiggja.
LAUGAVEGI 40
REYKJAVÍK SÍMI 16468
Pixall mkii
Langþráð lausn fyrir alla þá
sem fara vel með hljómplöt-
urnar og krefjast í staðinn full-
kominna tóngæða. Sérstök Ifm-
rúlla rffur til sfn öll óhreinindi á
augabragði. Einfalt, öruggt og
þægilegt.
Hljóðfærahús Reykjavfkur
Laugavegi 96 - Sfmi 13656
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615. 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
KJARAKJÖR
ÞARSEMALLT
ER GERT FYRIR
V/DSKIPTA VININN
EPLI8 KR. KG
SÉRLEGA GÓÐ
MATAREPU
7KR. KÍLÓIÐ
nW71-
KJUKLINGA
HAKK
A
KYNNINGARVERÐI
REYKSÍLDAR-
KÆFA
ALGJÖRT ÆÐI
NÝ REYKTUR
H0RNSTRANDA
RAUÐMAGI
SENDUM HEIM
SAMDÆGURS
KJARAKJ0
KÁRSNESBRAUT 93
KÓPAVOGI
SÍMI41920