Dagblaðið - 21.05.1981, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Bþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sigur AZ’67 ekki nógu stór!
— Ipswich sigraði í UEFA-keppninni 5-4 samanlagt eftir að hollenzka liðið sigraði
Ipswich Town sigraði i UEFA-
keppnlnni þrátt fyrir 4—2 tap gegn AZ
'67 Alkmaar i Amsterdam i gærkvöld.
í fyrri leik liðanna i Ipswich sigraði
enska liðlð 3—0 og þvi samanlagt S—4.
Það hefði þó ekki nægt Alkmaar-liðinu
að skora eitt mark til vlðbótar i gær.
Útimörkin hefðu þá ráðlð úrslitum.
„Fyrri hálfleikurinn er ein bezta knatt-
spyrna, sem sjást mun i úrslitaleik,"
sagði Bobby Robson, stjóri Ipswich,
við fréttamann Reuters eftir leikinn.
„Þvl miður töpuðum við UEFA-
keppninni á Englandi,” sagði George
Kessler, stjóri AZ ’67, og sagðist vera
mjög ánægður með frammistöðu liðs
sins eftir að Ipswich hafði skorað strax
i byrjun. Áhorfendur 22.000.
4-2ígærkvöld
Eftir aðeins 5 mín. skoraði Franz
Thijssen fyrir Ipswich með þrumufleyg
af 20 metra færi. Ipswich hafði þar
með fjögurra marka forustu. Leik-
menn Alkmaar-liðsins neituðu að gef-
ast upp. Á 7. mín. skoraði austurríski
landsliðsmaðurinn Kurt Welzl með
skalla og á 25. mfn. skoraði Johnny
Metgod, einnig með skalla. Spenna var
komin í leikinn. Staðan 4—2.
Hins vegar gerði John Wark allar
vonir leikmanna hollenzka liðsins að
engu, þegar hann skoraði annað mark
— fimmta samanlagt — Ipswich á 31.
mín. 14. mark Wark í UEFA-keppn-
inni og hann jafnaði þar með met Jose
Altafini, AC Milanó Ítalíu. Alkmaar
sótti miklu meira það sem eftir var
leiksins. Pier Tol kom liöinu yfir, 3—2,
á 40. mín. og síðan skoraði Jos Jonkers
á 73. mín. En AZ ’67 þurfti tvö mörk
til viðbótar og reyndi mjög en Paul
Copper, markvörður Ipswich, átti
snilldarleik og kom í veg fyrir að
mörkin yrðu fleiri. Liðin vorú þSnnig
skipuð.
AZ ’67 Alkmaar. Eddy Treytek,
Hans Rijnders, Ronald Spelbos,
Johnny Metgod, Hugo Hovenkamp,
Jan Peters, Kurt Welzl(Rick Talan),
Peter Arntz, Jos Jnnker, Kristen
Nygaard og Pier Tol (Kees Kist).
Ispwich. Paul Cooper, Mick Miils,
Steve McCall, Franz Thijssen, Russell
Osman, Terry Butcher, John Wark,
Arnold Mllhren, Paul-Mariner, Alan
Brazil og Eric Gates. -hsim.
Stórsigur
Barcelona
Úrslit i 8-llöa úrslitum spænsku
bikarkeppninnar í gærkvöld uröu
Vallecano — Barcelona 0—3
Sevilla — Burgos 4—1
Gijon — Real Madrid 1—1
Fra Kanya:
Fiil í
morgunheimsókn
Fornbflar:
Gamli gemsinn
gengur enn
m
Arngrímur hjá
Arnarflugi:
Flogið í
stríði
og f riði
Sumargetraun
1981
Pálmi Jónsson skorar hér annað mark FH meö þrumuskalla.
DB-mynd Friðþjófur.
ÞRtÐJA TAP FH
ÍRÖBÍGÆR!
—nú 2-3 í Kaplakrika fyrir Valsmönnum
Það leit út fyrir að Ingi Björn
Albertsson ætlaði að reynast
gömlu félögum sinum i Val erf-
iður i gærkvöld er FH og Valur
mættust I 1. deildinni. Þrátt
fyrir að hann væri augljóslega
ekki orðinn helll af meiðslum
þeim er hrjáð hafa hann f vetur
var það hann sem skoraöi fyrsta
mark leiksins. Fékk fallegan
stungubolta upp vinstri væng-
inn þar sem hans var illa gætt.
Ólafur Magnússon náði að
koma hendi á knöttinn en ekki
nóg til að stöðva hann á leið
sinni f netið. FH leiddi þvi 1—0
eftir 19 mfnútur.
Mistök
Eins og svo oft áður tókst FH
ekki að halda fengnum hlut
nema i örskamman tima.
Þremur min. síðar urðu Gunn-
ari Bjarnasyni á slæm mistök
innan vítateigs. Hilmar Sig-
hvatsson lagði knöttinn út til
Þorsteins Sigurðssonar sem
skoraði laglegt mark úr miðjum
vitateig. Rétt á eftir skoruðu
Valsmenn mark sem frá undir-
rituðum séð virtist fullkomlega
löglegt. Jón Gunnar Bergs
stökk upp með Hreggviði
Ágústssyni og boitinn barst út i
teiginn. Hann var sendur rak-
leiðis til baka en línuvörður
hafði veifað nokkru áður. Hafi
þar verið um brot á markverði
að ræða er full ástæöa til að
endurskoða þennan „heilag-
leika” markvarða innan víta-
teigs. Það virðist yfirhöfuð ekki
mega snerta þá.
Leikurinn sjálfur var ekki
ýkja beysinn knattspyrnulega
séð og nær allt spil sem sást var
í eigu Valsmanna. FH-ingar
ósannfærandi, þó engir eins og
varnarmennirnir sem hreinlega
virðast ekki með á nótunum
langtimum saman. Aðeins
Magnús Stefánsson virtist með
sjálfum sér. Sannast sagna
gerðist fátt markvert utan þess
er mörkin voru skoruð og strax
á upphafsmínútu náðu Vals-
menn forystunni. Hilmar Sig-
hvatsson skoraði þá úr nokkuð
þröngri stöðu án þess aö Hregg-
viður fengi rönd við reist.
Glœsilegt
Valsmenn sóttu áfram mun
meira en gekk illa að skapa sér
opin færi. Þriðja mark þeirra á
71. mínútu var hins vegar stór-
glæsilegt. Þorsteinn Sigurðsson
sendi þá langa sendingu frá
vinstri kanti inn í vitateiginn
hægra megin. öll sund voru
Hilmari Sighvatssyni iokuð þar
svo hann gaf snjalla hælsend-
ingu aftur fyrir sig til Njáls
Eiðssonar. Fast skot hans hafn-
aði i fjærhorninu en Hregg-
viður var vel staðsettur og hefði
átt að geta komið í veg fyrir
það.
FH-ingar voru ekki lengi að
svara fyrir sig og einnig það
mark var gullfallegt. Magnús
Teitsson sendi á 74. mínútu háa
sendingu fyrir mark Vals-
manna. Þar stökk Pálmi Jóns-
son hærra en aðrir og skallaði
hörkufast í netið. Þrátt fyrir
mikinn baráttuvilja leikmanna í
loldn sköpuðust engin færi að
heitið gat og ef nokkuð var voru
Valsmenn nær þvi að skora sitt
fjórða mark en FH-ingar að
jafna.
Lakvöm
Valsvörnin var sterk í leikn-
um og gaf FH ekki oft færi á sér
en Hafnfirðingamir tóku þau
sem gáfust höndum tveim. Dýri
og Þorgrímur, sem nú lék stöðu
miðvarðar, voru afar sterkir.
Njáll skemmtilegur tengiliður
svo og Jón G. Bergs þó svo
deyfð hafði verið yfir þeim
lengi vel framan af. Hilmar Sig-
hvatsson týnist inn á milli en er
stórhættulegur og skotfastur
með afbrigðum þegar hann
kemst á skrið. Auk þess að
skora eitt, lagði hann hin mörk
Vals upp. Hjá FH var eiginlega
enginn sem stóð upp úr. Liðið
virkar enn ekki sannfærandi
þrátt fýrir mörkin tvö í gær og
vörnina verður að þétta snar-
lega ef ekki á illa að fara.
Dómari í gær var Þóroddur
Hjaltalín og slapp ekki nema
rétt sæmilega frá sinu. Hafði
slæmt samband við línuverði,
var hikandi og seinn að dæma.
-SSv.
SCHUSTER SETTUR UT
Vestur-þýzki landsliðsein-
valdurinn, Jupp Derwall, sagði
i Bonn i gær, að hann hefði
ákveðið að setja Bernd Schúster
úr HM-liði sfnu gegn Finnlandi
á sunnudag. Hann truflaði að-
eins einlngu þýzku leikmann-
anna. Schúster mætti ekki i
samkvæmi, sem haldið var eftir
leik V-Þýzkalands og Brasiliu á
þriðjudag. í gær flaug hann til
Spánar til að lelka með Barce-
iona f hikarkeppninni. Þýzka
fréttastofan SID ræddi við
Schúster i gærkvöld og þá sagð-
ist ieikmaðurinn hafa beðizt af-
sökunnar á fjarveru sinni. Ætl-
aði að fljúga til V-Þýzkalands i
dag og sameinast landsliðs-
hópnum. „Það er engin ástæða
fyrir Schúster að koma,” sagði
Derwall í þýzka sjónvarpinu i
gærkvöld.
Enn markalaust hjá
Englandi á Wembley
England og Wales gerðu
markalaust jafntefli á Wem-
bley-leikvanglnum i Lundúnum
i gærkvöld i leiðinlegum leik i
brezku meistarakeppninni.
Leikurinn var beinlinis æfinga-
leikur beggja liða, sem búa sig
nú undlr þýðingarmikla HM-
leiki eftir 10 daga. Wales gegn
Sovétrikjunum og England
gegn Svlss.
SNILLDARMARKVARZLA
K0M í VEG FYRIR MÖRK
— þegar Fram og Víkingur gerðu jaf ntef li 0-0 í 1. deild í gærkvöld. Diðrik Ólafsson
„bezti leikmaðurinn” og Guðmundur Baldursson varði einnig mjög vel
„Ég er ekki alveg nógu hress með
þessi úrslit. Við áttum að fá bæði stig-
in, fengum tækifærin til þess og þetta
kemur allt hjá strákunum,” sagði
Diðrik Ólafsson, fyrirliði og markvörö-
ur Vikings, eftir að Fram og Víkingur
höfðu gert markalaust jafntefli, 0—0, á
Melavellinum f gærkvöld. Diðrik var
kjörinn af dómnefnd „bezti maður
leiksins”. Sýndi hreint frábæra mark-
vörzlu, þegar hann varði — og hélt
knettinum — hörkuskot Guðmundar
Torfasonar frá vitateigspunktinum tiu
min. fyrir leikslok.
Það var ekki rismikil knattspyrna,
sem liðin sýndu á Melavellinum enda
eru fiestir hættir að gera til þess kröfur
á malarvellinum.
Vikingur var áberandi sterkara liðið
lengstum og fékk betri tækifæri. Hins
vegar dofnaði leikur liðsins síðasta
stundarfjórðunginn. Þá munaði litlu
að Fram hrifsaði til stn bæði stigin.
Það hefði verið mjög ósanngjarnt.
Veður var mjög gott og áhorfendur
allmargir. Fram lék án Marteins Geirs-
sonar og það liðu ekki nema fimm mín.
þar til Magnús dómari Pétursson bók-
aði leikmann — Sverri Einarsson,
Fram. Knötturinn var miklu meira á
vallarhelmingi Fram í fyrri hálfleik en
ekki mikiil broddur í sókn Víkings.
Guðmundur Baldursson, markvörður
Fram, varði þó mjög vel á 10. mín.
Lagieg aukaspyrna Heimis Karlssonar
á Lárus Guðmundsson, sem spyrnti á
markið. Rétt fyrir lokin komst Lárus
einn í gegn en Trausti Haraldsson,
bezti maður Fram i leiknum og fyrir-
liði í fjarveru Marteins, komst með
mikiu harðfylgi fyrir Lárus. Þar
munaði ekki nema hársbreidd. Fram
fékk bezta tækifæri hálfleiksins, þegar
Albert Jónsson var óvaldaður rétt utan
markteigs. Skalli hans var hins vegar
laus og misheppnaður.
Fljótt í síðari hálfleiknum kom Pétur
Ormslev inn sem varamaður hjá Fram i
stað Guðmundar Steinssonar og sam-
leikur framherja Fram varð betri. Hins
vegar var hættan mun meiri hinum
megin. Guðmundur Baidursson varði
mjög vel frá Jóhanni Þorvarðarsyni,
síðan Lárusi eftir aukaspyrnu Heimis.
Síðan komst Lárus tvívegis i opin færi
með tveggja mín. millibili. Spyrnti í
báðum tilfellum yfir þverslá marks
Fram. Sannkallað dauðafæri í síðara
skiptiðeftiraukaspyrnu Heimis.
Undir lokin dofnaði yfir Víkingum
og Framarar voru hættulegir. Halldór
Arason kom frír inn fyrir vörn Víkings.
Diðrik varði mjög vel frá honum og
fimm mín. síðar náði Fram góðu upp-
hlaupi. Gefið fyrir. Tveir leikmenn
Fram fríir en náðu ekki til knattarsins,
sem barst út til Guðmundar Torfa-
sonar. Hörkuskot hans varði Diðrik
eins og áður er lýst.
Þeir Trausti og Guðmundur báru af í
Fram-liðinu, Pétur góður eftir að hann
kom inn á. Hins vegar brást miðjuspil-
ið nær alveg þó Ársæll Kjartansson
sýndi á stundum góða tilburði. Hjá
Víkingi varði Diðrik tvívegis mjög vel
en að öðru leyti reyndi miklu minna á
hann en Guðmund í Fram-markinu.
Helgi Helgason komst mjög vel frá
leiknum sem miðvörður. Bezti maður
liðsins — Magnús Þorvaldsson og
Jóhannes Bárðarson traustir í vörninni
en ungu strákarnir í framlínunni voru
ekki á skotskónum, þegar tækifærin
gáfust. Ómar Torfason mjög vaxandi
'lleikmaður.
í heild enginn glæsileikur og eitt er
vist, að bæði liðin geta betur. Það er
mikið spil í mörgum þessara stráka og
þeir hafa góða knatttækni, þó hún
njóti sín ekki sem skyldi á Melavellin-
um. -hsim.
Diðrik „maður leiksins.’
UNGLINGARNIR UNNU A NY
Aldrei fór svo að karlalandsliðinu i
golfi tældst að hefna ófaranna gegn
unglingunum frá þvi um daginn. Þá
sigruðu unglingarnir i höggleik og þeir
gerðu sér lítið fyrir og sigruðu karlana
einnig f holukeppni sem fram fór á
Hvaleyrinni f sannkölluðu golfveðri i
gærkvöld.
Leikar fóru þannig að unglingarnir
unnu 5 leiki en karlarnir 4 — einum
varð að sleppa vegna meiðsla Sigurjóns
R. Gíslasonar. Spennan var geysileg í
lokin því þegar 8 dúettar voru komnir
inn var staðan jöfn 4—4. Þeir síðustu
inn voru Gylfi Kristinsson, GS, og Geir
Svansson, GR. Eftir 16. holuna voru
þeir jafnir. Gylfi vann 17. holuna og
hélt svo jöfnu á þeirri 18. Vann því 1 —
0.
önnur úrslit urðu, sem hér segir
(unglingarnir taldir á undan).
Sveinn Sigurbergsson, GK, tapaði fyrir
Óskari Sæmundssyni, GR, 1—2, Sig-
urður Pétursson, GR, vann Július R.
Júlíusson, GK, 2—0. Magnús Jóns-
son, GS, tapaði fyrir Sigurði Hafsteins-
syni, GR, 0—1, Hilmar Björgvins-
son, GS, vann Ragnar Olafsson, GR,
2—1, Ásgeir Þórðarson, NK, vann
Þorbjörn Kjærbo, GS, 1—0, Gylfi
Kristinsson, GS, vann Geir Svansson,
GR, 1—0, Sigurður Sigurðsson, GS,
vann Jón Hauk Guðlaugsson, NK, 4—
2, Magnús Stefánsson, GR, tapaði fyrir
Eiríki Jónssyni, GR, 0—1 og loks tap-
aði Héðinn Sigurðsson, GK, fyrir
Hannesi Eyvindssyni, GR, 2—4.
-SSv.
HM- draumur Norð-
manna úr sögunni
Mlðherjinn Laszlo Kiss skoraði tví-
vegis siðustu þrettán minúturnar f HM-
leik Noregs og Ungverjalands i Osló i
gærkvöld. Mörldn færðu Ungverjum
sigur i leiknum en Hallvar Thoresen
hafði náð forustu fyrir Noreg á 55.
min. Það leit þvf lengi vel allt annað en
vel út fyrir Ungverja. En eftlr þessi úr-
slit standa þeir mjög vel að vigi. Hafa
hlotið flmm stig úr þremur leikjum i 4.
riöll.
Ótrúlega auðveldur
sigur Akumesinga!
—sigruðu Eyjamenn 3-0 á Akranesi f gær í einstef nuleik
Frá Sigþóri Eirikssyni, Akranesl.
Akuraesingar unnu hrelnt ótrúlega
auðveldan sigur á Eyjamönnum hér á
malarvellinum á Jaðarsbökkum i gær-
kvöld. Lokatölur 3—0 og sannast
sagna var leikurinn nánast einstefna að
marki Eyjamanna aUan timann. Komu
yflrburðir heimamanna verulega á
Guðbjörn Tryggvason skoraði tvö
marka ÍA i gær og hefur skorað 3 mörk
i 1. deild — er markahæstur.
óvari þvf búizt hafði verið við jöfnum
og spennandi leik.
Skagamenn hófu sókn strax er
flautað var og henni linnti ekki fyrr en
blásið var til leiksloka af ágætum
dómara leiksins, Róbert Jónssyni.
Strax á 10. min. átti Árni Sveinsson
skalla rétt yfir markið en sex min. síðar
leit fyrsta markið dagsins ljós. Árni átti
þá þrumuskot af vítateig, sem Páll
Pálmason varði. Hann hélt ekki
knettinum, sem barst til Sigþórs
Ómarssonar, sem skoraði af öryggi.
Kristján Olgeirsson átti gott skot rétt
yfir þverslá áður en Skagamenn skor-
uðu annað markið.
Árni Sveinsson tók þá hornspyrnu,
gaf vel fyrir markið þar sem Sigurður
Lárusson stýrði knettinum fyrir fætur
Guðbjörns Tryggvasonar, sem skoraði
léttilega á 37. mín. Staðan var því 2—0
i hálfleik og eini kafli leiksins þar sem
framherjar Eyjamanna sáust eitthvað
var í upphafi síðari hálfleiksins. Þá átti
Kári Þorleifsson tvívegis góð skot á
stuttum kafla. Það fyrra fór framhjá
en hið síðara varði Bjarni Sigurðsson
vel. Kári var eini framherji Eyjamanna,
sem eitthvað kvað að í leiknum.
Skagamenn náðu fljótt fyrri tökum á
leiknum og sóknirnar buldu á Eyja-
vörninni. Akranes-liðið leikur 4-2-4 og
fyrir vikið er allur annar bragur á
sóknarleiknum. Páll varði glæsilega
þrumuskot Sigþórs Ómarssonar á 56.
min. og rétt á eftir átti Guðbjörn skalla
yfir þverslá. Að þriðja markinu hlaut
að koma og það kom á 67. minútu.
Árni Sveinsson tók þá aukaspyrnu
rétt innan vallarhelmings Eyjamanna
og sendi háan knött i átt að markinu.
Guðbjörn Tryggvason stýrði knettinum
snyrtilega í netið án þess að Páll mark-
vörður eða varnarmenn ÍBV fengju
rönd við reist. Það sem eftir lifði leik-
tímans var lítið um opin færi en greini-
legt að heimamenn voru sáttir við stöð-
una eins og hún var.
Þeir Jón Alfreðsson, Sigurður
Lárusson og Kristján Olgeirsson voru
beztu menn Akurnesinga en Kári Þor-
leifsson sá eini hjá Eyjamönnum, sem
eitthvað kvað að. Páll verður ekki sak-
aður um mörkin. Ef Eyjamenn sýna
ekki betri leik en þennan þurfa þeir
varla að gera sér vonir um að verða í
toppbaráttunni í sumar.
Eftir þessi úrslit eru hins vegar sára-
lítil von fyrir Norðmenn að komast í
úrslitakeppnina. Af skrifum norskra
mátti þó spá i að það væri létt verk.
Ungverska liðið sýndi allt annað en
sannfærandi leik í gærkvöld þrátt fyrir
sigurinn. Á 55. mín. splundruðu tveir
„útlendingar” í norska liðinu vörn
Ungveijalands. Ame Lars ökland, sem
leikur með Bayer Leverkusen, gaf á
Twente-leikmanninn Thoresen sem
skoraði. Kiss jafnaði með góðu marki á
77. mín. og á 80. mín. skoraði hann sig-
urmarkið. Fyrra markið skalli eftir
hornspyrnu og það var heldur gegn
gangi leiksins. Hið síðara gott skot af
20 metra færi.
Staðan í 4. riðli er nú þannig:
England 4 2 11 7—3 5
Ungverjaland 3 2 1 0 5—3 5
Rúmenía 4 12 1 3—3 4
Noregur 4 112 4—8 3
Sviss 3 0 1 2 4—6 1
-hsfm.
STAÐAN
í 1. DEILD
Staðan f 1. deildinni er nú þessi eftir
leikina i gær:
Valur
Akranes
Vikingur
ÍBV
Fram
KR
Breiðablik
KA
Þór
FH
Næsti leikur er i kvöld kl. 20 og leika
þá KR og KA á Meiavellinum.
ÞJÁLFARI
óskast til 3ju deildarliðs Reynis, Sandgerði, í handknatt-
leik. Æskilegt að hann sé einnig leikmaður.
Uppl. veita: Heimir Morthens, simi 92-7600, og
Grétar Mar Jónsson, sími 92-7473.